Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 14
14 LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Fréttir DV Hafís hefur Meðalhitinn í september var tölu- vert yfir meðaltali í Reykjavík, og það sama má segja um júnímánuð en tíðar- farið var mjög gott um sunnan- og vest- anvert landið. Einstakur hlýindakafli stóð dagana 3. til 17. júní og voru hita- met slegin víða um land. M.a. komst hitinn í Reykjavik í 22,4° þann 11. júní og er það hæsti júníhiti sem mælst hef- ur á Veðurstofunni. Hlýindakaflanum lauk með miklu úrfelli þ. 17. og 18. júní á norðan- og austanverðu landinu og sólarhringsúrkomumet féilu unnvörp- um á Austfjörðum og við Tröllaskaga miiii Eyjafjarðar og Skagaíjarðai'. Stór hluti mánaðarúrkomunnar féll þessa daga. I Reykjavík var meðalhitinn 10,8° sem er 1,8° yfir meðallagi og hefur ekki orðið svo hlýtt í Reykjavík í júní síðan 1941 en þá var hitinn 11,5°. Úrkoman mældist 34,4 mm sem er 2/3 hlutar meðalúrkomu og sólskinsstundir voru 186,4 sem er 25,4 stundum umfram meðailag. Á Akureyri var meðalhitinn 9,5° og er það 0,4° yfir meðallagi. í Reykjavík var meðalhitinn 9,4” í september sem er 2° yfir meðallagi. Úr- koman mældist 124,2 mm sem er tæp- lega tvöföld meðalúrkoma og sólskins- stundir mældust 76,1, 48,9 stundum færri en venja er. Álíka hlýtt var í sept- ember i fyrra en fara þarf aftur tO árs- ins 1959 til að finna meiri mánaðarúr- komu, þá var hún 156,5 mm. Sólskins- stundir voru talsvert færri í september 1996. Á Akureyri var meðalhitinn 9,2° sem er 2,9° yfir meðallagi. Úrkoman mældist 80,8 mm, rúmlega tvöföld með- alúrkoma, og sólskinsstundir 81,4 sem er 3,6 stundum undir meðallagi. Mun hlýrra var á Akureyri 1996,11,4”, og síð- ast mældist meiri úrkoma í september árið 1981, 96,6 mm. Hlýjasti september var 1939 Hlýjasti septembermánuður síðan árið 1901, er mælingar hófust hérlend- is, var árið 1939, en þá var mjög hlýtt það sumar, og reyndar í hugum Evr- ópubúa, svo upp úr sauð 1. september er Hitler réðst á Pólland. Þá mældist meðalhitinn 11,43’ en meðalhiti þess árs var 5,9”. Næst kemur september 1941 með 11,14” og meðalhita ársins 07/1997 • Beinskiptur Ekinn 133 þús. km Verð 1.070.000 kr. NISSAN PRIMERA SLX 11/1997- Sjálfskiptur Ekinn 64 þús. km Verð 960.000 kr. 10/2000 ■ Sjálfskiptur Ekinn 36 þús. km Verð 1.460.000 kr. V Opiðfrákl. 12 til 16 laugardag Veðurfarið er að taka miklum breytingum: á Grænlandssundi hopað um 800 km DV-MYND Jl Hlýindaskeiðiö um allt land hefur haft sínar neikvæðu hliðar Áin Kolgríma í Suöursveit hefur skolaö burtu nær 100 metra vegarkafla á þjóövegi 1, oggert tún bóndans aö Skálafelli eins og yfir hafsjó aö líta. En fjallaferöalangar gleöjast en enn eru þeim allir vegir, eöa vegleysur, færir. 