Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002 19 Sport DV Hanna Björg Kjartansdóttir átti mjög góöan leik með KR gegn ÍS í gær og skoraði 23 stig og tók 18 fráköst í 41-66 sigri. DV-mynd Teitur Hanna Björg Kjartansdóttir og Helga Þorvaldsdóttir voru konurnar á bak við 41-66 sigur KR á ÍS í Kennaraháskólanum í gærkvöld en það þýðir að deildarmeistaramir hafa tapað fjórum fyrstu leikjum sínum í vetur en KR- liðið er við hlið Grindavíkur í 2. sætinu. Hanna skoraði 23 stig og tók 18 frá- köst og Helga skoraði níu af 15 stigum sínum í þriðja leikhluta þegar leiðir skildi hjá liðunum, auk þess sem Helga sendi sjö stoðsendingar í leiknum. KR vann seinni háifleikinn, 36-14, og þá fór varla skot ofan í hjá stúdínum. Stúdínur spiluðu góða vörn og voru skynsamar í sókninni í fyrri hálfleik og í hálfleik munaði aðeins þremur stigum en KR-liðið tapaði 16 boltum í fyrri hálfleik en ÍS-liðið aðeins tveimur. í seinni hálfleik brotnaði leikur stúdina og KR-liðið komst á góðan skrið og sigraði. Stig ÍS: Þórunn Bjamadóttir 19, Cecilia Larsson 9 (6 fráköst, allt í fyrri), Guörún Baldursdóttir 5, Jófríður Halldórsdóttir 4, Kristín Óladóttir 2, Rós Kjartansdóttir 1. Stig KR: Hanna B. Kjartansdóttir 23 (18 fráköst, hitti 9 af 16 skotum), Helga Þorvalds- dóttir 15 (7 stoðs.), Hildur Sigurðardóttir 5 (10 fráköst, 4 stoðs.), Guðrún Arna Sigurðar- dóttir 4 (10 fráköst), Georgia Kristiansen 4, Sara Smart 4, Halla Jóhannesdóttir 3, Haf- dís Gunnarsdóttir 2. ÓÓJ Auövelt hjá Keflavík Keflavík vann fjórða sigur sinn í jafnmörgum leikjum í 1. deild kvenna á laugardaginn þegar nýliðar Hauka komu í heimsókn. Keflavík vann leikinn að lokum með 34 stiga mun, 86-52, eftir að hafa komist í 22-6 í uppphafi leiks og haft örugga forustu allan tímann. Haukamir léku án hinnar 14 ára Helenu Sverrisdóttur sem lá veik heima og máttu illa við því. Alls tapaði Haukaliðið 41 bolta og Helenu var sárt saknað. Á móti kom síðan að Sonia Ortega lék fyrsta leik sinn með Keflavíkurliðinu en þessi mexíkóska stelpa mun spUa með liðinu í vetur. Ortega fann sig ágætlega i vöm og gekk vel að spila með liðinu en aftur á móti hörmulega að hitta körfuna en alls misfómst 12 af 15 skotum hennar, flestöll undir körfu Haukaliðsins. Annars var það stjarna Marínar Rósar Karlsdóttur sem skein skærast í Keflavík á laugardaginn. Marin skoraði 18 stig, tók 9 fráköst og stal 5 boltum á aðeins 24 mínútum. Auk Marínar léku þær Svava Ósk Stefánsdóttir og Anna María Sveinsdóttir vel. Hjá Haukum áttu þær Egidija Raubaité og Hrefna Stefánsdóttir ágætan leik, auk þess sem Hanna Hálfdánardóttir kom sterk inn i seinni hálfleik. Allt eru þetta stelpur sem leika inni í teig því að allar þær sem spila fyrir utan áttu slakan dag hjá Haukaliðinu. Stig Keflavíkur: Marin Rós Karlsdóttir 18, Svava Ósk Stefánsdóttir 13 (hitti úr 4 af 6 skotum), Anna María Sveinsdóttir 11 (10 fráköst, 7 stolnir, 5 stoðs. á 22 mín.), Bima Valgarðsdóttir 10, Rannveig Randversdóttir 9, Sonia Ortega 9 (11 fráköst, 6 stolnir, 4 stoðs.), Krtistín Blöndal 8, Lára Gunnarsdóttir 6, Vala Rún Bjömsdóttir 2. Stig Hauka: Hrefna Stefánsdóttir 11, Egidija Raubaité 10 (5 stolnir), Hanna Hálfdánardóttir 8, Pálína Gunnlaugsdóttir 6, Birna Eiríksdóttir 5, Ösp Jóhannsdóttir 4, Hafdís Hafberg 4, Stefanía Jónsdóttir 2, Hrafnhildur Kristjánsdóttir. -ÓÓJ ^ Grindavík í öðru sæti 1. deildar kvenna í körfu eftir 85-79 sigur á Njarðvík: 1. deild kvenna í körfu Keflavík 4 4 0 287-219 8 Grindavík 4 3 1 286-272 6 KR 4 3 1 274-226 6 Njarðvík 4 1 3 254-284 2 Haukar 4 1 3 217-263 2 ÍS 4 0 4 189-243 0 Stigahæstar aö meöaltali: Denise Shelton, Grindavík .... 38,3 Sacha Montgomery, Njarðvík . . 25,0 Gréta Maria Grétarsdóttir, KR . 19,0 Birna Valgarðsdóttir, Keflavík . 17,3 Hanna B. Kjartansdóttir, KR ... 14,3 Þórunn Bjamadóttir, ÍS.......... 14,3 Anna María Sveinsdóttir, Keflav. 