Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
Fréttir
Bankarnir juku rekstrartekjurnar um 36% milli ára:
Útlánatöp hafa aukist verulega
og áhætta í bankakerfinu vaxiö
DV-MYND GVA
Úr afgreiöslusal Landsbanka íslands
Rekstrarniðurstaða Landsbankans fyrstu níu mánuði ársins er nokkuð undir væntingum en afkoma Búnaðarbanka að
sama skapi aðeins umfram væntingar. Að mati Kaupþings er Landsbankinn hagstæöasti kosturinn í dag, metinn á
24,9 milljarða króna. Ekki er hægt að mæla með kaupum á íslandsbanka, sem metinn er á 46,3 milljarða krðna.
Hagnaður íslandsbanka, Lands-
banka, Búnaðarbanka og Kaupþings
banka nam 7,7 milljörðum á fyrstu níu
mánuðum ársins til samanburðar við 3
milljarða á sama tímabili í fyrra. ís-
landsbanki skilaði mestum hagnaði
eða 2.359 milljónum króna, Kaupþing
2,1 milijarði króna, Búnaðarbankinn
1,6 milljarði króna og Landsbankinn
1,5 milljarði króna. Hreinar vaxtatekj-
ur námu alls 17,7 milljörðum og dróg-
ust saman um rétt 100 milljónir króna
á milli ára. Mestur samdráttur varð hjá
Landsbanka eða um 12% og rúmlega
2% samdráttur varð hjá Islandsbanka.
Aukin útlánatöp
Bankamir lögðu samtals um 5,5
milljarða á afskriftareikning útlána en
á sama tímabili í fyrra nam það 4,1
milljarði króna, eða 36% aukning. Sé
litið á framlagið í hlutfalli af heildarút-
lánum bankanna er það um 0,8% til
samanburðar við 0,65% í fyrra. Heild-
arafskriftareikningar samtals standa
nú í tæpum 17 milljörðum sem er um
2,5% af heildarútlánum bankanna. Til
samanburðar má nefha að samtals
stóðu afskriftarreikningar í 2,3% í árs-
lok 2001 og 1,9% í árslok 2000. Stærstur
hluti framlagsins síðustu misseri hefur
verið í sértækan afskriftareikning. Út
frá þessari þróun má ætla að útlánatöp
hafi aukist og að áhætta í bankakerfinu
hafi farið vaxandi.
Afkoma fyrírtækja
ÞrlOJI hlutl
Heildareignir bankanna nema um
973 milljörðum í lok tímabils. Er það
rúmlega 70 milljarða aukning frá fyrra
ári þegar þær námu um 901 milljarði
króna. Útlánaaukningin varð mest hjá
Búnaöarbanka, eða um 18%, og tæp 8%
hjá Landsbanka. Breyting markaðs-
verðbréfa og eignarhluta í öðrum félög-
um er langmest hjá Búnaðarbanka, eða
um 75%.
Bankastjórar íslandsbanka, Valur
Valsson og Bjami Ámannsson, segja
arðsemi bankans vera 17% sem sé í
samræmi við langtímamarkmið bank-
ans. Reiknað sé með að hagnaður árs-
ins verði minni en í fyrra sem reyndist
sérlega hagstætt. Hröð lækkun verð-
bólgu hafi dregið úr vaxtatekjum til
skamms tíma en ljóst sé að aukinn
stöðugleiki og hagvöxtur í efhahagslíf-
inu muni gefa íslandsbanka ný sóknar-
færi þegar til lengri tíma er litið. Þrjú
alþjóðleg fagtímarit um bankamál og
fjármálamarkaði, Euromoney, The
Banker og Global Finance, útnefna
hvert um sig banka ársins víða um
heim og hafa í ár öll valið Islandsbanka
besta bankann á íslandi árið 2002.
Viðunandi afkoma
Uppgjör bankanna verða í heildina
litið að teljast vel viðunandi. Rekstrar-
niðurstaða Landsbankans á fyrstu níu
mánuðum ársins var þó nokkuð undir
væntingum en afkoma Búnaðarbanka
var að sama skapi aðeins umfram
væntingar. Afkoma Islandsbanka
reyndist í takt við áætlaða afkomu.
Sveiflur í rekstri hafa verið minnstar
hjá íslandsbanka síðustu misserin, af-
koman hefur verið að jafnaði góð og
tölur úr rekstri gefa til kynna hag-
kvæman rekstur. Hins vegar virðist
enn vera nokkurt svigrúm til hagræð-
ingar í hinum viðskiptabönkunum
tveimur, Búnaðarbanka og Lands-
banka.
