Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Qupperneq 17
 16 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002 41 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjórí: Hjalti Jónsson A&alritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðsto&arritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Skaftahlíb 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5749 Ritsfjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Daprar staðreyndir Hvergi innan OECD eru neysluskatt- ar hærri en á íslandi og í Danmörku. Aö meðaltali eru neysluskattar 5,6% af landsframleiðslu í tuttugu og átta ríkj- um OECD. Á íslandi er þetta hlutfall 9,7% eða 74% hærra en meðaltal OECD. Svo undrast menn hátt verðlag. Þrátt fyrir að virðisaukaskattur af matvælum - matarskatturinn - hafi ver- ið lækkaður í 14% árið 1994 er skatturinn sá fimmti hæsti í löndum OECD. Svo undrast menn að matvæli séu dýrari hér á landi en á meg- inlandi Evrópu. Skattakerfið á íslandi er óheilbrigt, óskynsamlegt og óréttlátt. Skipt- ir engu hvort litið er á neysluskatta eða beina skatta. Tekjuskatturinn er refsiskattur sem hvorki jafnar efnahagslega afkomu manna eða hvetur einstaklinga til efnahagslegra framkvæmda. Eignaskatturinn er ranglátur skattur sem leggst þungt á eldra fólk. Erfðaskatturinn er að- eins leið ríkisins til að skattleggja eignir enn einu sinni - út yfir gröf og dauða. Hvernig sem litið er á málin er skattkerfið úr sér gengið. Eitt mik- ilvægasta verkefni komandi missera er að henda gildandi kerfi og koma á gegnsærri skattheimtu sem hefur hófsemd að leiðarljósi og inn- byggðan hvata til efnahagslegra verka, hvetur einstaklinga og fyrir- tæki en skapar hinu opinbera jafnffamt tekjur til að standa undir þeim verkefnum sem því hefur og verður falið í framtíðinni. Skynsamlegar tillögur Hægt en örugglega holar dropinn steininn. Aukinn skilningur meöal almennings á því að nauðsynlegt sé að gera róttækar breytingar á heil- brigðiskerfinu vekur upp vonir um að augu stjómmálamanna fyrir vandanum opnist og augljósar leiðir úr honum verði famar. Margoft hefur verið bent á það í leiðurum og fréttaskýringum hér í DV að íslenskt heilbrigðiskerfi sé á viUigötum - hafi ratað í ógöngur sem verði að bijótast út úr. Vandi kerfisins er ekki fjárskortur og því er lausnin ekki fólgin í auknum fjármunum eins og er háttur sumra stjórn- málamanna sem telja hægt að leysa öll vandamál með auknu fjáraustri. Vandinn er kerfislægur. í þjóðfélagsádeilu sinni hefur DV lagt áherslu á að nauðsynlegt sé að gera skýran greinarmun á því hver greiði fyrir heilbrigðisþjónustuna og hver eða hverjir veiti hana. Markmiðið er skýrt: Tryggja á öllum lands- mönnum, óháð efnahag eða búsetu, góða og ömgga heilbrigðisþjónustu. Leiðin að markmiðinu liggur hins vegar ekki í gegnum samkeppnislaust ríkisrekið heilbrigðiskerfi sem smátt og smátt hefur rotnað að innan. Forystumenn Alþýðusambands íslands hafa að nokkru tekið af skar- ið í þessum efnum. í ályktun ársþings ASÍ um velferðarmál kemur fram rödd skynseminnar: „Til þess að tryggja nýsköpim og endurnýjun vel- ferðarkerfisins og aukið kostnaðaraðhald þarf að skapa betri forsendur og möguleika á að þróa