Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 49

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Síða 49
LAUGARDAGUR 12. OKTÓBER 2002 Helqctrblctð 3Z>"V 53 Ingvar Jónasson tónlistarmaður í Reykjavík verður 75 ára á morgun Ingvar Jónasson tónlistarmaður, Grandavegi 47, Reykjavík, verður sjötíu og fimm ára á morgun. Starfsferill Ingvar fæddist á ísafirði og ólst þar upp. Hann stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann í Reykja- vík, við Royal College of Music í London og sótti einkatíma í Vínarborg og í Bloomington í Indiana í Bandaríkjunum. Ingvar var fiðluleikari og víóluleikari við Sinfóníu- hljómsveit íslands um árabil og kenndi lengi við Tón- listarskólann í Reykjavík. Hann var fyrsti víóluleik- ari við Sinfóníuhljómsveit Malmöborgar og kennari við Tónlistarháskólana í Malmö og Gautaborg. Þá var hann annar víóluleikari við óperuhljómsveitina Kungliga Hovkapellet í Stokkhólmi og hefur verið frá upphafi og er enn aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveit- ar áhugamanna. Ingvar hefur setið í stjórn Starfsmannafélags Sin- fóníuhljómsveitar íslands og Félags íslenskra tónlist- armanna. Hann var sæmdur riddarakrossi islensku fálkaorðunnar 1998. Fjölskylda Ingvar kvæntist 10.9. 1955 Stellu Margréti Sigur- jónsdóttur, f. 3.12. 1935, tannfræðingi. Hún er dóttir Sigurjóns Sæmundssonar, prentsmiðjustjóra og söngvara, og Ragnheiðar Sæmundsdóttur húsfreyju sem er látin. Börn Ingvars og Stellu Margrétar eru Sigurjón Ragnar, f. 8.4. 1957, prentari í Reykjavík og á hann einn son, Ingvar; Vigfús, f. 15.7. 1958, hljóðtæknimað- ur í Reykjavík en eiginkona hans er Nanna Gunnars- dóttir og eiga þau þrjú börn, Dóru Lind, Daða Krist- ján og Stefán Ingvar; Anna, f. 26.11. 1964, fiðluleikari í Stokkhólmi en eigimaður hennar er Martin Cron- ström og eiga þau tvö börn, Joel Ingvar og Siri Margreti. Bræður Ingvars eru Tómas Árni Jónasson, f. 5.10. 1924, læknir i Reykjavík; Gunnlaugur Friðrik Jónas- son, f. 28.2. 1930, bóksali á ísafirði. Foreldrar Ingvars voru Jónas Tómasson, f. 13.4. Magnús Daðason málarameistari í Keflavík Hallgrímur Magnús Daðason málarameistari, Heiðarbraut 10, Keflavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Magnús fæddist í Hafn- arnesi viö Fáskrúðsfjörð og ólst upp í Keflavík. Hann stundaði nám í mál- araiðn, lauk prófum við Iðnskólann í Reykjavík 1974, öðlaðist réttindi sem málarameistari 1982 og löggildingu 2001, stundaði nám við Lögregluskóla rík- isins og lauk þaðan fyrrihluta-prófum 1976 og seinni- hluta-prófum 1978. Magnús starfaði sem málari um skeið, var lögreglu- þjónn hjá ríkislögreglunni á Keflavíkurflugvelli frá 1975, starfaði hjá lögreglunni í Keflavík 1981-84, vann hjá Slökkviliðinu á Keflavíkurflugvelli 1984. Hann stofnaði eigið fyrirtæki 1984 og starfar enn sem málari með eigiö fyrirtæki, Málningarþjónustu M. Daðasonar ehf. Magnús hefur starfað mikið að knattspyrnumálum í Keflavík og m.a. verið formaður knattspyrnuráðs. Fjölskylda Magnús kvæntist 27.11. 