Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 6
6
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Fréttir
Metbráðnun íss á Grænlandi í sumar:
Allur hafísinn á norðurpólnum
gæti horfið á þessari öld
Gervihnattamælingar NASA
Fyrsta myndin aö ofan til vinstri sýnir ástand íshettunnar yfir norðurpólnum á árun-
um 1979-1989. Fjólubláa svæöið í miöju myndarinnar sýnir 100% þéttleika íss
en græna svæöiö viö jaörana sýnir 26-38% þéttleika. Önnur mynd til hægri aö
ofan sýnir ástandiö 1990-2000. Myndin niöri vinstra megin sýnir mismun þess-
ara tímabila og myndin neðst til hægri sýnir spá NASA um íshettuna áriö 2050.
Haflsbreiðan á norðurpólnum
bráðnar nú hraðar en áður var
talið, eða um 9% á áratug, sam-
kvæmt rannsóknum NASA. Ef
heldur fram sem horfir verður
hafísinn, sem hylur nú verulegan
hluta Norðuríshafsins, horfinn
undir lok þessarar aldar. Þá var
einnig sögulegt met í bráðnun íss
á Grænlandi í sumar og hafa vis-
indamenn aldrei orðið vitni að
öðru eins. Þetta kom m.a. fram á
ráðstefnu Jarðeðlisfræðifélags
Ameríku, AGU (American
Geophysical Union), um síðustu
helgi.
Frá þessu er m.a. greint á vef
breska ríkisútvarpsins, BBC.
Alls mældist bráðnun á 685.000
ferkílómetrum af Grænlandsjökli
en það er meira en tvöfalt stærra
svæði en mældist 1992.
Lægðir yfir íslandi í lykilhlut-
verki
Samkvæmt rannsóknum NASA,
sem birtar eru á vef NASA News
og vef Goddard Space Flight Cent-
er, er talið að lægðakerfið yfir ís-
landi í samspili við hæðakerfi yfir
Azoreyjum gegni þarna lykilhlut-
verki. Lægðir sem ganga yfir ís-
land og norður með austurströnd
Grænlands hafa dregið með sér
heitt loft upp eftir Atlantshafi og
norður í íshaf og haft veruleg
áhrif á umhverfið í kringum ís-
land. Skiptar skoðanir hafa þó
verið um hver langtímaáhrif á
bráðnun heimskautaíssins hafi á
loftslagið hérlendis. Hins vegar
hafa íslendingar upplifað á síð-
ustu vikum þennan lægðastraum
með hlýtt loft úr suðvestri sem
náð hefur allt norður á Svalbarða.
Heita loftið ryður síðan á undan
sér köldum loftmassa sem streymt
hefur frá norðurpólnum suður
Skandinavíu, m.a. með frosti í
Þýskalandi. Enn meira flæði á
köldu lofti hefur verið fyrir vestan
okkur frá norðurpólnum og allt
suður til Bandaríkjanna. Rann-
sóknir NASA sýna að hitinn á
norðurheimskautinu hefur hækk-
að að meðaltali um 1,2‘C á áratug.
Aukin bráðnun iss á Grænlandi
er talin geta haft keðjuverkandi
áhrif. Þannig hripi vatn nú niður
í gegnum sprungur á íshettunni
og niður á yfirborð jarðar. Þar
virkar vatnið eins og smurolía
sem eykur skrið á isnum til sjáv-
ar. Mark Serreze, vísindamaður í
bandarísku snjó- og ís-upplýsinga-
miðstöðinni í Boulder í Colorado
segir að samkvæmt sínum út-
reikningum hafi hækkandi hita-
stig á jörðinni valdið 20% bráðn-
un á ís á norðurheimskautinu síð-
an 1978. Minnkun ísbreiðunnar
valdi síðan enn frekari hækkun á
hitastigi vegna minni útgeislunar
sólarljóss frá jörðinni.
