Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 16
16 Helgarblað LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 DV alls tíu sinnum. Á sama tima var óritskoðuð útgáfa frá sama fyrirtæki einnig í umferð en fyrirtækið hætti loks útgáfu á henni. Á árunum 1973 til 1979 var ritskoðaða útgáfan einungis á boðstólum. Og það án vitneskju höfundarins. Árið 1979 uppgötvaði vinur Bradburys sannleika málsins og Bradbury krafðist þess að óritskoðuð útgáfa yrði einungis höfð í sölu. Útgáfufyrirtækið varð við kröfu hans. Árið 1992 fengu nemendur í skóla í Kaliforníu eintök af bókinni þar sem búið var að krota yfir all- mörg orð í bókinni. Skólayflrvöld höfðu krafist þess að kennarar notuðu svart túss til að fela ósiðleg orð áður en nemendur læsu verkið. Foreldrar kvörtuðu við skólann og höíðu samband við fjölmiðla sem sendu fréttamenn á vettvang til að fjalla um þá sér- kennilegu þversögn að bók sem fjallar um ritskoð- un skyldi vera ritskoðuð. Skólayfirvöld tilkynntu þá að ritskoðaða útáfan yrði tekin úr umferð. FBI rannsakar Baldwin Another Country eftir James Baldwin kom út í Bandaríkjunum árið 1962. Hjá FBI var haldin sér- stök skrá um bókina og J. Edgar Hoover, yfirmað- ur FBI, sendi hana til sérstakrar rannsóknar hjá deild innan FBI vegna kafla um samkynhneigð og þess hversu frjálslega þar er lýst samskiptum svartra og hvítra. Úrskurður deildarinnar var nokkuð óvæntur en hún sagði bókina hafa bók- menntalegt gildi og vera áhugaverða fyrir nemend- ur í sálfræði og félagsfræði. Árið 1963 var bóksali í New Orleans handtekinn fyrir að selja bókina og talinn hafa verið að selja siðlausa bók en máli á hendur honum var vísað frá. Sama ár setti bóka- safn í New Orleans bókina á bannlista. Árið 1965 fékk FBI bréf frá manni í Texas sem sagði bókina fulla af kynferðislegum öfuguggahætti og krafðist þess að hún yrði gerð upptæk. Hoover svaraði manninum og sagði FBI kunna að meta áhyggjur hans en höfundurinn hefði ekki brotið lög. Catch 22 fyrir dóm Árið 1972 bannaði skólaráð í Strongsville Ohio kennurum að nota Catch 22 eftir Joseph Heller og God Bless You, Mr Rosewater eftir Kurt Vonnegut sem lestrarefni þar sem þær væru sjúklegt rusl. Ráðið skipaði síðan svo fyrir að bækurnar yrðu fjarlægðar af skólabókasafni ásamt Cat’s Cradle eft- ir Vonnegut. Fimm menntaskólanemar og fjölskyld- ur þeirra fóru í mál og sögðu nefndina ekki hafa fært rök fyrir því af hverju bæri að fjarlægja bæk- urnar. Dómari dæmdi skólayfirvöldum í hag en í yfirrétti sagði dómari að skólastjórnir hefðu rétt til að velja bækur á lestrarlista en væri óheimilt að fjarlægja bækur af skólabókasöfnum. Hann skipaði svo fyrir að bækurnar skyldu aftur settar á bóka- safnið. Hættulegur King Fjölmargar skáldsögur metsöluhöfundarins Stephens King hafa verið fjarlægðar af bókasöfnum. Sú sem mestur styrr hefur staðið um er Cujo sem kom út árið 1981. Árið 1985 var bókin fjarlægð af bókasafni gagnfræðaskóla í New York eftir að for- eldrar sögðu hana vera rusl. Sama ár neituðu skóla- yfirvöld í skóla í Kalifornía að samþykkja kaup á bókinni vegna óþverra málfars og djarfra kynlífs- sena. í Alabama samþykktu skólastjómir að fjar- læga skáldsöguna úr öllum skólabókasöfnum vegna þess að málfarið væri óviðeigandi og bókin klám- fengin. Árið 1992 var bókin bönnuð i skóla í Indiana og sama ár kröfðust nokkrir foreldrar í Hlinois þess að allar bækur höfundarins yrðu fjarlægðar af skólabókasöfnum. Þeirri kröfu var hafnað. Ljóð vikunnar Vökulestur - eftir Þorstein frá Hamri Ég man það eitt að aðalpersónan, mennsk. sagði að síðustu: Hvað verður um