5,91” og loks september 1958 með 11,37” og meðalhita 5,02". Árið 1979 var hins vegar mjög kalt ár, enda við þá á hraðri siglingu inn í kuldaskeið. Þá var með- alhiti septembermánaðar 5,47” og með- alhiti ársins 2,85°, eða nær helmingi minni en árið 1939. Árið 2001 var með- alhitinn hins vegar 5,16”. Sumarmánuðimir júni til september voru vætusamir og sólarlitlir en frem- ur hlýir. Aðeins í júnímánuði var sól- ríkara en venja er í Reykjavík en á Ak- ureyri var sólskin alla sumarmánuðina undir meðallagi. Sérlega vætusamt var í ágúst og september. Magnús Jónsson veðurstofustjóri segir að ljóst sé að íslendingar sem og nágrannar okkar séu að fara inn í hlýindaskeið sem bera megi saman við hlýindaskeiðið árin 1930 til 1960. Það sé því ekki hægt að tala um gróð- urhúsaáhrif í þessu sambandi og svo virðist sem margir gleymi því að koltvísýringur í lofti hafi vaxið um- talsvert vegna þess hversu mikið hafi verið brennt af kolum og olíu á síð- ustu öld, og sé gert enn. Koltvísýring- ur aukist því þó eitthvað af honum brotni í högunum. Upp úr 1970 sigld- um við inn í kuldaskeið og þá hafði enginn á takteinum nein sérstök um- hverfisáhrif. Sveiflur í hitafari séu því ofur eðlilegar. Trausti Jónsson veðurfræðingur seg- ir að þó hiti hafi verið yfir meðaltali í september séu fyrstu 9 mánuðir ársins ekki hlýrri en í meðalári, mörg ár hafi verið betri, en sérstakur kuldakafli í 09/2001 • Beinskiptur Eklnn 9 þús. km Verð 1.330.000 kr. 02/1996 • Sjálfskiptur Ekinn 91 þús. km Verð 770.000 kr. MAZDA 626 GLX 07/1998 • Sjálfskiptur Ekinn 76 þús. km Verð 1.440.000 kr. 07/1996 • Beinskiptur Ekinn 107 þús. km Verð 850.000 kr. Ingvar Helgason notaðir bílar Sævarhöfða 2 • Sími 525 8020 ■ www.ih.is/notadir ^ febrúarmánuði hafi dregið meðaltalið verulega niður. Tíðarfarið í sumar og haust hefur valdið því að vatnsbúskapur Lands- virkjunar er óvenju góður og uppi- stöðulónin á hálendinu fylltust óvenju snemma. Rigningar að undanfömu hafa litlu bætt þar við. Enginn hafís milli íslands og Grænlands Hitinn í hafinu hefur einnig vaxið, einkum norðan við landið, sem valdið hefúr sumum sjómönnum áhyggjum, ekki síst þeim sem stunda rækjuveiðar. En fátt er svo með öliu iilt að ekki boði nokkuð gott. Enginn hafís er nú á Grænlandssundi milli íslands og Grænlands, og mun minna magn þar sem hann er en í meðalári. Hafis finnst norður við 77. gráðu, eða við Dan- markshavn, en venjulega heldur ís- röndin sig við 70. gráðu, eða við Score- bysund, eða um 780 km sunnar, á þess- um árstíma. Það er því hægt að sigla til Danmarkshavn, sem hefur verið óþekkt til þessa í októbermánuði. Jökl- ar hafa einnig verið að hopa á Græn- landi, svipað og á íslandi. í gær var 3,5° hiti í Scorebysundi og 6,6” á Jan Mayen en 4,6” frost á Danmarkshavn sem er þó mun minna frost en menn eiga að venj- ast á þessum árstíma. Ekkert fararsnið á fuglunum „Mér finnst að það hafi verið hlýrra síðustu haust en áður hér á Dalatanga, en hér hef ég búið síðustu 34 ár. Síðasta vor var þó eitthvað kaldara. Það eru þó ekki fleiri sól- skinsstundir en áður en þetta ruglar fuglana í ríminu því hér er enn þá fullt af lóum, skógarþröstum og hrossagaukum, og það er ekkert far- arsnið á þeim. Sjórinn hér fyrir aust- an hefur þó ekkert hlýnað eins og fyr- ir norðan og í vor sögðu mér sjómenn á Mjóafirði að sjórinn væri mun kald- ari en í meðalári, eða 2 til 3",“ segir Marsibil Erlendsdóttir, veðurathug- unarmaður á Dalatanga. „Ég hef