Dr. Larry Hinzman, hjá Alaska-
háskóla í Fairbanks, segir heim-
skautaísinn gegna lykilhlutverki í
orkujafnvægi heimsins. „Minnk-
un heimskautaissins eru stórtíð-
indi,“ segir Hinzman. Hann segir
að ísbreiðan endurkasti um 80%
sólarljóssins á svæðinu. Við
bráðnun issins taki sjórinn nú við
aukinni geislun sem leiði til enn
frekari hlýnunar.
í fyrradag voru svo fréttir á
BBC um öra bráðnun jökla í And-
esfjöllunum í Bólivíu. Mælingar
sýni að jöklar nærri hæstu höfuð-
borg jarðar, La Paz, hafi á síðasta
áratug bráðnað tíu sinnum hraðar
en áratugina þar á undan. -HKr.
Gæslan leigi skip:
Langavitleysa
að mati FFSÍ
Hugmyndir um
að Landhelgis-
gæslan taki haf-
rannsóknarskipið
Bjama Sæmunds-
son á leigu til
gæslustarfa hafa
vakið óskipta at-
hygli. Ámi
Bjamason, for-
maður Far-
manna- og fiski-
mannasambands íslands, segir að
það sé svipað að taka hafrannsókn-
arskip til gæslustarfa og að setja
plástur yfir sár sem illt er hlaupið í.
„Þetta er bara yfirklór og betra að
sleppa þessu. Við eigum að nota
rannsóknarskipin til þess að hjálpa
okkur við fiskveiðar en ekki vera í
svona lönguvitleysu. Það eru allar
þjóðir i kringum okkur að stórauka
starfsemi á sviði landhelgisgæslu og
mengunarvama. Á sama tíma eram
við íslendingar á mígandi siglingu í
niðurskurðarátt og gjörsamlega á
skjön við það sem er að gerast um
alla Vestur-Evrópu," segir Árni.
Hann segir starfsmenn gæslunnar
segja að algjört lágmark sé að gera út
þrjú varðskip. „Það er löngu orðið tíma-
bært að marka Landhelgisgæslunni ein-
hverja stefnu og hvemig afgreiða á öll
þessi brýnu úrlausnarefni til frambúð-
ar,“ segir formaður FFSÍ. -GG
Árni Bjarnason.
Siglufjarðargöng ekki samtímis Reyðarfjarðargöngum:
Jarðgangagerð á Aust-
urlandi hefst í apríl
Jarðgöng miiii Ólafsfjarðar og Siglu-
íjaröar um Héðinsfjörð verða ekki boð-
in út samtímis jarðgöngum miili Reyð-
arfjarðar og Fáskrúðsíjaröar. Ekki er
eining um þetta mál innan þingflokka
stjómarflokkanna, Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks.
Upphaflega átti að bjóða gerð jarð-
ganganna út í síðasta mánuði en
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra
sagði á þriðjudag að ekkert væri af
frétta af málinu en vænta mætti til-
kynningar um það frá samgönguráðu-
neytinu á ailra næstu dögum.
Sumir þingmenn viija láta aðrar
framkvæmdir ganga fyrir, t.d. stytt-
ingu hringvegarins. Þannig hefur Ör-
lygur Hneflil Jónsson, varaþingmaður
Samfylkingarinnar, flutt tillögu um til-
færslu Norðurlandsvegar um Svín-
vetningabraut, sem styttir veginn um
22 km, og fyrr á árinu fjallaði Halldór
Blöndal, forseti Alþingis, um 85 km
styttingu sem m.a. fólst i tilfærslu veg-
arins um Kaldadal sem kostar um 8,1
milljarð króna. Sparnaður gæti numið
um 1,9 milljörðum króna á ári á móti
400 milljarða króna spamaði vegna 22
km styttingarinnar og þannig mundu
Orlygur Hnefill
Jónsson.
Guömundur
Hallvarösson.
þær framkvæmdir
borga sig upp á 5
árum. Einnig má
reikna með að
Þingeyingurinn
Örlygur Hnefill sé
áhugasamari um
jarðgöng undir
Vaðlaheiði en
Sigluflarðargöng
eða Fáskrúðsfjarð-
argöng.
