Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Side 19
MÁNUDAGUR 28. OKTÓBER 2002
35
WW
Bestu ummæli
helgarinnar
fa
verið á einhverjum
öðrum leik((
Steve McClaren, knattspymustjóri Middlesbrough, var ekki sammála
kollega sínum Terry Venebles hjá Leeds sem sagði að Leeds heíði unnið
leik liðanna á laugardaginn ef Alan Smith hefði ekki fengið rautt spjald.
„Viö misstum forystuna tvívegis en ég er viss um að það hefði ekki
gerst ef Smith hefði klárað leikinn," sagði Venebles.
„Við áttum leikinn frá upphafsflauti eftir því sem ég gat best séð og á
öðrum degi þá hefðum við gengið af velli sem verðskuldaðir sigurvegar-
ar. Við fengum fullt af færum til að skora og ég er ósáttur við að við
skyldum ekki nýta þau. Að vísu náðum við að jafna í lokin en við hefð-
um átt að vera búnir að gera út um leikinn löngu áður“, sagði McClaren
eftir leikinn. -ósk
Markahæstu menn
ítalinn aldni Gianfranco Zola hefur
skoraö manna
mest í ensku
úrvalsdeild-
inni það sem
af er þessu
keppnistíma-
Gianfranco Zola. bili'
Gianfranco Zola, Chelsea .....8
Alan Shearer, Newcastle.......7
Sylvain Wiltord, Arsenal......6
Thierry Henry, Arsenal .......G
Michael Owen, Liverpool ......6
Kevin Campbell, Everton ......5
Nwankwo Kanu, Arsenal ........5
Nicolas Anelka, Manchester City . 5
Massimo Maccarone, Middlesbr. . . 4
Ruud Van Nistelrooy, Man. Utd . . 4
David Dunn, Blackbum .........4
Danny Murphy, Liverpool.......4
Mark Viduka, Leeds............4
Tölfræðin:
Hvaða lið
standa sig
best og verst
í ensku úr-
valsdeildinni
í eindálkmum hér til hægri
má sjá hvaða lið ensku úrvals-
deildarinnar skara fram úr á
ákveðnum sviðum tölfræðinnar
en þessi listar eru uppfærðir eft-
ir leiki helgarinnar og verða hér
eftir fastur liður á ensku síð-
unum í mánudagskálfmum.
-ÓÓJ
Stórleikur helgarinnar í ensku knattspyrnunni var á Anfield Road:
- Liverpool hefur komið sér í góða stöðu á toppnum eftir sex sigurleiki í röð
Liverpool er á hörkuskriði þessa
dagana og á því fengu leikmenn
Tottenham að kenna þegar þeir
komu í heimsókn á Anfield Road.
Liverpool har sigur úr býtum i
leiknum, 2-1, vann þar með sinn
sjötta sigur í ensku úrvalsdeild-
inni í röð og náði fjögurra stiga
forystu á toppi deildarinnar.i þökk
sé tapi Arsenal gegn Blackbum.
Leikurinn var hörkuspennandi
og bar þess keim að mikið var í
húfi enda Liverpool í efsta sæti
deildarinnar fyrir leikinn en
Tottenham í því þriöja.
Það tók liðin 72 mínútur að
brjóta ísinn en þar var að verki
enski landsliðsmaðurinn Danny
Murphy með glæsilegu skoti fyrir
utan vítateig sem var óverjandi
fyrir Kasey KeUer, markvörð
Tottenham.
Gestirnir voru þó ekki á því að
gefast upp og náðu að jafna leikinn
átta mínútum fyrir leikslok. Varn-
armaðurinn Dean Richards skor-
aði markið en Liverpool hafði þá
haldið hreinu í 445 mínútur í
deUdinni. Fjórum minútum síðar
gerði síðan hinn magnaði Michael
Owen út um leikinn. Hann fékk
boltann úti á vinstri kantinum, lék
á einn vamarmann Tottenham og
var síðan feUdur af Stephen Carr,
bakverði Tottenham, innan víta-
teigs. Dómari leiksins dæmdi víta-
spymu og úr henni skoraði Owen
sigurmarkið af öryggi.
