Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Side 2
2
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Styttist í fyrsta prófkjör vegna þingkosninga:
Framboðsmálin
óðu m að skýrast
msmmm
Skilnaöur aö boröi og sæng
Karl Sigurbjöms-
son, biskup Islands,
sagði í ávarpi við
setningu Kirkjuþings
í gær að ekki vanti
mikið upp á að ríki
og kirlga séu aðskil-
in. Karl telur kirkj-
una þurfa að undir-
búa sig meðvitað fyrir aðskilnað.
Enginn fékk pottinn
Þótt enn sé langt til kosninga fer
spennan innan flokkanna vaxandi
með hverjum deginum enda stutt í
að framboðslistum verði komið sam-
an. Nú eru aðeins tólf dagar þangað
til fyrsta kosning fer fram um skip-
an efstu sæta á framboðslista, en þar
er um aö ræða Framsóknarflokkinn
í Suðvesturkjördæmi.
Fyrirkomulag við val á framboðs-
lista liggur nú í flestum tilvikum
fyrir. Þegar litið er yfir sviðið kem-
ur í ljós að innan hvers flokks er
í framboði
Um helgina rann út frestur til að
skila inn framboðum vegna
flokksvals hjá Samfylkingunni í
Reykjavík og Suðvesturkjördæmi og
vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins
í Norðvesturkjördæmi. Kjör fer í
öllum þremur tilvikum fram 9. nóv-
ember.
S í Reykjavík:
Ágúst Ólafur Ágústsson
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir
Birgir Dýrfjörð
Bryndís Hlöðversdóttir
Guðrún Ögmundsdóttir
Einar Karl Haraldsson
Helgi Hjörvar
Hólmfríður Garðarsdóttir
Prófkjör eða ekki prófkjör?
Sigurjóna Siguröardóttir ásamt eiginmanni sínum, Halldóri Ásgrímssyni, og Jónínu Bjartmarz fyrir aöalfund
Framsóknarféiaganna tveggja í Reykjavík i gærkvöld. í báöum félögum kom fram tillaga um aö efna til prófkjörs.
„Noröurfélagiö“ vísaöi máiinu til kjördæmisþings en „Suöurfélagiö“ samþykkti tillögu Jónínu um aö stjórn félagsins
kannaöi hvaöa leiö félagsmenn vildu fara. Kjördæmisþing hvors kjördæmis hefur úrslitavald í málinu.
Jakob Frímann Magnússon
Jóhanna Sigurðardóttir
Mörður Ámason
Sigrún Grendal
Össur Skarphéðinsson
S í SV-kjördæmi:
Ásgeir Friðgeirsson
Bragi J. Sigurvinsson
Guðmundur Ámi Stefánsson
Jón Kr. Óskarsson
Jónas Sigurðsson
Katrín Júlíusdóttir
Rannveig Guðmundsdóttir
Stefán Bergmann
Valdimar Leó Friðriksson
Þorlákur Oddsson
Þórunn Sveinbjamardóttir
D í NV-kjördæmi:
Birna Lárusdóttir
Einar Kristinn Guðfinnsson
Einar Oddur Kristjánsson
Guðjón Guðmundsson
Jóhanna Pálmadóttir
Jón Magnússon
Ragnheiður Hákonardóttir
Skjöldur Orri Skjaldarsson
Sturla Böðvarsson
VOhjálmur Egilsson
-ÓTG
viðhöfð sama eða svipuð aðferð um
allt land. Þetta á þó ekki við um
Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæöisflokkur
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til
prófkjörs í þremur kjördæmum en
stillir upp framboöslista í öðrum
þremur.
Fyrstu stóru tíðindin verða 9. nóv-
ember þegar haldið verður prófkjör
í Norðvesturkjördæmi. Þar er lík-
lega um að ræða einhvem harðasta
innanflokks-slaginn í öllum aðdrag-
anda þingkosninganna á næsta ári,
enda allt eins líklegt að tveir þing-
menn flokksins af fimm detti út af
þingi vegna breyttrar kjördæma-
skipanar.