Guðmundur Hallvarðsson, formað-
ur samgöngunefhdar Alþingis, segir að
fljótlega verði að vænta útboðs á gerð
jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fá-
skrúðsfjarðar og í febrúar á næsta ári
Sturla
Böðvarsson.
verða göngin á Norðurlandi boðin út.
Framkvæmdir fyrir austan ættu að
geta hafist í marsmánuði 2003, að öllu
forfallalausu. Heildarkostnaður fyrir
austan er áætlaður 3,8 milljarðar
króna en 6,8 milljarðar króna fyrir
norðan.
„Það hefur enginn alvarlegur
ágreiningur verið um þetta mál meðal
stjómarliða og ekkert verið rætt innan
þingflokks Sjálfstæðisflokks að undan-
fórnu. Menn eru þó sammála um að
hella sér í jarðgangagerðina fyrir aust-
an. Þaö getur því orðið ansi liflegt í
Reyðarfirði á næsta ári ef einnig verð-
ur hafist handa um byggingu álvers.
Þá verður Egilsstaðaflugvöllur mikil
umferðarmiðstöð,“ segir Guðmundur
Hallvarðsson.
Guðmundur segir að samgöngu-
nefnd hafi ekkert fjallað um hugmynd-
ir um jarðgöng undir Vaðlaheiði, frá
Eyjafirði til Fnjóskadals, enda taki for-
svarsmenn þeirrar hugmyndar skýrt
fram að þeir ætli ekki að reyna að
bregða fæti fyrir forgangsröðun jarð-
gangaframkvæmda. Þær framkvæmd-
ir mundu þó styrkja mjög Eyjafjarðar-
svæðið og nágrannabyggðimar. -GG
111«
VAGNHÖFÐA 23 • SÍMI 590 2000 • WWW.BENNI.IS
T31 \j v£ ijíi JnrJöJJ
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 15.32 14.46
Sólarupprás á morgun 11.12 11.27
Síödegisflóó 12.53 17.26
Árdegisflóð á morgun 01.32 05.65
Vægt frost
Suðlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13
vestan til á landinu. Smáskúrir
sunnanlands og rigning með köflum
vestanlands en léttskýjað á
Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til
8 stig en sums staðar vægt frost
noröan- og austanlands.
Skúrir
Suðlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13
vestan til. Rigning með köflum
vestanlands en léttskýjað á
Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til
8 stig.
Veðriö n
Laugardagur Sunnudagur Mánudagur
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,»-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
AKUREYRI heiöskírt 2
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK skýjaö 6
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 0
KEFLAVÍK hálfskýjaö 5
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 3
RAUFARHÖFN heiösklrt 0
REYKJAVÍK skúr 5
STÓRHÖFÐI úrkoma í gr. 6
BERGEN heiöskírt -5
HELSINKI skýjað -1
KAUPMANNAHÖFN snjókoma -2
ÓSLÖ léttskýjaö -13
ST0KKHÓLMUR -6
ÞÓRSHÖFN léttskýjað 6
ÞRÁNDHEIMUR rigning 3
ALGARVE heiðskírt 8
AMSTERDAM hálfskýjað -6
BARCELONA heiöskírt 7
BERLÍN heiðskírt -9
CHICAGO heiðskírt 0
DUBLIN alskýjað 5
HALIFAX skýjað -3
HAMBORG heiöskírt -6
FRANKFURT léttskýjaö -8
JAN MAYEN léttskýjaö 5
LONDON mistur 3
LÚXEMBORG skýjaö -6
MALLORCA léttskýjaö 10
MONTREAL heiöskírt -3
NARSSARSSUAQ léttskýjað -7
NEW YORK súld 4
ORLANDO alskýjaö 14
PARÍS þokumóöa 2
VÍN þokumóða -6
WASHINGTON hálfskýjaö 1
WINNIPEG heiöskírt -9