Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 Fréttir DV Eigendur „brunahússins“ fengu greiddar háar bætur á sínum tíma: Grunur um svik- samlega háttsemi - lögmaður leitar réttar núverandi eigenda Grunur leikur á aö um sviksamlega háttsemi hafi verið aö ræöa við endur- hætur og sölu á húsi í Reykjavík sem varð illa úti í eldi árið 1983. Þáverandi eigendur hússins fengu allháa upp- hæð í bætur frá Húsa- tryggingum Reykjavíkur eða ríflega 700 þúsund krónur á þeim tíma. Sú upphæð nemur um 4,5 milljónum króna að nú- virði. í haust, þegar nýir eigendur kjallaraíbúðar hússins hugðust endur- bæta hana, kom í ]jós að burðarvirki ásamt fleiru var stórskemmt eftir eld. Að sögn eigendanna hafði verið klastrað upp á það og skemmdimar sáust alls ekki. Nú blasir við að rífa þurfi allt að útveggjum innan úr íbúð ungu hjón- anna. Miklar viðgerðir þarf einnig á næstu hæð fyrir ofan og nemur áætlað- ur kostnaður miiljónum króna. Ungu hjónin eru að flytja úr íbúðinni þar sem fram þurfa að fara gagngerar endurbæt- ur á henni, svo og hæðinni fyrir ofan. Það var í apríl sl. að þau Ólafúr Haukur Atlason og Jenný Aradóttir keyptu sína fyrstu íbúð, kjaliaraíbúð í þríbýli í miðborginni. Þau fluttu inn 1. júlí sl. I lofti íbúðarinnar voru klæddir stokkar, sem virtust vera utan imi burðarbita. Ólafur hugðist fjarlægja stokk- ana og láta bitana njóta sín. Þegar hann hóf verk- ið blasti við honum ljót sjón. Innan í stokkunum voru kolbrunnir burðar- bitar. Fagmenn voru kaflaðir á staðinn og sögðu þeir strax að allt burðarvirki hússins væri illa farið af bruna en heföi verið klætt með plötum og málað yfir. Sem dæmi má nefna að buröarbiti sem lá yfir stofuloftiö í íbúðinni var styrktur með stokk sem gekk niður í gólfið. Bitinn sjálfur end- aði inni á baði og var þar festur í gifs, án nokkurrar undirstöðu. Þar sem kroppað hafði verið í veggklæðningar kom í ljós svart og sótugt timbur með klæðningu og málað yfir. Reynir Karlsson hrl. fer með málið Frétt DV Þaö var í síöasta mánuöi sem gallarnir í umræddu húsi í Reykjavík uppgötv- uöust. DV ræddi þá viö nýja eigendur sem voru nýbúnir aö átta sig á hvers kyns var. Olafur og Jenny við kjallarann Lögmaöur íbúa hússins mun fara yfir stööu málsins meö eigendum og athuga hvaö sé skynsamlegast aö gera í framhaldinu. fýrir íbúa hússins. Hann hefúr aflað sér gagna í málinu. Samkvæmt lög- regluskýrslum lék grunur á að kveikt hefði verið í húsinu á sínum tíma. Eld- ur kom tvisvar upp fjarri ölium raf- magnslögnum. Ekkert tókst að sanna um upptök eldsins. Ofangreindar bæt- ur voru síðan greiddar út. „Síðan virðist vera einhver brestur í eftirfylgninni og eftirlitinu," sagði Reynir. „Menn virðast komast upp með það að kasta til höndum við endurbæt- ur hússins. Það virðist enginn bera ábyrgð á því að peningamir séu notað- ir til endurbóta eins og ætlast er til.“ Lögmaðurinn mun fara yfir stöðu málsins með eigendum hússins, hvað skynsamlegast sé að gera í framhald- inu, með tilliti til kostnaðar við aðgerð- ir. Tveir eigendur af þremur hafi þegar fengið afslátt af kaupverði, en sá þriðji íhugar sitt mál. -JSS Veruleg aukning í samþykktum húsbréfum íbúðalánasjóðs: Þegar orðið metár þótt mánuður sé eftir - fer líklega yfir 35 milljarða fyrir árslok Samþykkt skuldabréfaskipti í húsbréfakerfinu 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 Janúar 758.844.751 961.007.756 j 993.977.140 1.176.335.400 1.964.452.638 2.079.317.900 2.509.732.379 Febrúar 1.116.615.250 928.647.337 1.343.657.549 1.821.430.003 2.192.988.338 2.061.601.343 2.588.025.798 