Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 39
LAUGARDAOUR 12. OKTÓBER 2002 / / e I cj a rb {a ö H>V 43^ i i unni og skítnum leynist samt fögur borg. En það er forn fegurð því það er jafn erfitt að koma auga á byggingu frá valdatíð kommúnista sem segja má að sé falleg. Listin sem laðar ferðamenn Daginn eftir blöndum við okkur í hinar löngu biðraðir við Hermitage-listasafnið og leiðsögu- menn útskýra hvernig keisarinn þurfti aldrei að fara út fyrir húsdyr. Það var bæði listasafn, kirkja, garður, óperuhús innbyggt i höllina fyrir utan her- bergin sem talin eru í þúsundum. Það kostar 400 rúblur inn í safnið sem eru um 1200 krónur ís- lenskar. Rússar fá afslátt og borga aðeins 40 rúbl- ur. Sama fyrirkomulag er haft t.d. á miðum á tón- leika og í óperuna. Þeir kosta um 700 rúblur fyrir útlendinga en 70 fyrir Rússa. Gestir sem heim- sækja safnið skiptá tugþúsundum á dag en öllum er hleypt út og inn um sömu dymar sem rúmar tvo í senn og þarf að halda þungri hurðinni. Það ligg- ur ekkert á. Það er ekki hægt að lýsa með orðum heimsókn á þetta risavaxna listasafn. Það tæki margar vikur og margar heimsóknir að skoða það til hlítar. Okk- ur eru sýndar helstu gersemarnar sem eru verk eftir hollenska meistara og franska málara sem sum hver hafa eiginlega aldrei verið sýnd á Vest- urlöndum. Þrautmenntaður og víðförull ferðafélagi okkar viknaði frammi fyrir myndum sem hún hafði aldrei séð nema á litskyggnum þrátt fyrir langvinnt háskólanám og heimshornaílakk. Þarna eru myndir eftir alla helstu málara Evrópu og sumt eru talin merkustu verk á ferli viðkomandi. Sérstakan heiðurssess skipar málverkasafn sem sovéskir hermenn tóku herfangi i seinni heims- styrjöldinni úr þýskum listasöfnum sem þýskir höfðu áður stolið af frönskum söfnum í fyrri heimsstyrjöldinni. Það standa yfir samningavið- ræður um hver eigi að skila hverjum hvaða mál- verkum. Er þetta ekki hættulegt? Hópurinn var allan tímann undir dyggri leiðsögn vel talandi leiðsögumanna og ferðaðist eftir tímaá- ætlun sem gekk snurðulaust. Yfir þessu öllu vakti Pétur Óli Pétursson sem verið hefur búsettur í borginni um nokkurt skeið og fæst við ýmis við- skipti og í vaxandi mæli móttöku feröamanna. Feröamenn eru borginni vaxandi auðlind en lista- fjársjóðir og fagrar byggingar laða til sín unnend- ur frá Vesturlöndum. í fréttum skömmu fyrir brottför okkar var sagt frá lögreglumönnum sem stunduöu það í Péturs- borg að ræna ferðamenn. Það var því nokkur ugg- ur í mönnum og flestir héldu fast um persónulegar eigur sínar. I téðum fréttum tók sænski ambassa- dorinn svo djúpt í árinni að vara ferðamenn við því að vera á ferli á Nevsky Prospekt sem er aðal- gata borgarinnar. Af sígaunum og vasaþjófum Við sáum talsvert af betlurum af sígaunakyni sem eru bæði barnungir og aðgangsharðir og stela miskunnarlaust úr vösum ferðamanna. Þeir eru auðþekktir. Við sáum einnig unga pilta í vest- rænni merkjavöru stunda vasaþjófnað í anddyri filharmóniunnar þegar erlendir gestir voru að reika út ölvaðir af tónlist og hirða yfirhafnir sínar. En enginn í hópnum varð fyrir skakkaföllum um- fram það sem búast má við í milljónaborg þar sem fátækt sýnist vera hlutskipti meirihluta íbúanna. Á Nevsky Prospekt á sunnudegi reikaði fjölskyldu- fólk í sólskininu og horfði á mannlífið og götulista- menn leika sínar kúnstir. Það þýðir hins vegar ekki að óhætt sé að vera þar á ferð eftir myrkur og þeir sem stunda næturlífið taka alltaf áhættu. Heimamenn staðfestu við okkur að lögreglan væri ekki alltaf vinveitt og og rán væru tíð en sjaldan hættuleg. Þeir sögðust gefa lögreglunni tíu dollara í hvert sinn og það dygði yfirleitt. Viltu líaffi, væna? Við heimsóttum postulínsverksmiðju frá dögum Péturs mikla. Þar