Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 45

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Page 45
LAUGARDAGUR 12. OKTÓ8ER 2002 HeÍQarblacf !0'Vr 49 Frumlegur jeppi frá Kia Kia KCV-II er nýr og fjölhæfur tilraunajeppi frá Kia sem sýndur var í París og vakti mikla athygli. Bíllinn blandar saman eiginleikum pallbils og jeppa með sportlegum eiginleikum á ferskan og nýjan hátt. Yfirbyggingin er mjög boga- dregin sem er mikil breyting frá kasscdegum Sportage-jeppum þeirra sem þessi bíll mun hugsan- lega taka við af. Bogi úr áli er eitt af því sem áhorfandinn tekur fyrst eftir, hann teygir sig frá framljós- unum aftur með bílnum og endar sem handrið utan um pallinn áður en hann hverfur ofan í afturstuðar- ann. Hurðimar opnast sin í sitt hvora áttina og hægt er að fella niður aftursætin fyrir meira far- angursrými. Hvort bíllinn nær í framleiðslu í þessari mynd kemur ekki í ljós strax en með þessum bU hefur Kia gefið tóninn. -NG Fjölnota Focus í París Ford frumsýndi nokkuð óvænt tilraunabU sem fjölnotaútgáfu af Focus og kaUast hönnunin C-Max. BUlinn er byggður á sama undir- vagni en hefur mun meira pláss og notkunarmöguleika í nýrri hönnun. Að innan er bUIinn búinn fjórum sætum í tilraunaútgáfunni og skipt- ir miðjustokkur honum nánast í tvennt. í henni eru armhvUur, raf- stýrð handbremsa, borð og hólf, svo eitthvaö sé nefnt. Fyrir miðju er sjö tommu snertiskjár fyrir leiðsögu- kerfi og Ueira. í þakinu er einnig miðjustokkur með ljósum, litlum hólfum og Ueiru en það sem líklega sniðugast er lítU myndavél sem fylgist með aftursætisfarþegunum. Þannig geta foreldrar fylgst betur með bömum sínmn, jafnvel þegar stund, með því að taka þráðlausan skroppið er út úr bílnum i smá- skjáinn með sér. -NG Peugeot heimsmeistari í ralli í þriðja sinn Peugeot bUaframleiðandinn tryggði sér sinn þriðja heimsmeist- aratitU í raUi i röð með sigri Marcus Grönholm í Nýja-Sjá- landsraUinu á sunnudag. Sigur Grönholms var sá fjóröi á tímabU- inu og þetta er í annað sinn sem hann vinnur heimsmeistaratitUinn. Sigur hans var nokkuð afgerandi en hann var fjórum minútum á undan liðsfélaga sínum Harri Rovanpera. Þetta var í áttunda skiptið á tíma- bUinu sem Peugeot er í efstu tveim- ur sætunum og hafa yfirburðir franska bUaframleiðandans minnt á yflrburði Ferraris í formúlunni í ár. Þeir einu sem áttu möguleika á titl- inum fyrir helgina voru þeir Colin lentu báðir í óhappi og urðu að McRae og Richard Bums en þeir hætta keppni. Nýr Audi A8 lúxusbíll í París Audi frumsýndi á bílasýning- unni í París nýjan Audi A8 lúxus- bU en hann er með aldrifi og allur úr áli. Þetta nýja flaggskip Audi kemur á markað á fyrsta ársflórð- ungi 2003 búið aflmiklum V8 vél- um. 3,7 lítra vélin mun gefa 380 hestöfl, 20 hestöflum meira en vél með sama rúmtaki í dag gefur. Þessi vél kemur A8 úr 0 í 100 km á 6,3 sekúndum. 