Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 8
8______
Útlönd
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
DV
REUTERSMYND
Slasaö barn flutt burt
Sjúkraflutningamenn flytja slasaö
barn frá verslanamiöstöö nærri
Helsinki þar sem öflug sprenging
varö fimm manns aö bana undir
kvöld í gær. Tugir slösuöust.
Fimm týndu lífi í
sprengingu við
verslanamiðstöð
Fimm manns týndu lífi þegar
sprengja sprakk í fjölsóttri versl-
anamiöstöð í nágrenni Helsinki
undir kvöld i gær. Að sögn finnskra
yfirvalda slösuðust þrjátíu manns.
„Fimm eru látnir og þrjátíp slas-
aðir hafa verið fluttir á sjúkrahús á
Helsinki-svæðinu," sagði Leif Jo-
hansson, aðstoðarforstjóri neyðar-
hjálpar í bæjarfélaginu Vantaa, viö
fréttamenn í hinni risastóru Myyr-
manni verslanamiðstöð.
Seppo Kujala, aðcdvarðstjóri lög-
reglunnar í Vantaa, sagði of
snemmt að segja til um ástæður
sprengingarinnar sem varð á
annarri hæð verslanamiðstöðvar-
innar. Hann sagði að ekki væri
hægt að útiloka sprengju.
Enn einn maður skotinn á færi í Bandaríkjunum:
Talið að leyniskytt-
an hafi drepið á ný
Skeggrætt við veiöikofann
Vladimír Pútín Rússlandsforseti og
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, ræddust viö um íraksmálið í
og viö veiöikofa f gær. Leiötogarnir
uröu ekki sammála.
Rússlandsforseti
lét ekki sannfær-
ast í íraksmálinu
Vladimír Pútín Rússlandsforseti
hafnaði í gær málaleitunum Tonys
Blairs, forsætisráðherra Bretlands,
um að styðja harðorða yfirlýsingu
Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
um Irak. Þá vísaði hann á bug ásök-
unum um að írakar réðu yflr gjör-
eyöingarvopnum, sagði að Rússar
hefðu ekki séð neinar haldbærar
sannanir þar um.
Eftir viðræðumar viö Blair úti-
lokaði Pútín þó ekki að hann myndi
styðja ásættanlegar aögerðir tU að
tryggja að vopnaeftirlitsmenn SÞ
gætu unnið starf sitt í írak á eðlileg-
an hátt.
Talsmaður Hvíta hússins sagði
fréttamönnum í gær að bandarísk
stjómvöld væm farin að undirbúa
það sem koma skal eftir að dagar
Saddams Husseins á forsetastóli í
írak eru taldir. Borgaralegri stjóm
yröu afhent völdin svo fljótt sem
auðiö yrði eftir brotthvarf Saddams.
Maður var skotinn til bana á
bensínstöð í Virginíu skömmu eftir
hádegið að íslenskum tíma í gær, á
sama tima og lögregla í nágrenni
Washington DC leitaði dyrum og
dyngjum að leyniskyttu sem hafði
þá orðið sjö manns að bana.
Óttast er að sami maður hafl ver-
ið aö verki í gær, þótt lögreglan í
Virginíu segði enn of snemmt að
segja til um það. Fómarlambiö var
skotið við fjölfarinn þjóðveg nærri
Fredericksburg, sunnan við Was-
hington.
„Við erum að svipast um eftir
hvítum Chevy Astro sendibíl sem
sást stefna í norður eftir þjóðvegi
1,“ sagði Lucy Caldwell, talsmaður
lögreglunnar í Virginíu.
Lögreglan fór þegar út á alla
helstu vegi í nágrenninu og stöðv-
aði alla hvíta sendibíla og önnur
grunsamleg farartæki. Þremur
akreinum vegarins frá Fredericks-
burg til Washington var lokað
vegna leitarinnar og varð af því
mikið umferðaröngþveiti.
Árásin í gær var sú íjórða sem
átti sér stað á bensínstöð og þetta
var í annað skipti sem byssumaður-
inn lét til skarar skríöa aðeins örfáa
metra frá lögreglustöð. Leyniskytt-
an notar öflugan riffll til ódæðis-
verkanna og hún velur fórnarlömb
sín af handahófi.
íþrótta- og menningarviðburðum
sem áttu að 'vera um helgina hefur
verið frestað af ótta við að
REUTERSMYND
Leitaö í hvítum sendibíl
Grímuklæddur lögregluþjónn leitar í hvítum sendibíl á þjóövegi 95 í Springfield
í Virginíu í gær, ekki langt frá þar sem enn einn maður var veginn úr launsátri.
Taliö er aö leyniskytta sem leitaö hefur verið aö hafi veriö þar aö verki.
leyniskyttan kynni að beina byssu
sinni að mannfjölda eða skjóta á
börn að leik úti við.
Ekki var liðinn nema hálfur ann-
ar sólarhringur frá því leyniskyttan
drap sjöunda fórnarlamb sitt þegar
hún lét byssuna aftur tala, ef gert er
ráð fyrir að um sama skotmann hafi
verið að ræða í gær. í öll skiptin
hefur byssumaðurinn skotið fómar-
lömb sín aðeins einu skoti.
Mikill ótti hefur gripið um sig á
þeim slóðum þar sem morðin hafa
verið framin, enda aUa jafna rólegt
í þessum úthverfum bandarísku
höfuðborgarinnar.
Sjá nánar um málið á bls. 12.
Klaustursteinn (grár)
kr. 1.590,- m2 stgr.
(áður kr. 1.900)
Klaustursteinn og vinna við lögn » frá kr. 4.390,- m2 stgr.
,
, ; | ^ ; i | v j
jiíjL gplmtu/ m jjJ/jjjjíjJiajrjiJjjJ'
Vj3S J fii'ö’jj’éjúuhij’ íjJ jJJi ifú l>$ jjiSl
HELLUSTEYPA JVJ
sala@hellusteypa.is • www.hellusteypa.is
VAGMHÖFÐA 17 110 REYKJAVÍK SlMI: 587 2222