sitja stúlkur í löngum röðum og handmála postulín af fegurstu gerð. Þær eru allar útskrifaðar úr listaháskólum með þriggja ára menntun hið minnsta og fá 6 þúsund rúblur í mán- aðarlaun til að byrja með og hækka síðar í átta þúsund á mánuði. Svona skoðunarferðir hafa að- eins einn tilgang, semsé þann að selja postulín sem víst var mjög eigulegt þarna. Hún vakti óskipta at- hygli konan í hópnum sem keypti sex manna hand- málaö kaffistell fyrir tæplega 50 þúsund rúblur og sagðist ætla að nota það á fundum í vinnunni þeg- ar heim kæmi. Þjóðarstoltíð ólgar Það var hægt að vera montinn af því að vera ís- lendingur þegar maður settist prúðbúinn í sæti sitt í stóra salnum í Fílharmóniuhöllinni i Pétursborg að kvöldi mánudags. Húsið sem er talinn einn hljómfegursti tónleikasalur í Evrópu og þótt víðar væri leitað er ægifagurt og tekur 15 hundruð manns í sæti og var hvert þeirra skipað en fátæk- ir stúdentar héngu í stæðum á svölum uppi. Fyrir hlé söng Fílharmónían íslenska tónlist án undirleiks og var gerður góður rómur að. Eftir hlé flutti hún Sálumessu Mozarts eða Requiem og naut aðstoðar Fílharmóníuhljómsveitar Pétursborgar. Bernharður Wilkinson stjórnaði en Hulda Björk Garðarsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir, Davíð Ólafsson og Kolbeinn Ketilsson sungu einsöng. Flutningurinn tókst stórkostlega vel og var kór og hljómsveit til sóma. Og þá var kátt i höllinni. Súrar gúrkur og sigurvíma Eftir vel heppnaða tónleika flykktust kórfélagar og flestir ferðafélaganna í hátíðakvöldverð i Höll vináttunnar þar sem notið var alls hins besta sem Rússland hefur upp á að bjóða. Kampavín í for- drykk, sjö rétta glæsilegur málsverður og vod- kasnafsar og súrar gúrkur eins og hver vildi hafa. Þeir sem syngja sér til gleði þurfa ekkert að leggja fram nema blóð, svita og tár og óendanlegan æf- ingatíma. Á stundum eins og þeim sem gáfust við dynjandi lófatak austur í háborg rússneskrar menningar og við skálaræður og þakkarávörp í hópi félaga og vina á eftir verður manni ljóst að saman hafa konur og menn í kórnum eignast eitt- hvað sem er alls þessa virði. -PÁÁ Vetrarhöllin í Pétursborg, heimili síðustu keisarafjölskyldunnar, er án efa eitt magnaðasta minnismerki um of- hlæði og skrautgirni konunga og keisara sem enn stendur uppi. Byggingu þessarar samstæðu var loldð í lok 18. aldar. í dag hýsir byggingin rneðal annars Hcrmitage-listasafnið sem er eitt hið merkasta í heiminum. Það er siður í Rússlandi að brúðhjón láti gifta sig snemma dags og fari síðan um borgina með vinum sín- uin og heimsæki sögufræga staði. Þennan fagra laugar- dag í Pétursborg var allt morandi í brúðhjónum og þessi voru glöð að sjá. Söngsveit Fílliarmóníiinnar fór niikla frægðarför austur til Pétursborgar og söng í Fílharmóníuhöllinni þar fyrir fullu húsi áheyrenda. Hér stendur kórinn á sviðiuu og bíður stjórnanda síns, Bernharðs Wilkinsonar. Suinarhöll Katrínar niiklu stendur í smábænum Puskhin rétt utan við Pétursborg og er vinsæll áningarstaður ferðamanna enda mikil orgía fyrir augað í bláu og gvlltu. Þessi ævintýrahöll var teiknuð af ítölskum arki- tckt uin rniðja 18. öld. Þegar kommúnistar réðu ríkjum í Kússlandi hét St. Pét- ursborg Leniugrad og þegar veldi þeirra reis sem hæst voru 27 styttur og minnismerki af Vladimir Lenin á víð og dreif um borgina. Þetta er annað tveggja sem enn eru uppstandandi en það var gengið í það af talsverðri hörku eftir byltinguna að rífa stytturiiar niður. Þótt kommúnisminn sé fyrir bí að nafninu til leynast glæður hans enn í hugskoti borgaranna. Þessir höfðingjar stóðu með sinn kommúnistafána á Nevsky Prospekt á sunnudegi og vildu ná athygli vegfarenda. '* DV-mvndir PÁÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.