12,5 Cecilia Larsson, ÍS..............12,0 Helga Þorvaldsdóttir, KR ........11,8 Hafdís Helgadóttir, ÍS ..........11,5 HM í golfi um helgina: llla gekk hjá íslendingunum íslenska landsliðinu í golfi hefur ekki tekist að fylgja eftir góðum fyrsta degi á heimsmeist- aramóti áhugamanna í golfi sem lauk um helgina. Keppni á fjórða og síðasta degi mótsins stóð enn yfir er blaðið fór í prentun í gærkvöld en is- lendingar voru í 39. sæti af 63 þjóðum að loknum þriðja degi. Á fóstudag og laugardag gekk ekki sem skyldi hjá íslensku keppendunum og hefur liðið leikið samtals á 461 höggi, 150 höggum fyrsta dag, 155 höggum annan dag og 156 höggum þriðja daginn. Frakkar hafa verið með for- ystu alla keppnina en lið Banda- ríkjanna hefur fylgt þeim eins og skugginn og á enn góða mögu- leika á sigri. -vig HM í snóker: Jóhannesí Attu meira Stelpurnar úr Grindavík og Njarðvík buðu upp á fina skemmt- un þegar liðin mættust í Röstinni í fjórðu umferð úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik á laugardaginn var. Grindavíkurstúlkurnar sigruðu 85-79 og hafa þar með unnið þrjá leiki og tapað einum en þær græn- klæddu unnið einn og tapað þrem- ur. Liðin virðast afar áþekk að styrkleika, bæði með góða útlend- inga, en Njarðvíkurliðið er hávaxn- ara en því tókst ekki að nýta sér það sem skyldi. Framan af léik benti fátt til þess að um spennandi leik væri að ræða. Gestimir voru miklu ákveðn- ari, skoruðu tíu fyrstu stigin og svo virtist sem heimastúlkur væru hreinlega ekki með á nótunum. Mestur varð munurinn þrettán stig, 5-18, en eftir fyrsta leikhluta var munurinn ellefu stig, 12-23. Fljótlega í öðrum leikhluta komust Grindavíkurstúlkur loksins til almennilegrar meðvitundar og tóku að saxa á forskot gestanna. Þær náðu að jafna upp úr miðjum leikhlutanum og það var jafnt í leik- hléi, 38-38. Uppsveiflan hélt áfram hjá liðinu, sem skoraði níu fyrstu stigin í þriöja leikhluta og þar með náðu þær undirtökunum sem síðan voru ekki látin af hendi þótt Njcirð- víkurstúlkum tækist nokkrum sinn- um að jafna. Talsverð spenna var á lokakafla leiksins en heimastúlkur áttu þá einfaldlega meira inni, líkamlega sem andlega, og tryggðu sér stigin dýrmætu. Denise Shelton var þeirra atkvæðamest þótt hún væri ansi lengi í gang. Sólveig Gunnlaugsdótt- ir, Sigriður Anna Ólafsdóttir og María Anna Guðmundsdóttir voru nokkuð traustar. Hjá Njarðvík var Sacha Montgomery best og þær Helga Jónsdóttir og Auður Rósalind Jóns- dóttir áttu ágætan leik. Stig Grindavíkur: Denise Shelton 38 (18 fráköst), Sólveig Gunnlaugsdóttir 13 (9 fráköst, 5 stoðs.), Sigríður Anna Ólafs- dóttir 12, María Anna Guðmundsdóttir 10 (5 fráköst, 5 stoðs.), Erna Rún Magnús- dóttir 5, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 4, Sandra Dögg Guðlaugsdóttir 3. Stig Njarðvikur: Sacha Montgomery 39 (8 fráköst, 7 stoðs., 3 stolnir), Helga Jónsdóttir 11 (15 fráköst), Auður Rósa- lind Jónsdóttir 11, Guðrún Ósk Karlsdótt- ir 5 (9 fráköst), Eva Stefánsdóttir 4, Fjóla Eiriksdóttir 3 (9 fráköst), Pálína Heiða Gunnarsdóttir 3, Bára Ema Lúðvíksdótt- ir 3. -SMS vænlegri stöðu SnókerspOarinn Jóhannes R. Jóhannesson er í vænlegri stöðu á heimsmeistaramóti áhuga- og atvinnumanna í snóker sem nú stendur yfir í Kaíró í Egypta- landi. Hann hefur unnið fimm leiki og tapað aðeins einum og er nánast öruggur í úrslit. Kollegi hans, Brynjar Valdi- marsson, er einnig í eldlínunni og hefur staðið sig vel. Brynjar hefur hlotið fjóra sigra úr sex viðureignum. Árið 1994 komst Jóhannes í útslit í þessu móti og tapaði þá naumlega fyrir Mohammed Yousuf frá Pakistan, 11-9. Jó- hannes á því harma að hefna og miðað við form hans í dag er hann til alls líklegur á mótinu í Egyptalandi. -vig Gott á bilathing.is bílaþing heklu HEKLA Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is Númer eitt f notuðum bílum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.