þjónustutifboð frá einkaaðilum. Þau uppfýlli það grundvallarskilyrði að tryggja jafhan aðgang, óháð efnahag og búsetu, en leiði ekki til aukinnar félagslegrar misskiptingar... Nýta má kosti tilboða frá einkaaðilum við framkvæmd þjónustu til þess að draga úr kostnaði en ábyrgð á þjónustustigi og gæðum verði hjá opinberum aðilum." Aukin samkeppni Álit samkeppnisráðs um verðlagn- ingu mjólkurvöru er merkilegt innlegg í umræðuna um verðlag hér á landi. Ráð- ið kemst að þeirri niðurstöðu að verð- lagning verðlagsnefndar búvara á mjólk og mjólkurafurðum fari gegn markmið- um samkeppnislaga. Bent er á að virkri samkeppni stafi verulega hætta af sam- ráði afurðastöðva í mjólkuriðnaði - setji beinar hömlur á samkeppni. Samkeppnisráð beinir þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að hann beiti sér fyrir því að heildsöluverðlagning á búvöru verði gefin frjáls svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en um mitt ár 2004. Landbúnaðarráðherra á að grípa álit samkeppnisráðs á lofti og tryggja aukna samkeppni í verðlagningu búvara á komandi mánuðum. Neytendur og dugmiklir bændur munu uppskera vel. Óli Björn Kárason DV Skoðun Nýrrar utanríkisstefnu er þörf Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingiskona Kjaliari Utanríkisstefna ríkisstjórn- ar Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks er skilgetið afkvæmi kalda stríðsins og sem slík úrelt tæki á viðfangsefni íslands á al- þjóðlegum vettvangi. Fall Berlínarmúrsins og hrun Sov- étríkjanna fyrir rúmum áratug gjör- breytti stöðu íslands í Evrópu með tilliti til öryggis- og varnarmála. Hnattvæðing á sviði upplýsinga- tækni og viðskipta hefur einnig bylt hugmyndum okkar um mannleg samskipti og fjarlægðir. í upplýs- ingasamfélaginu er og getur ísland verið nafli alheimsins. Það er í okk- ar höndum. Frá átakahefðinni... Eitt af þeim mikdvægu verkefnum sem vinna þarf á þessu sviði er út- tekt á öryggismálum landsins og starfsemi alþjóðaflugvallarins í Keflavík í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa í heimsmálunum. í kjölfar hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin 11. september 2001 hafa margir stjórnmálamenn lýst því yfir að heimurinn hafi breyst við þá skelfi- legu atburöi. Minna hefur farið fyrir umræðu um það hvað nákvæmlega hafi breyst og hvernig íslendingar eigi að aðlaga sig nýjum aðstæðum. Ég tel mikla þörf fyrir að úttekt fari fram á öryggismálum landsins og er einnig þeirrar skoðunar að það sé sameiginlegt verkefni stjórnar og stjómarandstöðu að vinna það verk. Með slíkri samvinnu væri stigið ,Eitt af þeim mikilvægu verkefnum sem vinna þarf á þessu sviði er úttekt á örygg- ismálum landsins og starfsemi alþjóðaflugvallarins í Keflavík í Ijósi þeirra breyt- inga sem orðið hafa í heimsmálunum. “ sögulegt skref í átt frá átakahefð ís- lenskra stjómmála á sviði utanríkis- mála. ... til heildarsýnar Við þurfum aö skdgreina ógnir og tækifæri íslands í hnattvæddum heimi. Hverjar eru raunverulegar hemaðarlegar ógnir við ísland? Get- ur verið að umhverfisslys í Norður- Atlantshafi sé mesta ógnunin við ör- yggi lands og þjóðar? Þetta þarf að skoða ofan í kjölinn. Það er ekki nóg að einblína á öryggi í