Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 14
14 Menning Salurinn biður þögull og spenntur og hrekk- ur við þegar leikarinn kemur aftan að honum, utan af svölum - var að fá sér að reykja, fyrir- gefiði - færir sig svo fram fyrir og byrjar að tala. Smám saman rennur upp fyrir okkur að við erum öll alkóhólistar og sá sem talar er nýr í okkar hópi og getur enn ekki sagt hina örlaga- þrungnu setningu: „Ég er alkóhólisti." Kannski er hann það heldur ekki í venjulegum skiln- ingi, bara almennur „flkill“, marggiftur sam- bandaflkill, kynlífsfíkill, spennuflkill, af því „fíkilT er ágæt lýsing á þeim sem ofnota og misnota lífsins gæði, þeim sem hafa litla sjálf- stjóm, lin tök á eigin lífl og tilfinningum. Hinn fullkomni maður eftir Mikael Torfason, annar af tveimur einþáttungum sem Drauma- smiðjan framsýndi á þriðju hæð Borgarleik- hússins á fóstudagskvöldið, er enn ein nær- mynd hans af nútímakarlmanninum. Þar flett- ir hann af miskunnarleysi ofan af manni á miðjum aldri sem hefur klúðrað lífi sínu og á sér varla viðreisnar von. Konum sínum velur hann ónefni - Grýlukertið, Kynvillingurinn og Sambandafíkill, kynlífsfíkill, alki ... Gunnar Gunnsteinsson - Hinn fullkomni maöur. Miss Sækó - og þó elskaði hann þær á sinn hátt í upphafl. Hvað fór úrskeiðis verðum við að reikna út frá frásögnum hans og lýsingum því hann veit það ekki sjálfur. Hann skilur aldrei hvers vegna þau eru ekki saman í liði lengur. Texti Mikaels er þéttur og markviss og Gunnar Gunnsteinsson vann hlutverkið af alúð. Smáatriðin, fas, svipbrigði, handahreyf- ingar, sýna að hann hefur fengið prýðilega leik- stjórn hjá Hilmi Snæ Guðnasyni. Ekki var hann síst óþægilega sannfærandi fullur á bör- unum. Endirinn varð þó fullteygður. En Gunnar hefur ekki veitt Margréti Péturs- dóttur eins góða leikstjórn í seinni ein- þáttungnum og hann fékk sjálfur. Margrét leik- ur konu á óræðum aldri í Herpingi Auðar Har- alds, liklega heldur eldri en leikkonan er sjálf, taugatrekkta og óhamingjusama konu sem á það sameiginlegt með karli Mikaels að botna lítið í hinu kyninu. Texti Auðar er fyndinn en mun klisjukenndari en texti Mikaels, og þar að auki eru leikaðstæður allar betur hugsaðar hjá Mikael. Mestu munar þó að hér var kastað höndum til smáatriða sem voru svo vel unnin í fyrri þættinum. Margrét hvíldi ekki í hlutverk- inu á sama hátt og Gunnar; til dæmis les kon- an ekki það sem hún þykist lesa í Mogganum og svipbrigði og viðbrögð öll voru einhæf. Vel má vera að frumsýningarkvíði hafi valdið nokkru um og þetta eigi eftir að breytast. En niðurstaða kvöldsins á varla eftir að breytast. Hún virðist vera sú að karlar séu frá Mars og konur frá Venus - sem kemur ekki á óvart en getur verið sársaukafullt engu að síð- ur. Silja Aðalsteinsdóttir Draumasmiðjan sýnir í Borgarleikhúsinu: Hinn full- komni maöur eftir Mikael Torfason. Tónlist: Andrea Gylfadóttir. Leikstjóri: Hilmir Snær Guðnason. Herp- ingur eftir Auöi Haralds. Leikstjóri: Gunnar Gunn- steinsson. Leikmynd og búningar: María Ólafsdóttir. Ljós: Alfreð Sturla Böövarsson. Dramatúrg: Hrafnhild- ur Hafberg. Þetta er frunsa ... Margrét Pétursdóttir í hlutverki hinnar herptu konu. DV-MYNDIR E.