Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Blaðsíða 28
28 /7 g l c) ci rb l o ö 3Z>V LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Fullur þjóðarstolts Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður oq Háð- vör frumsqnir Grettissögu íkvöld en leik- ritið er eftir Hilmar Jónsson. Gísli Pétur Hinriksson leikur Gretti og íviðtali við DV segir hann frá góðvini sínum Gretti, erf- iðri æsku og þjóðarstoltinu sem hann finn- ur fgrir þessa dagana. Grettissaga er af mörgum talin best íslend ingasagnanna og sagt er að hún marki endalok blómaskeiðs íslenskarar sagnaritunnar fyrr á öldum. Sagan segir sem kunnugt er frá Gretti Ásmundarsyni, hetju, skáldi og víkingi. Hann var alinn upp á bændaheimili en aldrei varð það ætlunin að feta í fótspor föðursins. Hann dreymdi um frægð og frama og sú varð raun- in. Skapofsinn varð þó til þess að hann drap mann og annan og varð réttdræpur útlagi, hundeltur af óvinum sínum. Og nú hefur Hafnarfjarðarleikhúsið Her- móður og Háðvör ákveðið að setja leikritið upp og þykir kannski sumum tími til kom- inn. Gretti leikur nýútsrkifaður leikari, Gísli Pétur Hinriksson. Meðal annarra leik- ara eru Gunnar Helgason, Björk Jakobsdótt- ir og Vigdís Hrefna Pálsdóttir. Drep sextán á fyrsta hálftíman- um „Þetta er djúp laug,“ segir hinn tuttugu og þriggja ára gamli Gísli Pétur þegar ég spyr hvort hann sé ekkert smeykur. „En þetta kom líka eins og himnasending," heldur hann áfram. „Ég er Hafnfirðingur og ég þekkti til Gunna og Bjarkar því ég vann með þeim í áhuga- mannaleikhúsi. Ég hugsa líka að ég sé góður Grettir því ég hef unnið áður með svipaðan texta þannig að tungumáliö var ekki nein hindrun. Síðan finnst mér gaman að vera alltaf á sviðinu og vinna með alls kyns karakterum," segir Gísli Pétur. Hárið á honum er lit- að rautt og hann er mun hærri en aðrir leikarar i sýningunni sem gerir hann líklega að enn betri hetju. „Hvernig kanntu við Gretti?“ spyr ég. „Ég kann ótrúlega vel við hann,“ svarar Gísli Pét- ur án hiks. „Ég hafði ekki lesið bókina áður en ég byrjaði að vinna í þessu verkefni og ég hafði heyrt að hann hefði veriö þjófur, nauðgari, morðingi og annað í þessum dúr. Hann er mjög misskilinn að mínu mati. Fyrstu drápin framkvæmir hann í sjálfsvörn. Hann er stór og margir vilja níðast á honum en það getur enginn því Grettir er miklu sterkari. Það eru alls kyns hugmyndir uppi um hvernig mað- ur hann var í raun og veru. Sumir segja að hann hafi verið langrækinn ærslaseggur. Gott dæmi um það er þegar Auöunn reynir að kyrkja hann þegar hann er tíu ára. Grettir fer til Norgs þegar hann er fjórtán og kemur aftur sautján og þá vill hann hefna sín. Jú, jú. Hann var örugglega langrækinn en ég held að fyrst og fremst hafi hann verið réttur maður fæddur á röng- um tíma. Hann átti að verða víkingur með langafa sínum Önundi tréfót. Hann vildi ekki verða bóndi, það var í níunda sæti af tíu mögulegum,“ segir Gísli Pétur brosandi. „Þú getur ímyndað þér sömu stöðu i dag,“ segir hann ennfremur. „Maður fæðist á íslandi. Hann fær í vöggugjöf bardagaeiginleika sem gera hann að besta hermanni í heimi. En það er enginn her á íslandi þannig að hann verður aö vinna í fiski. Það er engin hetjudáð í því að hans mati. Þjóðfélagið vill ekki að hann sé eins og hann er.“ Ég átti freniur erfiða æsku, átti eklii inarga vini og horfði mikið á kvikmyndir og bjó niér þannig til minn fmyndaða heim. DV-mynd ÞÖK „Ertu búinn að telja hvað þú drepur marga í sýn- ingunni?" spyr ég. „Ætli það séu ekki um sextán á fyrsta hálftímanum og síðan bætast við nokkuð margir.