hinum hefð- bundna hemaðarlega skdningi. Okk- ur ber skylda td þess að skoða þessi mál I víðu samhengi. Allt of mikið ber á þvi aö utanrik- isstefna stjómvalda sé handahófs- kennd og stefnumótun vanti. Mikið hefur verið gert úr þátttöku Islend- inga í friðargæslu á erlendum vett- vangi. Auðvitað er mikdvægt að við leggjum friðargæslu og neyðaraðstoð lið en slík liðveisla þarf að fada und- ir heddarmarkmið utanríkisstefn- unnar. Hið sama má segja um verk- efni nýrra sendiráða í fjarlægum heimsálfum. Hver eiga þau helst að vera? Eða er það viðunandi staða að það sé undir framtakssemi sendi- herranna komið hvernig helstu verk- efni utanríkisþjónustunnar mótast? ísland sækist eftir sæti í Öryggis- ráði Sameinuðu þjóðanna við lok þessa áratugar. Vonandi tekst okkur að vinna fylgi og stuðning annarra ríkja td þess að af því megi verða. En veganesti islensks fudtrúa inn í Ör- yggisráðið verður að vera skýrt mót- uð utanríkisstefna sem ekki byggist á valdastrúktúr kalda stríðsins, held- ur á þeim viðfangsefnum sem mest ríður á að fást við 1 upphafi nýrrar aldar. Samvinna norðurs og suðurs Góð samvinna á midi ríkja á norð- ur- og suðurhveli jarðar er lykdat- riði ef takast á að finna lausnir á brýnustu vandamálum samtímans; kúgun kvenna, fátækt, sjúkdómum og misskiptingu tekna og auðlinda. Afnám fátæktar er án nokkurs efa mikdvægasta verkefnið á sviði al- þjóðastjórnmálanna. Það verkefni verður ekki leyst nema með öflugri þróunarsamvinnu sem setur réttindi kvenna og umhverfisvernd i for- grunn. Verkefnið er bæði erfitt og ögrandi en það er um leið lífsnauð- synlegt og hedlandi. Utanríkisstefna Islands á að hafa það að meginmarkmiði að stuðla að virðingu fyrir mannréttindum, raun- verulegu kvenfrelsi, og minnka mis- skiptingu auðs og valds í heiminum. Verðugra verkefni er vandfundið í stjórnmálum samtimans. Það sem fólkið vill? Siguröur A. Magnússon rithöfundur Fjölmiðlaheimurinn hefur tekiö umtalsverðum breytingum undanfarinn áratug, orðið einhæfari, þumbaldalegri og sjálf- hverfari, og það sem ískyggilegt hlýtur að telj- ast: æ algengara verður að móðurmálinu sé mis- þyrmt með vitlausum beygingum, hortittum og fáránlegu samkrulli gam- alla orðtaka. í því efni er vissulega þörf á róttækri bragarbót. Er kannski orðið tímabært að skylda fjölmiðlunga til að ganga undir íslenskupróf áðuren þeir eru ráðnir til starfa? Fátítt er í siðmenntuðum vest- rænum ríkjum að flokksbundið fólk sé fastráðið hjá fjölmiðlum, hvort heldur er td fréttamennsku eða þáttageröar. Hérlendis er það átölu- laust tiðkaö, með þeim afleiðingum meðal margs annars að ýmsir fjöl- miðlungar hafa notað fjölmiðla sem stökkbretti td pólitísks frama. Hitt er samt snöggtum ísjárverðara að flokkspólitíska slagsíðan gerir þjóð- málaumfjöllun fjölmiðla ótrúverð- uga og yfirgengdega leiðigjama. í sjónvarpi virðist vitræn um- ræða um menningarmál vera bann- helg. Þar eru kvikmyndir og popp, mestmegnis af erlendum toga, nán- 207 »11 230 ast einu þættir menningarlífsins sem fá einhverja umfjödun. Tvö dag- blaðanna sinna tónlist, myndlist og leiklist innanum gróusögur af stjórnmálamönnum og erlendum ‘stjörnum’, en gloppótt bók- menntaumræðan er að mestu bund- in við