Flokkurinn efnir til prófkjörs í
Reykjavík 22.-23. nóvember, en
framboðsfrestur vegna þess rennur
út á fimmtudaginn í næstu viku. Þar
á Sjálfstæðisflokkurinn - eins og
aðrir flokkar - mesta möguleika á
að koma að nýju fólki vegna breyttr-
ar kjördæmaskipanar og það skýrist
i næstu viku hverjir taka þátt í próf-
kjQrinu. Um fLeiri prófkjör er hins
vegar ekki að ræða hjá flokknum og
er ljóst að skiptar skoðanir vom um
Amerískur hvíldarstóll
Ótrúlega þœgilegur!
þá niðurstöðu, að minnsta kosti í
Suðvesturkjördæmi. Viku eftir próf-
kjörið í Reykjavík, eða 30. nóvem-
ber, eiga að liggja fyrir tillögur upp-
stillinganefnda flokksins í Suðvest-
ur-, Norðaustur- og Suðurkjördæm-
um.
Samfylking
Hjá Samfylkingunni liggur fyrir
ákvörðun um aðferð í öllum kjör-
dæmum nema Norðvesturkjördæmi.
I hinum kjördæmunum verður
stuðst við það sem nefnt hefur verið
„flokksval"; prófkjör sem þeir geta
tekið þátt í sem eru skráðir félagar í
Samfylkingunni þremur dögum fyr-
ir prófkjörsdag. Kosning er bindandi
hafi frambjóðandi fengið minnst
helming atkvæða í tiitekið sæti.
Aðferð þessi er í samræmi við til-
lögu framkvæmdastjómar flokksins
frá því í sumar. Flokksvalið fer fram
9. nóvember - sama dag og prófkjör
Sjálfstæðisflokksins i Norðvestur-
kjördæmi.
Ljóst er að slagurinn verður víða
harður, ekki síst á milli þeirra Bryn-
dísar Hlöðversdóttur og Jóhönnu
Sigurðardóttur í Reykjavík; þær
stefna báðar að því að leiða flokkinn
í öðru Reykjavíkurkjördæmanna og
athygli hefur vakið að Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri hefur
lýst yfir stuðningi við Bryndísi.
Framsókn
Framsóknarmenn hafa ákveðið að-
ferð í Norðvestur- og Suðvesturkjör-
dæmum. Segja má að hún sé þrengra
tilbrigði við áðurnefnt „flokksval“.
Kosið verið um efstu sætin á sérstök-
um aukakjördæmisþingum, þar sem
tvisvar sinnum fleiri flokksmenn
eiga sæti en alla jafna. Þetta verður
gert í Suðvesturkjördæmi eftir tólf
daga, 26. október, og í Norðvestur-
kjördæmi 16. nóvember. I síðar-
nefnda kjördæminu stefna fjórir á
fyrsta sæti og því ljóst að slagurinn
verður harður þar. Mestum tíðindum
sætir hins vegar vitanlega ákvörðun
Halldórs Ásgrímssonar um að bjóða
sig fram í Reykjavík.
Líkur eru taldar á að þessi aðferð
verði viðhöfð í hinum kjördæmun-
um. Það styttist í ákvörðun í Reykja-
vík og voru málin rædd í hörgul á
aðalfundi framsóknarfélaganna í
Reykjavik í gærkvöld; í Norðaustur-
kjördæmi er ákvörðunar að vænta
um næstu helgi en í Suðurkjördæmi
er allt eins búist við að það dragist
fram yfir áramót.
Vinstri-grænir
Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð stillir upp á alla lista. Uppstill-
ingamefndir hafa verið skipaðar í
öllum kjördæmum nema í Réykja-
vík - nú síðast i fyrradag í Norðaust-
urkjördæmi. Flokkurinn hefur ekki
sett sér tímamörk um það hvenær
framboðslistar eigi að liggja fyrir.
