Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2002, Blaðsíða 32
ai
öra
w w
r a
! b
Viðbótarlífeyrissparnaður
FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 2002
Efnalitlir og tekjulágir borga best:
Viðbótarlán í betri
skilum en önnur
Minni vanskil eru á viöbótarlán-
um íbúðalánasjóðs en að meðaltaii
hjá sjóðnum. Þeir sem fá viðbótar-
lán eru með öðrum orðum skilvísari
greiðendur að meðaltali en aðrir
viðskiptavinir íbúðalánasjóðs. Þetta
kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu
sjóðsins.
Viðbótarlán eru sem kunnugt er
veitt fyrir allt að 25% af kaupverði
eignar og getur lánshlutfali þá sam-
tals orðið allt að 90% af kaupverð-
inu. Þau eru ætluð eignaiitlu og
Moka upp loðnu
Góð loðnuveiði var í nótt 47 sjómíl-
ur norður af Melrakkasléttu. Þar voru
einir tíu nótabátar í feitri og fallegri
loðnu ásamt Hólmaborginni og Jóni
Kjartanssyni sem eru með flottroll.
Nótabátarnir veiða mest að nætur-
lagi en í flottrollið er veitt allan sólar-
hringinn ef því er að skipta. Hólma-
borgin var komin meö 1.500 tonn í
morgun og menn bjuggust við að fylla
í dag, skipið tekur um 2.400 tonn. Jón
Kjartansson var með 700 tonn en hann
kom á hádegi í gær á miðin. -ET
Bílvelta á
Þrengslavegi
Bílvelta varð á Þrengslavegi,
skammt ffá Skógarhlíðarbrekku, um
áttaleytið í morgun. Ökumaður var
einn í bílnum og hlaut hann skurð á
höfði. Meiðsl hans voru að sögn lög-
reglu ekki talin mjög alvarleg. Tölu-
vert tjón mun hins vegar hafa orðið á
bílnum. -aþ
dagar til jóla
Yfir 150
fyrirtæki
KriKa(co\
Oj
iíj/i
ER með/hlli fyrir júlin
OG VERÐUR DAVIÐ
RÁ SETTUR
SÖND?
tekjulágu fólki og er miðað við aö
mánaðartekjur einstaklings séu
ekki hærri en 185.000 krónur.
Ails hafa 6.300 fjölskyldur hlotið af-
greiðslu úr viðbótarlánakerfinu. Gíf-
urleg eftirspurn hefur verið eftir
þessum lánum og hefur ásókn vaxið
um tugi prósenta árlega. Heildar-
skuldir viðbótarlánþega - þ.e. viðbót-
arlánin að viðbættum nýjum og yfir-
teknum húsbréfalánum þeirra sem
hljóta slík lán - hafa hækkað úr 32,5
miiljörðum króna i lok mars í rúma
46,6 milljarða í lok nóvember. Hækk-
unin nemur 43% á síðustu átta mán-
uðum en á sama tíma var útlánavöxt-
ur íbúðalánasjóðs í heild um 7%.
Hlutfall viðbótarlána er samt enn
það lágt - og lánaflokkurinn svo nýr
- að það getur skekkt samanburð á
skilvísi lánþega, segir í mánaðar-
skýrslu sjóðsins. Þó hafi skoðun á
vanskilum eftir aidri viöbótarlána
ekki leitt annað í ljós en að viðbót-
arlánþegar séu „með skilvísari við-
skiptavinum." -ÓTG
DV^IYND HARI
Soöiö fyrir bragðprófun
Bragögæöingar DV brögöuöu á hangikjöti og hamborgarhrygg nú í morgun og
munu lesendur sjá niöurstööur þeirrar smökkunar í blaöinu á morgun. Vand-
aö hefur veriö til undirbúnings bragöprófunarinnar. Sáu meistarakokkarnir
Siguröur Karlsson og Gunnlaugur Guömundsson um að sjóöa kjötiö meöan
blaöamaður fyigdist meö. Sigurður hugar hér aö kjötinu vopnaöur kjöthita-
mæli. Um blindsmökkun er aö ræöa en aöeins kokkarnir og blaöamaður vita
hvaöan hvert kjötstykki kemur.
Sigurður Líndal lagaprófessor:
Island dæmt inn í ESB?
