Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 DV Fréttir Jónína Bjartmarz um umfjöllun DV á ofbeldi í undirheimunum: Telur blaðið ganga erinda handrukkara - með því að auka á ótta fólks Jónína Bjart- marz alþingismað- ur, formaður heil- brigðisnefhdar og varaformaður alls- herjarnefndar Al- þingis telur að með fréttaflutningi DV að undanfómu af alvarlegum lík- amsmeiðingum handrukkara sé verið að ganga erinda handrukkaranna með því að auka ótta fólks og blása málið upp. Þetta kom m.a. fram í þættinum Reykjavík síð- degis á Bylgjunni í fyiradag. Þar ræddu þáttastjómendur við þær Jón- ínu og Þorgerði Katrínu Gunnarsdótt- ur, formann allsherjamefndar Alþing- is, um ofbeldi í undirheimum, lög- Jónína Bjartmarz. gæslumál, fjárveitingar til þeirra og fleira. Um umfjöllun DV um ofbeldi og fantaskap handrukkara sagði Jónína í útvarpsþættinum: „Þegar maður les einhverjar svona fréttir í Dagblaðinu eins og voru í dag þá veltir maður þessu fyrir sér. Em menn ekki þama að ganga erinda þess- ara manna, vegna þess að þetta eykur ótta þegar aö menn lesa um þetta. Hins vegar, þegar menn snúa sér til starfs- manna slysadeildarinnar, þá kannast menn ekki við að fá menn svona leikna inn á slysadeildina...Þetta segir okkur á ákveðinn hátt að það er verið að blása þetta svolítið upp með umfjöllun Ofbeldi undirheimani ÞrlöJI hlutl og blása málið „svolítið4* upp wp- íðist inn i hús og jaxlar dregnir úr karlmanni Frétt DV á miövikudag. í blöðum og slíku. Við erum ekki að segja að vandamálið sé ekki til stað- ar...“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nefhdi að áverkar þar sem borað væri í hnéskeljar fólks hefðu hvergi verið skráðir. Ekki væri að efa aö fólk myndi leita til sjúkrahúsanna ef um slík meiðsli væri að ræöa. „Viö erum í sjálfu sér ekkert að rengja sannleiksgildi þessara frá- sagna,“ bætti Jónína við. „Það eina sem við erum að segja er að þetta er stundum dálítið hlásið upp, eins og til dæmis þessi fréttaflutningur sem verið hefur í Dagblaðinu, við Þorgerður erum sammála um það, þetta eykur ótta. Fólk tekur þetta trúanlegt." Jónína sagði að allsherjamefhd hefði reynt að átta sig á umfangi vand- ans með viðtölum við aðila sem þekkja til þessara mála. Hún hefði komist að því að „þetta væru kannski fáir ein- staklingar. Þetta væri ekki svona rosa- lega mikið" eins og margir héldu fram en kannski nógu alvarlegt fyrir fólk sem lenti í því. Jónína mælti eindregið með því að þeir sem yrðu fyrir reynslu af hand- rukkurum hringdu í neyðarlínuna, 112. -JSS Stjórnmálamenn ábyrgir fyrir þessum málaflokki: upplifi þetta sem dugleysi - segir Mummi í Götusmiðjunni sem hafði upplýst allsherjarnefnd Hopnauðganir, ham leggs- og fingurbrol - (rtiLum iníoli..... , , ... Frétt DV í fyrradag. „Stjómmála- menn eru ábyrg- ir fyrir þessum málaflokki. Þeir geta aldrei fríað sig og skellt skuldinni á DV eða einhvem annan. Ég upplifi þetta ástand sem dugleysi," segir Mummi í Götu- smiðjunni um það ofbeldi sem við- gengst í undirheimunum. DV hefur fjallað ítarlega um þessi mál að und- anfömu. Greint hefur verið frá at- viki þar sem ráðist var inn í hús í Garðabæ um miðja nótt og jaxlar dregnir úr manni. Hópnauöganir, handleggs- og flngurbrot eru aðferð- ir handrukkara, þegar flkniefna- neytendur hafa ekki getað staðið í skilum. Heyrst hefur af notkun bor- véla þar sem borað hafi verið í axl- ir manna og hnéskeljar. Jón Bald- ursson, yfirlæknir á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss, segist kannast við