Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 18
*42 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 DV Ferðir Ekki gott að ferðast með Ryanair Nýlega var gerð skoðanakönnun á vegum óháðra aðila um það hvaða flugfélag veldur farþegum mestum vandræðum. Mörg flugfélög fengu atkvæði. Þaö var þó eitt félag sem stóð upp úr, Ryanair. Hvorki meira né minna en 56% þeirra sem svör- uðu nefndu það. í öðru sæti var gríska flugfélagið Olympic með 6%, þannig að munurinn er mikill. Flest vandræðin sem komu í svörum tíu þúsund þátttakanda voru vegna far- angurs. Skilaboðin eru sem sagt: Varist Ryanair. ímynd Sikileyjar Ferðamálayfirvöld á Sikiiey eru orðin langþreytt á ímynd þessara fallegu og vinsælu eyjar. Það er sama við hvem er talað, allir tengja eyjuna við Mafíuna. Þessa ímynd sem útlendingar hafa um eyjuna má rekja allt til þess tíma þegar kvikmyndin Guðfaöirin var sýnd. Nú á aö sækja á með auglýs- ingum um fomar minjar og sendn- ar strendur. Það er eins gott fyrir hvem og einn að taka mark á aug- lýsingunum, annars ... 1 Hótelverð lækkar á Bali Ferðamannaparadísin Bali má muna tímanna tvenna. Eftir hryðjuverkin þar fyrir stuttu er komin lá- deyða í ferðaþjón- ustuna og hafa hótel- in, sem yf- irleitt voru sneisafull, orðið að lækka verð á gistingu um allt að 70% og er nýtingin ekki nema um 5% á sumum hótelum. Á Bali em um 800 hundruð hótel og eyjan var langstærsta tekjulind S ferða- -*■ mannaiðnaðinum í Indónesíu. Sol og sæla ar snjóaði í Sevilla þeg- í Reykjavík Sevilla Borgin er engu llk. Suður i Sevilla á Spáni var 35 stiga hiti um síðustu helgi þegar DV-maður varði þar fimm dögum sem Terra Nova Sól hafði skipu- lagt fyrir dágóðan hóp íslenskra ferðalanga. Það var hitabylgja, tíu stigum heitara en vant er. Á sama tíma snjóaði í Reykjavík. Sevilla er stórmerkileg borg. Þarna bjó og lifði hin fagra Carmen og starfaði i vindlaverksmiðjunni þar sem háskóli Andalúsíu er nú. Og að sjálfsögðu þekkja allir Rakarann frá Sevilla. Bein Kólumbusar Ekki má heldur gleyma þvi að sjálfur Kristófer Kólumbus er grafinn í dómkirkjunni í borginni - eða það er hald manna. Deilur hafa verið um bein Kristófers eins og Jónasar Hallgrímssonar forð- um. Sumir telja að hann liggi graf- inn vestur i Ameríku sem hann fann fyrir 510 árum. Nú hafa vís- indin skorist í leikinn og gert DNA-samanburð á líkamsleifum sonar Kólumbusar og þeim leifum sem eru í kirkjunni. Eftir nokkra daga á að skera úr um þetta. Sevilla er stórglæsileg borg og þar er gott að vera. Hrund Guð- jónsdóttir gullsmíðanemi, af- bragðs fararstjóri, sýndi helstu byggingar og stórmerki Sevilla og var það skemmtileg leiðsögn. Hóp- urinn settist að á Hótel Don Pacho sem er í hinum líflega miðbæ. Hótelið skartar þrem stjörnum en er hreinlegt og huggulegt á allan hátt. Á morgnana er þar morgun- verðarveisla af besta tagi. VOji menn gera Sevillaferð að sólar- landaferö þá biður pálmagarður uppi á þaki hótelsins en freistandi verslanir á næstu grösum. Siglt á bæjarlæknum Túristar eru sérkennUegur lýð- ur og öðruvlsi en aðrir vegfarend- ur. Fyrir túrista eru sett á fót sjó sem heimamenn mundu ekki líta við. Ég leyfði mér þó að fara á sjó þar sem boðið var upp á afar góð- an margréttaðan mat - og flamenco og spænska tónlist, m.a. úr Carmen eftir Bizet. Þetta var hátt í þriggja tíma törn og eftir- minnileg skemmtun því þarna fóru sannir listamenn. Ferðalög á