Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Blaðsíða 2
18 MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 Sport DV Mánudagurinn 14. október 2002 Efni DV- Sports í dag 0 Utan valiar, fréttir © Kvennakarfan © Essodeild karla © Essodeild karla © Essodeild karla © Úrvalshópur í glímu © Essodeild karla © Intersportdeildin 0 NBA-deildin 0 NBA-deildin ffi. / Intersport-deildin körfuknattleik 0 NBA-deildin 0 NBA-deildin © Evrópuknattspyrnan © Evrópuknattspyrnan 0 Enska knattspyrnan 0 Enska knattspyrnan © Enska knattspyrnan 0 Rall og veiöi yjj NM drengja í fimleikum © Fréttasíöa © Baksíöa Ólafur Stefánsson og Alfreö Gíslason unnu enn einn titilinn meö Megdeburg um helgina þegar þeir uröu meistarar meistaranna f Evrópu um helgina. Bestir í Evrópu - Magdeburg bar sigur úr býtum í keppni Evrópumeistaranna íslendingaliðið Magdeburg bætti enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn þegar liðið bar sigur úr býtum í keppni á milli Evrópumeistara síð- asta árs sem fram fór í Þýskalandi um helgina. Fjögur lið tóku þátt í mótinu, þýsku liðin Magdeburg og Kiel, íþróttadeild DV, Skaftahlíö 24 Beinn sími: .............. 550-5880 Ljósmyndir:............... 550-5845 Fax:...................... 550-5020 Netfang:..............dvsport@dv.is Fastir starfsmenn: Jón Kristján Sigurðsson (jks.sport@dv.is) Óskar 0. Jónsson (ooj.sport@dv.is) Óskar Hraöi Þorvaldsson (oskar@dv.is) Pjetur Sigurðsson (pjetur@dv.is) spænska liðið Ciudad Real, sem Rúnar Sigtryggsson leikur með, og ungverska liðið Fotex Veszprem. Á fostudaginn fóru fram undan- úrslit og þá bar Magdeburg sigurorð af Ciudad Real,. 35-33, og Fotex Vszprem lagði Kiel örugglega, 31-23. Þessi leikur var að nokkru leyti sérstakur fyrir Ólaf Stefánsson því að hann mun ganga til liðs við spænska liðið á næsta keppnistíma- bili. Ólafur skoraöi fjögur mörk gegn Cuidad Real og Sigfús Sigurðs- son skoraði þrjú mörk. Leikurinn var gífurlega spennandi en franski markvörðurinn Christian Gaudin bjargaði Magdeburg með því verja vítakast á síðustu mínútunni i stöð- unni 34-33 fyrir Magdeburg. í úrslitaleiknum mætti Magde- burg ungverska liðinu Fotex Veszprem en þessi lið mættust einnig í úrslitaleikjum meistara- deildar Evrópu í vor. Þar fór Magde- burg með sigur af hólmi og sú varð einnig raunin í úrslitaleiknum á laugardag. Ólafur skoraði fimm mörk í leiknum fyrir Magdeburg og línumaðurinn Sigfús Sigurðsson skoraði tvö mörk. Fann fyrir pressu Ólafur Stefánsson sagði i samtali við DV-Sport í gær að það hefði ver- ið skrýtin tilfinning að spila á móti spænska félaginu Cuidad Real sem hann mun leika með á næsta tíma- bili. „Það var skrýtið en jafnframt mjög skemmtilegt. Ég fann fyrir pressu því að þeir voru að skoða mig frá öllum hliðum en ég þurfti bara að útiloka það og einbeita mér að því að spila sem best fyrir Magdeburg. Liðið er mjög gott, vann Kiel með tíu marka mun í leik um þriðja sætið, og það verður gam- an að spila þarna á næsta ári,“ sagði Ólafur. „Mótið var sterkt og það er alltaf gaman að vinna titla. Nú tekur deildin við og þar þurfum við að reyna að hanga í Lemgo sem hefur spilað frábæran handbolta upp á síðkastið. Þeir munu hiksta í vetur og þá þurfum við að grípa tækifær- ið,“ sagði Ólafur Stefánsson í sam- tali við DV-Sport. -ósk Þýski handboltinn: Hu sigrar í röð hjá Lemgo Lemgo virðist vera óstöðvandi í þýska handboltanum um þess- ar mundir. Á laugardaginn bar liðið sigurorð af Gylfa Gylfasyni og félögum í Wilhelmhavener, 41-31, og vann Lemgo þar með tí- unda sigur sinn í röð á þessu timabili. íslensku leikmennimir höfðu frekar hægt um sig um helgina. Gylfi skoraði eitt mark fyrir Wilhelmhavener gegn Lemgo, Róbert Sighvatsson og Sigurð- ur Bjamason skoraðu báðir tvö mörk fyrir Wetzlar sem steinlá fyrir Gummersbach, 33-17. Gústaf Bjamason skoraði þrjú mörk fyrir Minden sem tapaði fyrir Wallau-Massenheim, 36-31, á útivelli. Einar Öm Jónsson skoraði tvö mörk fyrir Wallau- Massenheim. Úrslit og markaskorarar: TuS Liibbecke-Hamburg . . . 