Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Síða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Eigendur „brunahússins“ fengu greiddar háar bætur á sínum tíma:
Grunur um svik-
samlega háttsemi
- lögmaður leitar réttar núverandi eigenda
Grunur leikur á aö um sviksamlega
háttsemi hafi verið aö ræöa við endur-
hætur og sölu á húsi í Reykjavík sem
varð illa úti í eldi árið
1983. Þáverandi eigendur
hússins fengu allháa upp-
hæð í bætur frá Húsa-
tryggingum Reykjavíkur
eða ríflega 700 þúsund
krónur á þeim tíma. Sú
upphæð nemur um 4,5
milljónum króna að nú-
virði. í haust, þegar nýir
eigendur kjallaraíbúðar
hússins hugðust endur-
bæta hana, kom í ]jós að
burðarvirki ásamt fleiru
var stórskemmt eftir eld.
Að sögn eigendanna hafði
verið klastrað upp á það
og skemmdimar sáust alls
ekki. Nú blasir við að rífa
þurfi allt að útveggjum
innan úr íbúð ungu hjón-
anna. Miklar viðgerðir þarf einnig á
næstu hæð fyrir ofan og nemur áætlað-
ur kostnaður miiljónum króna. Ungu
hjónin eru að flytja úr íbúðinni þar sem
fram þurfa að fara gagngerar endurbæt-
ur á henni, svo og hæðinni fyrir ofan.
Það var í apríl sl. að þau Ólafúr
Haukur Atlason og Jenný Aradóttir
keyptu sína fyrstu íbúð, kjaliaraíbúð í
þríbýli í miðborginni. Þau fluttu inn 1.
júlí sl. I lofti íbúðarinnar
voru klæddir stokkar,
sem virtust vera utan
imi burðarbita. Ólafur
hugðist fjarlægja stokk-
ana og láta bitana njóta
sín. Þegar hann hóf verk-
ið blasti við honum ljót
sjón. Innan í stokkunum
voru kolbrunnir burðar-
bitar. Fagmenn voru
kaflaðir á staðinn og
sögðu þeir strax að allt
burðarvirki hússins
væri illa farið af bruna
en heföi verið klætt með
plötum og málað yfir.
Sem dæmi má nefna að
buröarbiti sem lá yfir
stofuloftiö í íbúðinni var
styrktur með stokk sem
gekk niður í gólfið. Bitinn sjálfur end-
aði inni á baði og var þar festur í gifs,
án nokkurrar undirstöðu. Þar sem
kroppað hafði verið í veggklæðningar
kom í ljós svart og sótugt timbur með
klæðningu og málað yfir.
Reynir Karlsson hrl. fer með málið
Frétt DV
Þaö var í síöasta mánuöi
sem gallarnir í umræddu
húsi í Reykjavík uppgötv-
uöust. DV ræddi þá viö
nýja eigendur sem voru
nýbúnir aö átta sig á
hvers kyns var.
Olafur og Jenny við kjallarann
Lögmaöur íbúa hússins mun fara yfir stööu málsins meö eigendum og
athuga hvaö sé skynsamlegast aö gera í framhaldinu.
fýrir íbúa hússins. Hann hefúr aflað
sér gagna í málinu. Samkvæmt lög-
regluskýrslum lék grunur á að kveikt
hefði verið í húsinu á sínum tíma. Eld-
ur kom tvisvar upp fjarri ölium raf-
magnslögnum. Ekkert tókst að sanna
um upptök eldsins. Ofangreindar bæt-
ur voru síðan greiddar út.
