Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Qupperneq 52

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.2002, Qupperneq 52
í 56 4 Helgarblað I>'V LAUGARDAOUR 12. OKTÓBER 2002 F O R V A L F. h. Borgarsjóðs Reykjavíkur er auglýst eftir aðilum til að taka þátt í lokuðu útboði vegna ytri endurskoðunar á bor- garsjóði A-hluta og B-hluta fyrirtækja hans. Forvalið er auglýst Evrópska efnahagssvæðinu. Forvalsgögn, sem eru á íslensku, fást hjá Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, 101 Reykjavík. Umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skila á sama stað, eigi síðar en kl. 15.00,18. nóvember 2002, merktum: Forval nr. ISR/0210/BSJ - Ytri endurskoðun fyrir Reykjavíkurborg. INNKA UPASTOFNUN REYKJA VÍKURBORGAR Fríklrkjuvogi 3 - 101 Reykjavfk-Siml 570 5@00 Fax 562 2616 - Netfang: lsr@rhus.rvk.ls RJUPMSKOT Solway 850 kr. 42 g, nr. 4 Ultramax Super 990 kr. 42 g, nr. 4 Ultramax 770 kr. 36 g, nr. 4 & 6 Hulmax 600 kr. 34 g, nr. 4 & 6 3 Crowns 550 kr. 28 g, nr. 4 & 5 Sterling 20GA 766 kr. 28 g, nr. 5 6 6 3 Crowns 16GA 700 kr. 28 g, nr. 5 Hraði frá 1350 f/sek til 1475 f/sek www. hul lcartridge. co. uk Hwww.sportbud. is Sportbúð Títan - Krókhálsi 5g - 110 Reykjavík S. 5800 280 - E-mail: sportbud@velar.is Staðalbúnaður: Öflug 1.61103hö vél 6 líknarbelgir Aftengjanlegur líknarbelgur í farþegasæti Spólvörn Læsivarðir hemlar (ABS með EBD) MSR niðurgírunarlæsivörn Aflstýri með þyngdarvali Aftursæti færanleg fram og aftur (5 dyra) Frábærir aksturseiginleikar Fullkomið hljómkerfi Vel búin aksturstölva 12 ára ryðvarnarábyrgð Hagkvæmt verð Glæsileg ítölsk hönnun Vandað evrópskt handbragð Reynsluaktu Fiat Stilo strax í dag. Verðfrákr. 1.650.000.- Smáralind j Smiðsbúð 2 • Garðabæ Sími 5 400 800 • www.fiat.is Skákþátturinn Umsjón Sævar Bjamason Mjólkurskákmótið á Selfossi: Gróskan í skákinni heldur áfram Á hótelinu á Selfossi fer fram af- burða skemmtilegt skákmót og það er barist til þrautar í hverri skák. Keppt er í 2 flokkum sem er nýlunda í skákmótahaldi hér á landi og löngu tími til kominn. Friðrik Ólafsson fagnaði þessu mótahaldi í heimsókn sinni á Selfoss og sagði að það væri gaman að eitthvað væri að gerast i íslensku skáklífi aftur. Þarna á Frið- rik örugglega við að það sé mikili gróskutími í skákinni og að ofan á venjulega dagskrá skákmanna skuli framtak Hróksins og Hrafns Jökuls- sonar koma og blása nýju lífi í mátt- vana og of hefðbundin samtök. Mótin tvö gefa mönnum tækifæri að tefla við menn í þeim styrkleika- flokki sem þeir eru í og tækifæri til að bæta sig. 2 efstu menn i meistara- flokki eru báðir fæddir í Bosníu og Ivan hinn grimmi Sokolov er talinn 18. sterkasti skákmaður heims í dag og Predrag Nikolic er ekki langt fyr- ir neðan hann á listanum. Aðrir keppendur eru allir líklegir til að bæta sig. Helgi Ólafsson hefur t.d. kveikt í gömlum glæðum og hefur sýnt góða taflmennsku. Stefán Krist- jánsson er að læra til stórmeistara og það er allt útlit fyrir að það ætti að takast innan fárra ára. Efnilegir skákmenn eru þarna eins og t.d. Englendingurinn Luke McS- hane sem er á 19. ári og nálgast heimstoppinn óðfluga. Bragi Þor- finnsson er að reyna að ná 2400 stiga markinu til að verða endanlega út- nefndur alþjóðlegur meistari. Hinir eru reyndir stórmeistarar sem hafa alla burði til að ná lengra. í áskor- endaflokki er keppnin hörð og Fær- eyingurinn og Þingeyingurinn Fló- vin Thor Næs er efstur og ætti að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli miðað við taflmennskuna hingað til. Erfitt verður fyrir hina sem eru að eltast við að ná áfanga að ná mark- inu en allt getur gerst í skák. Staðan efir 3 umferðir í meistara- flokki. 