aðventuna. Því virðist semsé slegið fóstu, að fólk holt og bolt hafi ekki umtals- verðan áhuga á öðru en poppi og slúðursögum; glens, grín og kjaft- háttur séu krydd tdverunnar! Ábyrgð fjölmiðla Skýringuna á þessum öfugugga- hætti virðist mega rekja td þess, að verðmætamat fjölmiðla byggist í vaxandi mæli á því hver sé fadegast- ur, smartastur, sterkastur, sprett- harðastur, ósvifnastur í viðskiptum eða kjaftagleiðastur um ómerkdeg dægurmál. Og ef einhver er á öðru máli, má umsvifalaust afgreiða hann sem forpokaðan, þröngsýnan, kúltúrsnobbaðan, gamaldags, mið- aldra (skelfdegt skammaryrði í sam- félagi sem dýrkar æskuna og hatast við krankleik og öldrun), og gott ef sá hinn sami er ekki með út- litskomplexa eða fituvandamál! Ábyrgð fjölmiðla á skoðanamótun í landinu er óvefengjanleg og veit ekki bara að dægurmálum. Menn- ingarstarfsemi er svo gddur þáttur í þjóðlifinu, að skammarlegt hlýtur að teljast hversu götótt umfjödunin um þau efni er. Á sama tíma er dagsdaglega fjadað um íþróttir jafnt „Hversvegna er fólk í öll- um landshornum að setja upp leiksýningar, syngja í kórum, reka tónlistar- skóla, fá skáld og aðra listamenn til að kynna verk sín og halda nám- skeið? Fráleitt er það ábatavonin sem knýr þetta ágæta fólk til fram- taksins!“ í fréttum sem sérstökum þáttum ljósvakamiðlanna (sem oftlega ryðja burt fostum dagskrárliðum!), og dag- blöðin birta daglega hedu síðumar um sama efni að viðbættum vikuleg- um kálfum uppá 12-16 síður. Þó menningarmál fengju ekki nema þriöjung þess ljósvakatíma og spaltarýmis sem spanderað er á íþróttir, mætti vel við una, en þá þyrfti vísast að ráða að ödum fjöl- miðlum fólk sem hefði fleira midi eymanna en þurrar talnaromsur. Ég er gamall íþróttamaður og hef í sjáifu sér ekki annað við íþrótta- þættina að athuga en það, að þeir eru óendanlega andlausir og stagl- samir og hrikalega rúmfrekir. „Þaö sem fólkiö vill“ „Þetta er það sem fólkið vid“, segja sjálfumglaðir fjölmiðlungar. Hvaðan kemur þeim sú vitneskja? Hafa þeir kynnt sér hvort sú sé raunin? Setjum svo að það mat sé rétt, að áhugi á líkamsmennt sé al- mennari en áhuginn á andlegu spektinni, hver er þá ábyrgð fjöl- miðla? Ætla þeir gagnrýnislaust að ganga td liðs við þá sem æpa: Fólk- ið vdl? Hvað vill fólk og hvers- vegna? Fæðist það með einhverja td- tekna skoðun á hvað það vid? Ætli þaö sem „fólkið vid“ sé ekki birting- armynd þess sem það hefur átt kost á að kynnast? Er ekki hætt við að það, sem fær mest rúm í fjölmiðlum, ráði stefnunni og smekknum? Eitt af meginhlutverkum fjöl- miðla er að koma td móts við neyt- endur og sinna því sem landsmenn hafa helst hug á að fá vitneskju eða upplýsingar um. Fásinna er að halda því fram að ekki sé áhugi á bókmenntum og öðrum listum í landinu. Um það vitna beinharðar tölur um bókakaup, bókaútlán, að- sókn að leiksýningum, danssýning- um, óperum, tónleikum og myndlist- arsýningum. Sömuleiðis má benda á líflega menningarstarfsemi um land adt. Hversvegna er fólk í ödum landshornum að setja upp leiksýn- ingar, syngja í kórum, reka tónlist- arskóla, fá skáld og aðra listamenn td að kynna verk sín og halda nám- skeið? Fráleitt er það ábatavonin sem knýr þetta ágæta fólk td