Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 10
10 DV LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoóarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíó 24, 105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerö og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viötöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Hrottana úr Ofbeldi í undirheimum hérlend- is, einkum í tengslum viö fikni- efnamál, er lýst sem ógeðslegu, miskunnarlausu og subbulegu. DV hefur undanfarna daga rakiö gróf- ar líkamsmeiðingar og hótanir sem viðgangast við innheimtu fikniefnaskulda, ýmist af völdum þeirra sem telja sig eiga útistandandi skuldir eða svokall- aðra handrukkara á þeirra vegum. Afleiðingar þessa ofbeld- is þekkja læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk, ekki síst það sem vinnur við meðferö og endurhæfmgu fikla, auk lög- reglu. Fullyrt er af þeim sem til þekkja að ofbeldið eigi eftir að aukast, verði ekkert að gert, enda séu í hópi þeirrar kyn- slóðar sem síðastliðin sex ár hefur verið að komast á fullorð- insár, einstaklingar sem séu ógnvænleg tilfelli. Ofbeldislýsingarnar eru þesslegar að almenningur stend- ur höggdofa. Fullyrt er að beitt sé hópnauðgunum. Borvélar eru sagðar notaðar til líkamsmeiðinga ásamt hótunum. Tennur eru brotnar, handleggir og fingur. Nýlegt dæmi var nefnt af innheimtufautum sem brutust inn á heimili fólks um miðja nótt og drógu jaxla úr húsráðanda. Þar var um að ræða einstakling sem ánetjast hefur fikniefnum og lenti í vítahring og klóm fíkniefnasala sem einskis svífast. Þessa fanta þarf að stöðva. Krafan er sú að lögregluyfir- völd tryggi öryggi þeirra sem stendur ógn af framferði þess- ara miskunnarlausu hrotta. Vandinn er hins vegar sá að fá- títt er að fólk í þessari stöðu kæri ofbeldi og ógnanir. Það óttast um líf sitt og tekur því nauðbeygt grimmum örlögum sínum. Mörg dæmi eru þess einnig að foreldrar verði að greiða stórfé vegna fíkniefnaskulda barna sinna. Jón Baldursson, yfirlæknir á slysadeild Landspítala - há- skólasjúkrahúss, segir að stundum vakni grunur um að eitt- hvað æði misjafnt hafi gerst þegar fólk kemur illa haldið á deildina. Hins vegar sé það sama fólk duglegt við að fela hlutina, sérstaklega ef það tengist fíkniefnaviðskiptum. Það getur gefið hvaða skýringar sem er og engin leið sé að sann- reyna hvað gerst hafi. Þetta fólk kærir ekki til lögreglunn- ar, segir Jón. Annar læknir, Þórarinn Tyrfíngsson, formað- ur framkvæmdastjórnar SÁÁ, gagnrýnir lögreglu fyrir að beita sér ekki meira fyrir því að taka ofbeldismenn úr um- ferð, frekar en að eltast við að sanna á fólk brot vegna fíkni- efnaneyslu. Þórarinn bendir á að það fylgi eðli fíkniefnabrotanna að kæra ekki þótt viðkomandi sé beittur ofbeldi. Hann vill að lögreglan leggi fremur áherslu á ofbeldisbrotin en ljóstra upp um neytendur. Oft sé auðveldara aö sanna ofbeldisbrot- in enda sjást sönnunargögnin á fórnarlambinu. Ofbeldis- mennina eigi því að draga af hörku fyrir dóm. Þá þurfi að taka úr umferð en lögreglan hafi ekki yfir að ráða sérstök- um mannafla til að sinna því hlutverki, afla sannana, leita uppi þrjótana og vemda þá sem á þurfa að halda. Lögreglan bendir á aö það eina sem hún geti gert sé að draga meinta árásarmenn fyrir lög og dóm en það sé erfitt að gera nema fyrir liggi kærur. Því hvetur hún alla sem fyr- ir ofbeldi verða að kæra. Eðli ofbeldismála er þannig, segir Hörður Jóhannesson yfirlögregluþjónn