Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2002, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.09.2002, Side 32
F.RETTASKOTIÐ SIMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 5M 5555 Viðbótarlífeyrissparnaður Allianz® - Loforð er loforð FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 2002 Sími: 533 5040 - www.allianz.is Ólafur Davíðsson: Afsögnin kom mér í opna skjöidu Ólafur Daviðsson, formaður ffam- kvæmdanefndar um einkavæðingu, sagði í samtali við DV í morgun að af- sögn Steingríms Ara Arasonar úr nefndinni hafi komið sér í opna skjöldu. Hann vildi ekki tjá sig um efnisatriði málsins en um störf nefttd- arinnar almennt segir hann: „Allt einkavæðingarferlið hefur alltaf verið undir eftirliti Ríkisendurskoöunar." Þingflokkur Samfylkingarinnar segir í ályktun í gær að í afsagnar- bréfi Steingríms Ara felist ásökun um að pólitísk afskipti hafl leitt til ákvörðunar um að selja Landsbank- i ^ ann á undirverði. Á meðan þetta standi óhrakið sé brostinn trúnaður milli nefndarinnar og almennings og því óhjákvæmilegt að slá frekari sölu á hlutabréfum ríkisins í ríkisbönkun- um á frest. „Ég veit ekki hvenær einkavæðing- amefnd hefur notið trausts hjá Sam- íylkingunni þannig að ég sé ekki að það sé í sjálfu sér neitt nýtt í þessari ályktun," sagði Vilhjálmur EgUsson formaður efnahags- og viðskipta- neindar í morgun. Samfylkingin hefur farið fram á fund í nefndinni með einkavæðingar- nefnd og Steingrími Ara. VUhjálmur segir venju að verða við óskum um fundi í þingnefndum en minnir á að Ríkisendurskoðun - sem sé stofnun á vegum Alþingis - hafi verið falið að rannsaka vinnubrögð einkavæðingar- nefndar í málinu. Skynsamlegt sé að bíða hennar. ÓTG Sjá nánar á bls. 2. Ollum hafnað Dómnefnd hefur hafnað öUum tU- lögum um gerð útlUistaverks fyrir framan Þjóðarbókhlöðuna að sunnan verðu. AUs bárust 58 tUlögur í sam- keppni sem hleypt var af stokkunum í aprU sl. Var það samdóma álit dóm- nefndarmanna að engin þeirra tU lagna, sem bárust, uppfyUti þær vænt- ingar sem gerðar hjefðu verið um listaverkið og því var þeim öUum hafnað. -JSS ID EINN EINNTVEIR NEYÐARLlNAN LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ A5TAND5SK0LI STENDUR UNDIR —NAFNII í starfi og leik Þaö er líf og fjör í Áslandsskóla í Hafnarfiröi þótt miklar umræöur séu um starfiö þar þessa dagana. Börnin una sér í starfi og leik enda spennandi aö byrja í skólanum á haustin. Þiju tungl é um jörðu ^ Tunglið, sem sveimað hefur um-i hverfis jörðina lengur en elstu menn ’ muna, er ekki lengur eitt á slíku ferða- lagi. Svo virðist sem tunglin séu orðin í þrjú ef marka má nýjar upplýsingar' frá bandarískum stjömuáhugamanni og RÚV greindi frá í gær. Tungl núm-1 er tvö fannst árið 1986 og nefnistP Cruithne. Braut þess umhverfis jörðu er skeifulaga og er það undir áhrifum j frá aðdráttarafli jarðar og mánans. Bill Yeung, stjörnuáhugamaður frá Arizona, kom fyrir nokkru auga á dul- á arfullt smástirni eða geimdrasl og til- kynnti fundinn til stofnunar Massachusetts sem hefur með smá- stimi og aðskotahluti í geimnum að| gera. Fékk það skráningarnúmerið ’ J002E2. Talið var í fyrstu að um ein- hvers konar klump eða geimgrjót væri j að ræða sem hafi verið á leið fram hjá I jörðu en dregist inn í aðdráttarsvið jarðar og tungls og ekki sloppið þaðan < aftur. Samkvæmt athugunum sérfræð- p inga er þetta fyrirbæri nú á braut um jörðu og fer umhverfts hana á 50 dög- um. Kenningar eru um að þarna sé á I ferð flakið af gamalli útbrunninni eld- * flaug eða annað geimdrasl en sérfræð- ingar draga i efa að svo sé. -HKr. Bréf kennara og leiðbeinenda í Áslandsskóla til fræðsluráðs: Vilja urbætur 112 liðum Kennarar og leiðbeinendur við Áslandsskóla telja að ákvæðum grunnskólalaga sé ekki uppfyllt í skólanum hvað varðar að skóla- stjóri sé forstöðumaður skólans, stjórni honum, beri ábyrgð á starfl hans og veiti honum faglega for- ystu. Verkaskipting milli Skarp- héðins Gunnarssonar skólastjóra, Sunitu Gandhi framkvæmdastjóra og tengsl íslensku menntasamtak- anna