Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 DV 11 Útlönd Myndun nýrrar harðlínustjórnar langt komin: Netanyahu í sæti utanríkisráðherra? BÍLAMÁLUN JONASAR K. HARÐARSONAR , z:~ - ffaxf&tœh <mb Binyamin Netanyahu, fyrrum for- sætisráöherra fsraels og helsti keppi- nautur Ariels Sharons, núverandi for- sætisráðherra landsins, um völdin í Likud-bandalaginu, samþykkti í gær að taka sæti utanríkisráðherra í nýrri ríkisstjórn Sharons með því skilyrði að kosningum í landinu yrði flýtt. Þetta kom fram eftir fund þeirra Sharons og Netanyahu í gær en þar munu þeir hafa rætt skilyrði þess síð- arnefnda fyrir þátttöku í nýrri harð- línustjóm Sharons, sem áður hafði fengið harðlínumanninn og fyrrum formann ísraelska herráðsins til að taka sæti vamarmálaráðherra. „Ég er tilbúinn ef Sharon gengur að þessari kröfu minni,“ sagði Net- anyahu í viðtali í gær og bætti við að Sharon væri að íhuga málið. Hann hafði reyndar áður geflð það Samsæri um aö ræna kryddpíunni Victoríu Beckham Breska lögreglan handtók um helg- ina níu manns, sjö karlmenn og tvær konur, eftir að upp komst um sam- særi glæpagengis um að ræna Victor- íu Beckham, eiginkonu knattspyrnu- kappans Davids Beckhams, leik- manns Manchester United og enska landsliðsins, og krefjast fimm millj- óna punda eða um sjö hundruð millj- óna íslenskra króna í lausnargjald. Hin grunuðu voru handtekin í aðskildum aðgerðum sérsveita lög- reglunnar á laugardag og snemma sunnudags eftir að vísbendingar bár- ust frá breska fréttablaðinu News of the World en að minnsta kosti fimm þeirra munu af austur-evrópskum uppruna, frá Rúmeníu eða Albaníu. Að sögn fjölmiðla mun það hafa verið ætlun hópsins að nota svæfinga- gas við ránið á Victoríu og hafa hana i haldi í húsi í Brixton. Sjálf segist Victoría vera mjög mið- ur sín vegna atburðanna og það verði fyrsta verk fjölskyldunnar að tryggja öryggi hennar með öllum ráðum. Binyamln Netanyahu Netanyahu, fyrrum forsætisráðherra Israels, segist tilbúinn að taka sæti ut- anríkisráðherra í nýrri harðlínustjórn verði Sharon við kröfu hans um að flýta þingkosningum í landinu. til kynna að hann hygðist keppa við Sharon um leiðtogasætið í Likud- bandalaginu fyrir næstu kosningar, en hann þykir hafa færst nokkuð til hægri og harðnað í afstöðu sinni til Palestínumanna síðan hann tapaði forsætisráðherrastólnum árið 1999. Sharon fundaði einnig með leiðtog- um ýmissa harðlínu- og trúarlegra öfgaflokka á þinginu i gær og virðist sem honum sé að takast ætlunarverk- ið um myndun nýrrar harðlínustjórn- ar, eftir að ráðherrar Verkamanna- flokksins sögðu skilið við fyrri stjórn hans í síðustu viku vegna andstöðu við aukna styrki til landtökubyggða á heimastjórnarsvæðum Palestínu- manna. Útganga þeirra varð til þess að sfjórnin missti meirihutann í þing- inu og hafði þar með aðeins tryggan stuðning 55 þingmanna af 120. Börnin borin til grafar Útför 29 manns sem fórust í jarðskjálftanum í ítalska bænum San Giuliano di Puglia í síöustu viku fór fram í gær. Meðal hinna látnu voru 26 skólabörn og einn kennari sem grófust undir rústum barnaskólans i bænum og fór athöfnin fram i stóru tjaldi við leikfimisal skólans þar sem bæjarkirkjan hafði orðið fyrir miklum skemmdum. ítölsk stjórnvöld hafa fyrirskipað opinbera rannsókn á því afhverju skólinn var eina byggingin sem hrundi i skjálftanum. 'Vmdub viwm'iiidb KAPLAHRAUNI 14 HAFNARFIRÐI - SÍMI: 555-1540 -------- r 17, 1UB HeyhJavOí sfmj: 533 1334 Fax: 5EB 0433 Mælinnamenn hjá okkur fáið þið.. * EH HEKLA Gott á Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • bilathing.is www.bilathing.is • bilathing@hekla.is BÍLAÞINGHEKLU Númer eitt í notuðum bílum!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.