Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 26
5 50 MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002 Islendingaþættir______________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85_ára______________________ Guðbjörg Sveinsdóttir, ip. Grænumörk 5, Selfossi. Sigurlína Jóhannsdóttir, Hvanneyrarbraut 62, Siglufirði. 75 ára___________________________ Egill Kristjánsson, Herjólfsgötu 12, Vestmannaeyjum. Rúnar Guömundsson, Garðsstöðum 17, Reykjavík. Siguröur Samúelsson, Sólheimum 23, Reykjavlk. Stefán Stefánsson, Mlmisvegi 26, Dalvík. Þóra Ágústsdóttir, Bólstaöarhlíö 45, Reykjavík. 70 ára___________________________ Edda Ögmundsdóttir, Sólheimum 23, Reykjavík. Eiríkur Leifur Ögmundsson, Stórahjalla 33, Kópavogi. 60 ára___________________________ Friðrikka R. Bjarnadóttir, -Aðalstræti 20, ísafirði. Halldór Bjarnason, Vesturbergi 142, Reykjavík. Jóhannes Einarsson, Hólsbergi 13, Hafnarfirði. Reynir Ingi Helgason, Helgubraut 27, Kópavogi. Sigríöur I. Sigurðardóttir, Vallholti 43, Selfossi. Viðar Hörgdal Guðnason, ■4 Sléttuvegi 7, Reykjavík. Þórhildur Pálsdóttir, Lágholti 4, Stykkishólmi. 50 ára_______________________ Frímann Árnason, Ástúni 10, Kópavogi. Guölaug Gunnarsdóttir, Þórunnarstræti 125, Akureyri. Helga Kolbrún Hreinsdóttir, Dalskógum 12, Egilsstööum. Jónína B. Gunnarsdóttir, Fjallalind 102, Kópavogi. Kristján Ásgrímsson, Lindarbyggð 9, Mosfellsbæ. Pálmi V. Jónsson, Grenimel 21, Reykjavík. Ragnar Jónsson, Dísarási 11, Reykjavík. Siggeröur M. Jóhannesdóttir, Huldugili 29, Akureyri. 40 ára_______________________ Björn Marinó Pálmason, Grenihlíð 13, Sauðárkróki. Bragi Andrésson, Sunnubraut 52, Keflavík. Böövar Bjarki Pétursson, Víðihvammi 34, Kópavogi. Egill Njálsson, Vesturbergi 48, Reykjavík. Guöbjörg Hulda Albertsdóttir, Starengi 7, Selfossi. ■r Gunnar Sigfússon, Hjallahlíö 8, Mosfellsbæ. Gunnar Þór Hallbergsson, Hringbraut 75, Hafnarfiröi. Hildur H. Zoega Stefánsdóttir, Faxastíg 5, Vestmannaeyjum. Inglbjörg Helga Blrgisdóttlr, Múlasíðu 44, Akureyri. Jón Kristinn Gíslason, Ásbúð 87, Garðabæ. Sveinn Pétursson, Brekkuhlíö 4, Hafnarfirði. Smáauglýsingar DV 550 5000 Fólk í fréttum / Olafur G. Guðlaugsson rithöfundur og auglýsingahönnuður Ólafur Gunnar Guölaugsson, rit- höfundur, auglýsingahönnuður og myndskreytir, Laufásvegi 5, Reykja- vík, er höfundur leikritsins Bene- dikt búálfur sem frumsýnt var í Loftkastalanum á laugardaginn var. Starfsferill Ólafur fæddist á Sólvangi í Hafn- arfirði en ólst upp í vesturbænum i Reykjavík. Hann var í Melaskóla, Hagaskóla, lauk stúdentsprófi frá MR 1985, stundaði nám í auglýs- ingagerð við The Art Institut of Fort Lauderdale í Flórída í Bandaríkjun- um og lauk þaðan BA-prófl 1989. Ólafur starfaði á eigin vegum að námi loknu, var starfsmaður á ís- lensku auglýsingastofunni um hríð, starfrækti Auglýsingastofu Brynjars Ragnarssonar, ásamt Brynjari, í fimm ár, starfaði á DV, fyrst sem grafískur hönnuður og síðan útlitshönnuður DV 1993-99 og hefur starfað á eigin vegum síðan. Ólafur hannaði veitingakrána Rauða ljónið á sínum tíma og hann- aði, ásamt Guðrúnu G. Bergmann, Vikingaspiliö sem komið hefur út á fimm tungumálum. Ólafur hefur verið mikill KR-ingur alla tíð en hann sat í stjóm KR-klúbbsins 1999. Fjölskylda Eiginkona Ólafs er Herdís Finn- bogadóttir, f. 7.10. 