Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
I>V
Fréttir
Stjórnarformaður Pharmaco með háleit markmið:
Stefnt á yfir milljarðs
dollara fyrirtæki
- og hraðri sókn í Austur- og Vestur-Evrópu, Bandaríkjunum og víðar
DV-MYNDIR TEITUR
Björólfur Thor Björólfsson bjartsýnn á framtíðina
Meö nýrri lyfjaverksmiðju Baikanpharma í Dupnitza í Búlgaríu á föstudag stóreykst framleiölugetan og gæöastaöall fyr-
irtækisins. Hér má sjá Björgölf Thor ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, viö opnun nýju
lyfjaverksmiðjunnar. í Búlgaríu er framleiðslukostnaður lágur og gífurlega vaxandi markaöur.
Sérmerkt Atlantaþota
Sérmerkt Atlantaþota flutti fólk til opnunar lyfjaverskmiðju Baicanpharma i
Búlgaríu. Hér má sjá hjónin Björgólf Guömundsson og Þóru Hallgrimsdóttur
glöö í bragöi, nýstigin á búlgarska grund.
Björgólfur Thor Björgólfsson,
stjómarformaður Pharmaco sem
opnaði nýja lyfjaverksmiðju dóttur-
félagins Bakanpharma í Búlgaríu á
fostudag, segir að eins og sýnt hafi
verið í verki með byggingu verk-
smiðjunnar sé fyrirtækið á miklum
skrið. Hann sagði í opnunarræðu
sinni að stefnt væri að því að
Balkanpharma, sem veltir í dag um
300 milljónum evra, og Pharmaco
yrðu í framtíðinni fyrirtæki að
verðmæti yfír milljarð dollara, eða
hátt í 100 milljarða íslenskra króna.
Þetta verði gert með framleiðslu og
sölu á vönduðum gæðavörum á enn
fleiri stöðum en gert er i dag.
Það hefur vakið mikla athygli að
bæði forseti íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, og forseti Búlgaríu, Ge-
orgi Parvanov, skyldu taka þátt í
opnun á lyfjaverksmiðunni. Aug-
ljóst er að Búlgarar líta þetta ís-
lenska framtak þar í landi og tæki-
færi sem það gefur þeim ekki síður
vonaraugum með tilliti til aukinna
samskipta sinna við Vestur-Evrópu
og aðildarumsóknar að Evrópusam-
bandinu. Einnig er Búlgaría vænt-
anleg sem nýtt aðildarríki NATO.
Átti Ólafur Ragnar m.a. sérstaka
fundi með forseta Búlgaríu, forsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra og
fleiri ráöamönnum þjóðarinnar. Þá
var mikið við haft við opnunarhátið
verksmiðjunnar og þangað boðið
um 180 manns sem flugu þangað á
sérmerktri júmbóþotu Atlanta frá
íslandi.
Stefnum langt
„Við forum hratt og stefnum
langt,“ sagði Björgólfur Thor í sam-
tali við DV að lokinni formlegri
opnun nýrrar lyfjaverksmiðju
Balkanpharma í Dupnitza. „Það er
heppilegt að vera hér í Búlgaríu þar
sem framleiðslukostnaðurinn er
lágur og gífurlega vaxandi markað-
ur. Það er ekki þar með sagt að við
ætlum að einblína eingöngu á Aust-
ur-Evrópu. Við viljum frekar vera
með jafnari körfu. Þar kemur Delta
mjög til sögunnar en fyrirtækið er
með gífurlega sterka markaðsstöðu
í Þýskalandi og öðrum stórum
mörkuðum í Vestur-Evrópu. Með
þessari nýju verksmiðju getum við
selt vörur beint héðan og framleitt
þær ódýrar en aðrir. Það eru því
góðar forsendur til vaxtar."
Stór samheitalyfjasamsteypa
Þess má geta að Pharmaco hf. og
Delta hf. sameinuðust formlega 27.
september. Var markaðsverðmæti
fyrirtækisins metið eftir samningu
43 milljarðar króna. Starfsmenn eru
um 5.300 og ársvelta fyrirtækjanna
á þessu ári er áætluð 24,6 milljarðar
króna. Með samrunanum var lagð-
ur grunnur að einu stærsta og fram-
sæknasta samheitalyfjafyrirtæki
Evrópu. Stefnt er að skráningu fyr-
irtækisins í erlendum kauphöllum
Vilja ekki styttri
rjúpnaveiðitíma
Sölubann á rjúpu er ágætt sem
fyrsta aðgerð til vemdar rjúpna-
stofninum, segja félagar í Hinu is-
lenska byssuvinafélagi. Á fundi sín-
um á dögunum ályktuðu þeir um
aðgerðir umhverfisráðherra vegna
rjúpunnar. Þeir leggjast gegn því að
veiðitíminn sé styttur um 20 daga,
erfitt verði að mæla árangur að-
gerða ef bæði yrði sett sölubann og
veiðitíminn styttur. Félagsmenn
telja að frekar beri að hafa smærri
friðlönd rjúpna á Qeiri stöðum víð-
ar um landið heldur en einungis á
Reykjanesskaganum. -sbs
Miklir vaxtamöguleikar
Björgólfur Thor Björgólfsson segir aö
meö nýju verksmiöjunni skapist
mjög góöar forsendur til vaxtar
samhliða sókn á nýja markaði í Am-
eríku og Vestur-Evrópu.
- Munuð þið þá ekki líka nýta
ykkur góða þekkingu á rússneskum
markaði?