verið hér við veðurathuganir á Staðarhóli í Aðaldal í 41 ár og ég minnist þess ekki að hér hafi verið svona langur hlýindakafli að hausti. Hitinn hefur heldur ekki farið svo mik- ið niður á nætumar, hann fór ekki nið- ur fyrir 12 stig síðustu nótt og hefur far- ið upp í 19 stig á daginn. Það er hæð austan við land og við í einhveijum hitabeltisstreng þama á milli hæðarinn- ar og lægðar sunnan við land, svo þetta hafa verið dýrlegir dagar í Þingeyjar- sýslu. Svo hefur snjó alveg tekið upp á stöðum í Kinnafjöllum sem ekki hefur gerst áður í mínu minni. Einnig hefur snjó alveg tekið upp úr Grísartungufjöll- um og það er einstakt. Þetta veður nú er nánast ótrúlegt,“ segir Hermann Hólm- geirsson veðurathugunarmaður. Ný verksmiðja í Búlgaríu Búlgarsk-íslenska lyíjafyrirtækið, Balkanpharma, opnaði nýja lyfja- verksmiðju í Dupniza í gær. Með nýju verksmiðjunni verður lyija- framleiðsla fyrirtækisins rúmir 13 milljarðar taflna á ári, þar af 10 milljarðar í Búlgaríu. Um 2,5 millj- arðar verða framleiddir hjá Pharm- amed á Möltu og 1,1 milljarður hjá Delta og Omega Pharma á íslandi. Forseti Islands og forseti Búlgaríu voru viðstaddir opnun verksmiðj- unnar ytra. Mannbjörg þegar ísfell sökk Leiguskip Samskipa, ísfell, sökk í gærmorgun um 30 sjómílur undan ströndum Egersunds í Noregi. Sex manna áhöfn var um borð og kom- ust allir frá borði. Samskip fékk ís- fellið afhent fyrir um tveimur vik- um og hafði það farið í gegnum miklar breytingar. ísfell sigldi áður á vegum Samskipa undir nafninu Gullnes. Vinsaéll og óvinsæll Davíð Oddsson forsætisráðherra ber höfuð og herð- ar yfir aðra stjórn- málamenn bæði hvað varðar vin- sældir og óvinsæld- ir. Þetta eru niöur- stööur skoðana- könnunar DV. Alls sögðu 36,8% að- spurða að Davíð væri sá stjórnmála- maður sem þeir hefðu mest álit á. Um 30,3% sögðu aftur að þeir hefðu minnst álit á Davíð. Næstvinsælast- ur stjómmálamanna er Steingrímur J. Sigfússon með 13,6% fylgi og næstóvinsælastur er Össur Skarp- héðinsson með 17,8% fylgi. Flóttamenn farnir Flóttamannafjölskyldurnar sem settust að á Blönduósi árið 1998 eru farnar þaðan. Auk þess eru allir flóttamennimir sem komu þangað árið 1999 fluttir úr bænum. Á ísa- firði er aðeins eftir ein þriggja manna fjölskylda af þeim 30 manna hópi flóttamanna sem settist þar að árið 1996. Sjö þúsund á Rembrandt Metaðsókn hefur verið á sýning- una Rembrandt og samtíðarmenn hans sem nú stendur yfir í Lista- safninu á Akureyri. Um sjö þúsund manns höfðu séð sýninguna í upp- hafi vikunnar. FF í gjaldþrot Skiptafundur í þrotabúi Frjálsrar fjölmiðlunar verður haldinn í nóv- ember. Forgangskröfur í búið nema á milli 100 til 200 milljónum króna en heildarkröfur um 1,1 milljarði króna. Litlar sem engar eignir munu til upp í kröfurnar sam- kvæmt upplýsingum DV. Te í hungurverkfalli Hildur Rúna Hauksdóttir hóf hungurverkfall í vikunni gegn stór- iðju- og virkjunaráformum rikis- stjórnarinnar. Hildur Rúna nærist á íslenskum tejurtum einvörðungu en ekki liggur fyrir hversu lengi verk- fallið mun standa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.