Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 27
51
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
DV
Tilvera
Roger Moore 75 ára
Roger Moore er
elstur þeirra leikara
sem hafa leikið James
Bond, verður 75 ára á
morgun. Hann var þó
ekki sá fyrsti heldur
númer tvö í röðinni
og hann hefur oftast
leikið Bond. Hann fæddist í London
og nam leiklist við RADA. Þaðan fór
hann til Hollywood og dvaldi þar í
nokkur ár án þess að ná teljandi
frægð. Sneri heim og varð þekktur
þegar hann lék Dýrlinginn í sam-
nefndum sjónvarpsþáttum. Þekktast-
ur er þó Moore fyrir túlkun sína á of-
umjósnaranum Bond.
Gildir fyrir þriðjudaginn 15. október
Vatnsberlnn 120. ian.-is. fehr.r
I Eitthvað sem þú hefur
" beðið eftir lengi gerist
loksins þér til óbland-
innar gleði. Happatöl-
þínar eru 7, 28 og 30.
Flskarnir (19. febr.-20. marsl:
Hreinskilni dugar best
Ví vandamáli sem þú
stendur frammi fyrir i
dag. Vinir þínir standa
með þér í einu og öllu. Ástvinir
eiga góða strmd í kvöld.
Hrúturinn (? 1 ■ mars-19. apriir
t Gefðu þér nægan tima
Vfyrir það sem þú þarft
að gera, þá er minni
hætta á mistökum. Þér
hættir til óþarfa svartsýni.
Nautið (20. april-20. mail:
Þú færð fréttir frá vini
þínum sem býr langt í
burtu. Það setur að
þér trega þegar þú
minnist gamalla tímar þegar allt
var svo skemmtilegt.
Tvíburarnir (21. maí-21. iúníi
Unga fólkið er í aðal-
r hlutverki í dag. Það
getur verið að þeim
sem eldri eru þyki nóg
um fyrirganginn. Þú gætir þurft
að miðla málum.
Krabbinn (22. iúní-22. iúií);
Til þín verður leitað í
k dag og þér finnst
' ábyrgð þín mikil. Vin-
ir þínir eru að skipu-
leggja einhveija skemmtun sam-
an.
Liónið (23. iúlí- 22. áeúst):
Fjölskyldan stendur
þétt saman og vinnur
að framtíðaráætlunum
sinum. Búferlaflutn-
ingar eru sennilega á döfinni.
Mevian (23. áeúst-22. seot.):
/y* Þú skalt vera viðbúinn
því að til tíðinda dragi
ástarmálum þínum.
^ • f Rómantíkin er svo
sannarlega alls staðar í kringum
þig.
Vogin (23. sept.-23. okt,):
S Þú ert að skipuleggja
eitthvert ferðalag og
\ f hlakkar mikið til. Auk
r jp þess er heilmikið að
gera í vinnunni þannig að ekki er
mikið um frístundir.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nnv.l
. jjf\ Láttu sem þú takir
ekki eftir þvi þó að
! ^,|vinur þinn sé eitthvað
afundinn við þig. Það
lagast af sjálfú sér og er í raun-
inni ekkert til að gera veður út af.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.l:
»Þú gerir einhverjum
rheilmikinn greiða og
færð hann ríkulega
endurgoldinn þó að
síðar verði. Þér virðist ganga allt
í haginn.
Stelngeltln (22. des.-l9. ian.):
Þú hefur i mörg hom
að líta og er ekki víst
að þú hafir tíma fyrir
allt sem þú ætlaðir.
Fjárhagsstaðan fer batnandi.
DV-MYNDIR SIG. JÖKULL
Lengi lifir í gömlum glæðum
Ríó tríóiö er komiö saman aftur og spilaöi á tónleikum í Salnum í Kópavogi á föstudagskvöldiö.
Gestir á tónleikunum gengu sáttir út enda einstök upplifun aö sjá kappana aftur saman. Tónleik-
arnir voru haldnir í tilefni af heildarútgáfu á hljóöritunum tríósins frá 1967-2002.
DV-MYNDIR SIG. JÖKULL
Hugfangnar
Sýning þeirra Magnúsar Pálssonar, Erics Andersons og Wolfgangs Múllers var opnuö í Nýlistasafn-
inu á laugardag. Mikiö var um dýröir eins og jafnan í Nýló og þær Erla Þórarinsdóttir myndlistar-
maöur og Vala Þórsdóttir leikskáld höföu í nógu aö snúast.
