Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Síða 19
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
19
DV
Tilvera
•Tónleikar
M200.000 naglbítar á Gauknum
200.000 naglbítar mæta á Gauk á stöng i kvöld.
Sveitin mun spila nýtt efni sem hún ætlar aö
taka upp í janúar og gefa út næsta vor. Minnum
á að þaö má einnig heyra i strákunum á Grand
Rokk á laugardagskvöld.
■íslensku dívurnar á íólatónleikum í
Hallgrímskirkiu
Geislaplatan Frostrósir er ein stærsta tónlistar-
útgáfa sem gefin hefur veriö út á Islandi. Is-
lensku dívurnar eru þær Védís Hervör, Margrét
Eir, Guðrún Árný, Vaigerður Guðnadóttir og
Ragga Gísla. Á geislaplötunni eru fallegir jóla-
sálmar settir í giæsilegan viðhafnarbúning og
nýjar jólaperlur lita dagsins Ijós. Flytjendur auk
dívanna eru félagar úr Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, fjöldi annarra hljóðfæraleikara, félagar úr
Karlakórnum Fóstbræðrum, Vox femlnae og
gospelkór Fíladelfíu. Geislaplatan var teklnn
upp á alls 8 stööum og hátt á annað hundraö
einstaklingar komu að gerð hennar. Jólatónleik-
arnir í Hallgrímskirkju í kvöld verða hinir glæsileg-
ustu, i stíl við plötuna. Alls koma um 200 manns
fram á tónleikunum.
■Útgáfutónleikar Sesars A á Grand
Rokk
Rapparinn Sesar A heldur útgáfutónleika vegna
breiðskífunnar Gerðuþaðsjálfur á Grand Rokk i
kvöld. Auk Sesarsins koma fram Móri, Bæjarins
bestu, Messíaz MC, Vivid Braln og fleiri góðir
gestir. 500 kall inn.
■Kammerkór Langholtskirkiu
Útgáfutónleikar verða í Langholtskirkju kl.
20.30 í tilefni af nýjum hljómdiski sem Kam-
merkór Langholtskirkju gefur út.Aðgangur er
ókeyþis og verður nýi diskurinn til sölu..
•Uppákomur
■Unplestur og iass
Á aðventunni leggja
Kringlusafnið, Eymunds-
son, Kringlan og Borgar-
leikhúsið saman krafta
sína og bjóða uþp á nota-
lega kaffihúsatemningu í
anddyri Borgarleikhússins
þar sem rithöfundar lesa
upp úr nýjum þókum sínum
og Ijúfir jasstónar ramma
inn stundina. Kl. 20 iesa
rithöfundarnir Arnaldur Ind-
riðason, Einar Már Guð-
mundsson, Einar Kárason, Guðrún Eva Mínervu-
déttir, Stefán Máni og Þórarinn Eldjárn. Fyrir
upþlestur og í hléi er boðið uþþ á jasstónlist og
hægt verður að kaupa veitingar við hæfi hvers og
eins.
■Lióðakvöld á Dubliners
Á efri hæð Dubliners, Hafnarstræti, verður hald-
ið Ijóðakvöld sem hefst kl. 20. Þeir sem lesa
upp eru: Baldur Óskarsson, Bjarni Bernharður,
Einar Már Guðmundsson, Hallberg Hallmunds-
son, Hrafn Jókulsson (les úr Flugum), Ingibjörg
Haraldsdóttir, ísak Harðarson, Kristján Eiríks-
son (fyrirlestur), Norma E. Samúelsdóttir, Sig-
tryggur Magnason, Sigmundur Ernir Rúnars-
son, Steinn K og Þorsteinn frá Hamri.
■Jólabasar í Nvlistasafninu
Nú gefst færi á að finna aldeilis sérstakar jóla-
gjafir handa vinum og vandamönnum, nú eða
bara manni sjálfum. Stjórn Nýlistasafnsins hefur
ákveöið að nota neðra rými safnsins við Vatns-
stíg undir markað fram til jóla. Þar munu m.a.
listamenn og hönnuðir vera með ýmsa muni til
sölu. Hugmyndin er að sem flestir taki þátt,
þannig að úrvalið verði sem fjölbreyttast og að
auk listaverka verði boðið uþp á hönnun, tónlist,
bækur, plaköt, sýningarskrár, póstkort, gamalt
og nýtt í bland. Þá verður staðið fyrir ýmsum
uppákomum í safninu sem verða nánar auglýst-
ar síðar en opnunarkvöldið I kvöld verður boðið
upp á tónlistarflutning, jólasveinar verða á
staðnum og sitthvað fleira. Húsið verður opnaö
kl. 20 og er aðgangur auðvitað ókeypis. Jólabas-
ar Nýlistasafnsins veröur svo opinn í takt við
verslanir í bænum allt til jóla.
Krossgata
Lárétt: 1 öruggur, 4 blót,
7 hróps, 8 áburður,
10 samur, 12 barði,
13 stundi, 14 hreint,
15 bjargbrún, 16 kjáni,
18 aldurinn, 21 stjóma,
22 geðjist, 23 loddara.
Lóðrétt: 1 vogur,
2 henda, 3 játaði,
4 bráðlátt, 5 reykja,
6 eyktamark, 9 hóp,
11 birgðir, 16 fantur,
17 beiðni, 19 skjól,
20 miskunn.
