Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 30
30 H&lQarblað 33 V LAU GARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Villtir veiðimenn Þegar ganga skal til rjúpna dugir ekkert minna en kapp með forsjá. Fréttir aftgnd- um rjúpnaskgttum eru ári/issar eins og sauðburður en þótt ueiðimenn séu villtir þá mega þeir ekki villast. Hörður Már Harðarson er skólastjóri björgunarskóla Landsbjargar. Hann býr eðlilega yfir mikilli þekkingu á rötun og útivist og kann eflaust mörgum öðrum betur sig heiman að búa. Hörður á afmæli 15. október sem er hefðbundinn upp- hafsdagur rjúpnaveiðitímahilsins ár hvert og hann játar fyrir blaðamanni að margar afmælisveislur hafi um æv- ina farið í súginn vegna þess að afmælisbarnið var kall- að út ásamt félögum sinum til þess að leita að týndum rjúpnaskyttum. Þegar rjúpnatíminn hófst síðastliðið haust fékk Lands- björg inn á borð til sín 14 tilfelli þar sem eftirgrennslan var hafin eftir rjúpnaskyttum sem ekki höfðu skilað sér. Sem betur fer komust allir heim heilu og höldnu í það skiptið. Þetta varpar ljósi á það hve rjúpnaveiðitíminn er mikill álagstími fyrir björgunarsveitir en áætlað er að um 5000 manns gangi til rjúpna á hverju ári. Stóri dagurinn, 15. október, er næstkomandi þriðjudag og það var svolítill uggur í Landsbjargarmönnum þegar viö heimsóttum þá í bækistöðvarnar við Stangarhyl og vildum fá að vita hvernig maður ætti að fara að því að villast ekki. Algengustu mistökin „Algengustu mistökin sem menn gera er að skilja ekki eftir nógu vandaða ferðaáætlun og varaáætlun. Svo seinkar mönnum og aðstandendur halda eðlilega að eitt- hvað hafi komið fyrir,“ segir Hörður. Þegar einhver rjúpnaskytta skilar sér ekki á tilskild- um tíma hefst ferlið oft með því að áhyggjufull eigin- kona hringir í 112 og talar í framhaldinu við lögregl- una. í samtölum er reynt að afla sem mestra upplýs- inga um ferð þess týnda, venjur hans, útbúnað, reynslu og heilsufar. Allt sem getur kom- ið að gagni við að skilja hvers vegna hann hafi ekki skilað sér. Komi málið síðan inn á borð Landsbjargar er fyrst lagt kapp á að finna bíl rjúpnaskyttunnar eða upphafspunkt leitarinnar. Það er of langt og flókið mál að lýsa aðferðafræði leitar hér en þar koma margir við sögu bæði akandi, gangandi og fljúgandi. Að einni leit eða leitartilraun geta komið allt frá nokkrum tugum manna upp í nokkur hundruð. Leitarhundar hafa einnig reynst mjög gagnlegir. „Leitarmenn verða í rauninni að haga sér eins og veiðimaðurinn sem þeir eru að leita að nema hann er bráðin." - En hvað er það sem er hægt að gera til þess að koma í veg fyrir að leitarsveitir séu send- ar á vettvang? Hvernig á að búa sig af stað til rjúpnaveiði svo allt verði í lagi? Hörður byrjar á því að minnast á ferða- planið. Alltaf skal einhver vita hvert mað- ur ætlar, hvað lengi skal vera og hver er varaáætlunin ef veiði bregst. Þetta eru hlutir sem gott er að fleiri en einn aðili viti. Kort og áttaviti eru mikilvægustu hjálp- artæki rjúpnaskyttna eins og allra annarra útivistarmanna. Það er nauðsynlegt að skilja í meginatriðum hvernig þessir tveir hlutir vinna saman eða með öðrum orðum að þekkja grundvallar- atriði siglingafræðinnar. Það er hægt að fara á nám- skeið hjá Landsbjörg og fleirum i rötun og það er hægt að kaupa sér bækur sem heita Rötun og Ferðafélaginn sem innihalda mikið af gagnlegum upplýsingum. Mistök verða að reynslu „En það verður aldrei ofmetið að æfa sig í notkun korts og áttavita upp á eigin spýtur. Það má koma í veg 0 fyrir heimskuleg mistök f með reynslu en til þess að öðlast reynslu getur þurft að gera heimskuleg mistök," segir Hörður og minnir á að áttavitinn verður aldrei orkuiaus vegna rafhlöðuskorts en það getur hent GPS-tækin sem margir eru komnir með upp á vasann. Þess vegna má aldrei gleyma vararafhlöðum sem fóðra GPS-tækið, farsíma og talstöðvar. Það er líka hægt að fara á námskeið i notkun GPS en þarna leggur Hörður aftur mikla áherslu á að menn æði ekki upp á fjöll með nýja GPS- tækið sem þeir fengu í afmælisgjöf án þess að hafa áttað sig á virkni þess fyrst. „Það er mjög mikilvægt að lesa leiðarvísinn, skilja undirstöðuatriðin og æfa sig í því að nota tækið.