1. Ivan Sokolov 3 v. 2. Predrag Nikolic 2,5 v. 3.-4. Helgi Ólafsson og Luke McShane 2 v. 5. Hannes H. Stef- ánsson 1,5 v. 6.-7. Stefán Kristjáns- sonog Pavel Tregubov lv. 8. -10. Bragi Þorfinnsson, Zbynek Hracek og Tomas Oral 0,5 v. Áskorendaflokkur: 1 Flóvin Thor Næs 3 v. 2.-4. Jón Viktor Gunnars- son, Jan Votava og Steffen Pedersen 2,5 v. 5.-6. Páll Agnar Þórarinsson og Sigurður Páll Steindórsson 1,5 v. 7. Ágúst Sindri Karlsson 1 v. 8. Þor- steinn Þorsteinsson 0,5 9.-10. Lenka Ptacnikova og Guðmundur Kjartans- son 0 v. Ég hef ekki farið austur enn þá, það er svo gaman að sitja inni í stofu og fylgjast með þar á Netinu. Þar er vel fylgst með og stöður skeggræddar af miklum móð af fjölda skákmanna. Bandarikjamenn eru þar fremstir í flokki og spyrja og spá af vestur- heimskum áhuga og erfitt er að svara öllu enda dettur manni það ekki í hug! Mikið er þó spurt um land og þjóð einnig, já umræðuefnin eru margvísleg. Sá sem heldur uppi aðalfjörinu er íslenskur skákmaður sem býr erlend- is og gegnir dulnefninu „Skotta" þama á vefnum. Hann talar ensku betur en margur enskumælandi mað- urinn og leiðréttir þá miskunnar- laust og er með alls konar innlegg með fjölskrúðugu málfari og ég veit að það eru margir gapandi yfir þess- um snillingi sem hefur lagt margan stórmeistarann í kappskák svo ekki sé minnst á minni spámenn. Menn eru þarna allir undir dulnefnum og „Skotta" hefur verið treg að gefa upp nafn sitt þarna á vefnum og ætla ég ekki að upplýsa það mál hér heldur, þó ég þekki kauða vel. Þessi skák úr 1. umferð vakti mikla athygli enda. ekki á hverjum degi sem ungur íslenskur skákmaður fléttar stórmeistara með yfir 2600 Elo-stig í hel! Hvítt: Zbynek Hracek (2607) Svart: Stefán Kristjánsson (2431) Frönsk vörn. Alþjóðlegt mót Sel- fossi (1), 8.10. 2002 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 c5 7. Dg4 Kf8!? I skák er allt hægt. Þessi leikur er gamall, frá 2. áratug síðustu aldar. Hér áður fyrr og enn i dag leika menn oft hér 7. -0-0 eða fórna peðun- um með 7. -Dc7. Bæði þessi afbrigði þóttu og eru ágæt en margir vilja komast úr margþvældum fræðunum sem fyrst. Bosniumaðurinn Predrag Nikolic sem er keppandi á mótinu á Selfossi teflir oft svona og hvernig er best að bregðast við er ekki ljóst. Stefán tapaði reyndar illa í þessu af- brigði á síðasta alþjóðlega Reykjavík- urskákmóti á móti Rússanum Oleg Korneev en hefur sennilega lagað af- brigðið heima. 8. Bd2 b6! Þarna ligg- ur hundurinn grafinn. Skemmtileg áætlun en á móti Korneev lék Stefán 8. -Dc7 9.Bd3 c4 10. Bfl! og Rússinn vann í spennandi skák, en Hannes Hlífar lék eftir 8. -b6 9. dxc5 bxc5 RÍ3 gegn sjálfum Vassilí Ivanchuk á Evr- ópumóti landsliða fyrir um ári síðan og þeirri skák lauk með jafntefli. 9. Rh3 Ba6 10. Bxa6 Rxa6 11. 0-0 Hc8 12. Rf4 cxd4 13. cxd4 Rf5 Hvítur stendur grár fyrir járnum og enginn tími til að hirða peðið á c2. Hvítur hefur komið mönnum sínum öllum út og það er svörtum í hag að hafa stöðuna lokaða um sinn. 14. c3 Hc4 15. Df3 h5 16. h3 g6 17. g4? Betra er að flýta sér hægt og leika t.d. 17. Hfbl Kg7 18. a4 og hvítur stendur betur. 