„Jú, við erum alltaf á útkikki þar
eftir góðum tækifærum. Það er
markaður sem er gríðarlega stór og
á eftir að vaxa mjög hratt. Við þurf-
um því að vera útsjónarsamir að
koma ár okkar þar vel fyrir borð.
Við höldum áfram að byggja okk-
ur upp og bæta aðstöðuna hér í
Búlgaríu. Þetta er auðvitað stór
markaður með rúmlega 8 milljónum
íbúa. Við erum vissulega með
sterka stöðu hér en við verðum bara
að bæta hana,“ sagði Björgólfur
Thor Björgólfsson.
Með umsvif í tíu löndum
Umsvif Pharmaco eru mest í
Búlgaríu, á Möltu og íslandi. Starf-
semin er þó mun víðar í heimin-
um. Sölu- og markaðsskrifstofur
eru á 10 stöðum, þ.e. Medis ehf. á
íslandi, United Nordic Pharma i
Danmörku, Medis Ltd. á Mön,
Medis Gmbh í Þýskalandi,
Pharmamed á Möltu, í Vilnius í
Litháen, hjá Balkanpharma
Moskva í Rússlandi, í Kiev í Úkra-
ínu, hjá Balkanpharma i Ástralíu
og hjá Balkanpharma í Búlgariu.
Stefnt er að því að setja um 20 ný
lyf á markað til ársloka 2005. -HKr.
Grafarvogur:
Ibuð onýt eftir eldsvoða
íbúð í fjölbýlishúsi við Mosarima
í Grafarvogi er ónýt eftir eldsvoða
þar síðdegis á laugardag. Húsmóðir-
in hafði brugðiö sér frá í örfáar
mínútur en þegar hún kom til baka
logaði eldur í allri íbúðinni. Hafði
hann magnast þegar slökkvilið kom
á vettvang skömmu eftir að tilkynn-
ing barst.
Að sögn varðstjóra slökkviliðs
eru eldsupptök rakin til þvottahúss.
Hann segir allt innbú og aðra inn-
anstokksmuni gjörónýta eftir eld-
inn. -sbs
REYKJAVlK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 18.12 17.57
Sólarupprás á morgun 08.17 08.02
Siödegisfló& 13.12 17.45
Árdegisflóð á morgun 01.58 05.31
Rigning eða súld
Austan og norðaustan 8-15 m/s en
heldur hægari með morgninum.
Rigning eöa súld ööru hverju
suöaustanlands I kvöld og nótt en
síðan dálitlar skúrir. Annars skýjað
með köflum og þurrt aö mestu.
wmigisi
Skýjað með köflum
Norðaustan og austan 5-8 m/s.
Léttskýjað suðvestan til, skúrir
austan til en annars skýjað með
köflum. Hiti 4 til 10 stig.
. J£jL&£!ssu>s'iU\ihi*2i
Miövikudagur Fimmtudagur Föstudagur
O O O
Hiti 2” Hiti 2" Hiti 2°
til 8° til 8° til 8°
VinduK 3-8 m/s Vindun 3-8 "V» Vindun 3-8 m/»
4- 4« 4*
Norðan og norðaustan 3-8 m/s. Léttskýjað suðvestan til en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Hœtt viö næturfrosti inn tii landsins. Noröan og norðaustan 3-8 m/s. Léttskýjað suövestan til en annars skýjað meö köflum og þurrt að mestu. Hætt við næturfrosti inn til landsins. Nor&læg átt, snjóél á Noröur- og Austuriandi en annars skýjað með köflum og þurrt. Kalt! veöri.
Logn
Andvari
Kul
Gola
Stinningsgola
Kaldi
Stinningskaldi
Allhvasst
Hvassviöri
Stormur
Rok
Ofsaveöur
Fárvi&ri
m/s
0-0,2
0,3-1,5
1,6-3,3
3.4- 5,4
5.5- 7,9
8,0-10,7
10.8- 13,8
13,3-17,1
17,2-20,7
20.8- 24,4
24.5- 28,4
28.5- 32,6
>= 32,7
VeðtfíS
AKUREYRI Súld 9
BERGSSTAÐIR Skýjaö 10
BOLUNGARVÍK Rigning 10
EGILSSTAÐIR Súld 8
KEFLAVÍK Rigning 9
KIRKJUBÆJARKL. Alskýjaö 9
RAUFARHÖFN Alskýjaö 8
REYKJAVÍK Alskýjað 9
STÓRHÖFÐI Rigning og súld 9
BERGEN Léttskýjaö 3
HELSINKI Skýjaö 2
KAUPMANNAHÖFN Alskýjaö 7
ÓSLÓ Alskýjaö 2
STOKKHÓLMUR Alskýjaö 2
ÞÓRSHÖFN Skúr á síð. klst. 10
ÞRÁNDHEIMUR Léttskýjaö 0
ALGARVE Skýjaö 17
AMSTERDAM Þokumóöa 6
BARCELONA Hálfskýjaö 14
BERLÍN Slydda 1
CHICAGO Skýjað 9
DUBUN Skýjað 5
HAUFAX Skýjaö 9
HAMBORG Alskýjaö 4
FRANKFURT Súld 6
JAN MAYEN Þokumóöa 5
LONDON Skýjað 5
LÚXEMBORG Súld á SÍÖ. klst. 8
MALLORCA Léttskýjaö 12
MONTREAL Heiöskírt 13
NARSSARSSUAQ Skýjaö 0
NEW YORK Súld 14
0RLAND0 Skýjaö 24
parís Skýjaö 4
VÍN Skýjaö 4
WASHINGTON Alskýjað 17
WINNIPEG Alskýjaö 0
Á VftiUKMOHJ ISI ANI)