báti um bæjar“læk- inn“ Guadalquivir (framborið Gaðalkívír), sem bugðast um borg- ina, meðal annars fram hjá heims- sýningarsvæði Expo 1992, er al- gjör nauðsyn. Og einnig að fara um götumar á gömlum tveggja hæða enskum strætisvögnum með opna efri hæð. Götulífið í SevUla er einstaklega fjörugt, allt frá þvi snemma morg- uns, þegar fólk fyUir verslanir, þar til síðla kvölds þegar veitinga- húsin fyllast. Verð á matvælum á Spáni er lágt miðað við það sem við þekkjum. Kvöldverður á veit- ingahúsi með góðu víni kostar varla meira en 1.500 krónur en komast má af með snöggtum minna. Hópurinn hafði nóg við að vera þessa fimm daga. Sumir fóru á fót- boltavöUinn og hafa ætlað að sjá landa sinn, Jóhannes Guðjónsson. Aörir fóru á golfvelli og áttu þar góðar stundir á grænum flostepp- um Suðurlanda. Ég borgaði tæp 60 þúsund fyrir ferðina og finnst ég hafa gert góð kaup. -JBP Heimilislegt hótel á Þórshöfn á Langanesi: Gestirnir kalla mig mömmu - segir Guöbjörg hótelstjóri „Hér eru aUir eins og heima hjá sér og Ameríkanamir sem dvelja hjá mér núna kaUa mig mömmu,“ segir Guðbjörg Guðmannsdóttir hlæjandi. Guðbjörg rekur Hótel Jór- vík á Þórshöfn í einbýlishúsi sem hún keypti árið 1970. „Ég var hér á — ferðalagi með manninum mínum og við fréttum að þetta hús væri tU sölu. Morguninn eftir ákvað ég að kaupa það en við fluttum samt ekki hingað fyrr en 1980,“ rifjar hún upp. Hún hefur verið ekkja síðan 1986 en unir sér vel á Þórshöfn og segir feg- urð óvíða meiri. „Útsýnið út um stofugluggann yfir Þistilfjörðinn og fjöllin er stórkostlegt," segir hún sannfærandi. En hefur hún opið aUt árið? „Já, það má heita. Þó ég bregði mér suður er aUtaf einhver sem sér um húsið fyrir mig. Ég læt ekki fólk standa úti,“ 'segir hún og tekur þó ^ fram að kringum jólahátíðina sé ekkert að gera og þá loki hún með góðri samvisku. Guðbjörg leigir út 6-7 herbergi, þar af eitt stórt sem hún segir vinsælt fyrir bamafiöl- skyldur. Hún býður líka upp á hvers konar fæði. „Ég þykist vera besti kokkur í heimi og er fljót að framreiða mat, tU dæmis úr fiskin- ♦um sem er veiddur hér úti á firði. Guðbjörg hefur rekiö Hótel Jór- vík á Þórshöfn í einbýlishúsi sem hún keypti árið 1970. Meðan ég er að elda geta gestir rölt í sundlaugina á staðnum sem er búin nuddpottum og hvers kyns þæg- indum,“ segir hún ráðagóð. Þegar haft er orð á að símaskráin bendi tU þess að hún sé- tölvuvædd segir hún. „Já, gestum þykir gaman aö nota tölvuna en sjálf vU ég heldur fara í eldhúsið og baka brauð!" -Gun. Ferðavefur vikunnar & -( www.netcafeguide.com Ferðavefur vikunnar er yfir- gripsmikUl listi yfir netkafíi- hús í heiminum. Það þekkja vafalaust margir hversu þægi- legt getur verið að komast að- eins í tölvupóstinn eöa jafnvel senda línu heim þegar fólk er fjarri heimkynnum. Þeir sem eru ekki búnir fartölvu geta auðveldlega átt tölvusamskipti á flölmörgum netkafííhúsum heimsins. Á þessari heimasíðu sem er norsk að uppruna er að fmna nöfn á 4500 netkaffíhúsum í 170 löndum. Auk öflugrar leitarvél- ar á síðunni þar sem hægt er að slá inn land eða borg er að finna margvíslegar aðrar upp- lýsingar um Netið - svo sem um tæknileg atriði sem geta komið upp misjöfhum tölvu- búnaði. Þá geta áhugamenn um net- kaffíhús viðrað skoðanir sínar á spjallþráðum síðunnar. Það er þess virði að kíkja á þessa síðu áður en ferðalagið hefst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.