Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 28
J 52_____________________________________________________________________________________________MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 Tilvera DV Kynfræðingur eignast son Nú getur leikkonan Sarah Jessica Parker haldið áfram að lát- -* ast vera einhleyp og til í tuskið í Beðmálum í borginni. Sarah tók nefnilega léttasóttina í New York um daginn og fæddi sveinbam sem væntanlega verður gefið nafnið David Perkins Broderick. Eigin- maður leikkonunnar er stórleikar- inn Matthew Broderick. Eins og nærri má geta em hjónakomin i sjöunda himni yfir tjölguninni í fjölskyldunni. Þungu fargi er nú létt af hand- ritshöfundum syrpunnar vinsælu. ^ Þeim tókst aldrei að skrifa óléttuna inn í síðustu syrpu og var hún þvi mun styttri en þær sem á undan gengu. Það var jú ekki hægt að fela kúluna á maganum þegar nær dró endalokum hennar. Þúkemstfljótlaó! ...en þú getur líka pantað tíma cAo Rakarastofan Klapparstíe stofnað 1918-* » SÍmÍ 55I 2725 Upptýslngar ísíma 580 2525 Textavarp ÍÚ 110-113 RÚV281, 283 og 284 Laugardaginn 2. nóv. J ókertölur laugardags 7 6 9 7 5 Jókertölur Mmlðvlkudags 2 6 17 2 Þrír góðir og ein lítil Sigurmundur Jónsson sölumaöur ásamt þeim Magnúsi Jóni Árnasyni fram- kvæmdastjóra, sem heldur á Snæfríöi Birtu, og Peter Maiousky. Gaman, gaman Jóhann K. Birgisson, Ásta Stefánsdóttir og Gunnhildur Konráösdóttir gæddu sér á veitingum í boöi Tækja Tækni. Tækja Tækni með opnunarhátíð: ör í feikna vöruhúsi Tækja Tækni var með opnunar- hátíð í nýju vömhúsi sínu við Mó- hellu í Hafnarfirði á fostudagskvöld. Fjöldi manns samfagnaði eigendum Tækja Tækni i feiknastóru vöru- húsi sem er alls 3200 fermetrar að stærð. Tækja Tækni er leiðandi fyr- irtæki i byggingariðnaði með sér- staka áherslu á pípulagnir. Þá hefur fyrirtækið hafið innflutning á nudd- pottum og fylgihlutum ásamt vörum fyrir sundlaugar. Ekki var mikill gusugangur í nýja vöruhúsinu á fostudagskvöldið en gestir létu hins vegar ekki segja sér það tvisvar að njóta rausnarlegra veitinga. -hlh DV-MYNDIR KO Hátt til lofts og vítt til veggja Fjöldi manns mætti á opnunarhátíö Tækja Tækni í 3200 fermetra vöruhúsi viö Móhellu í Hafnarfiröi. Glöð í bragði Margrét Ragnarsdóttir, Sigurbjartur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson létu sig ekki vanta á opnunarhátíöina. Undirheimar í Mosfellsbæ Nýr sýningarsalur fyrir lista- menn, gallerí Undirheimar, var opnaður í gömlu Álafossverksmiðj- unni i Mosfellsbæ um helgina. Hild- ur Margrétardóttir myndlistarkona á frumkvæðið að opnun þessa salar en hún segir enga aðstöðu hafa ver- ið fyrir listamenn til að setja upp sýningar í Mosfellsbæ Salurinn bæti því úr brýnni þörf tU að setja upp fagmannlegar sýningar án mik- Ular fyrirhafnar. Listamenn sem sýna greiða lága upphæð fyrir afnot af salnum og gefa að auki eitt lista- verk tU salarins. Þannig standa von- ir tU að myndist gott safn samtíma- listaverka með tímanum og tUefni skapist tU yflrlitssýninga. Á laugar- dag var opnuð sýning sjö lista- kvenna á verkum úr vatnsleysan- legum litum. -hlh Mæðgur á ferð Hulda Vilhjálmsdóttir listakona sýndi verk viö opnun Undirheima en hér er hún ásamt móöur sinni, Maríu Sigursteinsdóttur. DV-MYNDIR KÖ Vlð Undirheima Hildur Margrétardóttir myndlistarkona er aöalhvatamaöur aö opnun sýningar- salar í Álafossverksmiöjunni í Mosfellsbæ. Hér er hún fyrir utan húsnæöiö á opnunardaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.