Sigurður Líndal.
Ýmislegt bend-
ir til þess að að-
ildarríki EES
hafi afsalað sér
mikiivægum
þáttum fullveldis-
ins í hendur
dómsvalds Evr-
ópusambandsins
og EES, að mati
Sigurðar Líndals
lagaprófessors.
Evrópusambandið heldur hvort ís-
land verði í reynd dæmt inn í það?“
sagði Sigurður.
I erindi sínu á fullveldissamkomu
stúdenta í Háskóla íslands benti
Sigurður á, að í EES-samningnum
sé gert ráð fyrir að hann sé túlkað-
ur í samræmi við reglur ESB og
stefnt að því að tryggja sem mest
samræmi milli reglna EES og ESB.
EFTA-dómstóllinn hljóti að taka
mið af því.
„Verður niðurstaðan ef til vill sú
að málið snúist ekki um inngöngu í
Ný söguskoðun
„Fullveldið varð þjóðinni til fram-
dráttar á flestum sviðum," sagði
Sigurður. „Það sýnir reynslan, en
nú er það vefengt og ný söguskoðun
birtist: Sjálfstæðisbarátta íslend-
inga snerist um formið. Forystu-
menn íslendinga hafa verið spilltir
og þröngsýnir og eigingjamir aftur-
haldsseggir," sagði Sigurður og
spurði í framhaldinu hvort menn
teldu þá Evrópusambandið vera
samband heilagra.
Óljós umræða
Sigurður gat þess að valinkunnir
fræðimenn fullyrtu að EES-samning-
urinn entist i mesta lagi í 10 ár, en
ekki væri vitað hvemig þeir vissu
þetta. „Getur verið að Evrópusam-
bandið verði liðið undir lok eftir 10
ár? Menn tala í tilgátum en undir-
stöður orðræðunnar em óljósar."
Þá spurði Sigurður hvort líklegt
væri að áhrif fylgdu aðild að ESB
fyrst menn teldu að EES-samning-
urinn fæli í sér áhrifaleysi, þrátt
fyrir skýr ákvæði um annað.
Um framtíð þjóðríkisins sagði
Sigurður ekki útilokað að efnahags-
heildir sem telja mætti hentugastar
undirstöður verkaskiptingar kynnu
að leysa það af hólmi.
„Ef til vill á eftir að rísa sambands-
ríki Norður-Atlantshafsins sem verð-
ur stórveldi á sviði fiskveiða og nýt-
ingar hvers konar sjávarfangs og
innan vébanda þess ríkis verða
Grænland, ísland, Færeyjar og Norð-
ur-Noregur og ef til viil Nýfundna-
land,“ sagði Sigurður i lokaorðum
sínum á fullveldisdaginn. -ÓTG
Trommuleikari „Kyrkja-Köttinn“ í stríði við yfirvöld á Ólafsfirði:
„Böggaður" af sýslumanni
fýrir að spila í Glaumbæ
- fær að spila óáreittur í öðru umdæmi - í Böggveri á Dalvík
Mikið stríð er í gangi á Ólafsfirði
milli sýslumannsins, Ástríðar Gríms-
dóttur, og félaga i hljómsveitinni eða
fjöllistahópnum „Kyrkja-Köttinn."
Snýst deilan um hvort trommuleikara
hljómsveitarinnar, Hauki Pálssyni, sem
er á sautjánda ári, sé heimilt að spila
með sveitinni á böllum á vinveitinga-
staðnum Café Glaumbæ á Ólafsfirði og
það í fylgd foreldra sinna. Á sama tima
hefur hann fengið að spila óáreittur í
umdæmi sýslumanns á Akureyri, á
veitingastaðnum Böggveri á Dalvík.
Deilan virðist vera mjög hörð og að
sögn eins hljóðfæraleikarans, Braga
Óskarssonar, hafa þeir leitað álits Þor-
steins Hjaltasonar lögfrceðings, Bama-
vemdarstofu og sýslumanns á Akureyri
vegna málsins. Virðist álit þessara aðila
ganga þvert á tiUkun sýslumannsins á
Ólafsfirði á gildandi lögum og reglum.
