Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Qupperneq 48
fe» 52 H e / c) a rb / cj ö H>"V" LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 i mmmm Umsjón Kjartan Cíunnar Kjartansson Hreiðar Örn Zoéga Stefánsson framkvæmdastjóri Fríkirkjunnar í Reykjavík verður 40 ára á mánudaginn ► Hreiöar Örn Zoega Stefánsson, framkvæmdastjóri Fríkirkjunnar í Reykjavík, Hulduhlíð 40, Mosfellsbæ, verður fertugur á mánudaginn. Starfsferill Hreiðar fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í Kleppsholtinu. Hann lauk sveinsprófi í kjötiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík, lauk meistaraprófi i kjötiðn, stundaði framhaldsmenntun í kjötiðnaðar- og matvælafræðum við Slagteriskolen í Hróarskeldu og nám í félags- og æskulýðsmálafræði á vegum dönsku kirkjunnar og KFUM og KFUK í Danmörku. Hreiðar var innkaupastjóri í Miklagarði, tollvörð- ur i Reykjavík og á Keflavikurflugvelli, æskulýðsfull- trúi viö Stormarkskirken í Nakskov, innkaupa- og sölufulltrúi í Glóbus, verslunarstjóri KÁ í Vest- mannaeyjum, æskulýðsfulltrúi Landakirkju í Vest- mannaeyjum, framkvæmdastjóri Landssambands KFUM og KFUK, umsjónarmaður safnaðarstarfs í Bú- staðakirkju í Reykjavík, forfallakennari í Réttarholts- skóla og er nú framkvæmdastjóri Fríkirkjunnar í Reykjavík. Hreiðar sat í stjórn skólafélags Iðnskólans í Reykjavík, var gjaldkeri Iðnemasambands íslands, sat í hússtjórn Karlakórsins Fóstbræðra, var formað- ur KFUM og K í Vestmannaeyjum, formaður áfengis- varnarnefndar Vestmannaeyja, varaformaður Ey- verja, fulltrúi íslands í framkvæmdanefnd norræns æskulýðsstarfs KFUM og K, stjórnarmaður í Lands- sambandi KFUM og K, formaður sumarbúðarnefndar ÆSKR, formaður Æskulýðssambands kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum, sat í yngri barna nefnd fræðsludeildar þjóðkirkjunnar, barnaefnisnefnd þjóð- kirkjunnar, í fræöslunefnd ÆSKR, í menntamála- nefnd ÆSKR, í æskulýðsnefnd Kjalarnessprófasts- dæmis, fulltrúi Þjóðkirkjunnar í framkvæmdanefnd norræns samstarfs á barna- og æskulýðssviði og i stjórn sjálfstæðisfélags Mosfellsbæjar. í dag situr Hreiðar í stjórn KFUM og KFUK í Vest- mannaeyjum, er gjaldkeri Landsambands KFUM og KFUK, í æskulýðsnefnd Kjalarnessprófastsdæmis, er varaformaður ættingja- og vinasambands Hrafnistu í Reykjavík og situr í framkvæmdastjórn Kirkjugarða Reykjavíkur. Hreiðar hefur verið leiðtogi í barna og æskulýðs- starfi kirkjunnar og KFUM og K frá 1979, bæði hér á íslandi og i Danmörku, sinnti bamastarfi Breiðholts- kirkju um árabil, endurbyggði upp starf KFUM og K í Vestmannaeyjum, hefur haft umsjón með sumar- mótum æskulýðsfélaga kirkjunnar í nokkur ár, var mótstjóri og síðar framkvæmdastjóri Landsmóts Æskulýðsfélaga kirkjunnar, hafði umsjón með vor- dögum kirkjunnar í Kjalarnessprófastsdæmi, hefur um árabil séð um ferðir unglinga á norræn æskulýðs- mót KFUM og K, verið forstöðumaður í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi, hafði umsjón með fermingar- námskeiðum Landakirkju og í Vatnaskógi, var með námskeið um einelti og áreiti í barna- og æskulýðs- starfi kirkjunnar, hefur sungið viða s.s í Æskulýðs- kór KFUM og K, karlakór Fóstbræðra, Kirkjukór Breiðholtskirkju, Kirkjukór Landakirkju, Kirkjukór Bústaðakirkju og í ýmsum kvartettum. Einnig starf- aði hann um skeið í JC-hreyfingunni, í Sjálfstæðis- flokknum og hefur starfað um árabil innan Frímúr- arareglunnar á íslandi. Hreiðar hefur samið og þýtt töluvert af kristilegu barna- og æskulýðsefni sem notað er í barna-, æsku- lýðs- og fermingarstarfi kirkjunnar víða á íslandi í dag. Greinar hafa birst eftir hann í Æskunni, Morg- unblaðinu, Viðförla, Bjarma og hinum ýmsu frétta- blöðum um málefni barna, unglinga og kirkju. Fjölskylda Hreiðar kvæntist 21.8. 