Mars 1.211.155.929 1.236.891.893 1.569.299.637 3.282.183.469 3.371.657.784 2.560.013.065 2.482.432.026 Apríl 1.437.605.556 1.181.549.535 1.772.840.808 2.849.001.101 2.475.124.865 1.652.662.826 2.721.317.568 Maí 1.155.044.339 1.390.258.899 1.530.941.666 2.580.125.003 2.768.354.283 3.053.358.109 3.074.265.265 Júní 1.293.488.695 1.423.147.632 1.774.654.005 3.376.566.356 2.045.975.360 2.632.802.406 2.919.576.419 Júli 1.425.655.215 1.639.665.387 j 1.867.740.867 3.010.799.512 1.972.429.201 2.695.885.486 3.231.308.965 Ágúst 1.120.652.294 1.371.965.228 j 1.699.294.352 2.652.014.068 2.003.382.224 2.744.222.513 2.996.220.856 September 1.340.275.578 1.717.775.918 2.017.916.773 2.503.627.287 2.244.563.879 2.778.084.746 3.539.695.174 Október 1.460.942.155 1.815.900.590 2.341.085.653 3.016.899.571 2.529.285.857 3.375.504.830 j 3.507.259.652 Nóvember 1.186.645.939 1.385.843.838 2.197.631.296 2.852.481.497 2.396.307.830 3.159.301.825 j 3.514.000.000* Desember 928.255.849 1.422.412.459 j 2.024.425.092 2.430.856.481 2.217.883.748 2.477.762.463 0 Krónur: 14.435.181.550 16.475.066.472 21.133.464.838 31.552.319.748 28.182.406.007 31.270.517.512 33.083.834.102 *Samkvaemt hreyfmgarskýrslu 2. desember 2002. Samtals frá upphafi: 233.408.030.380 krónur, en 236.922.030.380 krónur mlðab vió bráöablrgöatölur í nóvember. íbúðalánasjóður hefúr frá byijun árs 1996 samþykkt skuldabréfaskipti i hús- bréfakerfinu upp á samtals rúmlega 233,4 milijarða króna. Var stöðug aukn- ing þessara lána út árið 1999, en aðeins dró úr lánveitingum árið 2000. Á síð- asta ári slöguðu samþykkt skuldabréfa- skipti upp í metárið 1999 og í ár er þeg- ar orðið ljóst að það met verður slegið. Miðað við verðlag hvers árs voru samþykkt húsbréf fyrir ríflega 14,4 milljarða 1996. Árið 1997 voru það tæp- ir 16,5 milljarðar og 1998 rúmur 21,1 miiijarður. Árið 1999 tóku þessi við- skipti stórt stökk upp á við og jukust samþykkt skuldabréfaskipti húsbréfa um þriðjung milii ára og fóru í rúma 31,5 milijarða króna. Heldur dró úr þessu áriö 2000, en þá voru samþykkt skuldabréfaskipti fyrir tæpa 28,2 millj- arða króna. Árið 2001 varð nokkur kippur á ný og voru þá samþykkt skifldabréfaskipti fyrir tæpa 31,3 milij- arða króna. I ár var í lok október þegar búið aö samþykkja skuldabréfaskipti fyrir tæp- lega 29,6 milljarða króna. Fyrstu tíu mánuði þessa árs hafði heildarfiárhæð samþykktra lána í húsbréfakerfinu því vaxið um 15,36% miðað við sömu mán- uöi í fyrra. Innkomnum umsóknum hafði á sama tímabili fiölgað úr 8.173 í 8.675 eða um 6,14%. Eru flestar um- sóknimar vegna kaupa á eldra hús- næði eða 7.031 talsins, en 1.180 vegna nýbygginga. Metið slegið Samkvæmt bráðabirgðatölum íbúöalánasjóðs 2. desember voru hús- bréfalánsumsóknimar orðnar 9.454 í ár á móti 9.020 á sama tíma í fyrra. Hafði lánsumsóknum því fiölgað um 5,14% í heildina tekið og er aukning- Víðbótarlán íbúöarlánasjóðs in öll vegna kaupa á eldra húsnæði. Samdráttur er hins vegar í umsókn- um vegna nýbygginga, endurbóta og til byggingaraðila. Þá var fiárhæðin komin í 31,889 milljarða (í reiknuðu verði) þann 1. desember á móti 28,249 milijörðum á sama tima i fyrra. I hefld var samþykkt fiárhæð húsbréfa samkvæmt hreyfmgarskýrslu íbúða- lánasjóös í gær, 2. desember, komin í tæpan 33,1 miUjarð króna á móti tæp- lega 28,7 milljörðum á sama tíma í fyrra. Er það 14,9% aukning milli ára og ljóst að metið frá 1999 hefúr þegar verið rækilega slegiö. Miðað við reynsluna í fyrra má búast við að samþykkt verði húsbréfalán fyrir um 2,5 miiljarða króna síðasta mánuð árs- ins. Þannig