“ Nestispakkinn er næstur á listanum og hann á að innihalda heitt á brúsa, samlokur eða eitthvað ann- að og síðan varabirgðir af orkuríku nesti eins og sælgæti eða kexi. Sjúkrapúði eða lágmarksbirgðir af sárabindum ættu að vera í búnaði hverrar rjúpnaskyttu því slys eða óhöpp gera ekki boð á undan sér. Fjarskipti geta verið í formi GSM-síma, NMT-síma eða Tetra-síma sem eru það nýjasta á markaðnum. Hörður varar enn við þvi að öll þessi tæki þurfa raf- hlöður sem þurfa að vera með til vara. Það á líka við um smalatalstöðvar sem svo eru kallaðar og eru litlar hand- stöðvar sem draga 3-5 kílómetra og eru eink- ar hentugar til að tala milli manna og ekki síður til að kalla á hjálp ef eitthvað kemur upp á. Klæðnaður skal vera skynsam- legur og hlýr að sögn Harðar og ekki má gleyma húfu og vettlingum. Hörður mæl- ir sérstaklega með því að velja fatnað í skærum litum sem auðveldar öðrum veiði- mönnum og eftir atvikum leitarmönnum að finna skytt- una. Sérstaklega telur hann húfu i skærum lit vera nauðsynlega. Hvað með dagblaðið? Vasaljós eða ennisljós telur Hörður að sé ómissandi í farangrinum, bæði til að lýsa veiðimanni við verk ef hann lendir í myrkri og eins til að ganga við ef svo ber undir. Kíkir er auðvitað einnig talinn ómissandi til að skyggnast til annarra veiðimanna og horfa eftir bráð- inni. Wörður lliMðason 1 „Svo má ekki gleyma góðu dagblaði," segir Hörður alvarlegur. „Það má nota til að kveikja eld í neyðartilviki, lesa sér til afþreyingar og vefja rjúpuna inn í þegar maður veiðir eitthvað. Svo má bregða sér með blaðið bak við stein ef svo ber undir.“ Neyðarblys er létt og með- færilegt og á að vera í bak- poka allra rjúpnaskyttna. Blysin fást hjá Ellingsen og _ _ flestum útivistarbúðum. „Svo eiga veiðimenn að fylgjast með veðurspá, skrifa í allar gestabækur þar sem þeir fara um í kofum eða skálum og byrjendur eiga helst að vera í för með reyndum veiðimönnum og ekki fara í of langar ferðir til að byrja með.“ Ef inaður villist? - En fari nú allt á versta veg að veðrinu meðtöldu og veiðimaður villist þrátt fyrir allt. Hvað þá? „Þá gildir að halda haus, halda ró sinni og láta ekki tilfinningarnar ná tökum á sér. Það grípur menn oft mikil óöryggistilfinning og hræðsla þegar þeir átta sig á því að þeir eru villtir. En það er skylda allra veiðimanna og útivistarmanna að gefast aldrei upp og taka fulla ábyrgð á sjálfum sér og sinni för. Það er mikilvægt að setj- ast niður og fá sér bita og reyna að hugsa skýrt og oft getur maður rakið sína eigin slóð til baka og áttað sig á ný og komist úr villunni. Stund- um geta menn látið landið leiða sig, elt læki eða gengið undan brekkunni og þess háttar en það getur líka borgað sig að halda algerlega kyrru fyrir," segir Hörður. - En ætli hann hafi aldrei villst sjálfur? „Þegar ég var að fara í mínar fyrstu leitir var óskap- lega algengt að veiðimenn villtust á svæðinu sunnan og vestan Bláfjalla og skiluðu sér oft niður í Selvog. Þegar ég fór sjálfur að ganga til rjúpna, sem ég geri talsvert af, þá sótti ég mikið á þetta svæði og þá kom fyrir að ég villtist en ég hafði mig alltaf út úr þvi. Ég hef líka villst uppi í Tindfjöllum en við rötuðum samt heim.“ PÁÁ 'Í' >ss%<

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.