Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.2002, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 2002
33
DV
Formaður Fræðsluráðs Reykja-
víkur í grunnskólana:
Vildi sjá skól-
ana með
augum barnsins
- segir Stefán Jón Hafstein
Formaöurinn á
meöal ungling-
anna. „Viö eig-
um gríöarlega
vel búna skóla
víöa um bæinn,
sumir nánast
lúxusskólar,
þótt aörir eigi
iengra í land.
En ég held aö
sveigjanlegir
kennsluhættir
séu mesta bylt-
ingin,“ segir
Stefán Jón Haf-
stein.
Magasín-mynd
GVA
„Ef ég á að vera heiðarlegur þá
hélt ég að það væri meiri órói og
læti í tímum - mas og þref við
krakkana, en þau voru greinilega í
góðu námsformi þennan dag sem ég
sat í tímum hjá þeim,“ segir Stefán
Jón Hafstein. Hann er formaður
Fræðsluráðs Reykjavikur og reyndi
í sl. viku á eigin skinni hvemig
starf í venjulegum grunnskóla er.
Hann heimsótti Engjaskóla í Grafar-
vogi en þar stunda um 440 krakkar
nám í l. til 10. bekk. „Ég vildi sjá
skólann með augum barnsins," seg-
ir Stefán Jón.
Sveigjanleiki er lykilorðið
Stefán Jón segist hafa næsta lítil
kynni haft af grunnskólunum frá
því hann var í þrísetnum barna-
skóla fyrir miUi þrjátíu og fjörutíu
árum síðan. „Helsta breytingin er
þessi góða aðstaða og sá sveigjan-
leiki sem er kominn í skólastarf.
Við eigum gríðarlega vel búna skóla
viða um bæinn, sumir nánast lúxus-
skólar, þótt aðrir eigi lengra i land.
En ég held að sveigjanlegir kennslu-
hættir séu mesta byltingin. Þessi
hugsun, að mæta nemandanum á
hans eigin stað, ekki mala bara yfir
einhverjum vísitölunemanda sem
hvergi er til og hefur aldrei verið. „
í heimsókn sinni leit Stefán inn í
kennslustundir hjá nemendum á öll-
um aldri.
„Svo fór ég á milli stofa þar sem
búið var að getuskipta heÚum ár-
gangi í stærðfræði. Kennaramir
telja árangurinn af því mjög góðan,
bæöi fyrir þau sem hraðast fara yfir
og svo eins hin sem þurfa meiri
tíma í dæmin. Lykilorðið í skóla nú-
tímans er sveigjanleiki og þarna
sannaðist sú kenning í verki,“ segir
hann.
Framfaraspor í fátæktinni
Aðspurður hvort eitthvað hafi
sérstaklega vakið athygli hans á
þann veg að aðgerða megi vænta í
framhaldinu nefhir Stefán sérstak-
lega skólamáltíðir.
„Þær eru nú komnar í marga
skóla og verða í þeim öllum innan
fárra missera. Þótt við niðurgreið-
um stofnkostnað og laun til aö halda
kostnaði þeirra í lágmarki er samt
sem áður hætta á að ekki geti öll
börn nýtt sér þennan góða kost og
mikla framfaraspor. Ástæðan er
einfold. Fátækt í samfélaginu er
staðreynd. Hér sjáum við enn og aft-
ur misskiptinguna í samfélaginu og
það í frekar hryggilegri mynd þegar
svona góð og ódýr þjónusta gagnast
ef til vUl þeim síst er mest þurfa á
að halda. Ég er mjög hugsi yflr þess-
ari stöðu mála, ekki bara vegna
þessarar heimsóknar heldur vegna
þess sem ég heyri víða að.“
-sbs
íslenska AEG
urmarhm
AEG þvottavél með
íslensku stjómborði
Lavamat 74639 ÍSLAND
íslenskt stjórnborð • Taumagn:5 kg •
Vinduhraði:1400/1200/900/700/400 snúningar á mín.« Ljós
sýnir hvar vélin er stödd í þvottakerfinu • "ÖKO-System"
sparar allt að 20% sápu • Þvottahæfni: A • Þeytivinduafköst:B
• Orkuflokkur: A • Mjög hljóðlát • Jafnar tau í tromlu fyrir
vindingu • Sérstakt vindingarkerfi fyrir viðkvæman þvott
og uir• 24 þvottakerfi ásamt sparnaðarkerfi • Ullarkerfi
•"Bio-kerfi"» Hægt er að stilla gangsetningu fram í tímann.
AEG barkalaus þurrkarí
með íslensku stjórnborði
Lavatherm 57520 ÍSLAND
íslenskt stjórnborð • Taumagn:5 kg • Tvö hitastig • Mjög
lágvær • Hægt er að stilla fram í tímann 3, 6 eða 9 klst. •
Klukkurofi:20 eða 40 mínútur • Níu mismunandi þurrkstig
• Rakaskynjari sýnir þurrkstigið í tauinu • Krumpuvörn Veltir
tromlu af og til í 30 mín. eftir þurrkun • Ljós í tromlu •
Minnir á að þurrkun sé lokið • Hurðarop 36 sm
Notendahandbók á íslensku
með þvottavél og þurrkara
Verð kr. 80.000.- Verð kr. 83.763.-
r__________
1LÉTTGREIÐSLUR1
1 ÍÞRJÁ MÁNUÐII
HJÁ ORMSSON j
rVlri
RdDION/
SORMSSQN
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT !
FURUVÖLLUM 5 • AKUREYRI • SÍMI 462 1300