Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Síða 9
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002
9
DV
Fréttir
Varasjóður húsnæðis-
mála fer til Sauðárkróks
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON.
Varasjóösmenn
Forstöðumaöur varasjóðsins, Sigurður Árnason, fyrir miðju á myndinni, en
meö honum eru þeir fáll Pétursson félagsmálaráðherra og Árni Gunnarsson,
fyrrum aðstoðarmaður Páls í ráðuneytinu, en þeir voru keppinautar í baráttu
um sæti á lista Framsóknarflokksins á dögunum.
Ákveðið hefur verið að Varasjóður
húsnæðismála verði á Sauðárkróki og
hefur hann þegar tekið til starfa þar.
Sjóðurinn var áður í félagsmálaráðu-
neytinu. Flutningurinn þýðir eitt og
hálft starf á Króknum. Varasjóðurinn
var stofnaður þann 1. ágúst sl. með
breytingu á lögum um húsnæðismál.
Honum er ætlað að veita framlög til
sveitarfélaga og félaga á þeirra vegum
vegna félagslegra íbúða. Jafiiífamt tók
sjóðurinn við öllum réttindum og
skyldum varasjóðs viðbótarlána sem
lagður var niður ffá sama tíma. Sjóður-
inn verður til húsa að Ártorgi 1 sem er
sama húsnæði og íbúðalánasjóður er í
á Sauðárkróki. Forstöðumaður hefur
verið ráðinn Sigurður Ámason. Hann
hefur undanfarin ár starfað hjá fyrir-
tækinu Elementi ehf. á Sauðárkróki.
Sigurður sagði í samtali við ffétta-
mann að helstu hlutverk varasjóðsins
séu eftirfarandi: Að veita rekstrarffam-
lög til sveitarfélaga vegna hallarekst-
urs félagslegra leiguíbúða eða íbúða
sem staðið hafa auðar í lengri tíma. Að
veita ffamlög til sveitarfélaga vegna
sölu félagslegra eigna- og leiguíbúða á
almennum markaði. Að hafa umsýslu
með tryggingasjóði vegna bygging-
argalla. Að gera tillögur til íbúðalána-
sjóðs um að afskrifa að hluta eða öllu
leyti útistandandi veðkröfúr íbúðalána-
sjóðs á ákveðnum félagslegum leiguí-
búðum sveitarfélaga í þeim tilvikum
þar sem leiguíbúðir sem standa að veði
fyrir viðkomandi kröfum veröa ekki
leigðar út vegna slæms ástands þeirra.
Að veita ráðgjöf og leiðbeiningar þeim
sveitarfélögum sem breyta um rekstr-
arform félagslegra leiguíbúða eða hag-
ræða í rekstri þeirra og að sjá um upp-
lýsingavinnslu og úttekt á árangri af
verkefnum sjóðsins.
Helstu tekjustofhar varasjóðsins eru
60 milljóna lrnóna ffamlag á ári úr rík-
issjóði í fimm ár, frá Tryggingasjóði
byggingagalla kemur sama upphæð á
ári í jafnmörg ár og frá sveitarfélögun-
um koma 20 milljónir á ári í fimm ár.
-ÖÞ
8iS|S
DV-MYND JÚLÍA IMSLAND
Dugnaðarstrákar og sjálfstæðir ruslaverktakar
Þessir dugnaðarstrákar heita Gunnar Örn og Guðmundur Einar og eiga heima á Höfn í Hornafirði. Þeir eru að fara
með ónýtar umbúðir og rusl frá Smur og Dekk út í gámastöð þar sem tekið er á móti því sem henda þarf. Þar sem
þeir vilja vera sjálfstæðir í sinni vinnu fengu þeir lánaða kerru og handaflið er notað til að koma ruslinu á áfangastað
en það er dágðður spölur. Það vefst væntanlega ekki fyrir þessum dugnaðardrengjum að koma undir sig fótunum.
Kraftmiklir bændur í Staðarsveit:
Hátæknifjós reist í Staðarsveit
DV-MYND PÉTUR S. JÖHANNSSON
Stórhuga
Bændurnir á Ölkeldu, þau Kristján ogJón Svavar Þóröarsynir og eiginkonurnar,
þærAstrid Gundersen og Bryndís Jónasdóttir. Þarna er byggt upp afstórhug.
Um helgina buðu bændurnir á Öl-
keldu í Staðarsveit á Snæfellsnesi til
opnunarhófs á nýju fjósi sem lokið
var við að byggja fyrir skömmu. Það
voru þeir bræður Jón Svavar og
Kristján Þórðarsynir ásamt eiginkon-
um sinum, þeim Astrid Gundersen og
Bryndísi Jónasdóttur, sem að því
stóðu en þau hjón reka búið saman.
Mættir voru sveitungar þeirra hjóna
ásamt vinum og kunningjum í Snæ-
fellsbæ og víðar.
Fjöldi fólks var viðstaddur opnun-
ina sem hófst á því að Kristján Þórð-
arson bóndi lýsti ffamkvæmdum við
fjósið. Nýja fjósið er teiknað hjá Bygg-
ingarþjónustu landbúnaðarins og er
svokallað lausagöngufiós og kýmar
fóðra sig þar að mestu leyti sjálfar.
Vinnan við bygginguna var mest unn-
in af aðilum í sveitinni en miklir hag-
leiksmenn eru í Staðarsveitinni. Þeir
bændur breyttu einnig gamla fiósinu
og nú eru þeir með alls 680 fermetra
og eru legubásar alls fyrir 71 kú.
Fjósið er hátæknivætt m.a. með
tölvustýrðum kjarnfóðurbásum og
sjálffæranlegum gjafagrindum sem
spara mikla vinnu hjá þeim bændum
á Ölkeldu. Þá er í fiósinu sjálfvirk
flórskafa sem ekki virtist raska ró
kúnna hið minnsta meðan hún gekk.
í fiósinu eru sérstakar kálfa- og burð-
arstíur og einmitt er blaðamaður DV
var á staðnum bar kvígan Ólína kálfi
til óblandinnar ánægju þeim sem á
horfðu. Nú eru í fiósinu 57 hausar og
þar af 35 mjólkandi kýr og ffamleiðsl-
an á dag er 900 lítrar. Næsta vor verða
57 mjólkandi kýr hjá þeim bændum ef
allt gengur eftir og að sögn Kristjáns
bónda mun þá vanta kvóta. í dag eru
þeir með 190 þúsund lítra kvóta og
stefnt er að því að auka hann í 300
þús. lítra. Það var sannarlega forvitni-
legt fyrir ekki-bændur að sjá þessa
miklu tækni sem þeir bændur á Öl-
keldu hafa tileinkað sér. Ekki er að
sjá annað en að framtíðin sé björt hjá
þeim og er þetta framtak þeirra til
mikillar fyrirmyndar fyrir búskapinn
í Snæfellsbæ og víðar. -PSJ
a^s Ótrúlegj 2««».
■ OT af '■ Hæð 139, breidd 55'dýpt 60'
Urvalinu
Verð áður kr. 54.995
TILBOÐ
Orkunýting A.
Whirlpool
Heimilistæki
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND