Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 44
HeIqarblaö 30"V" LAUCARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Bílar Reynsluakstur Njáil Guðlaugsson X o £ u •ð c >. S > Q v- / M Ij. yv/ i W;>« V 44 Sportlegur og kraftmikill fjölskyldubffl þaklína er lág, sem gefur honum kraftalegt útlit. Þrátt fyr- ir það er útsýni úr bílnum ágætt nema ef vera skyldi fyrir A-bita, sem er frekar breiður og hindrar aðeins útsýn á framhom. Til að auka enn við sportlegt útlit hans em ljós- in með dökkum tón, loftinntök stór, lítil þokuljós felld inn í stuðara og aftan á bílnum er vindskeið og tvöfalt púst. Þegar sest er svo inn í bílinn líður manni eins og í vef bún- um lúxusbíl. Sæti eru stór og þægileg og það er mikið hlið- arrými í bílnum. Kostir: Gallar: Hljóðlátur, aflmikill, rúmgóður Útsýn á framhorn Nýjasta kynslóð Opef Vectra verður kynnt hja Bílheim- um um helgina. Blaðamönnum var boðið fyrr í haust til reynsluaksturs á GTS-gerðinni sem er sportlegri útgáfa fjöl- skyldubilsins. Bíllinn var prófaður með 211 hestafla V6-vél- inni sem verður aðeins fáanleg í GTS-útgáfum og er það hraðskreiðasti Opel sem framleiddur hefur verið. Reynslu- aksturinn fór fram í nágrenni Munchen svo að gott tæki- færi gafst til að sannreyna hámarkshraða upp á 248 km á klst. Hlaðinn búnaði Bíllinn er sérlega vel búinn og þá ekki síður búnaði sem viðkemur akstri og öryggi eins og sex öryggispúðum. Fyrir utan hemlalæsivöm (ABS) og átaksjöfhun (EBD) á brems- um er hann með skrikvöm (ESP) og beygjuvara (CBC) í henni sem kemur í veg fyrir hliðarskrið við allar aðstæður. Prófunarhíllinn var fullur af öllum fáanlegum aukahlutum eins og tvöföldu miðstöðvarkerfi með loftkælingu, full- komnum hljómtækjum, innbyggðum GSM-síma, GPS-leið- sögukerfi, Xenon aðalljósum, loftþrýstingsnema i dekkjum, fjarlægðarskynjara að framan og aftan þegar lagt er í stæði, regnskynjara og svo mætti lengi telja. Fer byr beggja Vindstuðull Opel Vectra GTS er mjög lítill eins og oft áður í Opel eða aðeins 0,28 Cd. Þetta þýðir mjög lítið vind- hljóð á hraðbrautunum, atriði sem skiptir ekki síður máli á vindasama Islandi. Einnig er vélarhljóð lítið þótt aðeins heyrist frá öllum sex strokkunum þegar vélin er þanin, en þannig á það líka að vera með vél í þessum stærðarflokki. Bíllinn liggur vel og er þægilegur í akstri en greinilega er meiri áhersla lögð á þægindi heldur en aksturseiginleika þótt bíllinn hafi vissulega sportlega takta. Það getur reynst erfitt að fmna milliveginn í hönnun á bílum sem ná eiga til ólíkra kaupendahópa, en allir ættu þeir þó að láta sér kraft- mikla vélina vel líka. Opel Vectra GTS kemur væntanlega ekki hingað fyrr en á næsta ári. Bíllinn meö 1,8 litra vél- inni mun kosta frá 2.190.000 kr. í grunnútgáfu en GTS V6 mun kosta 3.420.000 kr. -NG o Skottið er stórt og opnast vel enda tekur það 500 lítra. © Framsæti eru rúmgóð og þægileg og stórar hurðir opnast vel. © Mælaborðið er stílhreint og góð efni í innrétt- ingu. Fyrir niiðju er upplýsingaskjár fyrir leiðsögu- kerfi. © Öflug V6 vélin er þverstæð og allur frágangur er til fyrirmyndar. Sportlegur og kraftmikill Sportlegir eiginleikar þessa bils finnast strax og farið er að keyra hann. Búið er að lækka bílinn um 20 mm og stýrið er sneggra en áður. Hjartað í bílnum er samt öflug V6-vélin sem er eins og hönn- uð fyrir hraðbrautimar. Aflið er nægilegt tO að skila góðu sparki á nánast hvaða hraða sem er, enda er upptakið ekki nema 7,5 sekúndur. Jafnvel á 200 km hraða fmnst vel þegar bensínið er stigið í botn. Ekki náðum við þó uppgefnum há- markshraða bílsins, enda um- ferð nokkuð mikil á þessum tíma á hraðbrautunum, en ansi nálægt komumst við samt. Sérstakt og kraftalegt útlit Útlit bflsins er nokkuð sér- stakt og það sem augað tekur fyrst eftir eru framljós sem ná langt aftur. Einnig er axlalína hans frekar há á meðan OPEL VECTRA GTS Vél: 3,2 lítra, V6-bensínvél Rúmtak: 3175 rúmsentímetrar Ventlar: 24 Þjöppun: 10:1 Gírkassi: 5 gíra beinskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: MacPherson Fjöðrun aftan: Fjölarma , Bremsur: Diskar/diskar, ABS, EBD, ESP, CBC Dekkjastaerð: 195/65 R15 YTRI TOLUR: Lengd/breidd/hæð: 4596/1798/1460 mm Hjólahaf: 2700 mm Beygjuradíus: 10,9 metrar INNRI TÖLUR: Farþegar m. ökumanni: 5 Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 5/6 Farangursrými: 500-1360 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: 10,1 lítrar Eldsneytisgeymir: 61 lítri j Ábyrgð/ryðvörn: j 2/12 ár Grunnverð: 2.190.000 kr. Verð prófunarbíls: 3.420.000 kr. Umboð: Bílheimar Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður. rafstýrðir og upp- hitaðir speglar, fjarstýrðar samlæsingar með þjófa- vörn, 8 öryggispúðar, aðdráttarstýri, spólvörn, skrikvörn, hitastýrð miðstöð með loftkælingu, raf stillt og upphituð framsæti, útvarp og geislaspilari, 17 tommu álfelgur, þokuljós, skriðstillir, sportinn SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 211/6200 Snúningsvægi/sn.: 300 Nm/4000 Hröðun 0-100 km: 7,5 sek. Hámarkshraði: 248 km/klst. Eigin þyngd: 1390 kg

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.