fram- taksins! Hvaða þörf er verið að fud- nægja? Hversvegna sýna fjölmiðlar þessu stórmerka fyrirbæri svo dræman áhuga? Sandkom sandkorn@dv.is Davíð bakvið tjöldin Sandkomi hefur borist merkdegur bragur frá Þórami Eldjám sem spyr hvort ekki sé fólgin í því dálítd lítdsvirð- ing við þá fjölmörgu sem búið hafa við raunverulega ógn- arstjóm víða um heim að halda þvi fram að á íslandi 2002 sé fólk meira og minna heltekið af ótta og hvort skáldum sé sæmandi að taka þátt í slíkri gjaldfedingu orðanna. Þór- arinn hefur af þessu tdefni uppfært hið kunna ljóð sitt um Guðjón bakvið tjöldin. Jón Ólafs skuldar Búnaöar- í banka aö borga af lánum gengur ekki vel. Fráleitt þarf hann fjárkröfum aö jánka íframtalinu lepur dauöa úr skel. Hvers vegna œtti hann aö greióa gjöldin? Gjaldkerinn er Davíó bakviö tjöldin. Ekki síöur var þaö leikur Ijótur aö láta veslings Þorfinn taka frí í bókhaldiö þó skorti nokkrar nótur Ummæli Treyst á mistök „Þetta vinarþel [frændþjóða okkar á Norðurlöndun- um] kom einmitt ágætlega í ljós á dögunum þegar Svi- þjóð studdi aðdd íslands að Alþjóðahvalveiðiráðinu. Ýmsir undruðust þennan óvænta stuðning, en svo kom auðvitað í ljós að hann var tómur misskdningur og mistök sem Svíþjóð vid helst leiðrétta. Það verður at- hyglisvert að sjá - ef aðddarsinnum tekst að koma ís- landi inn í Evrópusambandiö - hvemig landinu mun reiða af innan Bandaríkja Evrópu með því að treysta á mistök góðra frænda okkar Svía.“ Haraldur Johannessen í Viöhorfsgréin í Morgunblaðinu Bush og ESB „Formaður Samfylkingarinnar lét ekki stela frá sér glæpnum og gaf óðara þá yfirlýsingu í íslenskum fjöl- miðlum að ríkisstjóm Framsóknardokks og Samfylk- ingar gæti verið „innan sedingar". Slík stjórn myndi „hraða Evrópuþróuninni" hvað sem það nú annars þýöir á mannamáli. ... Össur Skarphéðinsson sýndi hví nenntu Villi og Tommi aö hamra á því? Sko, þaö eru ekki þeir sem hafa völdin. Það er sjálfur Davíö bakviö tjöldin. Bónusfeðgar feröast nú í rútu í fátœkt sinni geta hvergi eirt menn sem áöur áttu þjóöarskútu eins og lesa mátti í Séö og heyrt. Snerust gegn þeim í - og afturhöldin og alstaöar var Davíð bakviö tjöldin. Er kominn í hann ennþá meiri þótti eftir aö hann komfrá Víetnam? Lamar Steingrím, Sollu og Össur ótti Ögmund, Hallgrím, Gunnar Smára og SAM. Ekkert þeirra þorir út á kvöldin þar er líka Davíö bakviö tjöldin. Þórarinn Eldjárn flokksfélögum sínum þarna hvemig hann hefur hugsað sér að nota niðurstöður úr póstkosningu þriöjungs Samfylkingarinnar „sparlega". Enda má ekki gleyma að um 25% félagsmanna greiddu stefnu flokksforyst- unnar atkvæði sem er svipaö hlutfad og það sem réð kjöri núverandi Bandaríkjaforseta og íslenskir jafnað- armenn gerðu náttúrulega ekkert svo lítið úr kosningu Bush í hittifyrra.“ Steinþór Heiöarsson á Múrnum.is Ofbeldi handrukkara „Það er ekkert leyndarmál að við heyrum mikið af svona sögusögnum. Við teljum alveg fulla ástæðu td að taka þær alvarlega og við höfum okkar ástæöur fyrir því að halda að þetta sé aö gerast hér eins og annars staðar á landinu.