Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Qupperneq 29

Dagblaðið Vísir - DV - 03.12.2002, Qupperneq 29
 Brasilíumaðurinn Ailton (i hvitu og grænu) hetur verið aö spila frábærlega meö Werder Bremen i þýsku 1. deildinni og skoraö 12 mörk. Reuters Rafpóstur: dvsport&dv.is ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2002 Shearer áfrýjar ekki Alan Shearer, framherji Newcastle, hef- ur ákveöið að áfrýja ekki dómi aganefnd- ar Knattspymusambands Evrópu en hún dæmdi hann í tveggja leikja bann fyrir að gefa Fabio Cannavaro, vamarmaimi Inter Milan, olnbogaskot í leik liðanna í meist- aradeildinni í síðustu viku. Shearer miss- ir því af tveimur næstu leikjum Newcastle, útileikjum gegn Barcelona og Bayer Leverkusen. Þetta er aðeins í annað sinn á ferlinum sem Shearer er dæmdur í bann. -ósk/ÓÓJ Markahæstu menn Evrópu 2. desember 2002 1 Andrei Krölov FC TVMK Tallinn (Eistlandi) 37 1 2 Arman Karamyan FC Pyunik (Armeníu) 36 1 3 Henrik Larsson Celtic FC (Skotlandi) 18 1,5 4 Harald Brattbakk Rosenborg BK (Noregi) 17 1,5 5 Ailton SV Werder Bremen (Þýskalandi) 12 2 5 Christian Vieri Inter Milan (Italíu) 12 2 5 Axel Lawaree Schwarz-Weiss Bregenz (Austurríki) 16 1,5 5 Maksim Gruznov JK Trans Narva (Eistlandi) 24 1 5 Peter Ijeh Malmö FF (Svíþjóð) 24 1 10 Tor Henning Hamre FC Rora (Eistlandi) 23 1 10 Mihails Miholaps FC Skonto (Lettlandi) 23 1 12 Milaim Rama FC Thun (Sviss) 15 1,5 12 Mateja Kezman PSV Eindhoven (Hollandi) 15 1,5 12 Maciej Zurawski Wisla Kraków (Póllandi) 15 1,5 12 Tryggvi Gudmundson Stabæk IF (Noregi) 15 1,5 12 Rolan Gusev PFC CSKA Moskva (Rússlandi) 15 1,5 12 Dmitri Kirchenko PFC CSKA Moskva (Rússlandi) 15 1,5 18 Wesley Sonck KRC Genk (Belgiu) 14 1,5 18 Andrzej Niedzielan KS Górnik Zabrze (Póllandi) 14 1,5 18 Aleksandr Kerzhakov FC Zenit St. Petersburg (Rús.) 14 1,5 18 Ara Hakobyan FC Spartak Yerevan (Ameniu) 21 1 22 Shabani Nonda AS Monaco (Frakklandi) 10 2 22 Giovane Elber FC Bayern Múnchen (Þýskalandi) 10 2 22 Vjatsesjav Zahovaiko JK Tulevik Viljandi (Eistlandi) 20 1 22 Thomas Christiansen VfL Bochum (Þýsklandi) 10 2 Markahæstu knattspyrnumenn Evrópu í dag: Höriíukeppni - Christian Vieri og Ailton sækja í sig veðrið Það er ljóst að þaö verður hörku- keppni um hver stendur uppi sem markahæsti leikmaður í Evrópu í vor. Eistinn Andrei Krolov, sem leikur með FCTall- inn i heimalandi sínu, er markahaestur í Evrópu með 37 mörk en hafa skal í huga að deildakeppnin í Eistlandi er búin á meðan flestar deildir í Evrópu eru að verða hálfnaðar. Larsson líklegur Sænski framherjinn Henrik Lars- son, sem leikur með Celtic í Skotlandi, verður að teljast ansi lík- legur til að hampa titlinum í ár. Larsson, sem varð markahæsti maður Evrópu fyrir tveimur árum. hefur skorað átján mörk fyrir Celtic á þessu tímabili en ekki er eingöngu tekið tillit til fjölda marka heldur einnig styrkleika hverrar deildar fyrir sig. Þannig er eistneska deild- in með gildið 1 en sú skoska með gildið 1,5. Fimm deildir, italska, enska, spænska, þýska og franska, eru með gildið 2 sem þýðir að þeir leikmenn sem þar spila þurfa að skora helmingi Henrik Larsson. færri mörk en þeir Christian Vieri. Breytingar í Formúlu 1 á næsta keppnistímabili: Arrows ekki með - neitað um keppnisrétt vegna Qárhagsörðugleika leikmenn sem spila í deildum með gildiö 1 til að vera jafnir þeim. Stökk hjá Ailton og Vieri Hástökkvarar helgarinnar voru Brasilíumaðurinn Ailton, sem