17. -hxg4 18. hxg4 Dh4 19. Dg2 Svartur lumar nú á skemmthegum leik sem sumir vilja kalla leik ársins hjá íslenskum skákmanni. Ég get al- veg tekið undir það, báðir riddarar svarts eru í uppnámi og hinn marg- reyndi tékkneski stórmeistari missir þráðinn. Mikael Tal hefði verið hreykinn af þessum leik! 19. -Rc5!! 20. dxc5 g5! Ég hafði ánægjuna af að buna þessum leik úr mér á Net- inu.Hrókurinn á c4 er kominn með í atlögunni að svarta kónginum. 21. cxb6 axb6 22. Dh3? Hvíta staöan er töpuð, 22. Rxe6 fxe6 23. f3 Rg3 24. Hfel d4 er ekki gæfulegt né heldur 22. f3 gxf4 23. Hfbl Rg3 24. Bel Dg5! Og svartur er með stöðu hvíts í her- kví. Mikilvægt er líka að athuga að ekki gengur 22. gxí5 gxf5 og 23. -Hg8 er illvíg hótun. En nú vinnur Stefán auðveldlega! 22. -Dxh3 23. Rxh3 Hxg4+ 24. Kh2 Nú kemur sleggjuleikur sem Tékkinn hefur eflaust ekki reikn- að með. 24. -Rh4! Vegna hótunarinn- ar 25. -Rf3+ er næsti dapurlegi leikur þvingaður! 25. f3 Hg2+ 26. Khl Hxd2 0-1 Helgi Ólafsson er að pússa rykið af þeirri taflmennsku sem hann sýndi svo eftirminnilega hér á árum áður. Þeir sem eru fæddir hæfileikamenn í skákinni og hafa hana eins og marg- ir segja í blóðinu gleyma engu þó þaö liggi djúpt stundum. Enda á Helgi að vera með um 2600 stig og e.t.v. er áhuginn fyrir því að vakna aftur. Getan hefur alltaf verið fyrir hendi! Hvítt: Helgi Ólafsson (2476) Svart: Tomas Oral (2546) Enski leikurinn. Alþjóðlegt mót Selfossi (2), 9.10. 2002 1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 e6 5. Rb5 d6 6. g3 a6 7. R5c3 Rf6 8. Bg2 Be7 9. 0-0 0-0 10. b3 Dc7 11. Bb2 b6 12. Rd2 Bb7 13. Hcl Re5 Aðalvandamál svarts er d6 peðið og Helgi beinir spjótum sínum að því. 14. Rde4 Rxe4 15. Rxe4 f5 16. Rd2 Bxg2 17 . Kxg2 Db7+ 18. Kgl Bf6 Svartur hótar nú í sumum tilfellum RÍ3+ og Bb2 fellur. En það er auðvelt að gera við því og láta biskupinn af hendi við hagstæðari aðstæður! 19. Hc2 b5 Aðalsmerki Helga sem skákmanns er hárfin næmni fyrir stöðulegum yf- irburðum sem ekki eru öllum ljósir. Hér leikur hann öflugum leik og svartur fær tvípeð að verja. 20. Bxe5! dxe5 Þvingað, 20. -Bxe5 21. cxb5 axb5 22. Rf3 og vandræði svarts eru ekki skárri en þau sem hann þarf að berjast við í skákinni! 21. e4! Had8 22. De2 Hd4 23. Hel Bg5 Peðið á e5 var rækilega skorðað í 21. leik. Nú er hægt að ráðast að því. 24. exf5 exf5 25. cxb5 Bxd2 26. Hxd2 Hxd2 27. Dxd2 Dxb5 28. Dd6 e4 29. Hcl h6 30. Hc7 De2 Svartur vonast eftir að geta haldið stöðu sinni saman með ðgnandi stöðu drottningarinnar en nú kemur alvöru stórmeistaraleikur sem trygg- ir hvítum eitt lítið peð sem Helgi ávaxtar vel! 31.Hc8!! Hxc8 32.De6+ KfB 33.Dxc8+ Ke7 34.Dxf5 Kd6 35.b4 g5 36.Kg2 g4 37.Dc5+ Ke6 Svartur virðist eiga einhverja þrá- skákarmöguleika en það er bara tál- sýn. Helgi leikur nú öflugum leik og tínir svo peð í viðbót í tímahraki Orals. En honum voru hvort sem var allar bjargir bannaðar. Sannfærandi sigur! 38. Dcl Kd5 39. a4 Dc4 40. Dxh6 Dxb4 41. Dxa6! Da3 42. Db7+ Kd4 43. Dg7+ Kd3 44. Dd7+ Kc3 45. Ddl Da2 Og síðasti leikur hvíts sýn- ir að peð hans verða ekki stöðvuö! 46. a5 1-0
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.