„Síðan virðist vera einhver brestur í
eftirfylgninni og eftirlitinu," sagði
Reynir. „Menn virðast komast upp með
það að kasta til höndum við endurbæt-
ur hússins. Það virðist enginn bera
ábyrgð á því að peningamir séu notað-
ir til endurbóta eins og ætlast er til.“
Lögmaðurinn mun fara yfir stöðu
málsins með eigendum hússins, hvað
skynsamlegast sé að gera í framhald-
inu, með tilliti til kostnaðar við aðgerð-
ir. Tveir eigendur af þremur hafi þegar
fengið afslátt af kaupverði, en sá þriðji
íhugar sitt mál. -JSS
Veruleg aukning í samþykktum húsbréfum íbúðalánasjóðs:
Þegar orðið metár
þótt mánuður sé eftir
- fer líklega yfir 35 milljarða fyrir árslok
Samþykkt skuldabréfaskipti í húsbréfakerfinu
1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002
Janúar 758.844.751 961.007.756 j 993.977.140 1.176.335.400 1.964.452.638 2.079.317.900 2.509.732.379
Febrúar 1.116.615.250 928.647.337 1.343.657.549 1.821.430.003 2.192.988.338 2.061.601.343 2.588.025.798
Mars 1.211.155.929 1.236.891.893 1.569.299.637 3.282.183.469 3.371.657.784 2.560.013.065 2.482.432.026
Apríl 1.437.605.556 1.181.549.535 1.772.840.808 2.849.001.101 2.475.124.865 1.652.662.826 2.721.317.568
Maí 1.155.044.339 1.390.258.899 1.530.941.666 2.580.125.003 2.768.354.283 3.053.358.109 3.074.265.265
Júní 1.293.488.695 1.423.147.632 1.774.654.005 3.376.566.356 2.045.975.360 2.632.802.406 2.919.576.419
Júli 1.425.655.215 1.639.665.387 j 1.867.740.867 3.010.799.512 1.972.429.201 2.695.885.486 3.231.308.965
Ágúst 1.120.652.294 1.371.965.228 j 1.699.294.352 2.652.014.068 2.003.382.224 2.744.222.513 2.996.220.856
September 1.340.275.578 1.717.775.918 2.017.916.773 2.503.627.287 2.244.563.879 2.778.084.746 3.539.695.174
Október 1.460.942.155 1.815.900.590 2.341.085.653 3.016.899.571 2.529.285.857 3.375.504.830 j 3.507.259.652
Nóvember 1.186.645.939 1.385.843.838 2.197.631.296 2.852.481.497 2.396.307.830 3.159.301.825 j 3.514.000.000*
Desember 928.255.849 1.422.412.459 j 2.024.425.092 2.430.856.481 2.217.883.748 2.477.762.463 0
Krónur: 14.435.181.550 16.475.066.472 21.133.464.838 31.552.319.748 28.182.406.007 31.270.517.512 33.083.834.102 *Samkvaemt hreyfmgarskýrslu 2. desember 2002. Samtals frá upphafi: 233.408.030.380 krónur, en 236.922.030.380 krónur mlðab vió bráöablrgöatölur í nóvember.
íbúðalánasjóður hefúr frá byijun árs
1996 samþykkt skuldabréfaskipti i hús-
bréfakerfinu upp á samtals rúmlega
233,4 milijarða króna. Var stöðug aukn-
ing þessara lána út árið 1999, en aðeins
dró úr lánveitingum árið 2000. Á síð-
asta ári slöguðu samþykkt skuldabréfa-
skipti upp í metárið 1999 og í ár er þeg-
ar orðið ljóst að það met verður slegið.
Miðað við verðlag hvers árs voru
samþykkt húsbréf fyrir ríflega 14,4
milljarða 1996. Árið 1997 voru það tæp-
ir 16,5 milljarðar og 1998 rúmur 21,1
miiijarður. Árið 1999 tóku þessi við-
skipti stórt stökk upp á við og jukust
samþykkt skuldabréfaskipti húsbréfa
um þriðjung milii ára og fóru í rúma
31,5 milijarða króna. Heldur dró úr
þessu áriö 2000, en þá voru samþykkt
skuldabréfaskipti fyrir tæpa 28,2 millj-
arða króna. Árið 2001 varð nokkur
kippur á ný og voru þá samþykkt
skifldabréfaskipti fyrir tæpa 31,3 milij-
arða króna.
I ár var í lok október þegar búið aö
samþykkja skuldabréfaskipti fyrir tæp-
lega 29,6 milljarða króna. Fyrstu tíu
mánuði þessa árs hafði heildarfiárhæð
samþykktra lána í húsbréfakerfinu því
vaxið um 15,36% miðað við sömu mán-
uöi í fyrra. Innkomnum umsóknum
hafði á sama tímabili fiölgað úr 8.173 í
8.675 eða um 6,14%. Eru flestar um-
sóknimar vegna kaupa á eldra hús-
næði eða 7.031 talsins, en 1.180 vegna
nýbygginga.
Metið slegið
Samkvæmt bráðabirgðatölum
íbúöalánasjóðs 2. desember voru hús-
bréfalánsumsóknimar orðnar 9.454 í
ár á móti 9.020 á sama tíma í fyrra.
Hafði lánsumsóknum því fiölgað um
5,14% í heildina tekið og er aukning-
Víðbótarlán íbúöarlánasjóðs
in öll vegna kaupa á eldra húsnæði.
Samdráttur er hins vegar í umsókn-
um vegna nýbygginga, endurbóta og
til byggingaraðila. Þá var fiárhæðin
komin í 31,889 milljarða (í reiknuðu
verði) þann 1. desember á móti 28,249
milijörðum á sama tima i fyrra. I
hefld var samþykkt fiárhæð húsbréfa
samkvæmt hreyfmgarskýrslu íbúða-
lánasjóös í gær, 2. desember, komin í
tæpan 33,1 miUjarð króna á móti tæp-
lega 28,7 milljörðum á sama tíma í
fyrra. Er það 14,9% aukning milli ára
og ljóst að metið frá 1999 hefúr þegar
verið rækilega slegiö. Miðað við
reynsluna í fyrra má búast við að
samþykkt verði húsbréfalán fyrir um
2,5 miiljarða króna síðasta mánuð árs-
ins. Þannig bendir margt tfl að heild-
arsamþykktir þessara viðskipta verði
yfir 35 milljarðar króna á þessu ári.