Aðdáendur
Systurnar Erla, Auöur og Gréta Marín Pálmadætur
skemmtu sér konunglega á tónleikum Ríó tríósins.
Klárir í slaginn
Liösmenn Ríó tríós biöu spenntir aö tjaldabaki eftir aö fá
að stíga á sviö. Meö þeim eru sérlegir aöstoöarmenn,
Björn Thoroddsen og Gunnar Þóröarson.
Nýlistasafnið
Þaö er alltaf eitthvaö skemmtilegt aö gerast í Nýlista-
safninu og gestir á opnuninni á laugardaginn voru ekki
sviknir um þaö.
íslensk danspör í
Royal Albert Hall
MYND JÓN SVAVARSSON
Elísabet og Robln
Þau hafa dansaö saman í eitt og hálft ár og náö glæsilegum árangri. Nú æfa
þau fyrir heimsmeistarakeþþnina í Austurríki í næsta mánuöi.
Dansaramir Elísabet Haralds-
dóttir og Robin Sewell sem keppa í
flokki áhugadansara komust í 30
para úrslit í alþjóðlegri keppni og
dönsuðu í Royal Albert Hall sl.
fimmtudagskvöld. Þar enduðu þau í
12.-24. sæti en hátt í þrjú hundruð
pör tóku þátt í undankeppninni.
Þau Elísabet og Robin hafa staðið í
ströngu undanfarið, urðu sigurveg-
arar á alþjóðlegu stigamóti áhuga-
manna 1 suður-amerískum dönsum
í London í lok september þar sem
þau voru fulltrúar Dansfélagsins
Hvannar í Kópavogi og skutu m.a.
pörum frá Rússlandi, Englandi og
Þýskalandi aftur fyrir sig. Síðustu
daga hafa þau verið á alþjóðlegum
stórmótum, svo sem Imperialmóti
áhugamanna þar sem þau dönsuðu
með smáhléum frá kl. 10 að morgni
til kl. 24. Tvö hundruð pör hófu þá
keppni og enduðu Elísabet og Robin
í 7. sæti. Strax á eftir kom svo
International Championships
London sem er ein af þremur stæstu
keppnum í heimi og úrslit urðu eins
og frá er greint í upphafí.
Elísabet er tuttugu og eins árs og
hefur verið dansari í London síð-
ustu árin. Hún vakti mikla athygli
strax flmmtán ára gömul er hún
sigraði í tveimur alþjóðlegum ung-
lingakeppnum í Black Pool. Robin
Sewell, mótdansari hennar síðasta
eitt og hálfa árið, er suður-amerísk-
ur dansari. Þau búa sig nú undir
heimsmeistarakeppnina í dansi sem
verður haldin í Vín í Austurríki i
nóvember þar sem þau verða einu
fulltrúar íslands í sínum flokki.
Atvinnudansparið Karen Björk
Björgvinsdóttir og Adam Reeve,
sem einnig keppa undir fána ís-
lands, dönsuðu líka í Royal Albert
Hall á fimmtudag og voru meðal
12-24 bestu í sínum flokki. Þau
stefna á heimsmeistarakeppni í 10
dönsum í næsta mánuöi og í desem-
ber fara þau í áströlsku meistara-
keppnina í Tokyo, sem þau unnu í
fyrra. -Gun.
/Mf l#
Söngvakeppnín 2003
Ríkisútvarpið - Sjónvarp auglýsir eftir lagi til þátttöku í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í Lettlandi í maí 2003.
Lagið má ekki hafa verið flutt opinberlega og hámarkslengd þess
skal vera 3 mínútur. Texti lagsins skal vera á íslensku vegna flutnings
hér heima.
Höfundar skili iögum til Sjónvarpsins, Efstaleiti 1,150 Reykjavík,
eigi síðar en 18. nóvember, merktum Söngvakeppnin 2003. Lögin
skulu merkt dulnefni höfundar en rétt nöfn fylgi í lokuðu umslagi.
Frekari upplýsingar veitir Jóhanna Jóhannsdóttir, Innlendri
dagskrárdeild Sjónvarpsins.
v- -<