“ Guömundur Baldursson fíkniefnalögreglumaöur hjá Lögregl- unni í Keflavík, um sögur af hrottafengnu ofbeldi handrukk- ara í viötali viö Víkurfréttir Af sementi og samkeppni Árni Steinar Jóhannsson og Jón Bjarnason þingmenn Vinstri hreyfingarinnar - græns framboös Kjallari W Að undanförnu hefur tölu- vert verið fjallað um tvær þingsályktunartillögur okkar sem varða Sem- entsverksmiðjuna hf. á Akranesi á síðum DV. 1 blaðinu fimmtudaginn 24. októ- ber var því slegið upp í stríðsfrétta- stil að önnur tidaga okkar miðaði að stórfeddri spidiefnaeyðingu í mið- bæ Akraness, þar sem tugum þús- unda tonna yrði brennt í verksmiðj- unni. Föstudaginn 25. október skrif- aði svo Bjarni Ó. Haddórsson, fram- kvæmdastjóri Álborg Portland ís- land hf., um óvönduð vinnubrögð okkar í tidögudutningnum á Al- þingi. Vegna þess hvemig höfð hafa verið endaskipti á hlutunum í frá- sögnum af þessum tidögum okkar sjáum við okkur knúna td að stinga niður penna og koma nokkrum leið- réttingum á framfæri. Miklir möguleikar Báðar tidögurnar eru þess eðlis að beðið er um stjórnvaldsúttekt á ákveðnum hugmyndum sem annars vegar snerta samkeppnisstöðu verk- smiðjunnar og hins vegar mögulegt hlutverk hennar við að farga orku- rikum úrgangsefnum. í síðarnefnda tilfedinu erum við ekki að leggja annað td en vandaða athugun á þeim möguleikum sem séu í stöð- unni. Sementsverksmiðjan hf. notar að mestu leyti kol sem orkugjafa en notar nú að auki um 5000 tonn af úr- gangsolíu sem td fedur í landinu. Það er okkur íslendingum mikds virði að geta nýtt þann úrgang sem td fedur í landinu td áframhaldandi vinnslu. Miklir möguleikar eru fyr- ir verksmiðjuna að auka þátttöku sína í þessari förgun án þess að frá henni verði aukin mengun og út á það gengur tidöguflutningurinn. Við vitum að það er mögidegt að farga ýmsum brennanlegum úr- gangi í verksmiðjunni í stað þess að grafa hann eða flytja td útlanda. Margs konar úrgangur gæti komið að einhverju leyti í staðinn fyrir kol sem flutt eru til landsins. Og það sem skiptir ekki síst máli er að sú lausn myndi leiða td hreinni bruna og minni mengunar en þegar notast er viö kolabrennslu. Þessu hafa fljótfærir skribentar snú- ið upp í tal um eiturefnaeyðingu sem er vitanlega adt annar hlutur - það vid einfaldlega þannig td að ým- iss konar orkuríkur úrgangur fedur undir spidiefni samkvæmt lögum af þeirri einföldu ástæðu að hann spid- ir umhverfinu sé honum ekki fargað á viðeigandi hátt. Er td of mikds mælst að við leggjum vinnu í að skoða þessa möguleika td hagsbóta fyrir landið adt? Við skdjum hins vegar gagnrýni Bjarna Ó. Halldórssonar, fram- kvæmdastjóra Álborg Portíands ís- Samkeppni á sementsmarkaði Á Alþlngi hefur veri& lög& fram tlllaga tll þlngs- ályktunar þ.e. þskj. 32 sem útbýtt var ð Alþingl 4.10. 2002. Flutnlngs- menn tillögunnar eru Jön Bjamason og Ámi Stein- ar Jöhannsson. MugsályktuiuirtUlagan er ívohljúðandi „Alþlngi ályktar að feia i&utðftr- ráðherra að láta gera öttekt t verft- myndim á umfluttu sementi og gripa til aðgurfta ef I Ijóí kemur aö um undirboö er aö raöa.