73,12% aukning viöbótarlána
Ef eingöngu er horft til viðbótar-
lána þá hefur ásóknin í þau einnig
aukist verulega það sem af er ári
eins og fram hefur komið í fréttum
DV. Meðaltalsaukning mflli ára frá
janúar tfl októberloka nam 73,12%.
Hafði viðbótarlán þá vaxið úr 2.317
milijónum króna fyrstu tíu mánuð-
ina 2001 í 4.026 milljónir fyrstu tíu
mánuði þessa árs.
Samkvæmt hreyfmgarskýrslu
íbúðalánasjóðs í gær, 2. desember,
kemur í ljós að samþykkt lánsioforð
vegna viðbótarlána á landinu öllu
námu rúmum 4.965 milljónum
króna. -HKr.
DVIVIYND GVA
Ný leið opnuö
Akstursleiöin milli Vesturhluta Mos-
fellsbæjar og Reykjavíkur styttist til
muna í gær þegar opnaö var fyrir
umferö frá Baugshlíö í Mosfellsbæ
upp á Vesturlandsveg meö hring-
torgi. Ragnheiöur Ríkharösdóttir,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Stefán
Friöfmnsson, forstjóri íslenskra aöai-
verktaka, klipptu á boröann viö
Baugshlíö í tilefni opnunar vegarins.
Nýja tengingin viö Vesturlandsveg
þykir mikil samgöngubót og er auk
þess liöur í átaki Vegageröarinnar
sem miöar aö því aö fækka gatna-
mótum á þessum slóöum.
Nýr eigandi Loðskinns
Nýtt fyrirtæki hefur eignast meiri-
hluta í sútunarfýrirtækinu Loðskinni á
Sauðárkróki. Að þvi standa sveitarsjóð-
ur sveitarfélagsins Skagafiarðar og
starfsmenn Loðskinns. Loðskinn hafn-
aði tilboði Skinnaiðnaðar á Akureyri
sem vildi kaupa fyrirtækið og hefur
lengi falast eftir því. Forsvarsmenn
Skinnaiðnaðar hafa sagt að ekki sé
rúm fyrir bæði fyrirtækin í loðskinna-
iðnaðinum. Andmæli Skagfirðinga við
sölu á fyrirtækinu hafa byggst á ótta
við það að Skinnaiðnaður mundi flytja
aila starfsemina, og þar með öll störf,
til Akureyrar og þannig skapa atvinnu-
leysi í Skagafirði.
Forsetinn til Þýskalands
Forseti Islands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hélt til Þýskalands í gær þar
sem hann tekur þátt í viðamikilli
menningardagskrá
í tilefni af hálfrar
aldar afmæli
stjómmálasam-
bands Islands og
Þýskalands. Hann
flytur fyrirlestur í
boði háskólans í
Bonn og á viðræð-
ur við forsætisráö-
'"Grimsson!"' herra Nordrhein-
Westfalen og aðra
ráöamenn fýlkisins. I dag heimsækir
forsetinn höfúðstöðvar stofnana Sam-
einuðu þjóðanna í Bonn og á viðræður
við forráðamenn þeirra. Forsetinn
verður einnig viðstaddur upplestur ís-
lenskra rithöfúnda á bókmenntavöku
til heiðurs Halldóri Kiljan Laxness og
að lokum viöstaddur sinfóníutónleika í
boði háskólans i Bonn þar sem Guð-
mundur Emilsson stjómar flutningi á
tónverki eftir Jón Nordai.
Lítt gefur til síldveiða
Einhveijar síldveiðar era fýrir aust-
an þegar gefúr en bræla hefur verið.
Eingöngu stærri bátar með flotvörpu fá
einhvem afla. Ails er búið að veiða um
51.000 tonn í haust og hefúr liðlega
helmingur aflans farið tfl manneldis,
bæði til söltunar og frystingar, eða um
26.500 tonn. Heildarkvótinn er 129.600
tonn svo enn em óveidd um 78.000
tonn. Reynt verður að halda hluta flot-
ans úti fram tii jóla, ef eitthvað fiskast.
Keyrði á Ijósastaur
Harður árekstur varð í gærkvöld á
Reykjanesbraut, ofan Njarðvíkur, þeg-
ar bifreið hafiiaði á ljósastaur. Slysið
mun hafa orðiö með þeim hætti að bíil-
inn ætlaði út í kant tU að hleypa öðrum
bíl framhjá en hafiiaði úti í móa - þeg-
ar ökumaðurinn ætlaði að sveigja hon-
um aftur upp á veginn varð ljósastaur-
inn fýrir honum. Ökumaðurinn var
fluttur á Heilbrigðisstofiiun Suðumesja
en meiðsl hana em talin minni háttar.
-GG/aþ