Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2002, Síða 24
24 H&'ic) <* rb lct ö H>"Vr LAUGARDÁGU R 28. SEPTEMBER 2002 Matur og vín Umsjón Gunnþóra Gunnarsdóttir Lambalifur Lambalifur er holl fæða þvíhún er afar auðuq af i/ítamínum og steinefnum, einkum inniheldur hún mikið af A vítamíni oq járni. Sumir leqqja hana íbleqti ímjólk ísvo sem klukkutíma fqrir eldun til að milda braqðið sem fellur ekki öllum ígeð. Til að lifrin sé sem meqrust er hún léttsteikt eða qrilluð stutta stund en hún er eins oq egq, harðnar eftir þvísem hún er elduð lengur. Lifur er qjarnan matreidd með lauk oq jafnvel beikoni og þqkir sósan af henni afbraqð. Lifur er líka qóð íbuff. Þá er hún hökkuð, ásamt lauk og blönduð með hveiti, eqgi og krqddi oq steikt á pönnu. Lambalifur qetur líka notast ílifrarkæfu sem er krqdduð oq bökuð í vatnsbaði en alqenqasta notkun lambalifrar hér á landi hefur þó líkleqa lenqst af verið t lifrar- pqlsu oq flokkast slík matreiðsla undir „sláturqerð“. Þá er lifrin hökkuð, blönduð með mjólk, rúqmjöli, haframjöli, salti oq mör, troðið íkeppi sem saumaðir eru úr vömb og síðan soðin í tvo til þrjá tíma. Ljúffeng ef hún er lítið elduð - segir Anna Vala Eyjólfsdóttir, matreiðslumaður á Þremur Frökkum „Ég get ekki sagt að ég sé oft með lifur á borðum heima en hún getur samt verið finasti matur ef rétt er með hana farið,“ segir Anna Vala Eyjólfsdóttir, matreiðslumaður á Þremur Frökkum. Hún kveðst vilja gefa DV góða uppskrift að steiktri lifur. Bætir þó við að lambalifur sé frekar erfitt hráefni því mörgum þyki bragðið of sterkt og ýmsir hafi líka hvekkst vegna þess að þeir hafi fengið hana ofsteikta og ofsoðna. „Lifur þarf nefnilega svo litla eldun,“ segir hún. Anna Vala er nýlega búin i námi við mat- reiðsluskólann og segir að þar hafi verið sérstaklega fjallað um lifur og unnið mark- visst með hana til að fá hana ljúffenga. „Lifur er auðvitað svo sérstaklega holl og ódýr í innkaupum að einskis má láta ófreistað til að gera úr henni góðan mat. Það gengur ekki að þjóðin hætti að neyta hennar bara af því að bragðlaukarnir mót- mæli, þá fer hún svo mikilla bætiefna á mis.“ segir hún. Anna Vala lætur ekki sitja við orðin tóm heldur býr til krassandi rétt úr þessu kjarngóða hráefni. Hér kemur uppskriftin hennar og hún er miðuð við ijóra. Steikt lifur með rauðlauk og gráð- ostasósu 800 a lifur 1 ferskur chilipipar salt pjpar basilolía Chili er skorið smátt og lifrin pipar og steikt aðeins, hlið. með eina mínútu með oli- unni. Þar á er lifrin sett, krydduð chili, salti og í senn á hvorri Sultaður rauðlaukur 6 rauðlaukar 2 msk. svkur 1 msk. olía 1 dl balsamik 1 dl rauðvin Rauðlaukurinn er skorinn í sneiðar og svissaður í olíu i potti þar til hann er mjúkur. Sykri bætt í og hann látirin leysast upp. Þá er balsamik og rauðvíni bætt í og soðið hægt niður í ca 1/2 klukkustund. Gráðostasósa 1/2 hvítur laukur 80 o aráðaostur 4 dl matreiðsluriómi 2 msk. ribsberiahlaup 1 dl vatn salt pipar olía Laukurinn er saxaður smátt og svissaður í potti. Rjómanum bætt í og þá gráðaostinum, vatninu og hlaupinu. Bragðbætt með salti og pipar. Soðinu af lifrinni hellt saman við í lokin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.