sé ekki skýr og geri það kennurunum erfitt fyrir í starfí. Þetta segir meðal annars í bréfi frá kennurum og leiðbeinendum Áslandsskóla til fræðsluráðs Hafn- arfjarðar. Bréfið var tekið fyrir á fundi ráðsins í fyrradag. Það er í 12 liðum og fara kennararnir fram á úrbætur í þeim öllum. í bréfinu kalla þeir eftir vinnu- skýrslum og vinnuramma sem þeir eigi rétt á samkvæmt kjarasamn- ingum. Þá telja þeir að vinnuálag í skólanum sé of mikið og ekki sé gert ráð fyrir nægjanlegum undir- búningstíma. Kennaramir fara fram á að sýnt verði fram á að hægt sé að vinna það sem til sé ætlast innan dagvinnumarka. Skilvirk kennsluúrræði Þá vilja þeir að sýnt sé fram á skilvirk sérkennsluúrræði fyrir þá nemendur sem þess þurfi, sam- bærilegt og gerist i öðmm gmnn- skólum Hafnaríjaröar. Þeir vilja jafnframt að farið sé að gildandi samþykkt skólanefndar Hafnar- ijarðar um að fjöldi nemenda í bekkjardeildum sé takmarkaður. í bréflnu fara kennarnir enn fremur fram á að kennararáð verði stofnað og taki tafarlaust til starfa í Áslandsskóla, svo sem ráð sé gert fyrir i gmnnskólalögum, og einnig skólanámskrá til að vinna eftir. Setja þurfl skýrar reglur um út- hlutun úr skólastjórapotti og ganga frá þeim greiðslum þegar í stað. „Við forum fram á að fá deildar- stjóra fyrir hvert aldursstig og þúsund eintökum dreift ókeypis á höfuðborgarsvæðinu og til áskrifenda DV fasta stigsfundi einu sinni í viku,“ segir áfram í bréflnu. „Markviss- ari kennarafundi þar sem ekki er einungis fjallað um almenn skipu- lagsmál innan skólans, heldur það sem snýr að kennslunni. Við krefj- umst þess að hætt verði við aldurs- blöndun í bekkjum. Setja þarf nið- ur fasta stundaskrá fyrir nemend- ur sem breytist ekki yflr vetur- inn.“ Undir þetta rita 13 kennarar sem segjast vonast eftir úrbótum fyrsta, þar sem ríkjandi óvissa í skólastarfi torveldi kennurum og leiðbeinendum að vinna starf sitt. Á fundinum kom fram að fræðslustjóri hefði kallað eftir upp- lýsingum frá skólastjóra Áslands- skóla í 27 liðum en þær hefðu enn ekki borist né heldur skýrsla um skólastarflð á síðasta ári. í fundargerð kemur fram að „fræðsluráð lýsir áhyggjum sínum á því ástandi sem ríkir í skóla- starfi í Áslandsskóla". Niðurstöður fundarins urðu þær að formanni fræðsluráðs og fræðslustjóra var falið að kalla stjórnendur skólans á sinn fund þar sem farið yrði yfir málin. -JSS DV Magasín kemur út í fyrsta sinn í dag en það mun hér eftir koma út á fimmtudögum. Útgefandi er Útgáfufé- lagið DV ehf. og er blaðið undir stjóm ritstjómar DV. Magasín er gefið út í 80 þúsund eintökum og dreift ókeypis í öll hús á höfuðborgarsvæðinu og til allra áskrifenda DV á landsbyggðinni. Meginefni Magasins er ýmiss konar mannlífsefni þar sem áhersla er lögð á samspil texta og ljósmynda, auk þess sem birtar em helstu upplýsingar um hvaða dægradvöl sé í boði og einnig hvað sé á dagskrá útvarps- og sjón- varpsstöðva. Meðal efnis í þessu fyrsta tölublaði Magasíns er viðtal við Mar- gréti Frímannsdóttur alþingismann og Frímann Baldursson, son hennar, en hann lenti sem lögregluþjónn í alvar- legu mótorhjólaslysi fyrir skömmu. Sagt er frá presti sem var vígður með kossi á munninn, sömuleiðis em birt- ar myndir úr skemmtanalífi liðinnar helgar, fylgst með kveðjuhófi frétta- konu, sagðar fréttir af fræga fólkinu og fjallað um kvikmyndir, bíla og veiði. Er þá aðeins fátt eitt nefnt af fjöl- breyttu efhi Magasíns. Stefán Kristjánsson hefur yflram- sjón með útgáfunni, jafnt efni sem hönnun, en honum til aðstoðar er Sig- urður Bogi Sævarsson blaðamaður. Auk þeirra koma flestir starfsmenn ritstjómar DV aö útgáfúnni. Heitt úr prentvélinni Fyrstu blööin renna úr prentvél Árvakurs undir vökulum augum DV- manna. Jónas Haraldsson, aöstoöarritstjóri og ábyrgöarmaöur Magasíns, er lengst til vinstri, Hjalti Jónsson, framkvæmdastjóri DV, er með blaöiö í höndunum en Siguröur Bogi Sævarsson og Stefán Kristjánsson fylgjast meö. Talaðu við okkur um sGÁ^ Auðbrekku 14, sími 564 2141

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.