ÓL. Petta er mitt líf Háskólatónleikar vetrarins - fjöldi spennandi tónleika fram undan í hádeginu á miðvikudögum / vetur verða tíu tónleikar á vegum Háskólans í Norrœna húsinu í hádeg- inu á miðvikudögum, fernir fyrir jól og sex eftir jól. Meðal tónlistarmanna sem fram koma má nefna Tómas R. Einarsson hassaleikara, Önnu Guð- nýju Guðmundsdóttur píanóleikara og Rúnar Óskarsson klarinettuleikara. Upphaf háskólatónleika má rekja til ársins 1940-1941 þegar þeir Björa Ólafsson fiðluleikari og Ámi Kristjánsson píanóleikari léku sónötur Beethovens i hátíðarsal skólans. Háskólatón- leikar í núverandi mynd hófust upp úr 1970, líklega árið 1972. Meðal hvatamanna voru dr. Róbert Abraham Ottósson, söngmálastjóri og kennari í guðfræðideild, Þorkell Helgason, þá kennari í verkfræðideild og nú forstjóri Orku- stofnunar, og Þorsteinn Gylfason, þá og nú kennari í heimspeki. í fyrstu voru tónleikarnir haldnir síðdegis á laugardögum eða sunnudög- um í Félagsstofnun stúdenta eða hátíðarsal Tómas R. Elnarsson. Anna Guöný Guðmundsdóttir. skólans. Um 1980 fluttust þeir í Norræna húsið og þá var farið halda þá í hádeginu á miðviku- dögum eins og enn er. Háskóli íslands styrkir tónleikana svo að aðeins kostar kr. 500 inn. Ókeypis er fyrir stúdenta Sex valsar um ástina Fyrstu háskólatónleikar vetrarins verða næstkomandi miðvikudag og hefjast kl. 12.30. Þá flytja Tómas R. Einarsson, kontrabassi, Ey- þór Gunnarsson, píanó, Jóel Pálsson, saxófónn og bassaklarínett, og Matthías M.D. Hemstock, trommur, verk eftir Tómas undir heitinu Sex valsar um ástina. Meðal laga sem leikin verða eru Vangadans, Ástarvísa og Maínótt sem öll eru til á plötum, en valsamir Skrið, Hóf og Gil hafa ekki komið á geisladiski og ekki verið fluttir á tónleikum fyrr en nú. Það er þessum völsum sameiginlegt að þar er teflt saman róm- antískri tilfinningu og „órökréttri" hljóma- hugsun og hljómaskiptum, að sögn tónskálds- ins. 13. nóvember leikur Þórir Jóhannsson, kontrabassi, verk eftir Óliver Kentish, David Ellis og Karólínu Eiríksdóttur. 20. nóv. leika Lín Wei á fiðlu og Anna Guðný Guðmundsdótt- ir á píanó verk eftir Gabriel Fauré. 27. nóv. leika Petrea Óskarsdóttir, flauta, og Þórarinn Stefánsson, píanó, verk eftir Camille Saint- Saéns, Philippe Gaubert og Gabriel Fauré. Þá verður hlé alveg fram til 19. febrúar 2003 þegar Rúnar Óskarsson leikur á bassaklar- ínettu verk eftir Eric Dolphy, Claudio Ambros- ini og Wayne Siegel. Fjölbreyttir tónleikar eru svo alveg fram að lokum, 26. mars, þegar Há- skólakórinn syngur Háskólakantötu eftir Pál ísólfsson við texta eftir Davíð Stefánsson; Há- kon Leifsson stjórnar. .. mannsgarnan / \\\ mMi:. S Lífiö sem stoll Homstóll á heimili getur verið heill heimur. Fagurlega skapað húsgagn úr handverki ald- anna, já myndarlegasta mubla úr tágum og taui undir mildu og lágu ljósi kvölds. Að setjast þar getur verið á við helgistund þar sem allar hugs- anir safnast saman eins og söfnuður úr dreifðri byggð. Fátt gefur meiri kyrrð en kvöld i svona homi - djúpt ofan í stólnum, sjálfu hægindinu - með opna bók á brjósti og hugsun til hálfs við ný- lesna sögu. Heyra ekki hljóðin úr degi og amstri. Heyra ekki í bömum eða blaðbera. Heyra ekki bofs. Samlagast stólnum, lifa sig inn í línur hans, liti hans, lögun hans. Og hverfa inn í hann, verða hluti af honum, hluti af húsgagni. Verða stóll. Man að ég missti úr lífinu þetta febrúarbrot. Átti að hitta konuna niðri i bæ og þaðan að borða og loks í leikhús. Lifa með henni lífinu. Sýna sig. Já, svona kvöld þegar lífið er næstum betra en bók í höndunum. Ég kom ekki. Og konan borðaði ein. Og leik- húsið lék sér án mín. Þetta kvöld var ég stóll. Hafði samlagast hon- um. Það gerist. Mikil ósköp, það gerist af því sumir stólar eru þeir sem í þeim sitja. Og þama svaf ég. Sem stóll. MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 __________________________DV