Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 9
h
9
I
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002_______________________________________________
I>V Fréttir
Hátt verð á brauði ekki undrunarefni Neytendasamtakanna:
Krefja bakara skýringa
Formaður
Neytendasamtak-
anna, Jóhannes
Gunnarsson, seg-
ir að það komi
sér ekkert á
óvart að meðal-
verð brauða hér-
lendis sé 66%
hærra en í ESB-
löndunum. Hon-
um sé kunnugt
um miklu meiri mun á einstaka teg-
undum hérlendis og erlendis og
eins milli íslands og annarra landa.
„Fragtin er ótrúlega dýr á hrá-
efni til brauðgerðar og það er eitt-
hvað meiri háttar að í þessari
grein. Við gerum kröfu til þess að
það verði rannsakað hvemig þetta
má vera, hvað sé hægt að gera til
úrbóta þannig að við búum við
sambærilegt verð á brauðum. Ann-
að er gersamlega óþolandi. Bakarar
skulda neytendum skýringar. Það
hefur verið gengið eftir þeim en
þær bara koma aldrei.
Ég hef engar forsendur til að
meta hver makar krókinn, bakar-
amir sjálfir eöa milliliðir. En krók-
urinn er makaður alveg rosalega
vel, hver sem það gerir. Rannsókn
sem þarf að ná til brauðs og fleiri
matvara mundi leiða í ljós hvað sé
að. Þá könnun mundu stjórnvöld
gera og þau hafa aðgang að nauð-
synlegum gögnum,“ segir Jóhannes
Gunnarsson.
- Hvað veldur þessari tregðu bak-
ara að svara?
Brauð dýrt á íslandi
Formaöur Neytendasamtakanna, Jó-
hannes Gunnarsson, segir aö þaö
komi sér ekkert á óvart aö meöal-
verö brauöa hérlendis sé 66%
hærra en í ESB-löndunum.
„Ætli þeir eigi
ekki ansi erfitt
með það.“
Öll matvara
of dýr
Manneldisráð
er ríkisstofnun
undir heilbrigð-
isráðuneyti. Ráð-
inu er ætlað að
fylgjast með þró-
un manneldismála í landinu, gera
reglubundnar kannanir á mataræði
og vinna að rannsóknum í næring-
arfræði í samvinnu við vísinda-
stofnanir.
Laufey Steingrímsdóttir, for-
stöðumaður Manneldisráðs, segir
það alvarlegt að svo holl fæða sem
brauð skuli vera svona dýr en víð-
ast hvar annars staðar er þetta ódýr
matur.
„Það er lítið borðað af brauði á
íslandi vegna ýmissa hefða sem
eru furðu lífseigar, kannski vegna
þess að brauð var ekki mikið borð-
að hér áður fyrr- vegna þess að
komið var ekki ræktað hérlendis.
Það er uppi stöðugur áróður gegn
brauðneyslu af hálfu ýmissa sjálf-
skipaðra hollustupostula, sem
halda því fram að þetta sé ómerki-
legur matur. Rök þeirra eru lítil-
fjörleg, jafnvel engin, léttvæg fund-
in. Grænmeti hefur verið að
lækka, og það er vel, og það stend-
ur til í samvinnu við ASÍ að gera
könnun á verði svokallaðrar holl-
ustukörfu, en slík könnun var gerð
fyrir ári,“ segir Laufey Steingríms-
dóttir.
- Getur Manneldisráð beitt sér
fyrir því að almenningur sé ekki að
borga þetta háa verð fyrir brauð og
grænmeti?
„Okkar ráð eru ábendingar og að
skrifa tO stjórnvalda, og holl-
ustukarfan er liður í slíku. Ríkið
hefur auðvitað verið einn af söku-
dólgunum í formi tolla, svo stund-
um er ein ríkisstofnun að berjast
við aðra. Það er svolítið erfitt fyrir
okkur að hvetja til neyslu grænmet-
is meðan verðið er svona himin-
hátt, við getum það varla kinnroða-
laust. En borið saman við aðrar
matvörur eru þessar vörur ekkert
dýrar, matur er allt of dýr á íslandi.
Brauð er þvi ekki dýr matur, borið
saman við marga aðra matvöru á
íslandi.“
Manneldisráð, Hjartavernd og
Krabbameinsféiagið hafa einnig
sameinast um átak til að auka
neyslu grænmetis og ávaxta undir
kjörorðunum: Borðum grænmeti og
ávexti, 5 á dag! Það kann að reynast
erfitt að framfylgja því í ljósi kaup-
máttar launa. -GG
Jóhannes
Gunnarsson.
