Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002
Fréttir DV
Ófögur mynd af Kára og deCODE dregin upp í The Guardian:
Félagslegt klám
- segir Páll Magnússon hjá íslenskri erfðagreiningu
Lá við stórslysi í Ólafsvík:
Ók í loftköstum á
verslun og olli bruna
Þurrkuð epli
Möndlur
Blandaðir
ÞURRKAÐIR ÁVESTIR
... allt sem þaifí baksturinn!
Dekkjahótel
vib geymum dekkin fyrir þig
gegn vægu gjaldi
sómmuG
(pnlinenídl
Kópavogi - Njar&vík - Selfoss
„Hér er á ferðinni ákveöin tegund
af blaðamennsku sem enskumæl-
andi menn kalla social pornography
eða nokkurs konar félagslegt klám.
Rætt er við mann sem sér fram á
gjaldþrot og annan sem lent hefur í
röð áfalla. Sá lenti í alvarlegu slysi,
átti í erfiðleikum með að fá trygg-
ingabætur, sem reyndust síðan afar
litlar, setti funmtung bótanna í
hlutabréf í deCODE og varð síðan
að selja þau á mun lægra verði en
kaupverðið sem þýddi umtalsvert
íjárhagslegt tap fyrir manninn.
Þetta er í sjálfu sér afar sorglegt mál
en látið er að þvi liggja að þessar
hremmingar séu allar íslenskri
erfðagreiningu að kenna. Ábyrgð
vegna hlutabréfakaupa hlýtur fyrst
og fremst aö liggja hjá kaupandan-
um sjálfum og síðan ráðgjöfum
hans. Fyrirtækið ber auðvitað
ábyrgð á eigin tilvist og hlutabréf i
því eru föl en lengra getur ábyrgð
þess ekki náð. í því sambandi und-
irstrika ég að fyrirtækið sjálft hefur
aldrei selt bréf á hærra gengi en 18
dollara á hlut. Það voru aðrir sem
seldu á 50-60 dollara eins og sagt er
í greininni," sagði Páll Magnússon,
framkvæmdastjóri samskipta- og
upplýsingasviðs íslenskrar erfða-
greiningar, við DV vegna greinar
sem birtist í breska dagblaðinu The
Guardian í vikunni.
í gein The Guardian er fjallað um
fyrirtækið deCODE, hlutabréfakaup
íslendinga í fyrirtækinu, fjárhags-
leg skakkafóll vegna þeirra og Kára
Stefánsson forstjóra. Birtist greinin
hann, lenti siðan um 12 m neðar á
malbikuðu plani við verslunina og
rann þaðan á húsiö. Við áreksturinn
kviknaði i bílnum og eldur læsti sig
þegar í húsið. Ökumaðurinn náðist út
slasaður örskömmu síðar og var
hlynnt að honum. Haft var samband
við Neyðarlínuna og lögregla og
slökkvilið Snæfellsbæjar kom á vett-
vang skömmu síðar og var ökumanni
ekið til læknis. Hann reyndist tvíbrot-
inn á hægri fæti og var fluttur í
sjúkrahús í Reykjavík.
Einn liðsmanna slökkviliðsins,
Svanur Tómasson, ók fram hjá slys-
staðnum í útkallið. Hann sýndi mikið
snarræði og sótti tæki á Slökkvistöð-
•ina til að slökkva eldinn sem orðinn
var verulegur. Hann gat haldið eldin-
um í skefjum þangað til aðalliðið kom
stuttu síðar og lauk við að slökkva
eldinn og reykræsti húsið. Talsvert
tjón er á húsnæði verslunarinnar og
söluvöru hennar af völdum eldsins.
Bifreiðin er gjörónýt. Ökumaðurinn
er grunaður um ölvunarakstur. -JBP
undir fyrirsögn-
inni „DeCODE
was meant to
save lives ... now
it’s destroying
them“ sem út-
leggst á þann veg
aö deCODE hefði
verið ætlað að
bjarga tilveru
manna en væri
nú að eyöileggja
Páll Magnússon. hana james
Meek blaðamað-
ur ræðir þar við fólk sem fór hall-
oka á kaupum hlutabréfa í fyrirtæk-
inu. Er fyrirsögnin sótt í ummæli
ónafngreinds viðmælanda sem horf-
ir fram á gjaldþrot vegna kaupanna.