slíkan orðróm en ómögulegt sé að segja til um orsak- ir áverka ef gefnar séu upp falskar ástæður. „Ég er orðinn þreyttur á að hlusta á að þetta sé verra í Alsír, við séum jafngóð og Finnar og þetta sé í meðallagi ágætt, sem þýðir að 200 manns séu í tjóni og 200 manns hafi það gott. Þessi ofurmálefnalega um- ræða hefur skaðað okkur,“ sagði Mummi við DV. Fyrir nokkru var hann kallaður ásamt fleirum á fund allsherjamefndar þar sem þeir voru beðnir um að gera grein fyrir ástandinu á götunni. Mummi kvaðst hafa greint skilmerkilega frá því og tekið enn harðar til orða heldur en hann gerði í DV í fyrra- dag. „Ég stend við hvert orð sem ég hef sagt um þessi ofbeldis- mál,“ sagði hann. „Ofbeldið hefur versnað, það er oröið miklu grófara og ógeðslegra en áður. Ég hef séð ófáa með laus- ar tennur, brotnar tennur, glóðarauga og sprungnar var- ir. Ég veit um tvö tilfclli, sem ég hef persónulega komið að, varðandi tvær ungar konur sem var hópnauðgað. Ég hef séð ungt fólk í gifsi eftir bein- brot. Ég hef setið heima í stofu hjá foreldrum þegar sonur þeirra var í maski eftir bar- smíðar. Þarf ég að segja meira? Það sem ég sagði í DV í gær er rétt, því miður, og fyrsta skrefið til að leysa vandann er að viðurkenna hann.“ -JSS AUGLÝSING um kosningarétt íslenskra ríkisborgara sem búsettir eru erlendis Samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis hafa íslenskir ríkisborgarar sem flust hafa af landi brott og sest að erlendis kosningarétt hér á landi í átta ár frá því þeir fluttu lögheimili sitt, talið frá 1. desember næsta fyrir kjördag. Þeir eru því sjálfkrafa á kjörskrá þann tíma. Að þessum átta árum liðnum falla þeir af kjörskrá nema sérstaklega sé sótt um að fá að halda kosningarétti. Því þurfa þeir sem vilja vera á kjörskrá en fluttu af landi brott fyrir 1. desember 1994 og hafa verið búsettir erlendis síðan að senda umsókn til Hagstofu íslands fyrir 1. desember 2002 til þess að halda kosningarétti. Kosningarétturinn gildir til 1. desember 2006. Kosningaréttinn þarf að endumýja með nýrri umsókn eftir 1. desember ári áður en hann fellur niður Umsókn skal senda Hagstofu íslands en eyðublöð fást í sendiráðum íslands erlendis, sendiráðsskrifstofum, skrifstofum kjörræðismanna og hjá fastanefhdum við alþjóðastofrianir. Einnig er hægt að fá eyðublöðin á afgreiðslu Hagstofunnar og á heimasíðu hennar: http://www. hagstofa.is/deildir/theydubl.htm Umsækjandi verður sjálfur að undirrita umsókn sína. Einungis þeir sem einhvem tíma hafa átt lögheimili á íslandi geta haft kosningarétt hér á landi. Kosningarétturinn fellur niður ef íslenskur ríkisborgari gerist ríkisborgari í öðm ríki. Kosningaréttur miðast við 18 ára aldur. Reglur þessar gilda með sama hætti um kjör forseta íslands en ekki um kosningar til sveitarstjómar. Sé umsókn fullnægjandi verður umsækjandi tekinn á kjörskrá í því sveitarfélagi þar sem hann síðast átti lögheimili á íslandi samkvæmt þjóðskrá. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 8. október 2002. DV-MYND TErTUR Forsetar opnuðu lyflaverksmlöju Balcanpharma Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og Georgy Parmanov, forseti Búlgar- íu, opnuöu lyfjaverksmiöju Balcanpharma í Búlgaríu í gær. Balcanpharma í Búlgaríu: Verksmiðja opnuð DV, BÚLGARlU: Ólafur Ragnar Grímsson, forseti ís- lands, og Georgy Parmanov, forseti Búlgaríu, opnuðu formlega nýja full- komna lyfjaverksmiðju Balcanpharma i Tupniza í Búlgaríu í gær. Bygging verksmiðjunnar hefur tekið undra- skamman tíma en ár er liðið