Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Side 25
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
HelQarhlað 33V
25
DV-myndir ÞÖK
Kjartan hefur tekið bringurnar
af beinunum og malar hér pip-
ar yfir þær meðan olían hitnar
á pönnunni.
Andabringurnar eru undirbún-
ar endanlega fyrir steikingu en
áður en að því kemur er ravioli
útbúið. fyllt með maukuðum
andalærunum og lifur.
Bringurnar eru síðan steiktar
við inikinn hita til að byrja
með, smjörinu er bætt við,
ásamt meira rósmaríni og hvít-
lauk og síðan er hitinn lækk-
aður, smjörið látið freyða og
ausið vel yfir bringurnar.
Spænskt og argentínskt sem
smellpassar með villibráð
- er val Sigurðar Bjarkasonar hjá Allied Domecq
Þessa dagana er villibráðartíminn að komast á
fuilt, menn munda byssurnar og hugsa með sælusvip
til krásanna sem gera má úr fengnum. Villönd er þem-
að í dag og ekki laust við að maður fái vatn í munn-
inn við að fara i gegn um uppskriftirnar hér til hlið-
ar. Sigurður Bjarkason hjá Allied Domecq var meira
en fús að mæla með vínum með villiöndinni, vínum
sem passa afar vel með villibráð yfirleitt.
Marques de Arienzo Gran Reserva er Rioja vin sem
smellpassar með villiönd. Marques de Arienzo vín-
gerðin var stofnuð árið 1972 af Domecq-fyrirtækinu og
er í dag komið inn i hina geysisterku vínsamsteypu
Bodegas y Bebidas sem er í eigu Allied Domecq.
Marques de Arienzo er staðsett á 1400 ekra býli ná-
lægt hjarta Rioja, í Rioja Alavesa. Eins og áður hefur
komið fram er Rioja-héraðiö á Norðu-Spáni og oft
nefnt Bordeaux Spánar. Héraðinu er skipt í þrjá hluta,
Rioja Alta, Rioja Alavesa og Rioja Baja. Nafngiftin
Rioja kemur frá ánni (rio) Oja, sem á upptök sín á
Norður-Spáni, rennur í gegnum Rioja-héraðið og nið-
ur til Miðjarðarhafsins. Marques de Arienzo-vínin eru
flokkuð eftir lengd geymslutíma í eikartunnum. Cri-
anza geymist i 3 ár á tunnum, Reserva í 5 ár og Gran
Reserva í 7 ár.
Marques de Arienzo Gran Reserva er úr
Tempranillo-þrúgunni sem er algengasta þrúgan í
Rioja. Þegar horft er á vínið i glasinu minnir það á
glansandi rúbin með eikartón. Hmurinn einkennist af
þroskuðum ávöxtum og fínlegu kryddi. Þegar vínið er
síðan komið í munninn uppllfir maður frekar flókið
vín sem gefur mikið af sér. Merkja má nokkum pip-
ar, negul og finlega eik. Marques de Arienzo Gran
Reserva er nánast fullkomið með villiöndinni og
villibráö yfirleitt eins og rjúpu, gæs, önd og hrein-
dýri.
Frá Spáni leiöir Sigurður okkur til
Argentínu en vín þaðan hafa unnið töluvert
á síðastliðin ár. Balbi Vineyard Malbec
Syrah verður þá fyrir valinu. Balbi-vín-
gerðin var stofnuð árið 1930.1 dag er Balbi
eitt af leiðandi vínfyrirtækjum í Argentínu.
Allied Domecq keypti fyrirtækið 1992 og síðan
hefur Balbi verið ört vaxandi þar sem nýtísku
hugsun í víngerð er undir áhrifum frá Italíu,
Spáni, Frakklandi og Bandaríkjunum í bland
við argentínskar hefðir. Balbi er í hinu víð-
fræga Mendoza-héraði og eins og nafnið bendir
til er það gert úr þrúgunum syrah og malbec.
Liturinn er djúprauður og ilmurinn ein-
kennist af kryddum, plómum og svörtum
kirsuberjum. í munni er þetta opið vín í góðu
jafnvægi og með mjúku tanníni. Þá verður
vart við krydd- og kirsuberjabragð.
Balbi Vineyard Malbec Syrah er skemmtilegt
vín sem passar vel með villibráð, einkum
dökku fuglakjöti.
Umsjón
Haukur Lárus
Hauksson