1999 Sólveigu Ragnarsdótt- ur, f. 28.10. 1977, nema í sálfræði við HÍ og æskulýðs- leiðtoga. Hún er dóttir Ragnars Sigbjörnssonar, f. 7.5. 1944, prófessors, búsettur í Mosfellsbæ, og Bjarnveig- ar Höskuldsdóttur, f. 5.8. 1946, þroskaþjálfa. Sonur Hreiðars og Sólveigar er Ragnar Bjarni Zoéga Hreiðarsson, f. 22.10. 2000. Hálfsystur Hreiðars eru Kristín Guðríður Stefáns- dóttir, f. 5.4. 1942 en maður hennar er Geir Sigurðs- son, f. 30.8. 1939, flugvélstjóri; Þuríður Margrét Ge- orgsdóttir, f. 6.3. 1948, matargerðarkona og verkstjóri í Vestmannaeyjum en maður hennar er Páll Róbert Óskarsson, f. 10.6. 1946, húsgagnasmiður. Alsystkini Hreiðars eru Vigdís Stefánsdóttir, f. 29.5. 1956, blaðamaður í Reykjavík og ritstjóri Æsk- unnar; Gunnar Héðinn Stefánsson, f. 7.6. 1967, verka- maður á Skagaströnd en kona hans er Málfríður Jó- hannsdóttir, f. 24.2. 1957, húsmóðir; Ríkharður Jón Stefánsson, f. 3.11. 1959, matreiðslumaður og sjómað- ur í Vestmannaeyjum en kona hans er Matthildur Einarsdóttir, f. 16.2. 1954, húsmóðir; Hildur Hrönn Stefánsdóttir, f. 14.10. 1962, verkakona í Vestmanna- eyjum en maður hennar er Óskar Elías Óskarsson, f. 17.4. 1955, framkvæmdastjóri í Vestmannaeyjum; Kai Ágúst G. Stefánsson, f. 21.3. 1964, matreiðslumaður í Noregi. Foreldrar Hreiðars voru Stefán Agnar Magnússon, f. 27.11. 1916, d. 9.9. 1974, matreiðslumaður, og Árný Fjóla Stefánsdóttir, f. 9.12. 1923, d. 30.11. 1996, deildar- stjóri. Ætt Foreldrar Stefáns voru Magnús Sigurður Magnús- son, prentari og bíóstjóri, og Jóhanna Zoega Jóhann- Tilboð GENERAL Jeppadekkjum Verðdæmi miðast við 4 dekk undirkomin Hjólbarðaverkstæði Skeifan 5 Simi: 553 5777 Verðdæmi: TR 30x950R15 55.968 stgr. TR 31 x1050R15 Verð: 59.376 stgr. TR 33x1250R15 Ve 69.040 stgr. TR 245/75R16 Verð: 56.976 stgr. Ýmsar aðrar stærðir í boði. Sími: 567 4468 Tiiboð gildir meðan birgðir endast. Tiiboð gildir miðað við stáifelgur. Opið virka daga 8-18 Laug. 10-14 esdóttir, kaupamaður í Reykjavík. Árný Fjóla var dóttir hjónanna Stefáns Guðnason- ar, skósmiðs og verkstjóra hjá Reykjavíkurborg, eins stofnenda hljómsveitarinnar Hörpu er síðar varð Lúðrasveit Reykjavíkur, og Vigdisar Sæmundsdóttur húsfreyju. Hreiðar og Sólveig bjóða til morgunverðarhlað- borðs í safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3, 3. hæð, sunnudaginn 13.10. milli kl. 9.00 og 11.00. All- ir ættingjar og vinir eru velkomnir. B1 Laugard. 12. október 90 ÁRA Fjóla Guðmundsdóttir, Borgarbraut 65a, Borgarnesi. 85 ÁRA Jósef Halldórsson, Fannborg 8, Kópavogi. Ragnheiður Jónsdóttir, Klettahlíö 14, Hveragerði. 80 ÁRA Tryggvi Benediktsson, Skjólbraut la, Kópavogi. 75 ÁRA____________________ Björn Helgason, Furugrund 54, Kópavogi. Sigríður H. Jónsdóttir, Lautasmára 24, Kópavogi. 60ÁRA Auður Pedersen, Melahvarfi 6, Kópavogi. Ágúst Ingi Eyjólfsson, Esjuvöllum 12, Akranesi. Birna Björnsdóttir, Funafold 55, Reykjavík. Erlendur Egilsson, Miðtúni 34, Reykjavík. Reynir Hugason, Smáratúni 3, Selfossi. Sigríður Kristinsdóttir, Þórufelli 20, Reykjavík. Unnur G. Kristinsdóttir, Lækjarseli 10, Reykjavík. Örn Óskarsson, Álfhólsvegi 38, Kópavogi. 