Laufey
Steingrímsdóttir.
Mikið af fíkniefnatólum hafa fundist í Ólafsfirði:
Fíkniefnaneysla
yfir landsmeðaltali
- sýslumaður segir aukið aðhald foreldra nauðsynlegt
Mikið af tólum og tækjum til
fíkniefnaneyslu hefur fundist aö
undanfornu i Ólafsfirði. Ástríður
Grímsdóttir sýslumaður segir það
tilviljun hversu mikið hefur fund-
ist af ýmsu tengdu fíkniefnaneyslu
að undanförnu, t.d. kókflöskum
sem sérstaklega hefur verið
„breytt" í þessu skyni. Mikið af
þessu dóti hefur fundist milli
íþróttahússins og skólanna í bæn-
um og eins framan eða i nánd við
ákveðin heimili sem gefi vísbend-
ingu um hvár neyslan fari fram, en
ekki vissu.
Sýslumannsembættið hefur stað-
ið fyrir forvarnarverkefni sem
kynnt hefur verið nemendum í 8.
til 10. bekk, sem og foreldrum
þeirra. Sýslumaður segir ljóst að
það séu allnokkrir einstaklingar í
ÓlafsQörður
Mikiö af tólum og tækjum til fíkni-
efnaneyslu hefurfundist aö undan-
förnu í Ólafsfiröi.
neyslu í Ólafsfirði, en á siðasta
vetri voru fjórir einstaklingar
ákærðir og hlutu dóm. Því miður
sé fíkniefnaneysla í Ólafsfirði aug-
ljóslega töluvert meiri en lands-
meðaltal og sennilega finnist ung-
lingunum þetta „töfT‘, og en til að
stemma stigu við þessum ófögnuði
þurfi að koma til aukið aðhald for-
eldra.
Þórgunnur Reykjalín, skólastjóri
Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar, telur
fikniefnaneysluna ekki vera al-
gengari en í öðrum sveitarfélögum,
og hún hefur ekki orðið vör við
neyslu í skólanum. Neytendur
mundu auk þess finnast fljótt.
Nemendur í þessum bekkjum sé
aðeins 58 og þeir mundu fljótlega
skera sig úr með slakari skólasókn
og ástundun náms. Foreldrarölt sé
um heigar og það veiti aðhald, en
þeir séu hættulegastir í baráttunni
gegn fikniefhaneyslu sem viður-
kenni ekki að um verulegan vanda
sé að ræða í Ólafsfirði. Það sé var-
hugavert. -GG
Leiguskip Samskipa liggur á botni Norðursjávar:
Óútskýrt af hverju ísfelliö sökk
- mildi að áhöfnin bjargaðist
Engar skýringar hafa fengist á
þvi hvað varð til þess að ísfell,
leiguskip Samskipa, tók skyndi-
lega inn á sig mikinn sjó sunnan
við Noreg aðfaranótt fostudags og
sökk með rúmlega þúsund tonn-
um af frystri síld og makril. Skip-
ið var með hátt í fullfermi og var
á siglingu frá Málöy til Amster-
dam þegar skipverjar urðu varir
við leka. Fimm Rússar og norskur
skipstjóri sendu frá sér neyðar-
kall tæpri klukkustund síðar þeg-
ar ljóst var að ekki yrði við neitt
ráðið. 50 mínútum síðar kom
björgunarþyrla en þá var kominn
50 gráðu halli á skipið og. ástand-
Kominn var 50 gráöahalli á skipiö
þegar áhöfninni var bjargaö.
ið því orðið skuggalegt.
ísfellið, sem er í eigu skipafé-
lags í Tromsö, liggur nú á miklu
dýpi í Norðursjó en áhöfnin
komst hólpin f land. Að sögn
Önnu Guðnýjar Aradóttur, mark-
aðsstjóra Samskipa, var mikil
mildi að áhöfnin skyldi bjargast.
„Þetta gerðist mjög skyndilega og
við vitum ekki hvað olli slysinu.
Ekki er talið að veðrið hafi átt
hlut að máli, þó nokkur vindur
hafi verið,“ segir hún.
Sjópróf eru væntanleg í næstu
viku og ekki er að vænta frekari
frétta þangað til. Að sögn Önnu
eru allar tryggingar hvað viðkem-
ur skipi og farmi i lagi og vonast
hún til þess að Samskip fái farm-
inn bættan. -jtr