1971 Ásdísi Svölu Pálsdótt- ur, f. 8.8. 1953, starfsmanni við flugafgreiðsluna í Keflavik. Hún er dóttir Páls Ásgeirssonar, f. 4.3. 1932, sjómanns í Reykjavík, og Guðrúnar Jensdóttur, f. 25.7. 1936, d. 10.9. 1964, húsmóður. Sonur Magnúsar frá því fyrir hjónaband er Ragnar Magnússon, f. 25.7. 1970, bifreiðastjóri í Keflavík, í sambúð með Guðrúnu Grétarsdóttur og eiga þau þrjá syni, Atla Má, Magnús Smára og Aron Inga. Börn Magnúsar og Svölu eru Magnús Daði, f. 30.5. 1972, málari í Keflavfk, í sambúð með Ingu Rós Guð- mundsdóttur; Kjartan Már, f. 18.12.1975, ljósmyndari í Reykjavík en dóttir hans og Júlu Björgvinsdóttur er Mía; Arnar, f. 31.5. 1985, nemi; Björgvin, f. 21.7. 1989. Systkini Magnúsar eru Herborg Daðadóttir, f. 6.2. 1958, hárgreiðslumeistari í Bandaríkjunum; Daði Daðason, f. 23.4. 1959, heildsali, búsettur á Álftanesi; Vignir Daðason, f. 11.10. 1962, smiður, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Magnúsar: Margrímur Daði Magnússon, f. 21.6. 1929, d. 11.2. 1989, iðnverkamaður í Keflavík, og k.h., Jóhanna Ingigerður Hallgrímsdóttir, f. 29.8. 1934, húsmóðir. Magnús er í útlöndum á afmælisdaginn. Guðjón Ólafsson verkamaður í Kópavogi Guðjón Ólafsson verkamaður, til heim- ilis að Kjarrhólma 1, Kópavogi, verður fer- tugur á morgun. Starfsferill Guðjón fæddist í Reykjavík en ólst upp á Eyri við Ingólfsfjörð í Strandasýslu og í Hafnarfirði. Hann var í Öldutúnsskóla í Hafnarfirði og stund- aði nám við Flensborg Guðjón stundaði fiskvinnslu í Hafnarfirði á ung- lingsárunum, var síðan til sjós um árabil. Hann var fyrst á hafrannsóknarskipi en síðan hjá Landhelgis- gæslunni á varðskipunum Tý og Þór. Þá var hann lengi á flskiskipum, s.s. Brimnesi; Sighvati Bjarna- syni VE; Jóni Finnssyni RE; Sjóla HF; Sögu; Eldvík; Akranesi; Hvítanesi; Saltnesi, og ísnesi. Þá var Guðjón á farskipum hjá Eimskipafélagi ís- lands, s.s. Dettifossi; Ljósafossi; Mánafossi; Reykja- fossi, í fimm ár á Brúarfossi; Bakkafossi og loks á íra- fossi er hann hætti til sjós. Eftir að Guðjón kom í land var hann fyrst i bygging- arvinnu hjá ístaki og starfaði siðan hjá Borgarplasti. Hann vann síðan hjá Orkuveitu Reykjavíkur á Nesja- völlum og síðan á lager Orkuveitunnar. Hann starfar nú við Vöruhótel Eimskipafélags íslands í götuljósa- deild. Fjölskylda Eiginkona Guðjóns er Jóhanna Þórdís Jónsdóttir, f. 14.1.1961, bréfberi hjá íslandspósti. Hún er dóttir Jóns Skúla Þórissonar, f. 16.7. 1931, klæðskerameistara í Hafnarfirði, og Svönu Ragnarsdóttur, f. 22.1.1937, hús- móður. Sonur Guðjóns og Jóhönnu Þórdísar er Ólafur Þór- ir Guðjónsson, f. 2.8. 1995. Dóttir Guðjóns og Maríu F. Ólafsson er Svandís Guðjónsdóttir, f. 7.1. 1990. Fósturdóttir Guðjóns er Dagbjört Svana Haralds- dóttir, f. 18.1. 