Dagblaðið Vísir - DV - 14.10.2002, Blaðsíða 10
10
Útlönd
MÁNUDAGUR 14. OKTÓBER 2002
DV
Blásiö fyrir Saddam
Lúðrasveit íraska hersins biés til
stuönings Saddam forseta í gær.
Bandaríkin hafna
nýju boði frá írak
Bandarísk stjómvöld hafa hafnaö
nýju tilboöi ráðamanna í írak til
vopnaeftirlitsmanna Sameinuðu
þjóðanna og kalla það „orðaleiki".
Boðið kom fram í bréfi til Alþjóða
kjarnorkumálastofnunarinnar (IA-
EA) i Vínarborg á laugardag. Það
var annað bréf þar um á einni viku.
Talsmaður IAEA sagði að bréfið
frá því á laugardag hefði verið já-
kvæðara en bréf frá 10. október. Þar
heföi þó ekki verið að fmna neinar
málamiðlanir um leit í átta um-
deildum höllum Saddams Husseins
íraksforseta.
Bandaríkjamenn ítrekuðu ákall
sitt til þjóða heims um að þrýsta
áfram á íraka að afvopnast.
Heimildir herma að sex helstu
hópum útlægra andstæðinga Sadd-
ams hafi ekki enn tekist að koma
sér saman um fund til að ákveða um
framtíðarstjóm íraks eftir fall Sadd-
ams Husseins.
Klerkurinn iörast
niðrandi ummæla
Bandariski prédikarinn Jerry
Falwell hefur beðist afsökunar á því
að hafa kallað Múhameð, spámann
múslíma, hryðjuverkamann.
Ummæli hins íhaldssama
baptistaklerks í sjónvarpsþættinum
60 mínútum í síðustu viku vöktu
mikla reiði múslíma um heim allan
og urðu kveikjan að átökum milli
trúarhópa á Indlandi þar sem að
minnsta kosti átta menn létu lífið.
„Ég biðst innilega afsökunar á
því að ákveðnar yfirlýsingar minar
í viðtalinu fyrir 60 mínútur særðu
tilfmningar margra múslíma,"
sagði Falwell í yfirlýsingu sem
hann sendi frá sér.
Falwell er í fylkingarbrjósti krist-
inna hægrimanna vestan hafs og
þekktur fyrir stóryrtar yfirlýsingar.
REUTERSMVND
Ekki í þetta sinn
Vojislav Kostunica tókst ekki að
tryggja sér sigur í serbnesku for-
setakosningunum í gær.
Forsetakosningar
í Serbíu ógildar
Mikil óvissa ríkir nú í Serbíu eft-
ir að síðari umferð forsetakosning-
anna í lýðveldinu varð ógild vegna
dræmrar kjörsóknar i gær.
Ekki nema 45,4 prósent kjósenda
höfðu fyrir því að fara á kjörstað, að
því er virt eftirlitsstofnun í Belgrad
spáði fyrir um. Kjörsókn þarf að
vera að minnsta kosti 50 prósent til
að kosningamar séu gildar.
Vojislav Kostunica, forseti
Júgóslavíu, fékk atkvæði 66,7 pró-
senta þeirra sem kusu en keppi-
nautur hans, frjálslyndi hagfræð-
ingurinn Miroljub Labus, fékk ekki
nema 31,3 prósent atkvæða. Líklegt
þykir að boðað verði til annarra
kosninga eftir nokkra mánuði.
Að minnsta kosti 187 fórust í sprengjutilræðunum á Balí:
Spjótin beinast að
félögum í al-Qaeda
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti hvatti þjóðir heims til að taka
hart á þeim sem bera ábyrgð á bíl-
sprengjuárásinni á ferðamannaeyj-
unni Balí á laugardagskvöld þar
sem að minnsta kosti 187 manns
biðu bana. Flestir hinna látnu voru
erlendir ferðamenn.
í gærkvöld hafði enginn lýst
ábyrgð á tilræðinu á hendur sér og
heldur voru ekki fram komnar nein-
ar ákveðnar vísbendingar um hverj-
ir hefðu verið þarna að verki. Spjót-
in beindust þó að al-Qaeda, hryðju-
verkasamtökum Osama bin Ladens,
sem kennt er um hryðjuverkaárás-
irnar á Bandaríkin í fyrra.