1964, lífræðingur og sálfræðinemi. Hún er dóttir Finnboga Gíslasonar, fyrrv. skip- stjóra hjá Eimskipafélagi íslands, sem nú er búsettur í Flórída, og Sól- veigar Sigurðardóttur, sem nú er látin, húsmóður. Synir Ólafs og Herdísar eru Ari Ólafsson, f. 21.5. 1998; Ragnar Ólafs- son, f. 21.4. 2000. Albróðir Ólafs er Daníel Magnús, f. 12.7. 1965, heildsali, búsettur í Reykjavík, kona hans er Hafdís Guðmundsdóttir sölumaður og eiga þau tvíburana Ólaf Gunnar og Sig- urð Þór. Hálfbræður Ólafs, samfeðra, eru Ragnar Guðlaugsson, f. 9.1.1958, vél- virki í Hafnarfirði, kona hans er Lára Birgisdóttur, starfsmaður á ferðaskrifstofu, og eiga þrjú börn; Guðjón Bergmann, f. 24.12. 1972, jógakennari, búsettur i Kópavogi, kona hans er Jóhanna Boel, starfs- maður á auglýsingadeUd DV, og á hún eina dóttur; Guðlaugur Berg- mann yngri, f. 17.11. 1979, nemi í Reykjavik. Foreldrar Ólafs eru Guðlaugur Bergmann, f. 20.10. 1938, athafna- maður á Brekkubæ á HeUnum á Snæfelisnesi, og Anna Heiðdal, f. 14.5. 1944, deUdarstjóri hjá Kaup- þingi, búsett í Reykjavík. Ætt Guðlaugur er sonur Daníels Berg- mann, bakarameistara í Reykjavík, Ásgeirssonar, skrifstofustjóra í Keflavík, Daníelssonar, b. að Ný- lendu á Miðnesi, Guðnasonar, b. á BakkaveUi í Hvolhreppi, Loftsson- ar, b. á Kaldbak á RangárvöUum, Loftssonar, b. á Víkingslæk, Bjama- sonar, ættföður Víkingslækjarætt- ar, HaUdórssonar. Móðir Daníels var Jónína, systir Stefáns, afa Áma Bergmanns, rithöfundar og fyrrv. ritstjóra. Jónína var dóttir Magnús- ar Bergmanns, hreppstjóra að Fuglavík á Miðnesi, Jónssonar Bergmanns, b. að Hópi í Grindavík, Magnússonar Bergmanns, lögsagn- ara í Vestmannaeyjum, bróður Bjöms, afa Björns Olsens háskóla- rektors. Magnús var sonur Ólafs Guðmundssonar, b. á Vindhæli, og Guðrúnar Guðmundsdóttur, Skaga- kóngs á Höfnum á Skaga, systur Björns, afa Arnljóts, pr. og alþm. á Bægisá. Móðir Guðlaugs var Guðríður, systir Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva Karlssonar, hagfræðings, hestamanns og krata. Guðríður er dóttir Guðlaugs, veitingamanns í Tryggvaskála á Selfossi, Þórðarson- ar, b. að FeUsmúla á Landi Guð- laugssonar, bróður VUborgar, langömmu Þorgerðar Ingólfsdóttur söngstjóra. Móðir Guðlaugs var Guðrún, systir Sæmundar, afa Guð- rúnar Erlendsdóttur hæstaréttar- dómara og Sigríðar Erlendsdóttur sagnfræðings, móður Jóhönnu Vig- dísar fréttamanns. Bróðir Guðrúnar var Guðbrandur, afi Hauks Morthens og langafi Bubba Morthens og ToUa myndlistar- manns. Guðrún var dóttir Sæmund- ar, b. að Lækjarbotnum, Guðbrands- sonar, bróður Sigurðar, langafa Guðmundar Daníelssonar rithöf- undar. Móðir Guðríðar var Guðríð- ur Eyjólfsdóttir, oddvita í Hvammi á Landi, Guðmundssonar, og Guð- bjargar Jónsdóttim, b. að Skarði á Landi, Ámasonar. Móðir Guðbjarg- ar var Guðrún Kolbeinsdóttir, b. á Hlemmiskeiði, Eiríkssonar, ættföð- ur Reykjaættar, Vigfússonar. Anna er systir Maríu Heiðdal hjúkrunarforstjóra. Anna er dóttir Vilhjálms, fyrrv. yfirdeildarstjóri umferðarmáladeUdar Pósts og síma, búsetts í Reykjavík, Sigurðssonar Heiðdal, rithöfundar, skólastjóra og forstöðumanns vinnuhælisins að Litla-Hrauni, hálfbróður, samfeðra, Bjama Johnson, sýslumanns í Dala- sýslu, og Ólafs Johnson, stórkaup- manns í Reykjavík, föður Amar Johnson, forstjóra Flugleiða. Sig- urður var sonur Þorláks Johnson, kaupmanns í Reykjavík, Ólafssonar, prófasts á Stað á Reykjanesi, Ein- arssonar Johnsen. Móðir Þorláks kaupmanns var Sigríður Þorláks- dóttir, pr. á