1985, tónlistarnemi. Systir Guðjóns er Guðrún Ólafsdóttir, f. 11.8. 1964, bankastarfsmaður við Búnaðarbankann. Foreldrar Guðjóns eru Ólafur Ingólfsson, f. 22.6. 1941, vélvirkjameistari við Vélaverkstæði Jóhanns Ólafssonar, og Svanhildur Guðmundsdóttir, f. 26.5. 1943, fulltrúi hjá sýslumanninum í Hafnarfirði. í einn vetur. 1881, d. 9.9. 1967, tónskáld, organisti og bóksali á ísa- firði, og k.h., Anna Ingvarsdóttir, f. 8.4. 1900, d. 6.10. 1943, húsmóðir. Ætt Jónas var bróðir Tómasínu, ömmu Tómasar Inga Olrich menntamálaráöherra. Jónas var sonur Tómas- ar, b. á fræðimanns á Hróarsstöðum, Jónassonar, b. á Sellandi, Bjarnasonar á Reykjum, Jónssonar. Móðir Jónasar var Jórunn Oddsdóttir. Móðir Tómasar á Hróarsstöðum var Sigríður, dóttir Jóns, b. á Kotungs- stöðum, Jónssonar og Sigríðar Árnadóttur. Móðir Jónasar tónskálds var Björg Emelía Þor- steinsdóttir, b. á Hlíðarenda i Köldukinn, Torfasonar, Jónssonar. Móðir Þorsteins var Sigurlaug Helgadótt- ir. Móðir Bjargar var Kristjana Jónsdóttir, b. á Syðra- -Hóli Helgasonar, og Kristínar Vigfúsdóttur. Anna var dóttir Ingvars, blikksmiðs á Isafirði, Vig- fússonar, og Sigríðar Árnadóttur. Ingvar er að heiman á afmælisdaginn, Árið 1985 kom út bókin Agnir eftir Braga Björnsson frá Surtsstöðum í Jökulsárhlíð. Þar er að finna úrval af vísum hans. Fremst í bókinni er þessi ferskeytla: Síundum þegar einn ég er og ekkert kýs að heyra, þá er eins og þögnin mér þylji vísu í eyra. Bókin skiptist í nokkra kafla eftir efni. Einn þeirra heitir „Á tæpu vaði“. Þar er þessi hringhenda: Hófasár sín heimtir laun húöarklár er stritar. Margra ára álagsraun úlfgrá hárin litar. Annar kafli heitir „Fögur er Hlíðin“ og mun þar vís- að til heimasveitar Braga: Hljómsins bíóa fell og fjall, fetar hlíöar smalinn, ómsins blíöa bergmálskall berst um víöan dalinn. Þar er líka þessi snilld: Gyllir sunnu töfratjald tinda, ver og granda, hillir unnar öldufald upp við Héraössanda. Hér er innrím í 1. og 3. línu og svo í 2. og 4. Þetta er kallað víxlhent. Einn kaflinn heitir „Olnbogaskot". Þar er skotið á samferðamennina, stundum óvægilega. Þar er m.a. þessi langhenda sem hefur orðið fleyg: Sjaldan varstu viöbragösfljótur, var þín leti um sveitir spurö, en þér var aldrei þungur fótur þyrfti mann í söguburð. Eins og sést á næsta „olnbogaskoti“ fer Bragi afar vel með hringhenduformið: í hann slœr og úr viö dóm ótt sem flœr á skinni, tungur hrœrir tvær viö góm tœkifærissinni. Og nirfilsháttur er Braga ekki að skapi: Stóra átt sjóði, stœröar bú en stagbætt eru fötin þín. Efeg vœri eins og þú ósköp mundi eg skammast mín. Næsta vísa fellur ágætlega að umræðuefni dags- Sína páfa senda á þing sérhagsmunaklíkur. „Enginn grœtur íslending" utan hann sé ríkur. Við endum á einni hringhendunni enn: Nœturblundi brugöiö er, blómum grundir skarta, dagsins undur mœta mér morgunstundu bjarta. Umsjón

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.