4,2 lítra vélin sem er 335 hestöfl lýkur svo sprettinum á 6,3 sekúndum. Báðar gerðir munu verða með nýrri sex þrepa sjálfskiptingu, sem er með hand- virkri valskiptingu, sem ýmist er hægt að stýra með gírstöng eða hnöppum í stýrishjóli. StiUanleg loftflöðrun með höggdeyfum sem laga sig stöðugt að akstursaðstæð- um er einnig staðalbúnaður, en hún gefur ökumanni val á þremur stiUingum í akstri. Að sögn Audi mun V6 gerð einnig koma í sölu fyrir árslok 2003. -NG Innköllun á 400.000 Toyota Yaris-bílum í vikunni tilkynnti Toyota í Japan um stóra innköllun á Toyota Yaris og Verso útgáfu hans vegna galla í bremsukerfi. Um innköllun á um 400.000 bílum er að ræða sem nær til flestra markaðssvæða Toyota á bílum smíðuðum milli október 2000 til mars 2002. Toyota segir að gallinn hafi uppgötvast í Finnlandi þar sem mikið af Verso-bílnum er í notkun hjá póstþjónustunni. Söfn- un á snjó og ís inni í felgunni og í kringum bremsuskálina leiddi til þess að kerfið fór að leka vökva. Skipt verður um báðar bremsuslöngur og sett í staðinn ný gerð sem hefur verið I notkun síðan í mars. Tvöfalt bremsu- kerfi er í Yar- is svo þótt vökvi fari að leka verð- ur bíllinn ekki bremsulaus. Einnig kviknar aðvörunarljós i mælaborði. 554 innkallaðir hérlendis Að sögn Björns Víglundssonar, markaðsstjóra P. Samúelssonar, mun þetta hafa þá þýðingu að all- ir 554 Yaris-bílar verði innkallað- ir til viðgerða. „Við höfum ekki fengið neina kvörtun vegna þessa og líklegt er að aðstæður hér hafi ekki mikla hættu í för með sér. Þær þjóðir sem búa við stöðugan snjó og mikinn kulda finni frekar fyrir þessu,“ sagði Bjöm í viðtali við DV-bíla. Eigendur þeirra Yar- is-bifreiða sem þurfa á lagfæring- unni að halda munu fá bréf á næstu vikum. Björn sagði einnig að eins og staðan væri nú væri ~r verið að bíða eftir að varahlutir bærust í verkefnið en innköllun á 400.000 bílum í heiminum gæti tekið nokkum tíma. „Því er gert ráð fyrir að það taki nokkra mán- uði að klára að skipta um í öllum bílunum. Taka skal þó skýrt fram að það er engin ástæða til að óttast fyrir Yaris- eigendur þar sem ekki er nein slysahætta vegna málsins. Að- gerðin er aðeins framkvæmd vegna skýrrar stefnu Toyota um að i svona tilfellum beri ávallt að innkalla bíla, sama hversu lítil áhættan kann að vera,“ sagði Björn að lokum. -NG* I I Plymouth Voyager Grand SE 4WD, árg. 1998, ek. 98 þ. km, 3800 cc, 7 manna, ssk., álfelgur, fjarst. samlæsingar, skipti möguleg á ódýrari. Verð kr. 2.190.000. Suzuki Grand Vitara, 2000 cc, V6, Subaru Legacy GL, 4x4, 2000 cc, árg. 1998, ek. 76 þ. km, 5 gíra, álfelgur, árg. 1992, ek. 162 þ. km, 5 gíra. Bíllinn dráttarkúla, hiti í sætum, topplúga, er með fullkomna þjónustubók, hefur CD-spilari. Skipti möguleg á ódýrari. farið í allar skoðanir frá upphafi, einn Verð kr. 1.590.000. eigandi. Verð kr. 590.000. Suzuki Vitara JLX, árg. 2000,1600 Subaru Legacy GL 4x4, árg. 1998, cc, 5 gíra, ek. 52 þ. km. álfelgur. 5 gíra, ek. 82 þ. km, álfelgur, fullkomin Verð kr. 1.390.000. þjónustubók. Verð kr. 1.350.000. ASALAN <3B> SKEIFAN • BÍLDSHÖFÐA10- S: 577 2800 / 587 1000 www.benrii.is Opnunartími: Virka daga 10-19, Laugardaga 11-16 f Akureyri: Bílasalan Ós, Hjalteyrargötu 10, Simi 462 1430

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.