“ Ómcövitaftlr Nngmotut? I greinargerð nu>ð tillðgunru er stiklað & stóru um sögu og tllurð Sementsverksmíöjunnar hf. sem er t eigu rtkmns. Fáum oröum er Örið um þaö að Samkeppnisstoftiun, þ.e. Samkeppnhráö og Afirýjunarncftid samkeppnismála swn staría á „Ekki hefur verid lagt í meiri vinnu viö heimildaöftun þótt hceg hafi verið heimatökin, t.d. að spyrja sjálfan hœstráðanda Sementsverksmiðjunnar sem er við- skipta- og iðnaðarráðherra, eða einn af stjámarmönn- um verksmiðjunnar sem jafnframt er alþingismaður gamb fréttagrcín. Nt‘ina kajmskí að þcir Jón og Ámi haíi aö einhverju leyti getaö nýtt sér þær upplýsingar sem þcir notuöu víö aö setþi saman na?stu þingsúlyktuiuuiillögu þ.c. þskj. VSi síhu ötbýtt var 4 Alþingi K.10. 'ðXXi, cn su tiliaga er svohljóð- andi: ..Alþingi ftlyktar aö feia iftnaíor- ráðhcrni aö láta gvra úttekt á fmm- Uðartdutverki Sementsverksmiöj- unnar hl ó Akmmsi við forgun spíUiefna setu til fxUla i landlnu ílsamt óðruro iðníifrjrörgangi". 1 grcinargerð mcö þtuKSíílyktun- artUlðguninni segir mji.: „Komtö heftir fram t viðUUum við forráðamaim verksmlöjunnar að htm getl ha’giega tekiö að sér fórgtm ítukins hluia splUiefna sem til falia hér á bindi". Hér hefur ekki stóöiö & þíng- mönmmtun að afla sér nákvæmra upplýsinga. en scm fyrr segir þá eru siflágmnar lagöar fruin 4. okt sl. ag a okt si. Stöar i greinargcrö segin „Veröi niðursUuVi úttcktarinnar jákvasð telja flutningsmenn mjóg mtkflvægt uð Scmcmsverksmiöjíi rikisins á Akranesi fái þoð hlutverk að vera þáttlakandi t spiltlefnaforg- un hmdsmanna og mcö þvl móti getl frmntiöaireksunrgrundvóllui’ vcrk- smíðjunnar styrksí wruicga.*' Fómarkostnaftur fóiksins Þnrna virðist undirrituöum som þlngmennirnir hafi t einni og sömu FonUKHÍ n*A wW I nau>ilw>n „FkIiiIA mér á óvart þótt mörgum sem td þekkja sé nóg boð- ið við svo dæma- lausar fullyrðing- ar. Finnst fólki lík- legt að við mynd- um standa að td- lögum sem leiddu af sér spjöd á um- hverfi og náttúru Islands? Vinstrihreyfing- in - grænt fram- boð hefur alltaf haft það á stefnu- skrá sinni að standa vörð um og efla þann iðnað sem fyrir er í land- inu og eftir því sem við best vitum hafa flestar þjóðir það á stefnuskrá sinni að vera sjálf- um sér nógar og lifa í sátt við nátt- úruna. Grein Bjarna Ó. Halldórssonar framkvœmdastjóra í DV sl. mánudag horfast í Greinarhöfundar skírskota til hennar. lands hf., mætavel. Hver gerir það ekki? Hann er að reyna að koma fyr- irtæki sínu fyrir á markaðnum hér og notar td þess þau viðskiptalegu meðul sem fyrir hendi eru. Við höf- um hins vegar aldrei kadað Bjama ómeðvitaðan forstjóra og því síður að hann beiti slælegum vinnubrögð- um. Það er engri umræðu td fram- dráttar að færa hana niður á slíkt plan og óskandi væri að Bjami gæti forðast það. Því miður gengur Bjami lengra í sömu átt og heldur því fram að fengi Sementsverksmiðjan á Akranesi aukið hlutverk í að brenna orkurík- an úrgang myndi það leiða af sér megnan óþef á Vesturlandi. Mál- flutningur af þessu tagi dæmir sig mestmegnis sjálfur og ekki kæmi í augu við þá staðreynd að við búum í neyslu- þjóðfélagi og verð- um að koma úrgangsefnum okkar fyrir á viðunandi hátt. Þegar viö blasa möguleikar á að gera adt í senn - að vemda umhverfi fólks og náttúru landsins, draga úr magni úrgangs sem þarf að grafa í jörð og efla innlendan iðnað, þá sjáum við ekki ástæðu td að láta tækifærið ónotað af tdlitssemi við erlenda samkeppni. Svo einfalt er það.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.