27-24 Radonic 7/1, Lakenmacher 7, Seifert 3, Bretow 3, Hammerstrand 3, Fölser 2, Schwank 1, Willgerodt 1 - Emelind 5/1, Moldestad 5, Wagner 4, Knorr 3, Kurtschew 2, Taj 2, B. Gille 2, Strauch 1. Wilhelmhavener-Lemgo . . . 31-41 Pungartnik 7, Caiilat 7, Karrer 6, O. Köhrmann 6/2, C. Köhrmann 2, Gylfi Gylfason 1, Fathallah 1, Bilanovic 1 - Baur 10/6, Zerbe 7, Lima 7, Kehrmann 5, Schwarzer 5, Stephan 3, Baumgartner 2, Tempelmeier 1, Bind- er 1. Gummersbach-Wetzlar.....33-17 Houlet 11/5, Yoon 8, Femandez 6, Rastner 3, Lapcevic 3, Bommes 2 - Golic 6, Michel 3, Róbert Sighvatsson 2, Sigurður Bjamason 2, Monnberg 1, W. Klimpke 1. Wallau-Minden .........36-31 Rose 11/3, Bengs 7, Immel 6, Werum 4, Hens 3, Weber 3, Einar Örn Jóns- son 2 - Ziercke 7/1, Kusilew 7, Axner 6/2, Habbe 3, Gústaf Bjamason 3, Buschmann 2, Maksimowitsch 2, Carstens 1. Eisenach-Flensburg.....26-27 Just 6, Jensen 5, Göhl 4, Vildalen 4, Casanova 3, Reuter 2, Joulin 1/1, Wöhler 1 - Christiansen 6/4, Berge 5, Jeppesen 4, Dragunski 4, Stryger 3, Klimowts 2, Kunze 2, Boldsen 1, Lijewski 1. Lemgo er á toppi deildarinnar með 20 stig eftir tíu leiki, Flensburg er með 18 stig eftir tíu leiki, Magdeburg er með 16 stig eftir tíu leiki, Essen er með 16 stig eftir níu leiki og Wallu- Massenheim er með 12 stig eftir tíu leiki. -ósk Utan vallar Margir hafa haldið því fram að þjóðaríþrótt íslendinga sé ekki handbolti eða knattspyma heldur glíma. Þeir hinir sömu hafa nokk- uð til slns máls því að þeir sem stunda íþróttina utan landstein- anna eru að öllum líkindum telj- andi á fingrum annarrar handar. Vegur glímunnar á íslandi und- anfarna áratugi hefur þó ekki ver- ið í samræmivið stöðu hennar sem þjóðaríþrótt íslendinga. Það hefur löngum þótt meira spennandi að æfa einhvers konar boltaíþróttir en glímuna og reyndar er þaö svo að þeir sem hafa æft glímu hafa feng- ið stimpil á sig sem sérvitringar. Það má kannski til sanns vegar færa að sú sjón, að sjá tvo fúll- vaxna karlmenn stíga dans með belti á mjöðmum og án undantekn- inga í einstaklega gömlum íþrótta- buxum, er ansi skondin en hún rýrir þó ekki ágæti þessarar mætu iþróttar. í henni er lögð áhersla á drengi- lega keppni, kurteisi og gott líkam- legt atgervi þótt það sé reyndar misjafnt eins og mennimir eru margir. Glíman hefur „glímt“ við það vandamál að ekki hefur tekist að gera íþróttina að spennandi val- kosti fyrir ungmenni. Það hefur vantað ötulan talsmann til aö gera veg glímunnar sem mestan því að það krefst mikllar vinnu aö vekja athygli á sér og sinni íþrótt á þess- um síðustu og verstu tímum. Það hefur ekki hjálpaö glímunni að sömu mennirnir hafa verið ein- ráðir í langan tíma og endumýjun- in hefur verið lítil sem engin. Það er erfltt að hafa áhuga á iþrótt þar sem sömu mennirnir eru áskrif- endur að titlum ár eftir ár og spennan er engin. Þessu hafa forsvarsmenn glímunnar áttað sig á. Þeir hafa hrandið af stað átaki sem á að hleypa nýju lífi í þessa ævafomu þjóðaríþrótt okkar íslendinga. Þeir ætla að byrja á að reyna að laða að yngstu iðkenduma í stað þess að horfa til afreksmannanna, enda erfitt að byggja hús og byrja á fimmtu hæö. Það þarf aö reisa grunninn áður en hús glímunnar getur risið og þess vegna hefur Oskar Hrafn Þorvaldsson íþróttafréttamaöur á DV-Sporti m Glímusamband íslands stofnað úr- valshóp fyrir glímuiðkendur sem eru á aldrinum 15-20 ára. Þessi hópur á að hittast með reglulegu millibili og æfa undir stjórn bestu glímumanna landsins. Gulrótin fyrir þennan úrvalshóp er ferð til Kanada árið 2004 þar sem úrvals- hópurinn, ásamt bestu glímumönn- um landsins, mun breiða út fagnað- arerindið, glímunni til handa. Þetta framtak Glímusambands- ins er lofsvert og það að geta æft undir leiðsögn bestu glímumanna landsins ætti að vera spennandi kostur fyrir krakka sem ekki hafa enn fundið íþrótt við sitt hæfi eða vilja prófa eitthvaö nýtt. Glíman hefur átt undir högg að sækja, það eru ekki miklir pening- ar í íþróttinni en sem betur fer eru enn til menn á íslandi sem vilja veg þessarar íþróttar sem mestan og eru tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir litlar þakkir og kannski enn minni athygli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.