bendir margt tfl að heild- arsamþykktir þessara viðskipta verði yfir 35 milljarðar króna á þessu ári. 73,12% aukning viöbótarlána Ef eingöngu er horft til viðbótar- lána þá hefur ásóknin í þau einnig aukist verulega það sem af er ári eins og fram hefur komið í fréttum DV. Meðaltalsaukning mflli ára frá janúar tfl októberloka nam 73,12%. Hafði viðbótarlán þá vaxið úr 2.317 milijónum króna fyrstu tíu mánuð- ina 2001 í 4.026 milljónir fyrstu tíu mánuði þessa árs. Samkvæmt hreyfmgarskýrslu íbúðalánasjóðs í gær, 2. desember, kemur í ljós að samþykkt lánsioforð vegna viðbótarlána á landinu öllu námu rúmum 4.965 milljónum króna. -HKr. DVIVIYND GVA Ný leið opnuö Akstursleiöin milli Vesturhluta Mos- fellsbæjar og Reykjavíkur styttist til muna í gær þegar opnaö var fyrir umferö frá Baugshlíö í Mosfellsbæ upp á Vesturlandsveg meö hring- torgi. Ragnheiöur Ríkharösdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, og Stefán Friöfmnsson, forstjóri íslenskra aöai- verktaka, klipptu á boröann viö Baugshlíö í tilefni opnunar vegarins. Nýja tengingin viö Vesturlandsveg þykir mikil samgöngubót og er auk þess liöur í átaki Vegageröarinnar sem miöar aö því aö fækka gatna- mótum á þessum slóöum. Nýr eigandi Loðskinns Nýtt fyrirtæki hefur eignast meiri- hluta í sútunarfýrirtækinu Loðskinni á Sauðárkróki. Að þvi standa sveitarsjóð- ur sveitarfélagsins Skagafiarðar og starfsmenn Loðskinns. Loðskinn hafn- aði tilboði Skinnaiðnaðar á Akureyri sem vildi kaupa fyrirtækið og hefur lengi falast eftir því. Forsvarsmenn Skinnaiðnaðar hafa sagt að ekki sé rúm fyrir bæði fyrirtækin í loðskinna- iðnaðinum. Andmæli Skagfirðinga við sölu á fyrirtækinu hafa byggst á ótta við það að Skinnaiðnaður mundi flytja aila starfsemina, og þar með öll störf, til Akureyrar og þannig skapa atvinnu- leysi í Skagafirði. Forsetinn til Þýskalands Forseti Islands, Ólafur Ragnar Grímsson, hélt til Þýskalands í gær þar sem hann tekur þátt í viðamikilli menningardagskrá í tilefni af hálfrar aldar afmæli stjómmálasam- bands Islands og Þýskalands. Hann flytur fyrirlestur í boði háskólans í Bonn og á viðræð- ur við forsætisráö- '"Grimsson!"' herra Nordrhein- Westfalen og aðra ráöamenn fýlkisins. I dag heimsækir forsetinn höfúðstöðvar stofnana Sam- einuðu þjóðanna í Bonn og á viðræður við forráðamenn þeirra. Forsetinn verður einnig viðstaddur upplestur ís- lenskra rithöfúnda á bókmenntavöku til heiðurs Halldóri Kiljan Laxness og að lokum viöstaddur sinfóníutónleika í boði háskólans i Bonn þar sem Guð- mundur Emilsson stjómar flutningi á tónverki eftir Jón Nordai. Lítt gefur til síldveiða Einhveijar síldveiðar era fýrir aust- an þegar gefúr en bræla hefur verið. Eingöngu stærri bátar með flotvörpu fá einhvem afla. Ails er búið að veiða um 51.000 tonn í haust og hefúr liðlega helmingur aflans farið tfl manneldis, bæði til söltunar og frystingar, eða um 26.500 tonn. Heildarkvótinn er 129.600 tonn svo enn em óveidd um 78.000 tonn. Reynt verður að halda hluta flot- ans úti fram tii jóla, ef eitthvað fiskast. Keyrði á Ijósastaur Harður árekstur varð í gærkvöld á Reykjanesbraut, ofan Njarðvíkur, þeg- ar bifreið hafiiaði á ljósastaur. Slysið mun hafa orðiö með þeim hætti að bíil- inn ætlaði út í kant tU að hleypa öðrum bíl framhjá en hafiiaði úti í móa - þeg- ar ökumaðurinn ætlaði að sveigja hon- um aftur upp á veginn varð ljósastaur- inn fýrir honum. Ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofiiun Suðumesja en meiðsl hana em talin minni háttar. -GG/aþ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.