Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Qupperneq 2
2
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Fréttir
Útlendingaeftirlitið í Dóminíska lýðveldinu kom íslenskum skákmönnum í stórvandræði:
ísland óþekkt - okkur
var haldið nauðugum
- íslendingarnir voru á leið til New York og var ekki hleypt út í vél American Airlines
Stjómarmanni í Skáksambandinu og
tveimur öðrum íslenskum skákmönn-
um var haldið nauðugum á flugvellin-
um í Santo Domingo, höfuðborg
Dóminíska lýðveldisins á sunnudags-
morgun og fram eftir degi. Útlendinga-
eftirlitsmenn vom mjög tortryggnir í
garð mannanna, sögðust ekki vita hvað
ísland væri, vefengdu íslensk vegabréf
og höfðu þá í haldi á meðan vél Amer-
ican Airlines, sem þeir vom að fara með
til New York, var flogið í burtu.
Einar Kristinn Einarsson er einn
skákmannanna en með honum var fé-
lagi hans, Kjartan Guðmundsson og
Haraldur Baldursson, stjómarmaður í
Skáksambandinu. Einar segir þá félaga
hafa orðið fyrir tjóni upp á um hundrað
þúsund krónur, fyrir utan tafir, óþæg-
indi, skömm og niðurlægingu.
Hvað er ísland?
„Við vorum að koma af gríðarlega
sterku skákmóti í Boca chia. Hannes
Hlífar Stefánsson stórmeistari ætlaði
reyndar að koma með okkur en hann er
heppinn að hafa ekki gert það,“ segir
Einar.
„Við komum fyrst inn í flugstöðina í
Santo Domingo en við vorum fara til
New York með American Airlines. Við
vorum með miða, tékkuðum okkur inn
og fórum svo í vegabréfaeftirlit. Okkur
var vísað til yfirmanns Imigration -
hann reyndist ótalandi á enska tungu.
Nú upphófst mikil rekistefna um
hver fjárinn ísland væri eiginlega.
Mennimir skoðuðu passana í bak og
fyrir, athuguðu hvort myndimar væm
falsaðar - þeir sögðust aldrei hafa séð
neitt þessu líkt.“
American Airlines óvinveitt
Einar telur að aðalvandinn hafi falist
í að íslendingamir voru að fara til
Bandaríkjanna - reyndar þaðan sem
þeir komu tíu dögum áður.
„Þegar við höfðum beðið í einn og
hálfan klukkutíma þama inni í hita og
óþægindum kom fulltrúi frá American
Airlines. Ekki vildi hann túlka fyrir
okkur þótt við bæðum hann um það.
Vegabréfseftirlitsmennimir fóra síðan
að skoða hótelreikninga okkar, greiðslu-
kort og fleira. Þeir hlógu mikið að því
sem við höfðurn keypt á hótelinu og ætl-
uðu einhverra hluta vegna að taka Visa-
kortið af Haraldi. Hann gaf sig þó ekki
og sleppti því hvergi."
Einar segist hafa óskað eftir að fá að
hringja i sendiráð fslands í Washington
og ef ekki þangað þá í sendiráð Banda-
ríkjanna í Santo Domingo.
Alvæpni í klósettferðum
„Okkur var neitað um öil simtöl og
fluttir í annað herbergi þar sem við vor-
um látnir dúsa. Ef við þurftum að fara á
klósettið fylgdi vopnaður vörður okkur.
Svo fór vélin til New York um klukkan
hálftiu um morguninn og ferð okkar
áleiðis til íslands var strax komin í
hnút,“ segir Einar.
Áfram héldu íslendingamir í varð-
haldinu. Næsta vél átti að fara frá Santo
Domingo klukkan 12.20. Útilokað var að
þeir kæmust með henni enda voru að-
eins tvö sæti laus þar.
„Loksins ákvað útlendingaeftirlits-
maðurinn að hringja sjálfur í sendiráð
Bandaríkjanna. Sendiráðsmaðurinn
krafðist þess að fá að tala við mig. Síð-
an spurði hann einfaldlega hvort ég
þekkti til herstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli. Ég hélt nú það - faðir minn
vinnur meira að segja þar. Síðan leyst-
ust hlutimir loksins - Bandaríkjamenn-
imir björguðu okkur.
En nú urðum við að fljúga til Flórída
og þaðan áfram til Boston til að ná vél
til íslands og allt á eigin kostnað," segir
Einar.
