Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Qupperneq 29
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002
HelQCirblað I>V
29
Súkkulaði
og kynlíf
Kannanir sgna að fjöldi kvenna vill frekar
súkkulaði en kynlífsé þeim boðið að velja.
Hvað er svona merkilegt við súkkulaði og
getur það verið rétt að það sé betra að
borða súkkulaði en njóta kgnlífs?
Fyrir nokkrum árum var gerð skoðanakönnun með-
al bandarískra kvenna sem leiddi í ljós að um helming-
ur þeirra sagðist frekar vilja súkkulaði en kynlíf ef
þær mættu velja. Eins og vænta mátti vöktu þessar
niðurstöður nokkra undrun margra sem stunda kynlíf
en mikla kátínu súkkulaðiframleiðenda sem höfðu
gert sér grein fyrir sterkri markaðsstöðu súkkulaðis
en ef til vill ekki hugsað svo langt að það ryddi elstu
skemmtun mannsins úr sessi. Maðurinn mun vera eitt
örfárra spendýra sem stundar kynlíf eingöngu vegna
þess sjálfs og þeirrar ánægju sem það veitir og má því
með réttu skilgreina það sem skemmtun enda hefur
kynlíf stundum verið kallað ópera fátæka mannsins.
Frá því að þessi hugmynd komst á kreik hafa tengsl
súkkulaðis og kynlífs oft verið styrkt með einföldu
myndmáli auglýsinga þar sem fáklæddar konur kok-
gleypa súkkulaðiísa með lostafullum tilburðum eða
sleikja súkkulaði eins og þær myndu sleikja eitthvað
annað.
Sú skoðun að súkkulaði stæði kynlííi ef til vill jafn-
fætis með einhverjum hætti hefur náð mikilli út-
breiðslu og sem dæmi um það má lesa gamansaman
lista sem skýrir út með 10 einföldum rökum hvers
vegna súkkulaði sé betra en kynlíf. Lítum betur á
hann:
Súkkulaði er betra en kynlíf
1. Þótt þú fáir þér súkkulaöi þá heldur það
ekki vöku fyrir nágrönnunum.
2. Maður er aldrei of ungur eða of gamall til að
fá sér súkkulaði.
3. Það er auðvelt að verða sér úti um gott súkkulaði.
4. Það er engin ástæða til að gera sér neitt upp
með súkkulaði.
5. Þú getur beðið ókunnugt fólk um súkkulaði
án þess að fá löðrung.
6. Þú getur borðað súkkulaði við borðið þitt í vinn-
unni án þess að koma vinnufélögunum í uppnám.
7.Skuldbinding eða langtímasamband kemur
súkkulaði ekkert við.
8. Súkkulaðið þitt endist eins lengi og þú vilt.
9. Þú getur borðað súkkulaði undir stýri án þess
að leggja þig í lífshættu.
10. Þú getur fengið súkkulaði.
Vísindin og súkkulaði
Nú langar eflaust marga til þess að vita hvernig sé
háttað tengslum súkkulaðis og kynlífs. Svarið við því
er ekki einfalt en það liggur í efnainnihaldi súkkulað-
is. Þegar okkur líður vel, erum ástfangin eða i þeirri
sérstæðu vímu sem er sambland losta og ástar og oft-
ast er kölluð hamingja er ein ástæða þess hátt hlutfall
ákveðins boðefnis í heilanum sem heitir fenýletylamín
og það er sennilega það sem getur í miklu magni feng-
ið okkur til þess að „svífa á rósrauðu skýi“ en þannig
hafa rómantískir rithöfundar lýst upplifun sinni af ást-
inni.
Þetta undarlega boðefni hefur ekki verið rannsakað
til hlítar en náskyld boðefni sem margir þekkja eru
adrenalín, noradrenalín, dópamín og endorfín en allt
eru þetta boðefni sem heilinn gefur frá sér og hafa
áhrif á líðan okkar.
Það er vitað að þegar við erum þunglynd og döpur
eins og margir eru til dæmis í ástarsorg þá er hlutfall
þessa fenýletylamíns frekar lágt í heilanum. Súkkulaði
inniheldur efnasamband sem er nauðalíkt feny-
letylamíni ef það er þá ekki nákvæmlega sama efnið.
Súkkulaði inniheldur einnig theobrómín sem er vægt
örvandi efni svo og kaffein i litlum mæli. Saman virka
þessi efni á heilastarfsemi okkar þannig að okkur líð-
ur strax betur ef við fáum okkur súkkulaði.
Þarna er sem sagt komin skýringin á því hvers
vegna það er gott að borða súkkulaði þegar maður er
aleinn og á enga vini. Manni líður smástund eins og
maður sé ástfanginn og hamingjusamur eða upplifir að
minnsta kosti tilfinningu sem minnir örlítið á það
ástand.
Það er rétt að taka fram að vísindamenn hafa ekki
getað staðfest þessar kenningar og hópur vísinda-
manna sem át súkkulaði í kílóavís gat ekki mælt
hækkaö magn fenyletylamíns í blóði þátttakenda. Þeir
héldu því fram að ástæða þess að fólk í depurð leitaði
i súkkulaði væri einfaldlega leit að sykri og orku.
