Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2002, Blaðsíða 28
32
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002
M
agasm
DV
Árinu eldri
Gunnar
Frióriksson,
fv. forstjóri,
er 89 ára 28.
nóvember.
Gunnar rak
lengi Vélasöl-
una í Ána-
naustum í
Reykjavík og flutti m.a. inn
mörg togskip. Ættir sínar rek-
ur Gunnar í Látur í Aðalvík á
Hornströndum. Hann var lengi
forseti SVFÍ.
Þráinn
Bertelsson
kvikmynda-
leikstjóri er
58 ára 30.
nóvember.
Verka Þráins
sér víða stað,
svo sem í rit-
störfum og útvarpsmennsku,
en best þekktur er hann fyrir
myndir sínar, svo sem Lífs-
myndirnar og Magnús, sem
vöktu ailar athygli.
Ari Trausti
Guömunds-
son jarðfræð-
ingur er 54
ára 3. desem-
ber. í gegnum
árin hefur Ari
skrifað marg-
ar bækur um
náttúruvísindi - og annast veð-
urfréttir á Stöð 2. Þá er hann
farinn að láta að sér kveða á
skáldaþingi með sagnaskrifum.
Ármann
Reynisson er
51 árs 2. des-
ember. Hann
rak fjár-
mögnunar-
fyrirtækið
Ávöxtun,
sem síðar
varð gjaldþrota. I seinni tíð
hefur hann fengist við ritstörf,
svo sem að setja saman vinjett-
ur, það er örsögur, og gaf ný-
lega út bók.
Arngrim-
ur Her-
mannsson er
49 ára 1. des-
ember. Hann
er meðal
stofnenda og
eigenda Æv-
intýraferða,
sem hafa verið í vexti. Fátt
heillar fólk meira en ferðir um
fjöll og firnindi og fá adrenalín-
ið til að streyma, eins og Arn-
grímur býður í ferðum sínum.
Einar K.
Guöfinnsson
þingmaður
er 47 ára 2.
desember.
Einar nam
stjórnmála-
fræði en
sneri síðan aftur á heimaslóð í
Bolungarvík og varð útgerðar-
stjóri hjá fjölskyldufyrirtæk-
inu. 1991 var hann kjörinn á
þing - og síðan hafa vaxið virð-
ing hans og völd.
Sif Kon-
ráðsdóttir
lögmaður er
42 ára þann
4. desember.
Hún þykir
einn af snjall-
ari lögmönn-
um landsins
og er sérlega kappsöm í mála-
fylgju sinni í þeim efnum er
snúa að barnavernd hvers kon-
ar.
Logi Berg-
mann Eiós-
son frétta-
maður er 36
ára 2. desem-
ber. Hann
hefur í
áraraðir ver-
ið eitt af
helstu andlitum fréttastofu
Sjónvarps. Þykir bæði góður
fréttamaður, en ekki síður hef-
ur hann notið hylli sakir kyn-
þokka - og hins tvíræða bross
síns.
Esther
Finnboga-
dóttir er 33
ára 30. nóv-
ember. Hún
er verðbréfa-
drottning hjá
Kaupþingi og
starfar hjá
greiningardeild fyrirtæksins.
Hún hefur oft verið fengin sem
álitsgjafi í ýmsum þeim málum
er snúast að völundarhúsi
viðskipalífsins - og af snjöllum
svörum hennar að dæma er
hún á heimavelli þar sem
verðbréf og viðskipti eru.
Mín markmiö í skólastarfi eru aö búa vel aö yngstu nemendunum og vanmeta ekkl getu þeirra, segir Edda Huld
Jónsdóttir. Hún stýrir Skóla Isaks Jónssonar sem átti 75 ára afmæli á sl. skólaári. Er þess minnst á ýmsa lund,
m.a. með samningi viö sjö af stærstu fyrirtækjum landsins um aö vera máttarstólpar skólans. Magasín-mynd GVA
Að falla í stafi fyrir feguriinni
- segir Edda Huld Sigurbardóttir, skólastjóri ísaksskóla
Nafn: Edda Huld Sigurðardóttir.
Aldur: 37 ára.
Maki: Jakob Kristinsson.
Börn: Flóki og Líneik.
Starf: Skólastjóri í Skóla ísaks Jónssonar.
Bifreið: Volvo 940 turbo.
Uppáhaldsmatur: Jólamaturinn hjá foreldrum
mínum er hrein snilld, þess utan er erfitt að velja eitt-
hvað eitt: humar, sushi, lambahryggur og margt
fleira.
Fallegasti maður sem þú hefur séö utan maka:
Sleppi að svara þessu.
Uppáhaldssöngvari: Randy Crawford.
Fallegasti staður á Islandi: Ég fór á Austfirði í
fyrsta skipti fyrir þremur árum og féll alveg í stafi yf-
ir fegurðinni. Mér þykir líka faliegt á Selatanga og í
Mývatnssveit og víðar. Þar sem mér líður vel, þykir
mér yfirleitt mjög fallegt, þó landslagið á hverjum
stað sé ekki endilega mjög stórbrotið.
Uppáhaldsstaður erlendis: Santa Rosa, Sangolqui
í Ecuador, kannski af því að það er hæpið að ég fari
þangað aftur.
Með hvaða liði heldur þú í íþróttum: Völsungum
V__________________________________________________
á Húsavík.
Hvað gerir ísaksskóla að góðum skóla: Gott
starfsfólk sem kann til verka og er vel samstillt. í skól-
anum eru tæplega 250 börn á aldrinum 5 til 8 ára.
Þetta er litið samfélag þar sem ailt starfsfólkið lætur
sig nemenduma varða.
Hver eru markmið þín í skólastarfi: Að búa vel
að yngstu nemendunum, mæta þeim þar sem þeir em
staddir og vanmeta ekki getu þeirra.
Uppáhaldsrithöfundar: Velma Wallis, Sigrid Und-
set og Böðvar Guðmundsson.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór: 10
og 11 ára gömul ætlaði ég að verða skæruliði í Suður-
Ameríku þegar ég yrði stór en á undan því tímabili
ætlaði ég að verða búðarkona og fá að pakka inn.
Hvert yrði þitt fyrsta verk yrðir þú skipuð ein-
ræðisherra á íslandi: Að endurskoða virkjanamál
landsins og bæta hag öryrkja og þeirra sem minna
mega sín.
Eitthvert sérstakt markmið fyrir veturinn: Að
ná betri samningi viö borgina og fara fyrr heim úr
vinnunni. -sbs
_________________________________________________)
Smáauglýsingar