Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2002, Síða 32
Viðbótarlífeyríssparnaður
Allianz(jij)
I >s«—^
MÁNUDAGUR 4. NÓVEMBER 2002
Loforð er loforð
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Framkvæmdast j óri
íbúðalánasjóðs:
Greindi ráðherra
frá stöðu mála
Guðmundur
Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri
íbúðalánasjóðs,
átti í gær fund
með Páli Péturs-
syni félagsmála-
ráðherra og gerði
honum grein fyr-
ir þeirri stöðu
sem upp er kom-
in í tengslum við
umfangsmikinn fjárdrátt fasteigna-
sala, sem var mögulegur meðal ann-
ars vegna þess að íbúðalánasjóður
gætti ekki nægilega vel að sér við
afgreiðslu fasteignaverðbréfa.
Guðmundur segir ekkert nýtt
hafa komið fram á fundi þeirra
Páls, en hann hafi ekki haft tæki-
_ færi til að hitta ráðherrann per-
sónulega fyrr en í gær. Veriö sé að
fara yfir viðskipti viö fasteignasal-
an yfir lengra tímabil og skýr mynd
ætti að fást af málinu um miðja vik-
una.
Eins og fram hefur komið var
fasteignasalinn kærður til lögreglu
snemma á þessu ári. Guðmundur
segir að lögreglan hafi ekki gert
íbúðalánasjóði viðvart um kæruna.
„Ég býst við að við hefðum kafað
fyrr ofan í mál þessa fasteignasala
hefði það verið gert,“ segir Guð-
mundur en viðurkennir þó að sjóðn-
um hafi orðið á í messunni. Hann
segir innra eftirlit sjóðsins hafa
vakið athygli á grunsamlegum við-
skiptum hans í síðustu viku, honum
hafi verið gert viðvart um að mál
hans væri til skoðunar og sama dag
hafi hann gefið sig fram við lög-
reglu.
Stjórn íbúðalánasjóðs ákvað á
fóstudag að óska eftir því að Ríkis-
endurskoðun gerði úttekt á verklagi
hjá sjóðnum.
.Sm
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
^ V.
EINNEINN TVEIR
neyðarlInan
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
DV-MYND JAK
Atu hrátt slátur
Hjördís Ólafsdóttir frá ísafiröi stóð sig vel þegar hún kláraöi úr fullri skál afhrárri sláturhræru í keppni hörkutóla á
laugardaginn. Hjördís þrælaöi sláturhrærunni í sig þrátt fyrir aö hún væri meö æluna í kokinu viö hverja skeiö. Hjördís
lenti í ööru sæti keppninnar en sigurvegari varö Ingólfur Magnússon.
Einar Oddur tekur undir gagnrýni formanns LÍÚ á Hafró:
Gott að Kristján er
kominn til meðvitundar
„Mér finnst það fagnaðarefni að
Kristján Ragnarsson skuli loks vera
kominn til meðvitundar, vegna þess
að hann ásamt sjávarútvegsráðuneyt-
inu hafa varið þessi ríkisvisindi ára-
tugum saman,“ segir Einar Oddur
Kristjánsson um ummæli formanns
LÍO, sem krafðist þess á aðalfundi fyr-
ir helgi að veiðiheimildir í þorski,
ufsa, kola og fleiri tegundum yrðu
auknar. Þetta þóttu mörgum tíðindi
enda hafa samtök útvegsmanna stutt
ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar nær
skilyrðislaust fram til þessa.
„Mér finnst þetta stórkostleg tíð-
indi, því að mjög margir hafa fordæmt
sjónarmið mín og margra annarra,
um að þessi ráðgjöf og þessar rann-
sóknir geti ekki staðist. Það hefur oft
ekki verið minnst ferðina á Kristjáni
Ragnarssyni í þeim formælingum,"
segir Einar Oddur og segir lífsnauð-
synlegt að hverfa frá þessu „rugli".
Brýnt sé að veiöa úr fleiri árgöngum
þorskstofnsins en gert er og hverfa frá
því sem hann kallar „smáþorska-
fælni“. Raunar sé að sínu mati nær að
Einar Oddur Kristján
Kristjánsson. Ragnarsson.
leggja til 111 þúsund tonna aukningu
á þorski en 11 þúsund.
Einar K. Guðfínnsson segist einnig
vilja meiri aukningu en formaður LÍÚ
leggi til. „Ábyrgðarleysi, kann nú ein-
hver að segja og það eru menn vanir
að hrópa þegar farið er fram á auknar
aflaheimildir og umfram það sem Haf-
rannsóknarstofnun hefur lagt til.
Menn geta svo sem haft þau orð um
mig, sem oft hef gagnrýnt fiskveiði-
ráðgjöfma. En varla er hægt að segja
það um formann LÍÚ sem fýlgt hefur
ráðleggingum Hafró út í æsar og var-
ið sjónarmið fiskifræðinganna af
miklum móð,“ segir Einar.