Cadbury súkkulaðifyrirtækið gerði rannsókn á and-
legum áhrifum súkkulaðis og komst að þeirri niður-
stöðu að það væri fyrst og fremst upplifunin af því að
borða súkkulaði, bragðið, áferðin og lyktin sem vekti
fólki vellíðan frekar en efnasambönd sem hefðu áhrif
á heilann. Jákvæð áhrif súkkulaðiáts á líðan fólks
varði í nokkrar klukkustundir eftir neyslu samkvæmt
rannsóknum Cadburys.
Súklíulaði og hass?
Enn umdeildari eru kenningar ítalsk vísindamanns
sem starfar við Harvard sem heldur því fram að efni í
súkkulaði hafi lík áhrif á heilann og skammvinn væg
víma af THC sem er virka efnið í kannabis og hassi.
Rökstuðningur vísindamannsins fyrir því hvernig
þetta gerist er allflókinn en þegar niðurstöður hennar
voru birtar 1996 fékk hún upphringingu frá áhyggju-
fullum framleiðendum sem héldu að draga myndi úr
neyslu á súkkulaði en það varð öðru nær. DiTomaso,
en það heitir vísindamaðurinn, segir þetta ekki þýða
að súkkulaðiætur komist beinlínis í vímu en það sem
gerist í heilánum við súkkulaðiát sé mjög svipað ferli
og það sem maríjúananeysla veldur.
Ertu viss urn að þú viljir súldíulaði?
Er þetta þá ekkert að marka? Og hvað með þessar
amerisku konur sem vildu frekar fá sér súkkulaði en
lifa kynlífi? Kann að vera að skýringin liggi í tilfinn-
ingalegri kreppu nútímafólks þegar náin samskipti
eru annars vegar? Getur verið að í því megrunardrifna
samfélagi sem við lifum í hafi súkkulaði á sér yfir-
bragð þess sem er forboðið eins og kynlíf hefur ávallt
haft en fólk kjósi það frekar en kynlíf því það er ein-
faldara? Eins og grínistar segja þá er margt auðveldara
við að fá sér súkkulaði en lifa kynlífi en það getur
varla neinn trúað því í alvöru að áhrifin séu svipuð.
Ættum við ekki frekar að spyrja okkur hvað sé eig-
inlega að fólki sem vill frekar graðga í sig súkkulaði í
einrúmi en veltast um í svitabaði nautnar og losta með
manneskju sem það elskar? Er slíkt val ekki átakan-
legur vitnisburður um einsemd og firringu fólks sem
er aleitt í mannhafinu?
Við ættum frekar að hvetja fólk til þess að borða
súkkulaði og lifa kynlífi en blanda þessum tveimur
hlutum ekki saman nema i einhverjum sérstæðum
kynlífsleikjum sem hver og einn verður að eiga við
sjálfan sig og sitt uppáhaldssúkkulaði.
Saga súkkulaðis
Það er engin hætta á að neinn hætti að borða
súkkulaði hvað sem líður tengslum þess við kynlíf og
ást eða ekki. Súkkulaði eins og við þekkjum það í dag
hefur ekki verið lengi á borðum okkar. Spánverjar
komu með kakóbaunina frá Suður-Ameríku á tímum
landafundana. Kakódrykkir með sykri breiddust út
um Evrópu og náðu miklum vinsældum meðal yfir-
stéttanna en lengi vel var kakó mikill lúxus.
Það eru reyndar til þrjár tegundir eða afbrigði af
kakóbaunum. Forastero er ein og stendur undir 90% af
framleiðslu heimsins en Criollo er eftirsóttust og sjald-
gæfust. Trinitario er síðan afsprengi þessara tveggja.
Bylting varð í súkkulaðigerð árið 1828 þegar hol-
lenskur framleiðandi Conrad J. van Houten fékk
einkaleyfi á ódýrri aðferð til að pressa kakósmjör úr
kakóbaunum. Fitusnauða duftið sem varð eftir var það
sem við þekkjum í dag sem kakóduft. Þetta hafði fyrst
og fremst þann tilgang að gera kakódrykkju auðveld-
ari en allt þetta brall varð til þess að árið 1849 bjó
breski framleiðandinn Joseph Storrs Fry til fyrsta
átsúkkulaði heimsins.
Svisslendingar einbeittu sér að súkkulaöifram-
leiðslu á nítjándu öldinni og eru tvær uppfinningar
sem standa upp úr öðrum eftir þeirra rannsóknir. Árið
1879 hóf Daniel Peter að nota þurrmjólk sem Svisslend-
ingurinn Henri Nestlé fann upp, til þess að gera kakó-
blöndu sem varð strax vinsæl og það sama ár þróaði
Rudolph Lindt aðferð sem jók möguleika á blöndun
súkkulaöis.
Á íslandi rúmast saga súkkulaðis í tveimur orðum.
Það eru Nói og Síríus.
Súkkulaði er alltaf við höndina í nútímanum en staðrevndin er sú að það hefur aðeins verið þekkt í Evrópu í
rúm 500 ár.
Þessi nakta kona lítur út eins og hún sé að hugsa um kvnlíf en kannski er hún að hugsa uin súkkulaði.
-PÁÁ