Móum, Loptssonar. Móðir Sigurðar var Anna Daníels- dóttur, í Þorlaugargerði í Vest- mannaeyjum, Magnússonar. Móðir Vilhjálms var Jóhanna Sig- ríður Jörgensdóttir, b. í Krossavík í Vopnafirði, Sigfússonar. Móðir Jó- hönnu Sigríðar var Margrét Gunn- arsdóttir. Móðir Önnu var María Gyða, systir Ludvigs ferðamálastjóra og Hjálmtýs, föður söngvaranna Diddúar og Páls Óskars. María var dóttir Hjálmtýs, kaupmanns í Reykjavík, Sigurðssonar, þurrabúð- armanns á Stokkseyri, Sigmunds- sonar. Móðir Hjálmtýs var Gyðríð- ur Hjaltadóttir, b. í Skarðshjáleigu, Hjaltasonar, b. í Skarðshjáleigu, Fil- ippussonar, b. í Skarðshjáleigu, Gunnarssonar. Móðir Filippusar var Ásdís Jónsdóttir lögsagnara Ólafssonar og Sesselju Pálsdóttur, systur Sveins, afa Sveins Pálssonar læknis. Móðir Gyðríðar var Guð- finna Ámadóttir, b. í Garðakoti, Þórðarsonar og Guðrúnar Þor- steinsdóttur, smiðs í Vatnsskarðs- hólum Eyjólfssonar, bróður Sveins á Hryggjum. Móðir Guðrúnar var Karítas Jónsdóttir, klausturhaldara á Reynistað, Vigfússonar og Þór- unnar Hannesdóttur Schevings, sýslumanns á Munkaþverá. Móðir Maríu Gyðu var Lucinda, dóttir Ludvigs Hansen, dansks verslunarmanns í Reykjavík, og Marie Vilhelmsdóttur Bernhöft, bakara í Reykjavík, Daníelssonar Bernhöft, bakara í Reykjavík, Joachimssonar Bernhöft, i Neustadt í Holtsetalandi. Móðir Vilhelms var Marie Abel frá Helsingjaeyri á Sjá- landi. Móðir Marie Bemhöft var Jo- hanne Otharsdóttir Bertelsen, skó- smiðs á Helsingjaeyri. Hundrað ara Jóna Ármanía Sveinsdóttir lengst af verkakona í Reykjavík Jóna Ármanía Sveinsdóttir, verkakona og húsmóðir, lengi til heimlis að Hverfisgötu 49, Reykja- vík, nú búsett á Sólvangi í Hafnar- firði, er hundrað ára i dag. Starfsferill Jóna fæddist á Barðsnesi við Norðfiörð og ólst þar upp. Hún stundaði lengst af almenn verka- kvennastörf en eftir að hún flutti til Reykjavíkur starfaði hún lengi í þvottahúsi Landspítalans. Hún er nú búsett á Sólvangi í Hafnarfirði. Fjölskylda Eiginmaður Jónu var Axel Sig- geirsson frá Reyðarfirði, f. 22.10. 1910, d. 14.9. 1991, sjómaður í Reykjavík. Hann var sonur Siggeirs Eyjólfssonar, sonar Eyjólfs Ólafs- sonar beinharða, b. á Sléttu, og Sæ- bjargar Jónsdóttur. Kona Siggeirs og móðir Axels var Guðrún Eyjólfs- dóttir úr Skaftafellssýslu. Jóna átti eina hálfsystur. Foreldrar Jónu voru Sveinn Stef- ánsson, bóndi á Kirkjubóli í Vaðla- vík og síðan á Barðsnesi við Norð- fjörð, og k.h., Sólveig Hermanns- dóttir húsfreyja. Ætt Sólveig var dóttir Hermanns, b. á Brekku í Mjóafirði og á Barðsnesi í Norðfirði, Vilhjálmssonar, b. á Brekku í Mjóafirði, hálfbróður, samfeðra, Hjálmars, hreppstjóra á Brekku, langafa Vilhjálms Hjálm- arssonar á Brekku, fyrrv. mennta- málaráðherra. Vilhjálmur var son- ur Hermanns, b. i Firði, Jónssonar pamfíls. Móðir Sólveigar var Guðný Jóns- dóttir, pr og alþm. á Skorrastað og í Heydölum, Hávarðssonar, að Hólmn í Norðfirði, Jónssonar, í Austdal, Hávarðssonar. Móðir Jóns, pr. í Heydölum, var Guðný Þorsteins- dóttir, pr. á Skorrastöðum, Bene- diktssonar. Móðir Guðnýjar Jóns- dóttur var Sólveig Benediktsdóttir, pr. á Skorrastöðum, Þorsteinssonar. Utvarpi Sögu fm 94.3 Þáttur um viðskipti og efnahagsmál á hverjum virkum degi milii klukkan 17-18 allt jnu) áhugaverDasta í lieinii vidskipta í da° -1bað borgar sig að hlusta Landsbankinn Landsbréf

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.