Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Síða 10
10
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002
Útlönd
Sádí-Arabar neita
Bandaríkjamönnum
um árásaraðstöðu
Saud al-Faisal, utanríkisráðherra
Sádí-Arabíu, sagði í gær að ekki kæmi
til greina að leyfa Bandaríkjamönnum
árásir á írak frá stöðvum þeirra í
landinu, með eða án samþykkis Sam-
einuðu þjóðanna.
Þessi breytta afstaða stjórnvalda
kemur mjög á óvart þar sem utanrík-
isráðherrann hafði nýlega sagt að
árásir frá Sádí-Arabíu yrðu leyfðar ef
Öryggisráð SÞ samþykkti þær. „Við
munum sæta niðurstöðu Öryggisráðs
SÞ og vinna með því en að leyfa að-
gerðir frá Sádí-Arabíu er allt annað
mál. Við munum aldrei leyfa það,“
sagði al-Faisal í viðtali við CNN í gær.
Þetta er köld gusa framan í banda-
rísk stjómvöld og skýrustu skilaboðin
hingað til um versnandi samskipti
þjóðanna en Sádí-Arabar hafa lengi
verið helstu bandamenn Bandaríkja-
manna á svæðinu.
Átta Norðmenn
fórust í elds-
voðum í vikunni
Átta manns, þar af þrjú börn,
fórust í eldsvoðum í Noregi í síð-
ustu viku. Fyrsta fórnarlambið varð
eldinum að bráð aðfaranótt þriðju-
dags er þrítugur maður brann inni í
íbúð sinni í Ósló. Seinna sama dag
lést sjötíu og fjögurra ára gamall
maður í Aust Torpa er eldur kom
upp í húsi hans. Þá lést þrjátíu og
níu ára maður og ellefu ára dóttir
hans í eldsvoða í Levanger aðfara-
nótt miðvikudags. Aðfaranótt
föstudags fórst svo einstæð móðir
ásamt tveimur bömum sínum, ell-
efu og fímmtán ára gömlum, er hús
þeirra brann til grunna í LO-
lehammer. Á fostudagsmorgim lést
síðan fullorðinn maður er eldur
kom upp í gistihúsi 1 Grimstad.
Hvergi í Evrópu eru eldsvoðar al-
gengari en í Noregi. Dagléga verða
nær fimm hús eldi að bráö í land-
inu. í fyrra fórust 65 Norðmenn í
eldsvoðum og það sem af er árinu
hafa 46 týnt lífi, þar af fjögur böm.
Langflestir eldsvoðar verða í des-
ember. í fyrra urðu 227 eldsvoðar í
jólamánuðinum og 40% þeirra urðu
á dögunum frá Þorláksmessu til
áramóta. -GÞÖ
Rússnesk herþyrla skotin niður í Tsjétsjéníu:
Hertar aðgerðir gegn
uppreisnarmönnum
Sergei Ivanov, vamarmálaráðherra
Rússlands, tilkynnti í gær að hertar að-
gerðir væru hafnar gegn liðssveitum
uppreisnarmanna í Tsjétsjéníu í kjöl-
far aukinna hryðjuverka og vísbend-
inga um áframhaldandi árásir innan
sem utan landsins.
Ivanov sagði þetta í viðtali við rúss-
neska fréttastofu í gær en á sama tíma
var rússnesk MI-8 herþyrla skotin nið-
ur innan landamæra Tsjétsjéniu með
þeim afleiðingum að níu rússneskir
hermenn fórust.
Að sögn talsmanna rússneska hers-
ins varð þyrlan fyrir sprengjuflaug
uppreisnarmanna sem skotið var frá
húsi í útjaðri Grozny, höfuðborgar
Tsjétsjéníu, og er þetta í annað skiptið
á viku sem rússnesk herþyrla er skot-
in niður á svæðinu. Með fyrri þyrl-
unni, sem skotin var niður á þriðju-
daginn, fórust fjórir hermenn og var
það fimmta þyrlan sem uppreisnar-
menn skjóta niður á jafnmörgum mán-
uðum.
Sergei Ivanov
Sergei Ivanov, varnarmálaráöherra
Rússlands, tilkynnti í gær hertar
aögeröir gegn uppreisnarmönnum í
Tsjétsjéníu.
Ivanov sagði í gær að öllum fyrri
áformum um að draga úr hemaðarum-
svifum innan Tsjétsjéníu yrði nú
frestað um óákveðinn tíma en á fóstu-
dag hafði hann sagt í viðtali að gísla-
takan í leikhúsinu í Möskvu, þar sem
119 gíslar létu lífið auk um það bil 50
uppreisnarmanna, hefði engin áhrif á
fyrirhugaða fækkun í rússneska her-
liðinu í Tsjétsjéníu. Þar eru nú um 80
þúsund hermenn undir vopnum og
mikil spenna en allt í góðu jafnvægi,
að sögn Ivanovs.