leik- ur með Werder Bremen í Þýska- landi, og ítalinn Christian Vieri sem spilar meö Inter Milan. Ailton skoraði tvö mörk fyrir Werder Bremen í sigri á Stuttgart um helgina og hoppaði úr átjánda sætinu á listanum í það frmmta en hann hefur skorað tólf mörk í þýsku deildinni það sem af er. Vieri geröi vamarmönnum Brescia lífið leitt um helgina, skor- aði öll fjögur mörk liðsins og hefur einnig skorað tólf mörk í ítölsku deildinni. Vieri komst ekki inn á listann síöast en hann er nú í funmta sætinu ásamt Ailton með 24 stig. Tryggvi tólfti Tryggvi Guðmundsson, framheiji hjá Stabæk, er í 12.-17. sæti á listanum yfir markahæstu menn með 15 mörk og 22,5 stig alls en bú- ast má við þvi að hann hverfi fljótlega af honum þar sem deildin í Noregi er búin en flestar deildarkeppnir í Evrópu eru að verða hálfnaðar. Jardel rólegur Brasilíumaðurinn Mario Jardel, sem skoraði 42 mörk fyrir portú- galska liðið Sporting Lissabon í fyrra og varð markahæsti leikmaö- ur Evrópu, hefur verið rólegur það sem af er tímabilinu. Jardel byrjaði ekki að spila fyrr en í síðasta mán- uði vegna persónulegra vandamála og hefur aðeins skorað tvö mörk í portúgölsku deildinni. -ósk Tom Walkinshaw Arrows-liðinu hefur verið neitað um þátttökurétt í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta tímabili. Alþjóða akstursíþróttasambandiö (FIA) gaf lista í gær yfir þátttakend- ur í Formúlunni á næsta ári án þess að nafh Arrows væri þar en liðið hefur átt i miklum fjárhagserf- iðleikum undanfarið ár. Arrows-liðið tók ekki þátt í fimm síðustu keppnum nýliðins tímabils vegna fjárhagsvandræða og hefur yfirmaöur þess, Bretinn Tom Wilk- inshaw, ítrekað reynt að selja liðið að undanfómu, nú síðast til þýskra fjárfesta, án þess að hafa haft erindi sem erfiði. Það er þó ekki öll nótt úti enn fyrir Arrows-liöið varðandi þátt- töku á næsta tímabili en það þarf að verða sér úti um 31 milljón punda sem tryggingu til Alþjóða akstursíþróttasambandsins til að fá að vera með. Alls era tíu lið skráð til leiks á næsta tímabili í Formúlunni en sautján ökumenn af tuttugu hafa verið ráðnir. Minardi-liðið á eftir að ráða báða sína ökumenn og og Jordan-liðiö á eftir að finna mann til að aka með ítalanum Giancarlo Fisichella. -ósk ~W-WW-*"JLJL-1-W-1-W.■ í íþróttahjáskól UMF auglýsir hér með eftirljórum áhugasömum ungmennum, á aldrinum 18-25 ára, sem áhuga hafa á að stunda nám við Idrættshejskolen í Soderborg í Danmörku veturinn 2003. Námið mun hefjast í janúar og Ijúka í júní. UMFÍ mun styrkja fjögur ungmenni til 6 mánaða dvalar við skólann. Nánari upplýsingar eru veittar á Þjónustumiðstöð UMFÍ, Fellsmúla 26, í síma 568 2929. Ungmennafélag íslands Handknattleikur: Heimir velur landsliðshóp Heimir Örn Ríkharðsson, þjálfari landsliðs skipað drengj- um fæddum 1984 og síðar, hefur valið 15 manna hóp sem tekur þátt i Hela Cup 2002 sem fram fer í Þýskalandi á milli jóla og nýárs. Hópurinn er skipaður eftir- töldum leikmönnum: Markverðir: Björgvin Gústavs- son (HK), Jón Ámi Traustason (Víkingi) og Pálmar Pétursson (Val). Aðrir leikmenn: Andri Þor- bjömsson og Ásgeir Hallgríms- son (Haukum), Amór Atlason og Árni B. Þórarinsson (KA), Davíð Guðnason, Pálmar Sigurjónsson og Ragnar Hjaltested (Víkingi), Árni Þ. Sigtryggsson (Þór, Ak.), Einar I. Hrafnsson (UMFA), Jóhann G. Einarsson (Fram), ívar Grétarsson (Selfossi) og Kári K. Kristjánsson (ÍBV). -ósk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.