Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.2002, Qupperneq 21
MÁNUDÁGUR 28. OKTÓBER 2002
37
Sport
Á myndinni lengst til vinstri sjást
þeir Witek Bogdanski og Mariusz
Stec ásamt pólskum viðgerðar-
manni við bíl þeirra félaga en á hin-
um myndunum tveimur sjást þeir fé-
lagar á fullri ferð á Mitshubishi
Lancer bíl sínum í Warszawski-rall-
inu í Póllandi. DV-myndir Ryszard
Orzechowski
Fer aftur út
í desember
Svo gæti farið að Witek
Bogdanski fari aftur út í desem-
ber til Póllands til að taka þátt í
meistarakeppni í ralli sem fram
fer árlega í Varsjá. Mariusz Stec,
sem Bogdanski hefur verið að-
stoðarökumaður hjá í undan-
fornum keppnum, hefur verið
boðið að taka þátt og líklegt að
hann fái Bogdanski til að aka
með sér. -ósk
Vandræði hjá Bogdanski
- varð að hætta keppni eftir þriðju sérleið í Warszawski-rallinu
Witek Bogdanski keppti í War-
szawski-rallinu í Póllandi 19.-20.
október síðastliðinn ásamt félaga
sínum, Pólverjanum Mariusz Stec.
Ekið var á malbikuðum götum í ná-
grenni Varsjár, höfuðborgar Pól-
lands. Þetta var níunda og síðasta
keppni ársins í pólsku rallkeppn-
inni og jafnframt fimmta keppnin i
röð sem Bogdanski og Stec taka þátt
i.
Byrjuðu vel
Bogdanski og Stec byrjuðu keppn-
ina vel og voru í þriðja sæti í N-
flokki og sjötta sæti í heildarkeppn-
inni eftir tvær sérleiðir sem er frá-
bær árangur hjá þeim félögum.
Á þriðju sérleið urðu þeir hins
vegar fyrir óhappi sem gerði það að
verkum að þeir þurftu að hætta
keppni eftir sérleiöina.
Olíuþrýstirigurinn féll
„Við ókum þriðju sérleiðina mjög
hratt. Við keyrðum mjög lengi á um
250 km/klst. hraða og skyndilega
heyrðust óhljóð frá vélinni og í kjöl-
farið gaus sterk brunalykt upp og
reykur kom inn í bilinn. Ég leit aft-
ur fyrir mig og sá engin ummerki
um eld þannig að við opnuðum báða
hliðargluggana og reyndum að
halda áfram. Við náðum síðan að
klára sérleiðina með herkjum og
komum okkur á viðgerðarsvæðið en
því miður var það of seint. Olíu-
þrýstingurinn á vélinni var fallinn
og því urðum við að hætta keppni,"
sagði Witek Bogdanski i samtali við
DV-Sport.
Mariusz Stec hafnaði í funmta
sæti í N-flokki og níunda sæti í
heildarkeppninni yflr árið sem er
frábær árangur hjá þessum 22ja ára
gamla ökumanni. Hann naut hjálp-
ar Witek Bogdanski í síðustu fimm
keppnunum. -ósk
Veiðivon
Gunnar Bender skrifar um veiöi fyrir ÐVSport
Ákvörðun Heims að ráða Stefán Jón
Hafstein sem næsta ritstjóra eins og
við greindum frá fyrstir fjölmiðla í síð-
ustu viku kom stjóm Stangaveiðifélags
Reykjavíkur verulega á óvart.
Eirikur St. Eiríksson hefur verið rit-
stjóri og eru veiðimenn almennt ánægð-
ir með hans störf innan félagsins. Menn
hafa líka haldið
því fram að Stef-
án Jón hefði
meira en nóg að gera í öðrum málum.
Konur hafa tekið völdin í skemmti-
nefnd Stangaveiðifélags Reykjavíkur og
er Brynja Gunnarsdóttir, eiginkona
Bubba Morthens, formaöur hennar.
Síðast voru það bara karlar en núna eru
það bara konur.