„Við höfum fengið ótal vísbendingar
síðustu daga um að uppreisnarmenn
hafi skipulagt nýjar hryðjuverkaárásir
og ekki aðeins innan Tsjétsjéníu held-
ur víðar,“ sagði Ivanov og bætti við að
lokað yrði á allar friðarviðræður með-
an viðvarandi ástand ríkti.
Rússneski herinn hóf aðgerðir víða í
Tsjétsjéniu strax í gær og samkvæmt
heimildum höfðu tveir liðsmenn upp-
reisnarmanna fallið þegar árásinni á
þyrluna var svarað.
REUTERSMYND
Kosningasigri fagnaö í Tyrklandi
Recep Tayyip Erdogan, leiötogi Réttlætis- og þróunarflokksins, er ótvíræöur sigurvegari tyrknesku þingkosninganna
sem fram fóru í gær en þegar helmingur atkvæöa haföi veriö talinn stefndi í aö flokkur hans næöi hreinum meirihluta
á þingi. Vinstri lýöræðisflokkur Bulents Ecevits forsætisráöherra haföi aöeins hlotiö um 1% atkvæöa.
Eldgos í Ekvador
Eldgos hófst í gær
í fjallinu Reventa-
dor í Ekvador með
þeim afleiðingum að
hvlt aska féll yfír út-
hverfi höfuðborgar-
innar Quito. Fjallið,
sem er um 3500
metra hátt, er á
Amason-svæðinu í um 100 kílómetra
fjarlægð frá höfuðborginni og gaus
síðast árið 1976
194 bíla árekstur
Alls 194 fólks- og vöruflutningabílar
lentu í gær í árekstri á hraðbrautinni
suður af Los Angeles í Kaliforníu með
þeim afleiðingum að meira en fjörutiu
manns slösuðust, þar af fimm lífs-
hættulega.
Ástæða risaárekstursins var mikil
og þykk þoka sem oft verður á þessu
svæði. Fyrstu árekstrarnir urðu árla
morguns en jafht og þétt bættist við
þar sem aðkomandi bílar lentu á þeim
kyrrstæðu.
Sjö í gíslingu í Kambódíu
Að minnsta kosti fiórir menn, vopn-
aðir rifflum og dulbúnir sem sjúlking-
ar, réðust um helgina inn í sjúkrahús
í Bontey Meanchey héraði í norð-vest-
urhluta Kambodíu og tóku sjö manns,
sjúklinga og lækna, í gislingu. Lög-
reglan innkringdi bygginguna og kom
til skotbardaga við hyssumennina þar
sem að minnsta kosti einn lögreglu-
maður féll. Umsátrið stendur enn, en
ekki er talið að það sé í tengslum við
ráðstefnu Sambands Suð-Austur-Asíu-
ríkja, ASEAN, sem nú fer fram í höf-
uðborginni Phnom Penh, en þar er
hryðjuverkastarfsemi í Asíu helsta
umræðuefnið.
Á atkvæöaveiöum
Þeir George W.
Bush Bandaríkjafor-
seti og Bill Clinton,
fyrrverandi forseti,
hafa verið önnum
kafiiir við atkvæða-
smölun fyrir bland-
aðar þing- og fylkis-
kosningar sem fram
fara í Bandaríkjun-
um á morgun. Báðir voru þeir í Flór-
ida, því mikilvægka ríki, um helgina
en þar stefhir í hörkubaráttu milli
Jeb ríkisstjóra, litla bróður Bush og
Bill McBride, frambjóðenda
demókrata. Aðeins átta atkvæði
skildu þá að í síðustu skoðanakönn-
Voöaverk Pólverja
Samkvæmt nýbirtri skýrslu munu
íbúar þorpsins Jedwabne í norð-aust-
urhluta Póllands hafa líflátið allt að
1600 gyðinga og grafið þá í allt að 30
fiöldagröfum í nágrenni þorpsins árið
1941. Áður var talið að nasistar hefðu
framkvæmt voðaverknaðinn. í skýrsl-
unni segir að þetta sé ekki einstakt til-
felli og að svipaðir hlutir hafi gerst í
meira en 20 öðrum þorpum í nágrenn-
inu.
m
HEKLA
Gott á bilathing.is
Laugavegi 170-174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bi!athing@hekla.is
BÍLAÞINGÉEKLU
Númer eitt I notuðum bílum!