Mikill hagnaður hjá Kaupþingi
Hagnaður Kaupþings banka á fyrstu
níu mánuðum ársins var 2.166 milljón-
ir króna eftir skatta, samanborið við 83
milljóna króna hagnað á sama tímabili
á síðasta ári. Hagnaður Kaupþings
banka á þriðja ársfjórðungi var 1.464
milljónir króna en 238 milljóna króna
tap var á sama ársfjórðungi síðasta árs.
Hreinar rekstrartekjur fyrstu níu mán-
uði ársins 2002 voru 7.109 milljónir
króna sem er 117% aukning miðað við
sama tímabil síðasta árs. Heildareignir
bankans námu 141 milljarði króna í lok
tímabilsins og hafa þær aukist um 20%
frá síðustu áramótum.
Sigurður Einarsson, forstjóri Kaup-
þings banka, segir að Kaupþing banki
hafi sýnt stöðuga afkomu á fyrstu níu
mánuðum ársins þrátt fyrir erfið
rekstrarskilyrði á flestum verðbréfa-
mörkuðum. Rekstrarkostnaður kjama-
starfsemi Kaupþings samstæðunnar
lækkaði á þriöja ársfjóðungi en á móti
kemur að talsverður kostnaður féll til í
tengslum við söluna á Aragon og yfir-
tökutilboð á JP Nordiska. Kaupþing
banki sýni afkomu i samræmi við arð-
semismarkmið bankans, auk þess sem
við bætist söluhagnaður upp á um 1500
milljónir króna vegna sölu á Fijálsa
fiárfestingarbankannum. Þetta geri það
að verkum að hagnaður bankans á
fyrstu níu mánuðum ársins 2002 sé sá
mesti í sögu Kaupþings banka. Alls
hafa 81,5% hluthafa JP Nordiska sam-
þykkt yfirtökutilboðið. Tilboðiö er enn
bundið því skilyrði að Fjármálaeftirlit-
ið í Svíþjóð samþykki umsókn Kaup-
þings banka en gangi það eftir verður
Kaupþing banki mun háðari en áður
mörkuðum utan íslands, s.s. þeim
sænska.
Hagstæðasta verðlagningin
Kennitölusamanburður á viðskipta-
bönkunum þremur leiðir í Ijós að hag-
stæðasta verðlagningin er tvímæla-
laust á Landsbanka um þessar mund-
ir. CAD hlutfall bankanna er nokkuð
svipað, Búnaðarbanki er með 10,9%,
Landsbanki með 10,5% og íslands-
banki með 10,1%. Q hlutfall Lands-
bankans er um 1,5 til samanburðar
við 1,7 hjá Búnaðarbanka og 2,2 hjá ís-
landsbanka. V/H hlutfall Landsbanka
er i dag um 6,4 miðað við hagnað síð-
ustu 12 mánaða. V/H Búnaðarbanka
er 8,7 og íslandsbanka 11,1. Vænt V/H
hlutfall miðað við afkomuspá Grein-
ingardeildar er lægst hjá Búnaðar-
banka eða 10,5,12,5 hjá Landsbanka
og 14,1 hjá íslandsbanka. Búnaðar-
bankinn virðist vera á nokkuð sann-
gjömu verði, eða 25,1 milljarður
króna, en hafa þarf í huga meiri
áhættu í rekstri hans en hirrna bank-
anna. Út frá kennitölusamanburði er
hins vegar vart unnt að mæla með
kaupum á íslandsbanka sem er met-
inn á 45,3 milljarða króna. Landsbank-
inn er því hagstæðasti kosturinn í
dag, metinn á 24,9 milljarða króna og
er því mælt með kaupum á bréfum
bankans. Kaupþing er metið á 23,7
milljarða króna.
Hvað er V/H og Q hlutfall?
V/H hlutfallið er hlutfall markaðs-
verðs bréfa og hagnaðar. V/H hiutfalhð
segir til um hversu mikið markaðurinn
er tilbúinn til að greiða fyrir framtíðar-
tekjur fýrirtækisins. Ef hlutfallið er
hátt getur það þýtt að verð hlutabréf-
anna sé hátt eða að hagnaður fyrirtæk-
isins hafi verið lítill. Lágt hlutfall getur
að sama skapi þýtt að verð sé lágt eða
að hagnaður sé hár. Hátt V/H hlutfall
bendir til þess að gert sé ráð fyrir að
hagnaður aukist í framtíðinni og lágt
V/H hlutfall sýnir að búist er við að
hagnaður minnki.
Dæmi: Hagnaður fyrirtækisins X hf.
er 60 milljónir króna en markaðsverð
hlutabréfa í félaginu er 750 milljónir
króna. V/H hlutfallið er því 12,5 (750/60
= 12,5) sem þýðir aö markaðurinn er
tilbúinn að greiða sem nemur hagnaði
rúmlega tólf ára fyrir hlutabréf í felag-
inu. Q-hlutfall er hlutfall sölugengis og
innra virðis. Það getur verið hærra en
1 til langs tíma litið og er það vegna
þátta eins og viðskiptavildar fyrirtækis
og leiðtogahæfileika stjómenda sem
koma ekki fram í efnahagsreikningi.