Guðmundur Halldórsson, útgerðar-
maður í Bolungarvík, sagði við DV að
hann hefði aldrei staðið Kristján
Ragnarsson að fleipri. í fyrra hefði
Kristján viljað fá viðbót upp á 2.500
tonn í ufsa og það hefði gengið eftir.
„Kristjáni segir ekki svona hluti
nema það sé búið að semja um þá fyr-
irfram við Alþingi. Það er kosninga-
kvóti á leiðinni og hann á að skapa
frið um kvótakerfið fram yfir kosning-
ar. Það verður hins vegar enginn frið-
ur meðan enginn árangur næst í frið-
un fiskistofna," sagði Guðmundur.
Kristján Ragnarsson segir það
fjarri sanni að þegar hafi verið samið
um auknar veiðiheimildir. í fyrra hafi
verið færð rök fyrir aukningu heim-
ilda í ufsa og hann hafi verið aukinn.
„Hefðum við farið offari í fyrra
hefði átt að draga það frá nú en Haf-
rannsóknarstofnun jók við heimild-
irnar. Ég trúi ekki öðru en aukið
verði við heimildirnar. í svona kerfi
verða menn að hafa augun opin.“
-GG/ÓTG
Áfall fyrir nýtt laxeldisfyrirtæki:
Þúsundir laxaseiða drápust
Töluvert tjón varð hjá Salar
Icelandika laxeldi á Djúpavogi þegar
þúsundir laxaseiða drápust eftir að
þeim hafði verið sleppt í sjókví. Þetta
eru fyrstu laxaseiðin sem fyrirtækið
fær og voru 22 þúsund seiði sett í sjó-
kví við bryggjuna í Gleðivík á föstu-
dagskvöldið.
Gunnar Steinn Gunnarsson hjá SI
segir að ekki sé komið í ljós hve mik-
ið af seiðunum hafi drepist en það sé
talsvert. Verið er að kanna hver or-
sökin er. Helst er haldið að um sé að
kenna eitrun frá grút sem kominn var
í höfnina í gær. Von var á öðrum
seiðafarmi strax eftir helgina en hon-
um seinkar eitthvað meöan verið er
að rannsaka seiðadauðann. Sjókviin
verður dregin inn á Berufjörð þar sem
laxeldinu hefúr verið valinn staður.
Gunnar Steinn segir að þeir byrji
með að fá 45-50 þúsund seiði sem
keypt eru frá Stofnfiski. Þeir verða
með eina kví í vetur og með vorinu
verður bætt við fleiri því ætlunin er
að byggja þetta upp hægt og rólega og
láta dæmið ganga upp.
Eigendur Salar Icelandika, Gunnar
Steinn Gunnarsson og Norvaid Sandö,
fluttu með fjölskyldur sínar í haust tO
Djúpavogs frá Noregi. Gunnar, sem
búið hefur í Noregi i 18 ár og á norska
eiginkonu, er ánægður með að flytja
„heirn". Fjölskyldumar eru þaulvanar
öllu sem lýtur að fiskeldi og hafa
starfað við það í Noregi i mörg ár. -JI
Lord of the Rings:
Emilíana Torrini
flytur aðallagið
Söngkonan
Emilíana Torr-
ini mun flytja
aðallag „The
Two Towers"
sem er næsta
Lord of the
rings-kvikmynd.
Lagið heitir
„Gollum’s song.“
Salvatore Torr-
ini, faðir Emiliönu, staðfesti i
gærkvöldi að þetta væri rétt.
„Fran Walsh og Philippa Boyens,
handritshöfundar The Two
Towers, segja að hyrjunin á The
Two Towers ætti að verða mjög
flott, eitt flottasta upphafsatriði
sem sést hefði í kvikmynd. Ýmis-
legt annað kom fram líka,“ sagði
Salvatore við DV.
Ekki náðist í Emilíönu Torrini í
gærkvöldi en hún dvelur í
London. -GG
Emilíana Torrinl.
DV-MYND KÖ
Slökkviliö á vettvangi.
Vel gekk aö reykræsta.
Reykur í eldhúsinu
Eldur kom upp í eldhúsi íbúðar á 4.
hæð fjölbýlishúss við Dvergholt í
Hafnarfirði upp úr kvöldmat í gær.
Hafði pottur gleymst á eldavélarhellu
og varð af mikið reykjarkóf. Slökkvi-
lið var fljótt á vettvang, og náði að
slökkva og reykræsta húsið en reykur
hafði borist fram á stigagang. Enginn
slasaðist en tveir voru fluttir á slysa-
deild til skoðunar vegna gruns um
reyketirun. -hlh
Fáir sektaðir
Fáir voru sektaðir um helgina fyrir
að tala i farsima án þess að nota hand-
frjálsan búnað. Var einn og einn
sektaður í stöku lögregluumdæmi.
Lögreglan í Vestmannaeyjum var með
umferðarátak á laugardag og stöðvaði
66 bíla. Enginn ökumaður hlaut sekt
vegna aksturs eða annars og enginn
var grunaður um ölvunarakstur. Er
lögreglan í Eyjum himinlifandi með
árangurinn. -hlh