„Okkur var haldið nauðugum, neitað
um að hringja og mennimir héldu
greinilega að við værum frá einhveiju
landi, óvinveittu Bandaríkjunum. Við
vorum með gildan miða frá Icelandair -
þeir héldu bara að þetta væru fólsuð
gögn. Þetta var alveg með ólíkindum,"
sagði Einar Kristinn Einarsson. -Ótt
Eldisræktun á rjúpu ekki sögð myndu skaða rjúpnastofninn:
Ráðherra segir rjúpna-
rækt kærkomna búgrein
- þyrfti að breyta lögum sem eru „barn síns tíma“
Hlemmur frumsýndur
Ólafur Sveinsson frumsýndi í gærkvöld
heimildarmynd sína um Hiemm. Frumsýn-
ingargestir fögnuðu ákaft í iok myndar en
stjörnurnar stigu ekki á sw'ð gagnstætt
venju - heldur glöddust með höfundi á
Grand Rokk þar sem boðið var upp á
______bjór. Sjá gagnrýni bls. 21._
Gripinn
með vítamín
Lögreglan i Reykjavík handtók í
morgun innbrotsþjóf sem hafði látið
greipar sópa í heilsuvöruverslun í
Vesturbænum. Þjófurinn var vel tækj-
um búinn því hann beitti borvél til að
losa útihurð verslunarinnar. Öryggis-
vörður sá til hans og gerði lögreglu við-
vart. Hvort bætiefhaskortur hijáði
þjófinn skal ósagt látið en hann náðist
skömmu síðar - og reyndist vera með
töluvert magn vítamína og bætiefna á
sér. Hann var færður í fangageymslu
og verður yfirheyrður í dag. Vítamin-
þjófurinn mun ekki vera að koma í
fyrsta sinn við sögu lögreglunnar í
Reykjavik. -aþ
Skúli Magnússon, fasanaræktandi á
Tókastöðum á Héraði, segir að ræktun
rjúpu ætti ekki að vera vandamál hér-
lendis. Erlendis gangi orrarækt vel en
það er fugl skyldur ijúpunni. Alvarleg-
ar vísindalegar tilraunir til rjúpna-
ræktar hafa ekki verið gerðar á íslandi
en Skúli segir að menn hafi stundum
tekið rjúpnaunga og sett þá með venju-
legum íslenskum hænum og haft þá
lausgangandi. Þeir hafa margir hverjir
lifað fram á haustið en oftar en ekki
drápust þeir fljótlega.
„Bóndi norður í Eyjafirði gerði tvær
tilraunir en hann var of seinn að taka
rjúpnaunganna inn um haustið, því
um leið og fyrsti snjórinn kom í Kald-
bak flugu ungamir burtu. I Skandinav-
íu er verið að ala hæsnfugla, aðallega
orra, með ágætum árangri og með smá-
vegis aðstoð fræðimanna ætti það að
vera hægt. En löggjöfm bannar rjúpna-
rækt á íslandi svo það þarf að fá leyfi
til rjúpnaræktar," segir Skúli.
Veiðileyfi á fuglinn
Skúli veltir vöngum yfir því hvort
Rjúpnaræktun
Fasanabóndinn á Tókastööum á
Héraöi segir þaö ekki vandamál aö
rækta rjúpur hérlendis.
eldisrjúpa hefði sama bragð og villt
ijúpa, hvort villibragðið héldi sér.
Velta megi einnig vöngum yfir hvort
ekki mætti ala ijúpu eins og gert er
með fasana erlendis, þ.e. ala fuglinn og
sleppa síðan út í náttúrana og gefa sið-
an út veiðileyfi á fuglinn. í Bretlandi er
um 20 milljónum fasana sleppt árlega
og síðan kaupa menn veiðileyfi. Þannig
yrði rjúpan í náttúrlegu umhverfi þeg-
ar hún yröi veidd. Það getur Skúli ekki
gert með fasanana sem hann ræktar -
segir að allt sé bannað á íslandi. En yf-
irvöld verði að taka afstöðu til þess
hvort ijúpnaræktun verði leyfð.
Þykir vænt um rjúpuna
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segir að ekkert sé því til fyrir-
stöðu að leyfa ræktun á rjúpu, þetta sé
hænsnfugl og yrði bara kærkomin
aukabúgrein og ekkert athugavert við
þann búskap. Bann sé eitthvað sem sé
barn síns tima enda sé enginn munur á
því að rækta rjúpu, gæs, önd eða t.d.
kalkún.