Sýslumaður neitar þessu í samtali
við DV og segist í einu og öllu vera að
fara að lögum um aðbimað, hollustu-
Haukur Pálsson trommuleikari
Hann er nógu gamall, aö mati sýslu-
manns, til aö mega fara meö foreldrum
sínum á vínveitingastað en ekki nógu
gamall til að sitja þar við trommuleik.
hætti og öryggi á vinnustöðum. Sam-
kvæmt þeim megi pilturinn ekki starfa
á vínveitingastað eftir klukkan 24. Þá
snúist málið ekki um piltinn eða
hljómsveitina sem slíka heldur að veit-
ingastaðurinn fari að settum lögum og
reglum til að halda skemmtanaleyfi
sínu. Ástriður sýslumaöur viðurkenn-
ir þó að pilturinn megi vera á vínveit-
ingastaðnum í fylgd foreldra sinna en
megi þó ekki vera þar við störf. Þá seg-
ir hún að undanþága laganna varðandi
menningarstarfsemi og listir giidi ekki
í þessu tilfelli þar sem spilað sé á vin-
veitingastað í fullum rekstri. Giidi þá
einu þó flokka megi störf hljómsveitar-
innar sem slíkrar imdir menningar-
eða listviðburði.
„Það er búið að bóka okkur til að
spila í Glaumbæ annan í jólum á árs-
hátíð vélsleðamanna. Það er nú allt í
uppnámi ef Haukur fær ekki að spila.
Það hafa verið endalaus vandræði í
samskiptum við þennan sýslumann,"
segir Bragi Óskarsson. Hann segir að
eigendur Glaumbæjar, Dagbjört Gísla-
dóttir og Jakob Agnarsson, hafi viljað
vera með það á hreinu að Haukur
mætti spila. Bragi tekur hins vegar
fram að aldrei hafi annað staðið tii en
að Haukur yrði í fylgd foreldra sinna
við spilamennskuna í Glaumbæ. HKr.
Sjá nánar bls. 4
Tilboðin kosta
50-100 milljónir
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsvirkjun má gera ráð fyrir að
það hafi kostað um 50 til 100 miiljón-
ir króna að gera tilboð í gerð stíflu
og aðrennslisganga vegna Kára-
hnjúkavirkjunar.
Sem kunnugt er bárust fjögur til-
boð í verkið og voru þau opnuð á
fostudag. Athygli vakti hve tilboðin
voru mikil aö umfangi. Þannig var
tilboð ítalska fyrirtækisins Impreg-
ilo borið inn í þremur töskum.
Ef miðað er við 50 milljónir jafn-
gildir upphæðin því að tólf starfs-
menn með 350.000 króna mánaðar-
laun hafi unnið að verkinu í heilt
ár. Ef miðað er við 100 milljónir
jafngildir það öllum kostnaði við
rekstur Verkmenntaskóla Austur-
lands á einu ári, svo að dæmi sé tek-
ið.
En þótt dýrt sé að gera tilboð í
framkvæmdina er upphæðin þó ekki
nema einn til tveir þúsundustu (0,1
til 0,2%) af áætluöum heildarkostn-
aði við framkvæmdirnar, sem er 50
milljaröar króna. Tilboðin hljóðuðu
upp á 44 til 73 milljarða og var tilboð
Impregilo lægst. -ÓTG
Norðurpólsísinn
er að hverfa
Hafisbreiðan á norðurpólnum
bráðnar nú hraðar en áður var talið,
eða um 9% á áratug, samkvæmt
rannsóknum NASA. Þar gegnir
lægðakerfið yfir íslandi lykilhlut-
verki. Þá var sögulegt met í bráðnun
iss á Grænlandi í sumar og hafa vís-
indamenn aldrei orðið vitni að öðru
eins. Alls mældist bráðnun á 685.000
ferkílómetrum af Grænlandsjökli en
það er meira en tvöfalt stærra svæði
en mældist 1992. Þetta kom m.a.
fram á ráðstefnu Jarðeðlisfræðifé-
lags Ameríku, AGU (American
Geophysical Union), um síðustu
helgi. -HKr.
Sjá nánar bls. 6
Sjálfvirk slökkvitæki
fyrír sjónvörp
Sími 517-2121
H. Blöndal ehf.
Auðbrekku 2 - Kópavogi
Innflutningur og sala - www.hblondal.com
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
SECURITASl
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
*
*
*
*