“ Var ofvirkt bam Gísli Pétur segist ekki hafa verið lengi að tengjast Gretti. Útlitslega séð eiga þeir eflaust ýmislegt sam- eiginlegt fyrir utan rauða háriö en þeir eru líka and- lega skyldir. Ýmsir spekingar hafa haldið því fram að Grettir hafi verið ofvirkur. „Ætli sumir segi ekki að ég hafi verið ofvirkur líka,“ segir Gísli Pétur. „Ég og annar strákur i mínum bekk vorum stærstir til skipt- is og þegar ég vildi vera með í leiknum þá endaði það oft með því aö ég meiddi einhvern. Ég ýtti kannski við einhverjum en ég meinti vel. Þegar það henti fékk ég kannski hóp af krökkum gegn mér og varö þá reið- ur sjálfur. Þetta var mjög erfitt því allir halda að þú sért að ljúga en maður veit betur. Ég átti fremur erfiða æsku, átti ekki marga vini og horfði mikið á kvikmyndir og bjó mér til ímyndaðan heim. Ég var orðinn talandi á ensku þegar ég var sex ára gamall.“ Hann er alinn upp hjá móður sinni í Hafnarfirði en foreldrar hans skildu þegar Gísli Pétur var átta ára. „Ég kynntist föður mín- um lítið en hann dó fyrir skömmu. Sex mánuðum áður byrjaði ég að búa með honum og kynntist honum vel sem ég er af- skaplega þakklátur fyrir.“ Gisli Pétur stefndi ekki á leik- listarnám og kláraði ekki fram- haldsskólann. Hann flakkaði á milli Flensborgar og Iðnskól- ans í Hafnarfirði og í frí- stundum gutlaði hann á gít- ar og var að eigin sögn ,bara ljótur unglingur að glamra." í gegnum vin sinn fékk hann áhuga á leiklist og lét síðan slag standa. Hann útskrifaðist í vor og útskriftarhópur- inn er með þeim efnilegri sem sést hafa lengi. í hon- um eru m.a. ívar Örn Sverrisson sem er að gera það gott sem Hamlet i upp- færslu Leikfélags Akureyr- ar og Vigdís Hrefna Páls- dóttir sem leikur níu hlut- verk i Grettissögu. „Ég var eini af átta sem hafði ekki gengið í fram- haldsskóla," segir Gísli Pét- ur um hópinn sem hann byrj- aði i. „Það erfitt að neita því að ég var með bullandi minnimáttarkennd til að byrja með og sagði ekki orð fyrstu tvær vikurnar. Ég beið eftir hvað hin sögðu til að skilja hvernig ég átti að vera en síðan vildi ég bara vera ég sjálf- ur. Það er minn styrkur, ég tengi öðru- vísi við persónurnar." Skylda að skilja fortíðina Það er eitthvað sem heillar mig við Is- lendingasögurnar," segir Gísli Pétur þegar ég spyr hann um framtíðaráform- in. „Þær eru okkar og ég hef komist að svo miklu í gegnum þessa vinnu. Þessi saga, Grettissaga, og allar okkar fornu sögur eru svo fallegar, vel skrifaðar og þrúgnar íslenskum tilfinningum, þær eru okkar og við eigum að vera stoltir. Við eigum að færa þær í búning svo að aðrar þjóðir geti upplifað þær eins og viö gerum. Ég finn það á mér að við stöndum á tímamótum og það er að vakna með mér innra þjóðarstolt sem ég hef ekki áður fundið fyrir áður. í dag er listvitund okkar uppfull af alls kyns vitleysu frá öðrum löndum, þá er ég aðallega að hugsa um kvikmyndir frá hinum ríkari vestrænu löndum. Af hverju kann ég t.d. bandaríska þjóð- sönginn betur heldur en hinn ís- lenska? Af hverju finnst mér minn svona hallærislegur? í dag heyri ég fólk á mínum aldri yfirleitt lýsa land- inu sínu í örfáum oröum eins og jepp- ar, skítkalt, sker, hátt vöruverð, fiskur. Ég vil heyra þrautseigja, víkingar og styrkleiki. Það er skylda að skilja fortíð sína og við gerum það meðal annars með því að setja upp fleiri verk af þessu tagi. Mér þætti gaman að taka þátt í því.“ JKÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.