Sýndi ótrúlegan styrk
„Owen sýndi ótrúlegan styrk
með því að taka þetta víti. Hann er
aöeins 22 ára gamaU og það var
ekki auðvelt að taka þetta víti. Það
er ekki eins og staðan hafi verið
5-0 fyrir okkur þegar við fengum
vitaspymuna. Þetta var víti á síð-
ustu mínútunum gegn mjög góðu
liði. Hann á aUan heiður skUinn,"
sagði Gerard HoiUlier, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, eftir leik-
inn.
Hugsa aöeins um okkur
„Ekki spyrja mig hvort við höf-
um átt sigurinn skUið - auðvitað
verðskulduðum við hann. Ekki
spyrja mig heldur um andstæðinga
okkar og hvað þeir gerðu í dag því
að ég hugsa aðeins um mitt lið,“
sagði Houllier eftir leikinn þegar
hann var spurður um þá staðreynd
að Arsenal hafði tapað og
Manchester United gert jafntefli í
sínum leikjum á laugardaginn.
Létum ekki hugfallast
„Ég er ánægður með sigurinn í
dag því að við mættum mjög
sterku og vel skipulögðu liði
Tottenham. Við létum ekki hug-
fallast þó að þeir næðu að jafna og
héldum áfram þar til Owen skor-
aöi sigurmarkið," sagði Houllier.
Margt jákvætt í leik okkar
Glenn Hoddle, knattspyrnustjóri
Tottenham, var ekki sáttur við úr-
slit leiksins
„Mér fannst við vera aö spila vel
í þessum leik. Liverpool-liðið er á
miklu skriði þessa dagana og það
er aldrei auðvelt að mæta á An-
field og sigra. Þeir sýndu það í dag
að þeir eru topplið en það var
margt mjög jákvætt í okkar leik.
Við þurfum hins vegar að fara að
fá stig út úr viöureignunum við
toppliðin þegar við spilum eins og
í dag,“ sagöi Glenn Hoddle eftir
leikinn. -ósk
Michael Owen fagnar hér sigurmarki sinu gegn Tottenham ásamt Tékkanum Milan Baros. Reuters
Sport
Hvada lið standa sig
best og verst í
ensku úrvalsdeildinni
Besta gengið
Liverpool 20 stig af
síöustu 24 möguleg-
um, markatalan er
16-7 í leikjunum.
Með besta genginu er átt við
besta árangur liðs í siðustu
átta deildarleikjum
Flestir sigur-
leikir í röð
Liverpool sex.
Besta sóknin
Arsenal hefur skor-
aö flest mörk eöa 26
í 11 leikjum eöa 2,36
aö meöaltali.
Besta vörnin
Man. Utd og
Middlesbrough hafa
fengiö á sig fæst
mörk, 8 í 11 leikjum
eöa 0,72 í leik.
Bestir heima
Arsenal hefur náö í
15 stig af 18 mögu-
legum, hefur unniö 5
af 6 leikjum, marka-
talan er 15-7.
Bestir úti
Liverpool hefur náö f
13 stig af 15 mögu-
legum, hefur unniö 4
af 5 leikjum, marka-
talan er 10-4.
Bestir fvrir te
Arsenal hefur náö í
23 stig af 33 mögu-
legum og er meö
markatöluna 16-5 í
fyrri hálfleik.
Bestir eftir te
Liverpool hefur náö í
24 stig af 33 mögu-
legum og er meö
markatöluna 17-8 f
seinni hálfleik.
Versta gengift
Sunderland 7 stig af
síöustu 24 möguleg-
um, markatalan er
4-13 í leikjunum.
Versta sóknin
Sunderland hefur
skoraö fæst mörk
eöa 4 í 10 leikjum
eöa 0,4 aö meöaltali.
Versta vörnin
West Bromwich Al-
bion hefur fengiö á
sig flest mörk, 18 í
11 leikjum eöa 1,63 í
leik.
Verstir heima
West Ham hefur náö
í 2 stig af 18 mögu-
legum, hefur tapaö 4
af 6 leikjum, marka-
talan er 3-8.
Verstir úti
Aston Villa hefur
náö í 1 stig af 15
mögulegum, hefur
tapaö 4 af 5 leikjum,
markatalan er 1-7.
Oftast haldift
hreinu
Middlesbrough og
Liverpool hafa hald-
iö sex sinnum
hreinu í 11 leikjum.
Oftast mistekist
að skora
Aston Villa hefur
ekki náö aö skora í
sjö leikjum af 11.