í Reykjavík, að þol- andinn er þar lykilvitni. Það eru skilaboðin sem verða að ná í gegn. Fórnarlömb ofbeldis og hótana búa vissulega við skelfingu um enn verri meðferð en árangur næst ekki nema sagt sé til fantanna og ofbeldið kært. í þeim málum þurfa fórnarlömbin, og að- standendur þeirra, að sýna hugdirfsku um leið og treysta verður á að dómstólar komi árásarlýðnum úr umferð og að lögregla geti veitt þeim vernd sem hafa kjark til að kæra. Öðruvísi verða árásir hrottanna ekki stöövaðar. Jónas Haraldsson umferð Baltimore-bréf tSigmundur Ernir Rúnarsson Ritstjórnarbréf Á leið minni um alþjóðaflug- völlinn i Fíladelfiu á dögimum settist ég niður á litlum matsölu- stað og bað um bjór og samloku. Ég átti von á tveimur brauðsneið- um með skinku og osti á milli þeirra og það varð vissulega raunin. En annað eins magn af áleggi á milli tveggja brauðsneiða hef ég ekki áður séð. Ég taldi lög- in af meðfæddri forvitni. Það voru sextán lög af tvenns konar skinku og fjögur lög af þykkum osti. Ég er ágætlega munnstór en þama var ég kominn í nokkurt óefni. Þegar ég settist upp i flugvélina í Fíladelfíu horfði ég nokkuð felmtri sleginn í kringum mig. Maðurinn i næstu sætaröð þurfti tvö sæti. Og konan sem sat við hliðina á mér bað flugþjóninn um lengingu á öryggisbeltið. Hinum megin við mig sátu bústin hjón, hann sýnu þreknari en hún, enda bað hann líka um lengingu á ör- yggisbeltið. Sjálfur hef ég átt við þau vandræði að stríða að vera fimm kílóum fyrir ofan kjör- þyngd. Þarna á flugleiðinni til Baltimore hurfu þau kílóin mín. Mér fannst ég vera rindill. „Small pizza“ Á venjulegum hamborgarastað í Ameríku er ekki lengur seldur lítill skammtur af máltíð. Aðeins miðlungs, stór, risastór og ofur- stór. Þegar ég í heimsku minni bað um lítinn skammt af ostborg- ara á einum skyndibitastaðanna i Ameríku var svarið á að giska einfalt: „We dont sell them small anymore." Ég hváöi, en af- greiðslustúlkan útskýrði fyrir mér að það tæki því ekki lengur að selja litla borgara. Og heldur ekki litið gosglas eins og ég hafði beðið um, aðeins miðlungs og stærri. Á einum pitsastaðanna í Amer- íku taldi ég mig komast í þunnt. „Small pizza“ stóð þar skýrum stöfum við hliðina á hinum stóru og risastóru. Ég pantaði eina litla, viss um að loks fengi ég mál- tíð að mínu magamáli en ekki einhverja hlussu sem sæti hálf eftir á diskinum þegar ég hefði fengið fylli mína. En viti menn, borði mínu barst á að giska tólf tomma pitsa og svo þykk og ríf- lega hlaðin af áleggi að mig setti hljóðan um stund. Ég reyndi að gera mér þær hinar stærri pits- umar í hugarlund. Stóra steikin Nokkrum dögum seinna var ég staddur ásamt nokkrum öðrum blaðamönnum víða að úr heimin- um á vinsælum amerískum steik- arstað. Við ætluðum að gera okk- ur dagamun eftir vel heppnaða ráðstefnu og hver okkar pantaði steik að sínum smekk. „Look at this one,“ sagði einn úr hópnum og var ekki laust við að hann kæmist í nokkra andnauð með matseðilinn fyrir framan sig. Honum hafði reiknast til að stærsta steikin á seðlinum væri næstum 1200 grömm að þyngd. „Eftir nokkurra daga Ameríkuvist lœra útlend- ingar, sumir langt að komnir, á fœðukerfi heimamanna. Tveir út- lendingar kaupa sér einn skammt af máltíð og fá að deila honum á tvo diska. Stundum, sérstak- lega í tilfelli fíngerðra kvenna, geta þrír slegið saman í einn rétt. Og hann dugar, mikil ósköp. “ Þetta þótti okkur ekki aðeins vel boðið heldur nóg boðið. Risasteik fyrir 28 dollara