Hefur blaðamaður eftir Kára Stef-
ánssyni, forstjóra íslenskrar erfða-
greiningar, að hann og fyrirtæki
hans beri enga ábyrgð á hlutabréfa-
kaupum íslendinga eða hlutabréfa-
markaði yflrleitt. Þrýstingur hafi
verið frá stjómmálamönnum, ekki
síst þeim á vinstri vængnum, að
fólk fengi aö kaupa hlutabréf í félag-
inu og fá hlutdeild í mögulegum
gróða. Hann hafi aldrei hvatt til
kaupanna og lagt á það áherslu að
ef menn gerðu þaö ættu þeir að hafa
fjárhagslegt svigrúm tU að mæta
skakkafollum. Upplýsingar um fyr-
irtækið hafi alltaf legið fyrir en
margir sem keyptu bréf í fyrirtæk-
inu hafi ekki kynnt sér þær. Kára er
annars lýst sem ákafamanni sem
eigi erfitt með að hemja skap sitt.
Þá er rætt er við nokkra íslendinga
um fyrirtækið, gagnagrunninn,
einkaleyfið og ríkisábyrgðina.
Páll er ósáttur við það hvernig
blaðamaður spyrðir saman áfalla-
sögur einstaklinga og fellir dóm um
fyrirtækiö áður en komið er að
Kára þætti Stefánssonar. Lýsing
hans á Kára sem skapofsamanni
gefi sterklega í skyn að Kári og fyr-
irtækið yfirleitt eigi mesta sök á
óförum þeirra sem töpuðu á við-
skiptum með bréf í deCÖDE. „Gengi
margra íslenskra fyrirtækja hefur
hríðlækkað síðustu misseri og ár en
ég sé ekki að forstjórar þeirra séu
dregnir til persónulegrar ábyrgðar
fyrir fjárhagslegt tap þeirra einstak-
linga sem keyptu hlutabréf í þess-
um fyrirtækjum."
í lokin spyr blaðamaður The Gu-
ardian Kára hvort ekki heföi verið
hyggilegra að fara í þetta risaverk-
efni í samvinnu við stjórnvöld og
ríkið. Hann segir að Kári fyrirlíti
starfsbræður sína við Háskóla ís-
lands og hefur eftir honum að sam-
starf við stjómvöld, og þá sérstak-
lega hinn hræðilega lélega (leat-
hally bad) Háskóla íslands, heföi
haft skelfilegar afleiðingar í för með
sér. Háskólinn byggi við alls kyns
kvaðir sem heföu orðið mönnum
fjötur um fót, m.a. þá að geta ekki
rekið prófessora sem væri afleitt.
Páll segir blaðamanninn hafa átt
tvö samtöl viö Kára og fengið urmul
upplýsinga og ítarleg svör við ýms-
um spumingum. „í greininni má
hins vegar lesa að tilgangurinn með
viðtölunum var ekki sá að birta efn-
isleg svör við spurningum heldur að
freista þess að mála upp mynd af
vondum manni sem ætti persónu-
lega sök á hremmingum fólks vegna
hlutabréfakaupa. Þetta er að sjálf-
sögðu fjarri öllu lagi,“ segir Páll
Magnússon. -hlh
DV-MYND PSJ
Gerónýtur eftir slysið
Bílllinn sem ekið var á ofsahraöa og lenti á verslunarhúsi í Ólafsvík ergjörónýtur eins og myndin ber meö sér. Eldur
kviknaöi viö áreksturinn en snarræöi slökkviliösmanns, sem átti leiö um, kom í veg fyrir stórslys. Ökumaöurinn er
grunaöur um ölvun.
Bifreið var ekið á framhlið Versl-
uninnar Hrundar í Ólafsvík um hálf-
þrjúleytið aðfaranótt sunnudags. Að
sögn sjónarvotta var bílnum ekið á
miklum hraða niður Grundarbraut og
missti ökumaður stjóm á honum. Bíll-
inn fór upp á steyptan vegg og yfir
MILK CHOCOLATE
Þróar lyf fyrir
Bandankjamarkað
Delta hf„ dótturfélag Pharmaco hf.