mig ó meðan - og meira ekkii Var bókin búin, ellegar stó mig djúpur svefn draumtaus, huglaus... Ljóðiö er úr nýrri Ijóöabók Þorsteins, Meirn en mynd og grunur. Vigdís í uppáhaldi Steinunn Valdís Óskarsdóttir segir frá uppáhaldsbókum sínum. „Mér er auðvitað ferskast í minni það sem ný- legast lá á náttborðinu en ég var að ljúka við að lesa bók eftir Rupert Thomsen sem heitir Opin- berunarbókin. Sú bók var mjög athyglisverð og kom mér satt best að segja al- gerlega á óvart. Hún íjallar um niðurlægingu ungs karls sem verður fyrir þeirri reynslu að þrjár kónur ræna honum, halda hpnum föngnum og nauðga honum bæði andlega og líkamiega. Þessi frásögn snerti mig sterkt og þarna er fjallað um grunnþætti mann- legrar tilveru kúgun, vald, ein- lægni, ást og tilfinningar. Ég les nokkuð af ijóðum og held upp á ljóðabækur eftir Stein Steinarr, Sigurð Pálsson og Braga Ólafsson. Minn uppá- haldshöfundur er þó án efa Vigdís Grímsdóttur. Bækumar hennar hafa alla tíð höfðað sterkt til min og erfitt að taka einhverja eina eða tvær út úr. Ég heiti ísbjörg ég er ljón var áhrifamikil og ekki síður sú uppfærsla sem Þjóðleikhúsið setti upp fyrir nokkrum árum. Sú síðasta, Frá ljósi til ljóss, var einnig góð og nú bið ég spennt eftir næstu bók Vigdísar. Salka Valka eftir Laxness er bók sem hafði mikil áhrif á mig sem ungling og verður að teljast ein af þeim sem eru í mestu uppáhaldi. Ég vakti heila jólanótt_1990 við að lesa Meðan nóttin líður eftir Fríðu Á. Sigurðardóttur en sú bók fannst mér bæði vel skrifuð og góð. Ég hef líka mikið dálæti á barnabókum og er þessa dag- ana að endurnýja kynni mín af perlunum hennar Astrid Lindgren. Þar ber hæst gull- mola eins og Linu og Emil. Góðar bækur fyrir böm ein- kennast af þvi aö við getum lesið þær sem fullorðin og haft jafnvel enn meira gaman af en sá lesendahópur sem þær beinlínis eru ætlaðar. Ég og Kristrún dóttir mín, sem er þriggja ára, förum vikulega í Grófarsafnið í Tryggvagötu og tökum okkur bækur fyrir vik- una. Sem barn var ég alæta á bækur og bókabíllinn sem kom vikulega í Laugamesið sá mér fyrir lesefni. Ég verð að játa að ég öfunda dóttur mína af þvi úrvali sem hún getur valið úr miðað við gamla bókahílinn í den og gaman að sjá þann mikla fjölda sem virðist koma reglulega í nýja safnið í Tryggvagötu." James Baldwin. Skáldsaga hans, Another Country, varð metsölubók en sætti sérstakri rannsókn hjá FBI sem komst að lokum að þelrri niðurstöðu að verkið hefði bókmenntagildi. Oheppilegar bækur Hér er sagt frá nokkrum frœgum og vinsœlum skáldsögum sem á síðustu öld þóttu fela í sér vafa- saman boðskap. Ýmsum fannst ástœða til að grípa til ritskoðunar. Brave New World eftir Aldous Huxley kom út árið 1932 og er nú viðurkennt meistaraverk. Ekki eru þó allir jaftihrifnir því skáldsagan hefur verið sögð sóðaleg og siðlaus og fordæmd fyrir að gera lít- ið úr íjölskyldulífi, upphefja kynlíf og ýta undir eit- urlyfjaneyslu. Bókin var bönnuð á írlandi árið 1932. Árið 1965 var kennari í Maryland rekinn fyrir að hafa bókina á leslista. Árið 1979 fóm skólayfirvöld í Virginiu fram á það við kennara að hann tæki bók- ina af leslista. Hann neitaði og var sagt upp störfum. Foreldrar hafa einnig nokkrum sinnum gert athuga- semdir við að börn þeirra læsu bókina i skólum. Hættulegur bjarg- vættur Bjargvætturinn í gras- inu eftir Salinger kom út árið 1951 og er einkar ást- sæl bók meðal unglinga. Á árunum 1966-1975 lenti þó engin bók jafnoft á bannlista á bandarískum skólabókasöfnum. Deilur stóðu reyndar um bókina fyrir þann tíma. Árið 1957 gerðu tollayfirvöld í Ástralíu heilan