Þó er ljóst að þeir verða tilbúnir fyrr
en fyrir síðustu þingkosningar, enda
varð flokkurinn ekki til fyrr en í
febrúar 1999. -ÓTG
DV-MYND ÖE
Stæöi viö flugstöö og akbrautin aö flugbraut Egilsstaöaflugvallar var undir
vatni í gær þegar hæö Lagarins var mest. Varö aö flytja farþega í flugvél með
rútu. Hér sést töskubíllinn „vaöa“ elginn.
Enginn var með allar fimm tölur
réttar í Lottóinu á laugardag og verður
potturinn því þrefaldur næst. Pottur-
inn nú var rúmar 6,7 milljónir króna.
Sjúklingar búnir til
Heilbrigðiskerfið þenst sífellt út,
rekstur þess kostar sífellt meira fé og
íslendingar leita æ oftar til lækna.
Samt líður fólki ekkert betur. Fólk tek-
ur einnig inn meira af lyfjum en þrátt
fyrir það hafa fjarvistir ffá vinnu
vegna veikinda aukist. Þessi þversögn
þýðir að menn ræða um sjúkdómsvæð-
ingu heilbrigðiskerfisins. Þetta kemur
fram í viðtali Morgunblaðsins við Jó-
hann Ágúst Sigurðsson, prófessor í
heimilislækningum. Hann segir að
menn séu beinlínis að búa til sjúklinga
og selja fólki sjúkdóma.
Opnar heimasíðu
Ágúst Ólafur
Ágústsson, formaður
Ungra jafnaðar-
manna og einn af
frambjóðendum í
prófkjöri Samfylking-
arinnar í Reykjavík,
hefur opnað heima-
síðu þar sem málefni
hans eru kynnt. Slóðin er www.agu-
stolafur.is.
íslenskunám á Netinu
Evrópusambandið hefur lagt 15
milljónir króna til þróunar kennslufor-
rits, sem nú er í smíðum hér á landi og
verður notað til að kenna íslensku á
Netinu. Mbl. greindi frá.
300 milljónir í Víkingalottói
Dregið var í Víkingalottóinu í 500.
sinn í siðustu viku. íslendingar hafa
fengið um 300 milljónir í vinninga frá
upphafi sem er álika mikið og þeir
hafa sett í pottinn. Lottóið hóf göngu
sína 1993.
Breyttur- hámarkshraði
Hámarkshraði á Miklubraut milli
gatnamóta Grensásvegar og Skarhóla-
brautar i Mosfellsbæ er nú 80 km/klst.
Á Vesturlandsvegi milli Skarhóla-
brautar og Þingvallavegar er hámarks-
hraði nú orðinn 70 km/klst og sömu-
leiðis á Úlfarsfellsvegi, frá Vestur-
landsvegi að Hafravatnsvegi. Þá er há-
markshraði á Heiðmerkurvegi eftir
breytinguna 60 km/klst og á Reykja-
nesbraut milli Álfabakka og Fifu-
hvammsvegar er nú leyfilegt að aka á
70 km/klst. Mbl.is sagði frá.
Skinkan seldist upp
Hráskinka frá Parma sem flutt var
inn í tilefiii ítalskra daga í Nótatúni
seldist upp fyrir helgi. Af þeim sökum
var pantað tonn af skinkunni til við-
bótar.
Sækja um aöild á ný
íslendingar sækja um aöild að nýju
á aukafundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
sem haldinn er í Englandi í dag. I frétt-
um RÚV kom fram að ef aðildin er
samþykkt skuldbinda Islendingar sig
til að hefja ekki hvalveiðar í atvinnu-
skyni fyrr en í fyrsta lagi 2006.
Varnargarður samþykktur
Skipulagsstofnun ríkisins hefur
fallist á fyrir sitt leyti að gerður
verði snjóflóðavamargarður í Bjólfi
yfir Seyðisfirði. RÚV greindi frá.
-HDM