Umsjón: Silja Aöaísteinsdóttir silja@dv.is Akku frá Noregi Sjötta norræna bókasafnavikan hefst i dag kl. 19 og stendur til 10. nóv. Að venju hefst vikan samtímis með dagskrám í bókasöfnum á öllum Norðurlöndunum. í Norræna húsinu verða tónleikar með tón- listarhópnum Akku sem hefur í sex ár rannsakað og leikið sér með manna- og dýrahljóð. Sem dæmi má nefna selasöng frá Suðureyjum, bjamaröskur frá Svíþjóð, fuglahermur (sönghefð frá Síberiu) og sönghefð Inúítakvenna frá Norður-Kanada. Akku eru alveg einstakir á tónleikum og lofa spennandi skemmtun. Frítt inn. Ljóð og djass í Iðnó I kvöld kl. 20.30 verður dagskráin Ljóð og djass i Iðnó þar sem lesið verður úr nýjum ljóðabókum og djassútgáfa Óma kynnt. Þorsteinn frá Hamri les úr Meira en mynd og grunur, Ingibjörg Haraldsdóttir úr Hvar sem ég verð, ísak Harðarson úr Hjörturinn skiptir um dvalarstað, Einar Már Guð- mundsson úr ljóðasafni sínu 1980-1995 og Sigtryggur Magnason úr bók sinni Herjólf- ur er hættur að elska. Að auki verður les- ið úr Krakkakvæðum Böðvars Guðmunds- sonar. Tríó Bjöms Thoroddsens leikur af disknum Jass í Reykjavík og Tómas R. Einarsson og félagar af Kúbanska. Þá mun Sigurður Flosason kynna efni af plötu sinni og Péturs Grétarssonar Raddir þjóð- ar. Frítt inn. Frá götum til bílastæða Á morgun kl. 12.05 held- ur Ágústa Kristófersdóttir sagn- og listfræðingur fyr- irlestur í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélagsins sem nefnist „Reykjavík - frá götum til bílastæða". Fundurinn fer fram í Nor- ræna húsinu og er opinn öllu áhugafólki um sögu og menningu. í fyrirlestrinum verður rætt um nokkra þætti í skipulagssögu Reykjavíkur frá tímabilinu 1930 til 1980 og verða þeir settir i alþjóðlegt samhengi. Fjögur hverfi borg- arinnar verða tekin sem dæmi, Norður- mýrin og Breiðholtin þrjú, þ.e. Neðra- og Efra-Breiðholt ásamt Seljahverfi. List og arkitektúr Steingrímur Eytjörð, myndlistarmaður og kennari við Listaháskóla íslands, fjallar um eigin verk á opnum fyrirlestri í dag kl.12.30 í LHÍ, Laugar- nesi, stofu 024. Á miðvikudaginn kl. 12.30 flytur Dagur Eggerts- son arkitekt fyrirlestur er nefnist „Staðir fyrir samræður" í LHÍ, Skipholti 1, stofu 113. Dagur kennir við arkitektaskólann í Ósló en er um þessar mundir gestakennari við Hönnunardeild Listaháskóla íslands. Frá Opna listaháskólanum 11. nóv. hefst námskeiðið Adobe InDesign í tölvuveri LHÍ, stofu 301, Skip- holti 1. Kennd verður uppsetning, meðferð prentaðs máls og mynda í þessu umbrots- forriti sem svipar til QuarkXpress. Kenn- ari er Höskuldur Harri Gylfason, myndlist- armaður og grafískur hönnuður. 7. nóv. hefst fyrirlestraröð um íslenska hönnunarsögu 1860-1960 í fyrirlestasal LHÍ, stofu 113 i Skipholti 1. Tímabilið hefst með brautryðjandastarfi Sigurðar Guð- mundssonar (1833-1874) og síðan verður þátttaka íslendinga í heimssýningum reif- uð, iðnsýningar á íslandi kynntar og hlut- verk íslenskra iðnaðarmanna, myndlistar- manna og arkitekta í hönnun 20. aldar skoðað í samhengi við rótgrónar hefðir og módemisma. Kennari er Arndís S. Áma- dóttir, innanhússhönnuður og bókasafns- fræðingur. Námskeið í spuna hefst á morgun í hús- næði Leiklistardeildar LHÍ, Sölvhólsgötu 13. Hinn skapandi hugur er rannsakaður með spunaæfingum og unnið út frá mis- munandi orkustigum. Markmiðið er að þátttakendur fái reynslu af vinnu með spuna og styrki með því sköpunargleði sina og lífsleikni. Kennari er Steinunn Knútsdóttir, leiklistarkona og kennari við LHÍ. -SER

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.