50 ÁRA____________________ Ingibjörg Garðarsdóttir, Gullengi 1, Reykjavík. Jón Ragnarsson, Vesturbergi 79, Reykjavík. Maria Laura Barbedo Amaro, Vesturbraut 2, Hafnarfirði. Perla Hlíf Smáradóttir, Miðholti 3, Selfossi. Pétur Hauksson, Vesturási 21, Reykjavík. Rögnvaldur Þór Óskarsson, Hlíðarvegi 48, Isafiröi. Sigríður Lárusdóttir, Aragerði 13, Vogum. Sigþrúður Björg Axelsdóttir, Flúöaseli 93, Reykjavík. Snorri Ásgeirsson, Auöarstræti 15, Reykjavík. 40 ÁRA____________________ Ásdís Jónsdóttir, Reykjabyggð 1, Mosfellsbæ. Ásta Katrin Helgadóttir, Túngötu 11, Siglufiröi. Bergdís Þóra Jónsdóttir, Fannafold 190, Reykjavík. Bima Sigfúsdóttir, Húnabraut 1, Blönduósi. Dóra Kolbeinsdóttir, Skólavegi 45, Vestm.eyjum. Elísabet Kvaran, Seilugranda 8, Reykjavík. Gunnar Ólafur Schram, Smáratúni 27, Keflavík. Ingibjörg Halla Hjartardóttir, Freyjugötu 38, Reykjavík. Jón Þór Ingólfsson, Engihjalla 1, Kópavogi. Katrín Sveinsdóttir, Smyrlahrauni 52, Hafnarfirði. Margrét Þorsteinsdóttir, Hringbraut 85, Reykjavík. Sigurður Einar Einarsson, Bugðulæk 18, Reykjavík. Skúli Arnarsson, Hlíðarhjalla 55, Kópavogi. Steinþór Hlöðversson, Álfaskeiöi 24, Hafnarfiröi. Sunnud. 13. október 95 ÁRA____________________ Ingimar Ástvald- ur Magnússon, húsasmíðameist- ari. Hann dvelur á hjúkrunar- og dvaiarheimilinu Holtsbúð 87, Garðabæ. Ingimar tekur á móti ættingjum og vinum I Holtsbúð nk. sunnud. kl. 15.00-17.00. 90-Ára Valgerður Haraldsdóttir, Fellaskjóli, Grundarfirði. 85 ÁRA____________________ Þórdís Þorgrímsdóttir, Hrafnistu, Reykjavík. 75 ÁRA____________________ Gísli Ferdinandsson, Lækjargötu 4, Reykjavlk. 60ÁRA Cuiqin Hu, Bólstaðarhlíð 42, Reykjavik. Ellen E. Úlfarsdóttir, Hagamel 47, Reykjavík. Gisli Ingólfsson, Ásgarði 77, Reykjavík. GuðniJónsson, Jaðarsbraut 35, Akranesi. Gunnar Þ. Helgason, Haðalandi 24, Reykjavík. Halldóra Þorvarðardóttir, Úthlíð 2, Hafnarfirði. Hinrik Bergsson, Austurvegi 4, Grindavlk. Hrafn Sigurhansson, Logafold 49, Reykjavík. Sigríður Friöriksdóttir, Torfufelli 31, Reykjavík. Þuríður Sigurðardóttir, Freyjugötu 37, Reykjavík. 50 ÁRA Gunnar Ragnarsson lyftarastjóri, Böðvarsgötu 6, Borgarnesi, varð fimmtugur I gær. Kona hans er Guðbjörg Ingólfs- dóttir matráðskona. Hann tek- ur á móti gestum I Félagsbæ, laugard. 12.10. kl. 20.-24. Halldóra Jónsdóttir, Löngumýri 28, Garðabæ. Henrik Rudolf Henriksson, Holtsgötu 1, Sandgerði. Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir, Þverholti 32, Reykjavík. Karvel Hólm Jóhannesson, Ásklifi 1, Stykkishólmi. Rut Helgadóttir, Litlabæjarvör 5, Bessastaðahr. Sigurður Garöarsson, Hásteinsvegi 20, Stokkseyri. Sunna Kim du, Vesturgötu 55, Reykjavík. Þórdís Þórhallsdóttir, Urðarstíg 11, Reykjavík. 40 ÁRA____________________ Bjöm Jón Jónsson, Ægisíðu 92, Reykjavík. Guðmundur Guðmundsson, Gyðufelli 10, Reykjavlk. Guðrún Harpa Vilhjálmsdóttir, Einholti 2a, Akureyri. Hjördís Rósa Halldórsdóttir, Lindasmára 97, Kópavogi. Katrín Gísladóttir, Suöurbraut Sólnesi, Reykjavlk. Magnús Bjarkason, Nesbakka 3, Neskaupstað. Margrét Eövaldsdóttir, Norðurvöllum 12, Keflavík. María M. Birgisd Olsen, Sunnubraut 44, Keflavík.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.