„Það er kannski spuming hvort
þetta yrði eins heillandi jólamatur ef
þetta væri ekki villiijúpa. Kannski
hyrfi villibragðið. Ég hef aldrei borðað
rjúpur um jólin því mér þykir of vænt
um þennan fúgl til þess að borða
hann,“ segir landbúnaðarráðherra.
-GG
Stuttar fréttir
Fullkomin sprengjuleit
Fullkomið öryggis- og sprengjuleit-
arkerfi verður tekið í notkun í Leifs-
stöð um áramótin. Búnaðurinn var
kynntur í gær og undirritaði Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra nýja
neyðaráætlun fyrir Keflavíkurflug-
völl af því tilefni. Búnaðurinn kostar
um 210 milljónir og verða allur inn-
ritaður farangur gegnumlýstur.
Ál úr álgjalli
Fyrirhugað er að álfyrirtækið
Alur ehf. byggi upp verksmiðju í
Helguvik í Reykjanesbæ. Frum-
kvöðlar fyrirtækisins hafa þróað
viðskiptahugmynd sem byggist á
því að vinna ál úr álgjalli sem fell-
ur til í Straumsvík og á Grundar-
firði. mbl.is greindi frá.
Gegn klámvæðingu
Samráðshópur um
klámvæðingu veitti í
gær Guðrúnu Gunn-
arsdóttur sjónvarps-
manni viðurkenn-
ingu fyrir að veita
viðspyrnu gegn
klámi. Guðrún neit-
aði sem kunnugt er
að taka viðtal við klámmyndastjörn-
una Ron Jeremy á dögunum.
Áritun álsamnings
Samninganefndir Alcoa og
Landsvirkjunar funduðu í húsa-
kynnum Álcoa í Iðnaðarmannahús-
inu í gær. Stefnt er að áritun samn-
inganna í dag. mbl.is greindi frá.
Skjálftar í Mýrdalsjökli
Jarðskjálftar mældust í Goða-
bungu í vestanverðum Mýrdalsjökli
í gær og fyrradag. Alls komu fjórir
skjálftar fram á mælum Veðurstof-
unnar í gær og mældist sá stærsti
2,6 á Richter.
Sjónvarpsefni textað
Tómas Ingi 01-
rich menntamála-
ráðherra sagði á Al-
þingi i gær að hann
myndi beita sér fyr-
ir því að styrkja
stöðu íslenska
táknmálsins. Við-
ræður við RÚV um
textun sjónvarpsefnis hefjast í dag.
Það var Kolbrún Halldórsdóttir,
þingmaöur VG, sem bar fram fyrir-
spurnina á þinginu í gær.
Vísitalan lítt breytt
Vísitala neysluverðs er nánast
óbreytt frá síðasta mánuði. Það sem
hækkaði var húsnæði, húsaleiga og
tóbak en bensín, matur og drykkj-
arvörur lækkuðu. Hækkun á vísi-
tölu neysluverðs jafngildir 1,8%
verðbólgu á ári.
Auglýst eftir framboðum
Frjálslyndi flokkurinn auglýsti í
Morgunblaðinu eftir fólki sem hefur
áhuga á að skipa sæti á framboðslist-
um flokksins í öllum kjördæmum fyrir
komandi kosningar. Konur em einkum
hvattar til að bjóða sig fram. -aþ
f ókus
r»P3l Á MORGUN
Jólaföt
bernskunnar
í Fókus á morgun
er rætt við nokkra
þekkta einstaklinga
um eftirminnileg jóla-
fót og eftirminnileg
jól þegar þeir vom
talsvert yngri. XXX
Rottweilerhundarnir
em ekki á eins jóla-
legum nótum og rífa kjaft eins og þeim
er einum lagið í viðtali í blaðinu, við
tökum púlsinn á glænýjum Þjóðleikhús-
kjallara og segjum fréttir af væntanlegri
heimsókn nokkurra frægra uppistand-
ara til landsins á næsta ári. Þá kíkjum
við í tískuverslunina Dixie, segjum frá
nýlegri bók um kossa og könnum hvem-
ig hinni íslensku Rúnu gekk í fegurðar-
samkeppni sem hún tók þátt í í Lúxem-
borg.