„Við verðum að kalla þennan við-
urstyggilega verknað sínu rétta
nafni, morð,“ sagði Bush Banda-
ríkjaforseti.
Leyniþjónustumenn hafa verið
sendir til Balí frá bæði Bandaríkj-
unum og Ástralíu til að aðstoða við
rannsókn árásarinnar og til að
reyna að bera kennsl á hina látnu
sem margir hverjir eru illa brunnir.
Hundruð manna slösuðust þegar
sprengjur sprungu fyrir utan næt-
urklúbb nærri Kuta-strönd, vinsæl-
um ferðamannastað. Sjúkrahús á
svæðinu voru yfirfull í gær, sólar-
hring eftir sprengingamar, og var
miklum vandkvæðum bundið að
gera að sárum hinna slösuðu þar
sem skortur var á ýmsum búnaði,
svo sem verkjalyfjum og saltvatns-
lausnum, að sögn sjálfboðaliða.
Lík fórnarlamba sprengjutilræð-
isins yflrfylltu líkhús stærsta
sjúkrahússins á Balí. Vinir og ætt-
ingjar leituðu að ástvinum sínum
inni á sjúkradeildunum.
Áströlsk stjómvöld sendu C-130
Herkúles flutningavélar til Balí til
að flytja særða til aðhlynningar í
borginni Darwin í Ástralíu.
Öflugri sprengjan tætti í sundur
Sari næturklúbbinn sem var mjög
vinsæll meðal bakpokaferðalanga
og brimbrettamanna sem flykkjast
til Kuta alls staðar að úr heiminum,
einkum þó frá Ástralíu.
Nágrannar Indónesa í Asíu hafa
sakað stjómvöld í Jakarta um lin-
kind í garð öfgasinnaðra múslíma,
þrátt fyrir sannanir um að al-Qaeda
hefðu náð fótfestu í landinu, fjöl-
mennasta múslímaríki veraldar.
„Við vildum sjá indónesísk
stjórnvöld leggja sig öll fram í bar-
áttunni við hryðjuverkamenn innan
eigin landamæra," sagði John
Howard, forsætisráðherra Ástralíu,
eftir að hann ræddi við Megawati
Sukamoputri Indónesíuforseta.
Megawati flaug til Balí og sagði
að sprengingamar væra viövörun
um að þjóðaröryggi Indónesíu staf-
aði hætta af starfsemi hryðjuverka-
manna. Hún lét þó ekkert uppi um
hverjum yfirvöld kenndu um.
REUTERSMYND
Sluppu lifandi frá tilræðinu
Ónafngreindur ástralskur ferðamaður aðstoöar félaga sinn sem slasaðist í sprengjutilræöinu ð indónesísku eyjunni
Batí á laugardag. Myndin var tekin á sjúkrahúsi i borginni Denpasar. Hátt í tvö hundruö manns, aðallega erlendir
feröamenn, létu lífið þegar tvær sprengjur sprungu fyrir utan fjölsóttan næturklúbb á Kuta-strönd.
Leyniskyttan við Washington hafði hægt um sig um helgina:
Fjöldi ábendinga eftir að
mynd var birt af sendibíl
Lögreglu hefur borist fjöldi
ábendinga vegna leitarinnar að
leyniskyttunni sem hefur drepið
átta manns í nágrenni Washington
DC eftir að samsett mynd var birt á
laugardag af hvítum sendibíl sem
sést hefur í nágrenni við fleiri en
einn morðstað.
„Við höfum fengið fjölda símtala
vegna myndarinnar," sagði Charles
Moose, lögreglustjóri í Montgomery-
sýslu, einn þeirra sem stjóma leit-
inni að morðingjanum.
Moose sagöi að fleiri en eitt vitni
hefðu séð sendibílinn, sem er dæld-
aður að aftan og með áletrun á hlið-
um flutningsrýmisins. Ekkert vitn-
anna hefur þó getaö greint nákvæm-
lega frá þvi sem á bílnum stendur.