og reyndar litlu dýrari en hefðbund- in steik og því kannski um að gera að panta sér þá stóru af praktískum ástæðum! „Þetta dygði heilu þorpi heirna," sagði sá okkar sem var frá Sambíu og það hnussaði í honum. Við spurð- um þjóninn hvort þær væru vin- sælar þessar. „Sure,“ var svarið. Saman pöntuðum við fimm blaða- menn viða að úr heiminum steik- ur sem vógu til samans það sama og sú stóra. Deilt á diska Eftir nokkurra daga Ameríku- vist læra útlendingar, sumir langt að komnir, á fæðukerfi heimamanna. Tveir útlendingar kaupa sér einn skammt af máltíð og fá að deila honum á tvo diska. Stundum, sérstaklega í tilfelli fin- gerðra kvenna, geta þrír slegið saman í einn rétt. Og hann dugar, mikil ósköp. Eins getur verið sér- staklega hagkvæmt að panta sér risagosglas og deila því á milli nokkurra manna. Stærsta gos- glasið sem varð á vegi okkar tók hálfan annan lítra. Okkur útlendingunum varð tíð- rætt um útlitið á æði mörgum Ameríkumanninum. Ekki það að við góndum endalaust á holdafar- ið heldur hitt að stundum þurfti að líta undan. Nú er svo komið að þriðjungur fullorðinna Banda- ríkjamanna á við offitu að stríða. Innan fimmtán ára er óttast að hlutfall offeitra verði helmingur fullorðinna. Nær fimmtungur krakka frá tólf til átján ára er tal- inn vera of feitur. Það hlutfall hefur vaxið hratt á skömmum tíma. Offita er stærsti heilsuvand- inn vestra. Hugsað heim Bandarikin eru ofurstórt land í mörgum skilningi. Og aðgangur fólks að mat er með þeim hætti að þjóðin er bókstaflega að þenjast út. Þegar sá sem þetta skrifar sat svo dögum skipti með starfs- bræðrum sínum frá Afríku og Austurlöndum og ræddi um am- eríska holdafarið varð honum öðru hvoru hugsað heim. Og því miður klingdu ýmsar bjöllur. Minningar úr sundlaugunum heima komu fram í hugann en þar kemur þjóðin fram hvað fá- klæddust. Og hefur fitnað með ár- unum, mikil ósköp. Ekki síst íslensk ungmenni. í sundlaugunum er ekki lengur undrunarefni að sjá þrútin börn af burði sínum. Þau koma vagg- andi eftir stéttinni og anda þung- lega niður stigann í heita pottinn. Það verður erfitt fyrir þau að halda aftur af sér í mat. Það er einu sinni svo að á íslandi er að- gangur að mat að verða með sams konar hætti og vestanhafs. Allt er að stækka. Lítil gosflaska er að víkja fyrir hálfs lítra flösku. Stór skammtur af frönskum að taka við af litlum. Og maður á jú að klára matinn sinn. Máttlaust tal Ofíita er að verða eitt helsta heilbrigðisvandamál allra Vestur- landa. Það er undarleg þversögn en minnihluti þeirra efnuðu í heiminum glímir við aukakfíóin á meðan meirihluti fátækra í heiminum berst fyrir brauði sínu. Á þeirri öld eða svo frá því yfirvöld viða um heim fóru að gera sér grein fyrir misskiptingu auðs í heiminum hefur bilið á milli feitra og fátækra farið vax- andi. Þrátt fyrir allar aðgerðir og aðstoð um áratugaskeið hefur misskiptingin fest sig í sessi og öfgamar aukist. Á ferð með Afríkubúum um ótal vegu Ameríku er ekki laust við að Vesturlandabúi eins og sá sem þetta skrifar skammist sín fyrir þá ofgnótt af mat sem vellur út úr dyrum hjá offramleiðslu- rikjunum. Allt tal um eina jörð og eina veröld verður á að giska máttlaust þegar sest er niður á amerísku steikarhúsi og svartur starfsbróðir fer að rifja upp raunalegar sögur af fólki sínu í Sambíu og Simbabve. Maður legg- ur matseðilinn frá sér hugsi. En svo pantar maður steik. Enn eina - og gleymir sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.