skips- farm af bókinni upptæk- an en sendiherra Banda- rikjanna í Ástralíu hafði ætlað hann sem gjöf til ríkisstjórnarinnar. Tolla- yfirvöldum var seinna gert skylt að skila farm- inum en þau sögðust finna bókinni það helst til foráttu að málfarið væri sóðalegt og sögu- hetjan væri unglingum slæm fyrirmynd. Árið 1960 var kennari i Okla- homa rekinn fyrir að gera bókina að skyldu- lesningu i unglingaskóla. Kennarinn lagði fram kæru og var endurráðinn en bókin var sett á bann- lista. Árið 1978 komust for- eldrar í Washington í uppnám vegna róttækra skoðana söguhetjunnar Holden Caulfields. Kona sem var í forystuhópi for- eldrasamtaka sagðist hafa talið 785 hlótsyrði í bókinni og hún fullyrti að hugmyndafræði verks- ins einkenndist af lævís- um kommúnisma sem myndi, ef ekkert yrði að gert, ná undirtökum í skólastarfi. Til stóð að setja hókina á bannlista en á síðustu stundu var hætt við það. Fjölmörg önnur dæmi eru um mótmæli foreldra sem töldu bókina koma inn ranghugmyndum hjá börnum sín- um. Árið 1992 og 1994 var bókin til dæmis tekin af lestrarlista í tveimur bandarískum gagnfræðaskól- um vegna mótmæla foreldra. Bók um ritskoðun ritskoðuð Fahrenheit 451 eftir Ray Bradbury fjallar um rit- skoðun og bókabrennur, en pappír brennur við þetta hitastig. Bókin kom út árið 1953 og árið 1967 setti Ballantine Books i umferð sérstcika útgáfu bók- arinnar sem var ætluð gagnfræðaskólanemendum. í þeirri útgáfu var um 75 kaflabrotum breytt þannig að út voru tekin orð eins og til dæmis „fjandinn" og „fóstureyðing". Aðrar „lagfæringar" voru gerðar á verkinu, drukkinn maður var til dæmis gerður að veikum manni. Engin kvörtun barst vegna þessara breytinga enda tóku fáir eftir þeim og í útgáfunni var þeirra ekki getið. Fjölmargir lásu Fahrenheit 451 einungis í þessari gerð en bókin var prentuð Stalín og milljónirnar Martin Amis: Koba the Dread Jósep Stalín, sem bar ábyrgð á dauða 20 milljóna landa sinna, mun hafa sagt: „Dauði eins manns er harmleikur, dauöi milljóna er töl- fræði“. Amis vitn- ar í þessi orð í stuttri en afar áhrifamikilli bók um ijöldamorð Stalins á löndum sínum. Bókin er að hluta til mjög persónuleg þvi faðir Martins, Kingsley Amis, var sannfærður stalínisti. Þeir sem enn líta á kommúnisma sem frelsandi afl ættu að lesa þessa bók til að aflæra vit- leysuna. Hinir eiga að lesa hana til að minna sig á að hryllingi eins og þess- um á ekki að gleyma. Engar viðbœtur, hversu frábœrar sem þœr eru, geta bœtt verk eins mikið og útstrikanir. -Leo Tolstoy Allar bækur ■ 1. Ríki pabbi, fátæki pabbi. Robert T. Kiyosaki 2. Ferðin til Samarika. Harpa Jóns- dóttir 3. Láttu Ijós þitt skína. Victoria Moran 4. Feqraðu líf þitt. Victoria Moran 5. Líkami fyrir lífið. Bill Philip 6. Orðaheimur. Jón Hilmar Jónsson 7. Grafarþöqn. Arnaldur Indriðason 8. Leggðu rækt við sjálfan þig. Anna Valdimarsdóttir 9. Dönsk-isl/ísl-dönsk orðabók. Orðabókaútqáfan 10. Ensk-ísl/ísl-ensk orðabók. Orða- bókaútqáfan Skáldverk 1. Grafarþögn. Arnaldur Indriðason 2. Glæpur og refsing. Fjodor Dostojevski 3. Ilmurinn. Patrick Súskind 4. Ódauðleikinn. Milan Kundera 5. Óbærilegur léttleiki tilverunnar. Milan Kundera 6. Mýrin. Arnaldur Indriðason 7. Furstinn, Niccoló Machiavelli 8. Tídæqra. Giovanni Boccaccio 9. Alkemistinn. Paulo Coelho 10. Mynd örlaqanna. Isabel Allende Metsölulisti Eymundsson 2.10-8. 10 Kiljur 1. ISLE OF DOGS. Patricia Cornwell 2. LAST MAN STANDING. David Baldacci 3. RED DRAGON. Thomas Harris 4. BLACK HOUSE. Stephen King og Peter Straub 5. FULL HOUSE. Janet Evanovich

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.