-GG
Beit mann í lærið
Fjórar líkamsárásir voru kærðar
til lögreglu um helgina voru jafn-
margir fluttir á slysadeild Landspít-
alans. Meiðsl þeirra voru ekki talin
alvarleg - en í einu tilvikinu, sem
átti sér stað á veitingahúsi, beit
maður annan í lærið. Sá fékk óblið-
ar móttökur og var barinn itrekað í
andlitið af hinum bitna.
Þá þurftu lögreglumenn að kalla
eftir aðstoð kranabils aðfaranótt
laugardagsins. Ástæðan var sú að
maður nokkur hafði lagst til svefns
á þaki veitingahúss. Maðurinn var
mjög ölvaður og mun hafa gefið þær
skýringar á háttemi sínu að hann
hefði þurft að leita vars á þakinu -
þar sem menn væm á eftir honum
sem hefðu í hyggju að skaða hann.
Tölvu prests stolið
Fartölvu prests og samskotabauk
var stolið úr kirkju í Reykjavík um
helgina. Alls var tilkynnt um 22 inn-
brot til lögreglunnar í Reykjavík
um helgina. Auk þess var tilkynnt
um 13 þjófnaði, niu skemmdarverk
og átta bílum var stolið.
Nikkan þanln
Hermann í Lambanesi þandi nikk-
una að vanda og lék undir fjölda-
söng sem kom í staðinn fyrir hefð-
bundna umræðu um vandamálin.
Fengu verðlaun
fyrir að fjölga fé
Þau Klara Helgadóttir og Atli
Traustason í Syðri-Hofdölum fengu
bjartsýnisverðlaun á árlegri
skemmtun skagflrskra sauðfiár-
bænda fyrir að hafa sýnt það áræði
að fiölga fé á undanförnum árum og
síðan keypt verulegt greiðslumark í
sauðfiárframleiðslu í haust.
Mæðgumar Hrefna Gunnsteindóttir
og Halldóra Bjömsdóttir fengu
þrautseigjuverðlaun, en þær reka
myndarlegt sauðfiárbú á Ketu á
Skaga. Þá fékk Sigmjón Sigurbergs-
son, bóndi í Hamrahlíð, viðurkenn-
ingu fyrir störf að félagsmálum en
hann var formaður félags sauðfiár-
bænda í Skagafirði í sex ár.
Hin árlega skemmtun skagfirskra
sauðfiárbænda, sem þeir kalla upp-
skeruhátíð, var haldin í félagsheim-
ilinu Ketilási í Fljótum á dögunum í
fiórða skipti. -ÖÞ
Taktu þátt í skemmtilegum jólaleik! Sendu SMS-skeytið JOL og svo
jóla t.d. JOL10, ef 10 dagar eru til jóla. Þú færð strax tilbaka SMS sem segir til um
hvort þú hafir unnið og þá hvað. Það eru 100 glæsilegir vinningar í pottinum og því
oftar sem þú tekur þátt því meiri möguleika áttu á vinningi. Allir vinningar ganga út.
100 vinningar í pottinum, ekki missa afþessu!
1 x flugferð fyrir2 til Evrópu
frá Flugleiðum
1 x 28" sjónvarpstæki frá BT
2 x gjafabréf fráBTað upphæð
kr. 15.000
I 2 x Gamecube tölvur frá BT
j 2 x ferðageislaspilarar frá BT
12 xDVD diskar frá BT
12 x geisladiskar frá BT
3x3 mán. áskrift að Stöð 2
3x3 mán. áskrift að Sýn
4 x gjafabréf frá Oasis
öxmatarkörfurfrá 10-11
2 x Nokia farsímar og inneign hjá TAL
5 x áskriftir að Séð & heyrt
lOxjólatré
5 x áskriftir að DV
31 x konfektkassar frá Góu ■ Lindu
Á aðfangadag er dregin út
ferð fyrir tvo til Evrópu að
eigin valimeð Flugleiðum og
28" sjónvarps-tæki frá BT,
ásamtfleiru.
Vinningar dreifast af handahófi á
dagana nema 24. des.
Vinninga skal vitja hjá Smart auglýsingum, Höfðabakka 9,110 RVK, miðvikudaga
milli kl. 12 og 16. Vinninga skal sækja fyrir 8.1.2003
Sendu skeytin á
'1415 (Tal), 1848
(Síminn) eða
Glugginn>Nýtt>
Jóladagatal
(íslandsími,BTGSM)
IMOKIA |
CONNECTTNC PtOÞLE
cuds