Það er gaman að rýna í veiðitölur frá
sumrinu og sjá hvaða fluga hefur gefið
best yfir heildina, rauð franses stendur
sig alltaf vel og gefur vel í mörgum lax-
veiðiám. Veiðimenn sem voru undir það
síðasta i Flekkudalsá á Fellsströnd
veiddu vel á rauða.
Veióimenn i öllum flokkum eru meira
en iítið hissa þessa dagana. Enn eitt
leyfið hefur nú verið gefið út og aö þessu
sinni er leyft að sleppa megi norskum
laxi í kvíar fyrir austan land. Fyrir
nokkmm árum mátti ekki einu sinni
koma með þennan lax í kvíar uppi á
landi. Nú er öldin greinilega orðin önn-
ur.
Þetta er verða svipað og með regnboga-
siiunginn, sem alls ekki mátti fara frá
I.axalóni á sinum tíma. Hann er núna
kominn út um aUt og helstu sérfræðing-
arnir þekkja hann ekki trá öörum laxi
le-ngur. G.Hender
Fengsælir
ferðamenn
Hér aö neöan má sjá þá Guy Gef-
froy, annan af leigutökum Vatns-
dalsár, Dúa Landmark, Jean Pierre
Fleury og Tancréde de Morinerie frá
Seasons-sjónvarpsstööinni eftir vel
heppnaöan veiöitúr þar sem fimmt-
án gæsir lágu í valnum. Leiösögu-
maður var Vignir Björnsson á
Blönduósi. DV-myndir Vignir
Veiddi sex rjúpur
og tvær tófur
- segir Skarphéðinn Ásbjörnsson
„Það eina sem ég sá af rjúpu allan
liðlangan daginn voru þessar sex
rjúpur, en það er afar lítið af rjúpu á
þessum slóðum núna,“ sagði
Skarphéðinn Ásbjömsson, en hann
var á rjúpu á Auðkúluheiðinni fyrir
fáum dögum.
„Árangur eftir svona heilan dag á
heiðinni fyrir kunnugan mann þarna
ætti að vera upp undir 20 stykki í
venjulegu ári. Tófumar voru hins
vegar heldur kærulausar, önnur svaf
undir kletti en hin var að róta í
lambshræi sem lá ofan í árfarvegi.
Það er frekar óvanalegt að sjá tófur
um hábjartan daginn, hvaö þá að
komast í færi við þær. Ég sá einnig
tvær tófur fyrr í haust þegar ég var á
gæsaveiðum en náði bara annarri.
Það virðist vera óvenjumikið af tófú
um allt land,“ sagði Skarphéðinn enn
fremur. -G.Bender
Fjör á árbakkanum í Vatnsdalsá:
Mikið mvndað
„Þetta var hópur íslendinga og
síðan Frakkar frá Seasons-sjónvarps-
stöðinni í Frakklandi sem voru við
tökur við Vatnsdalsá fyrr 1 sumar,“
sagði Dúi Landmark í samtali við
DV-Sport, en hann hefur myndað
mikið við laxveiðiárnar og á
veiðislóðum skotveiðimanna síðustu
mánuði með góðum árangri.
„Það var verið að kynna sér þá
starfsemi sem fer þar fram á vegum
leigutakanna Péturs Péturssonar og
Guy Geffroy í Vatnsdalnum.
Hálftímaþáttur
Þetta verður hálftímaþáttur um
ána, lax-, silungs- og gæsaveiöi á
svæðinu, sem er vinnslu og verður
sýndur í Frakklandi strax á næsta
ári. Þetta tókst feiknalega vel og gam-
an þama á veiöislóðum," sagði Dúi í
lokin.
Gæsaveiðar hafa gengið vel hjá
veiðimönnum og margir með flna
veiði, mikið hefur verið af fugli og
dagsveiðin hjá mörgum hefur verið á
milli 30 og 40 fuglar. Það sama verð-
ur ekki sagt um rjúpuna, þó eitt og
eitt gott skot hafi reyndar komið síö-
ustu daga. -G.Bender