frá því byrjað var aö grafa grunninn. Björgólfur Thor Björgólfsson, stjóm- arformaður Pharmaco, sagði í ræðu sinni viö þetta tækifæri að það væri lyginni líkast hve vel framkvæmdin hefði gengið. Taldi hann opnun verk- smiðjunnar afar ánægjulega fyrir fjár- festa því verkefnið hefði staðist bæði tíma- og fjárhagsáætlun. Bygging verk- smiðjunnar kostaði um 15 milljónir dollara eða um 1300 milljónir íslenskra króna. Balcanpharma á einnig lyfja- verksmiðjur á tveimur öðrum stöðum í Búlagríu, í Troyan og Razgrat. Sindri Sindrason, framkvæmda- stjóri Balcanpharma, þakkaði góð samskipti við búlgörsk yfirvöld og breska fyrirtækið Austin sem sá um • fýamkvæmdimar. Þá þakkaði hann Jóni Bergssyni verksmiðjustjóra röggsemina við framkvæmdimar. Forsetar íslands og Búlgaríu lögðu báðir áherslu á mikilvægi þessa verk- efiiis með hliðsjón af þeim öflugu sam- skiptum sem þau leiddu tO milli land- anna. -H.Kr. Citjition-einkaþotan: I líffæra- flutningum Einkaþota Maris ehf. hefur haft nóg að gera eftir að hún kom hing- að til lands fyrir nokkrum dögum. Bjöm Rúriksson framkvæmdastjóri félagsins sagði í gær að byrjunin lof- aði góðu um framhaldið. Þotan kom í fyrradag til landsins frá Ósló og London með viðskiptavini og á fimmtudag flaug hún til Kaup- mannahafnar með líffæri og sér- fræðinga. Einmitt á þessu sviði kemur einkaþota að góðum notum, bæði þegar flytja þarf líffæri með miklum hraði og eins þegar sjúk- lingur þarf að komast í skyndingu á erlent sjúkrahús. Jóhannes Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Landspítalanum, sagði í gær að einkaþotan gæti kom- ið að góðum notum á þessu sviði. Þó ber þess að geta aö líffæraflutningar héðan og til Rigshospitalet í Kaup- mannahöfn, þar sem er eins konar „banki" fyrir líffæri, upplýsinga- söfnun um fáanleg liffæri og þörf fyrir þau víða í Vestur Evrópu, eru afar fátiðir. Venjulega koma dönsku sérfræðingamir á eigin flugvél og fljúga til þeirrar borgar þar sem líf- færisins er þörf. -JBP Hæstiréttur: Dómurinn kom á óvart „Þessi niðurstaða Hæstaréttar kom mér á óvart," sagði Kolbrún Sævars- dóttir lögfræðingur um dóm Hæsta- réttar vegna ráðningar í stöðu sýslu- manns á Keflavíkurflugvelli. „Það kom mér á óvart að meiri hluti dómsins skyldi ekki taka meira tillit til niðurstöðu kærunefndar jafn- réttismála heldur en raunin varð,“ sagði Kölbrún við DV í morgun. Dómi héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem varðaði ráðningu Jóhanns R. Benediktssonar í embætti sýslu- manns var hnekkt í Hæstarétti í gær. Kolbrún Sævarsdóttir lögfræðingur sótti einnig um stöðuna og taldi að hún hefði ekki verið ráðin vegna kyn- ferðis. Hún höfðaði mál á hendur rík- inu og vann í héraðsdómi. Hæstirétt- ur komst að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið á jafnréttislögum og sneri dómnum ríkinu í hag. -JSS Vambahreinsun: Mánaðarstarf- semi án leyfa „Við höfum tekið á móti umsókn Sláturfélagsins um starfsleyfi vegna vambahreinsuninnar. Við komum til með að vinna með hana áfram. Umsóknir sem þessi fara fyrir Heil- brigðisnefnd, sem kemur næst sam- an 16. október," sagði Elsa Ingjalds- dóttir við DV í gær. Eins og Steinþór Skúlason, for- stjóri SS, sagði DV frá í gær hafði fyrir vangá láðst að sækja um leyfi fyrir vambahreinsun i gróðurhúsi á Selfossi í byrjun sláturtíðar. Starf- semi án fullnaðarleyfis hefur því verið í gangi í tæpan mánuð þegar heilbrigðisnefnd úrskurðar um leyfi til starfseminnar. -NH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.