Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Qupperneq 7
Ferðaskrifstofa Vestfjarðaleiðar er flutt að Hesthálsi 10, 110 Reykjavík,
símar: 562 9950 og 587 6000. Netfang: info@vesttravel.is www.vesttravel.is
St.Johfi/'s t KojhaAcu
skemmtv- Oj t/ersUutarferð 21. - 24. nóvember
St. John's er nútímaleg borg með litríka sögu sem bíður upp á
fyrsta flokks þjónustu þar sem gefst einstakt tækifæri til að upplifa
töfrandi blöndu gamla og nýja heimsins. Hún hefur síðustu árin
orðið eftirlætisáningarstaður fjölda íslendinga í árlegum
haustferðum Vestfjarðaleiðar.
Mjög hagstætt að versla hvortsem það eru jólagjafirnar eða
annað, því þarna eru glæsilegar verslanamiðstöðvar og allar
helstu verslanirnar. Góðir veitingastaðir, einstök gestrisni,
og írsk pöbbastemning.
Hægt að velja um gistingu á tveimur afbragðs hótelum,
Holiday Inn og Hótel Newfoundland. íslensk fararstjórn.
Ýmis konar afþreying í boði m.a. skoðunarferðir innan
og utan borgarinnar, leikhús og kvöldverður,
heilsurækt í klaustri o.fl.
Um helgina verður m.a. árleg risa jólaskrúðganga, jólamarkaður,
handverksmarkaður og sjávarútvegssýningin Marine 2002
sem er sú stærsta á Atlantshafsströnd Kanada.
Heimamenn munu að vanda taka með viðhöfn á móti farþegum
Vestfjarðaleiðar í glæsilegri flugstöðvarbyggingu St. John's og
ferðamálayfirvöld ætla að efna til sérststakrar mótttöku
í nýrri jarðfræðimiðstöð á Signal Hill hæðinni.
Um 3 klst. beint leiguflug með Atlanta kl. 9:00 á fimmtudagsmorgni
og lent um kl. 9:30, en brottför heim kl. 18:00 á sunnudeginum
og heimkoma um miðnætti þannig að dagarnir
nýtast einstaklega vel.
[ð s köttum frá ir.
46.90°
^ k 2 íherbergi0
. orUfsÁvís^
gilMr 5.000 kr.
oqfjóUkyMur.