Þegar Moose var beðinn um að tjá
sig um fréttir þess efnis að sést
REUTERSMYND
Meö mynd af sendlbíl
Charles Moose, lögreglustjóri í
Montgomersýslu nærri Washington,
heldur á samsettri mynd sem taliö
er aö tengist leyniskyttunni sem hef-
ur myrt átta manns síöustu daga.
hefði til leyniskyttunnar og að lög-
reglan væri að vinna að mynd af
honum vafðist lögreglustjóranum
tunga um tönn. Hann sagði að lag-
anna verðir vildu ekki „grugga
vatnið“ með því að senda frá sér
mynd áður en það væri tímabært.
Leyniskyttan lét ekkert á sér
kræla um helgina. Síðasta fómar-
lambið var drepið á föstudagsmorg-
un. Helgina þar á undan aðhafðist
morðinginn heldur ekkert en strax
á mánudeginum skaut hann og
særði þrettán ára gamlan pilt.
Morðinginn lét fyrst til skarar
skríöa 2. október síðastliðinn. Hann
velur fómarlömb sín af handahófi
og skýtur þau einu skoti af löngu
færi. Mikill ótti hefur gripið um sig
meðal ibúa í nágrenni Washington
og þora margir varla út úr húsi.
Annan kominn til Kína
Kofi Annan,
framkvæmdastj óri
Sameinuðu þjóð-
anna, kom til Kína í
gær til viðræðna
við þarlenda ráða-
menn. Að sögn
stjómarerindreka
mun Annan ræða
sívaxandi fjölda alnæmistilfella í
Kína og íraksmálið og líklegt þykir
að hann muni hvetja Kínverja til að
bæta ráð sitt í mannréttindamálum.
Stólað á frönskumælandi
Yfirvöld í Beirút, höfuðborg Lí-
banons, gera sér miklar vonir um
að fundur frönskumælandi ríkja í
borginni alla vikuna muni verða til
að þurrka út minningar um borg-
arastyrjöldina og til að laða þangað
erlenda fjárfesta.
Stríð gegn kóladrykkjum
í Mið-Austurlöndum er nú hEifið
stríð þar sem múslímar beina spjót-
um sínum að heimsþekktum banda-
rískum kóladrykkjum.
Inn í kakóborgina
Uppreisnarmenn á Fílabeins-
ströndinni héldu inn í borgina
Daloa, helstu miðstöð kakófram-
leiðslunnar, í gær. Það er stjóm-
völdum mikið áfall að missa Daloa.
Sameiginleg rannsókn
Kúveitar og Bandaríkjamenn
hófu í gær sameiginlega rannsókn á
því hvers vegna samvinna þeirra í
milli rann út í sandinn eftir að
bandarískur landgönguliði féll í
hryðjuverkaárás.
Lula með góða forystu
Luiz Inacio Lula
da Silva, vinstri-
sinnaður forseta-
frambjóðandi í
Brasilíu, hefur um-
talsvert forskot á
José Serra, keppi-
naut sinn í síðari
umferð forsetakosn-
inganna þann 27. október, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem birt
var um helgina. Sigur hans er því
svo gott sem tryggður.
Of fáir sendir heim
Félögum í Danska þjóðarflokkn-
um finnst enn of margir erlendir
innflytjendur koma til Danmerkur
og of fáir vera sendir aftur til síns
heima, að því er fram kom á þingi
flokksins um helgina.
Bertie Ahern vongóður
Bertie Ahern, for-
sætisráðherra ír-
lands, sagðist í gær
vera vongóður um
að írar myndu sam-
þykkja Nice-sátt-
mála Evrópusam-
bandsins um stækk-
un þess í þjóðarat-
kvæðagreiðslu í næstu viku.
Asninn Sharon síðastur
Asni, sem skírður var í höfuðið á
Ariel Sharon, forsætisráðherra ísra-
els, varð síðastur í asnakapphlaupi
í Líbanon í gær.
Kramnik laut í lægra haldi
Vladimír Kramnik, heimsmeist-
ari í skák, tapaði í gær fyrir skák-
tölvunni Djúpa Frissa í 35 leikjum.
Kramnik hefur nú þrjá vinninga
gegn tveimur Frissa tölvu.