Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Page 1
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 235. TBL. - 92. ÁRG. - MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
VERÐ í LAUSASÖLU KR. 200 M/VSK
GRETTIR FER MIKINN
Á SVIÐINU. BLS. 48
brigðin leyna sér ekki á
andliti Atla Eðvaldssonar
landsliðsþjálfara.
DV-Sport fjallar ítarlega
um leikinn og leitar
skýringa á því hvað fór
úrskeiðis.
Bls. 18 og 27-34
Bókamessan í Frankfurt í Þýskalandi:
Hart tekist á um útgáfu-
rétt á íslenskum bókum
- efnt til uppboðs á verkum Arnalds Indriðasonar og Halldórs Laxness
Erlend forlög tókust hart á um útgáfurétt
bóka eftir tvo Islenska höfunda á bókamess-
unni í Frankfurt í Þýskalandi sem lauk í gær-
kvöld. Þrjú spænsk bókaforlög bitust um út-
gáfuréttinn á verkum Halldórs Laxness. Af
þeim sökum var efnt til uppboðs þar sem sá
hlaut hnossið sem hæst bauð.
Sama máli gegndi um bækur Amaids Ind-
riðasonar, Mýrina og Grafarþögn. Um útgáfu-
réttinn á þeim kepptu þrjú norsk forlög og þar
fór einnig fram uppboð. Af verkum annarra
íslenskra höfunda, sem samið var um útgáfu-
rétt á, má nefna Höfund íslands eftir Hallgrím
Helgason.
Halldór Guðmundsson, forstjóri bókaútgáf-
unnar Eddu, sagði við DV í gær að þótt bóka-
messan hefði i heild verið heldur fámennari
og rólegri en áður hefði áhuginn á íslenskum
bókmenntum verið ótrúlega mikill. Það væri
harla óvenjulegt að hann væri svo mikill að
efna þyrfti til uppboðs eins og nú heíði gerst.
Margir samningar hefðu verið gerðir á staðn-
um og þeir hefðu verið mjög góðir.
Útgáfuréttur bóka Amalds hafði áður verið
seldur til allra Norðurlandanna, að Noregi
undanskildum, Þýskalands, Englands og
Hollands.
„Þegar svona mikill áhugi er fyrir hendi er
hægt að láta fylgja með í samningnum kröfu
um bókaklúbb og kiljuútgáfu, að höfundinum
sé boðið á staðinn við útkomu og fleira af því
tagi,“ sagði Halldór. „Það skiptir höfuðmáli að
fá alvöru markaðssetningu.“
Forlög sem gefið höfðu út bók Hallgíms
Helgasonar, 101 Reykjavík, gengu nú frá
samningum um Höfund íslands. Halldór sagði
að í sumum tilvikum hefðu komiö fram mjög
góð tilboð. Það sýndi að forlögunum væri al-
vara, þau hygðust kynna bókina vel og seija
hana. Það skipti miklu máli fyrir höfundana
að komast á sölulista og verða sýnilegri í um-
ræddum löndum.
Af öðrum verkum sem athygli vöktu á
bókamessunni er Óvinafagnaður Einars Kára-
sonar sem samið var um útgáfu á á Þýska-
landsmarkað. Þá má nefna verk Einars Más,
auk þess sem mikill áhugi var á Andra Snæ
og væntanlegri bók hans. -JSS
TÍMI HAUSTLAUKANNA:
Lífga upp
á voriö
24 SÍÐNA DV-SPORT:
Allt um leiki
helgarinnar
17-40
BÍLASPRAUTUN 0G RÉTTINGAR
m, AUÐUNS Æá
Nýbýlavegi 10 Kópavogi
Sími: 554 2510
• Tjónaskoðun
• Bílaréttingar
• Bílamálun
»CABAS
NÝTT
jsssst,
• Við vinnum eftir nýju tjónamatskerfi sem heitir Cabas
Þú kemur með bílinn í tjónaskoðun til okkar
Þú færð bílaleigubíl á meðan viðgerð stendur yfir