hefur gert samstarfssamning við lyfja-
fyrirtækið Purepac Pharmaceutical
Co„ dótturfélag Alpharma Inc. í
Bandaríkjunum, um þróun samheita-
lyfja fyrir Bandarikjamarkað. Samn-
ingurinn felur í sér að Delta þróar lyf
en samstarfsaðilinn vestra framleiðir
og setur á markað. Delta hf. og
Purepac skipta með sér hagnaði af
sölu lyfsins eftir að það kemur á
markað. Frumlyfið er meðal sölu-
hæstu lyfja í heiminum í dag. Gert er
ráð fyrir að samningurinn fari að
skila tekjum árið 2005. Bandaríkja-
markaður er sá stærsti í heiminum í
dag og er áætluð velta samheitalyfia-
markaðarins árið 2005 um 21,6 millj-
arðar bandaríkjadala eða sem sam-
svarar um 1.912 milljörðum íslenskra
króna. -hlh
Ók lögreglubíl á brunahana
Lögreglubíll skemmdist töluvert
þegar ölvaður maður, sem haföi verið
settur inn i bílinn, settist undir stýri
og bakkaði. Ók hann bílnum á grind-
verk og brunahana. Þurfti kranabill
að draga lögreglubílinn af vettvangi.
Lögreglan hafði verið kölluð til til
að stilla til friðar utan við hús í Set-
bergslandi um fimmleytið í fyrrinótt.
Höfðu slagsmál brotist þar út og barst
leikurinn út á götu. Maður um tvítugt
haföiSiafnaboltakylfu í hönd og ógn-
aði með henni fólki á vettvangi. Fólk-
iðsasitt óvænnaogflúði inn í bíl við
götuna. Lamdi maðurinn þá bílinn
með kylfunni þannig að hann dældað-
ist og rúður brotnuðu. Þegar lögregl-
an kom á staðinn var kylfan tekin af
pilti og fékk hann að setjast inn í lög-
reglubílinn til að forða sér undan
átökum. Þurftu lögreglumennimir að
yfirgefa bílinn um stund til að stilla
til friðar og notaði piltur þá tækifær-
iö til að setjast undir stýri með fyrr-
greindum afleiðingum. Piltur, sem
var mjög ölvaður, var þá settur í jám
og gisti fangageymslur.
Aflið opnar skrifstofu
Systursamtök Stígamóta á Norð-
urlandi, með aðsetur á Akureyri,
sem stofnuð voru 18. aprfl sl. hafa
fengið nafnið Aflið. Búið er að opna
símatíma á miðvikudögum í síma
461 5959 frá kl. 17 til 19. í starfsem-
inni rnunu felast einkaviðtöl og
sjálfshjálparhópar. Einnig er hægt
að hafa samband með töivupósti í
aflid@akmennt. -GG
Dýrbítur í Vopnafirði
Tófa drap tvö lömb í Sáuöafelli
inn af Vopnafirði fyrir skömmu og
við nánari eftirgrennslan fundust
fjórar kindur sem tófa hafði drepið.
Anton Gunnarsson frá Deildarfelli
var þarna á ferð i eftirleit og fann
hann alls 10 kindur á lífi inni á Eg-
isstaðaafrétti. Fjórir menn fóru á
tveimur vélsleðum og fluttu kind-
urnar að bænum Háteigi í Vopna-
firöi sl. föstudag. -GG
Össur
Skarphéðlnsson.
Össur leiðir í könnun
Á heimasíðu
Helga Hjörvar,
varaborgarfull-
trúa Reykjavík-
urlista og fram-
bjóðanda til próf-
kjörs Samfylk-
ingarinnar í
Reykjavík um
næstu helgi,
gefst fólki tæki-
færi til þess að
taka þátt í eins
konar skoðanakjönnun. Síðdegis í
gær var formaður Samfylkingarinn-
ar, Össur Skarphéðinsson, í forystu.
Síðan koma Bryndís Hlöðversdóttir,
Jóhanna Siguröardóttir og Helgi
Hjörvar en væntanlega nýtur hann
einhvers fylgis þar sem um hans
heimasíðu, www.helgi.is, er að
ræða.
Röð frambjóðenda er síðan Jakob
Frímann Magnússon, Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir, Ágúst Ólaf-
ur Ágústsson, Mörður Árnason og
Guðrún Ögmundsdóttir. Enn enn
eru nokkrar dagar til stefnu svo
þessi röð kann eðlilega að breytast.
-GG