Lausn neðst á síöunni.
Umsjón: Sævar Bjarnason
Hvltur á leik!
Spænska deildakeppnin i skák,
fyrri hluti, var tefld i síðustu viku.
Þar mættu flestir af sterkustu skák-
mönnum Spánvetja og nokkrir aðrir
allt frá Rússlandi tO innstu afkima
Efnahagsbandalagsins. Þessi skák er
mjög athyglisverð. í henni eigast við
2 af sterkustu skákmönnum Spánar,
fyrir utan Alexei Shirov sem óum-
deilanlega er bestur enn þar um slóð-
ir. Francisco Vallejo Pons er aðeins
tvitugur en andstæðingur hans hefur
veriö með lengi. Skákin er gott dæmi
um baráttu á opinni linu og svo kem-
ur laglegur lokahnykkur í stöðunni
hér að ofan.
Hvítt: Miquel IUescas Cordoba (2585)
Svart: Francisco Vallejo Pons (2635)
Kóngs-indversk vöm.
Spænska deildakeppnin.
Mondariz, Spáni (4), 03.12. 2002
1. d4 d6 2. RÍ3 Bg4 3. c4 Rd7 4.
Rc3 Rgf6 5. e4 e5 6. Be2 Be7 7. 0-0
0-0 8. Be3 c6 9. d5 Db8 10. Rd2
Bxe2 11. Dxe2 Bd8 12. b4 Bb6 13.
Rb3 cxd5 14. cxd5 Hc8 15. Hfcl
Bxe3 16. Dxe3 Rb6 17. Rb5 Rc4 18.
De2 a6 19. Ra7 Dxa7 20. Hxc4 Hxc4
21. Dxc4 b6 22. Hcl h5 23. h3 a5
24. b5 a4 25. Rd2 Da5 26. Rf3 a3 27.
g3 Da4 28. Rg5 g6 29. Dc7 Hf8 30.
De7 Rxe4 (Stöðumyndin) 31. Hc8 1-0
Lausn á krossgátu
'ö?u 08 ‘JEA 61 ‘3SO U ‘joj 91
‘iqjoj tl ‘UQtJ 6 ‘uou 9 ‘eso s ‘uæjiofo p ‘ijuutsures e ‘oifs z ‘3!A I újaJQoq
Qru} eZ ‘!M!l ZZ ‘bjájs iz ‘utAæ 8t ‘uoq 91
‘jou si ‘jiæj.pt ‘jhqj £i ‘Qis z\ ,‘ujef ot ‘maaiia SlRI i t ‘ssja l ujaapq
Hinn eini sanni
Hugsið ykkur bara forréttindi okk-
ar íslendinga að eiga okkar eigin
alvörujólasveina út af fyrir okkur en
ekki einhvern ímyndaðan feitan og
asnalegan Santa-Kláus sem flýgur um
himinhvolfið á hreindýrasleða og
segir hó hó.
Þvílík vitleysa. Hver kannast svo
sem við hreindýrategund sem getur
flogið? Hún var alla vega ekki í
minni dýrafræði, hvað þá síður
hreindýr með rautt nef. Þetta er bara
plat og þó að ekki hafi enn verið bor-
in kennsl á 300 þúsund dýrategundir,
eins og einhver fræðimaðurinn hélt
fram þá er ólíklegt að þar á meðal
leynist fljúgandi hreindýr. í mesta
lagi örverur og pöddur sem ekkert
hafa með jólin að gera.
Það er því deginum ljósara að
„jólasveinninn", eða réttara sagt jóla-
sveinarnir, er okkar og allt annað
því hreinn hugarburður og vitleysa.
Hvernig ætti einn Santa-Kláus svo
sem að geta dreift gjöfum til um
tveggja billjóna barna í heiminum á
innan við 31 klukkustund eins og
honum er ætlað með tilliti til tíma-
mismunar milli tímabelta.
Það er útlokað og þótt börnin væru
kannski eitthvað færri, að frádregum
múslímum, gyðingum, hindúum,
búddistum og öðrum sem ekki trúa á
sveinka, þá væri það samt útilokað,
sama hve göldróttur Kláus væri.
Ef við gefum okkur að aðeins 15%
jarðarbúa trúi á jólasveininn þá eru
það um 378 milljónir manns sem þýð-
ir að heimilin eru alls um 92 milljón-
ir samkvæmt alþjóðlegum stöðlum.
Það sér hver heilvita maður að þetta
er vonlaust þó aðeins eitt gott barn
sé á hverju heimili. Til þess að ná því
þyrfti Kláus að komast yfir meira en
800 heimili á sekúndu sem þýðir að
hann yrði að keyra hreindýrin í botn
eða á þrjú þúsund sinnum hljóöhraða
með yfirhlaðinn sleða af gjöfum sem
hver um sig hlýtur að vera að
minnsta kosti hálft kíló. Það þýðir 46
þúsund tonna hlass í upphafl ferðar
plús Kláus feiti.
Þvílík della! Má ég þá frekar biðja
um einn á dag í þrettán daga, hvern
og einn með sinn poka á bakinu. Kom
ekki sá fyrsti í morgun?
Erlingur
Kristensson
blaöamaöur
Myndasögur
3
O
Brabra I
Brabra II
Brabra III
Brabra IV
Brabra V
Brabra VI
Nú þoli ég ekki meir!