Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 36
Viðbótarlífeyrissparnaður
Allianz dii)
Loforð er loforð
Sími: 533 5040 - www.allianz.is
Miklir möguleikar
gervihnattasjónvarpsins
bjóða upp á fjölbreytta dagskrá
Verðfrá
39.900,
OREIND
SOTl
m
AuöteekKaí - Kópavogur
siffli 5641660
RÚV segir „Evróprís“:
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
Europris skal
það heita
Laust fyrir fréttir Útvarpsins
klukkan 16 í gær var í tvígang lesin
■ *■ auglýsing frá fyrirtækinu „Evr-
óprís“. Þulur breytti nafni
Europris-verslananna til samræmis
við það sem hann taldi rétt málfar.
Matthías Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Europris, sagðist við
DV ekki hafa heyrt þetta en hann
hefði lesið textann yfir áður en
hann var sendur Útvarpinu og þar
hefði þá staðið „Europris".
„Þetta er skandinavíski fram-
burðurinn og við notum hann,“ seg-
ir Matthías og bætir við að sumir
breyti „pris“ í „price“ upp á ensku
en það sé heldur ekki rétt.
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir
þulur segist hafa vikið frá skrifuð-
um texta að vel hugsuðu máli. Orð-
ið „euro“ væri eðlilegt á undan
hinu engilsaxneska „price" en á
undan „pris“ hlyti að eiga að segja
„evró“. En fyrst hún heiti
„Europris" verði það vitanlega lesið
þannig hér eftir. -ÓTG
dagar til jóla
Yfir Hj CA
fyrirtæki
!t MEI /llll lllll lllll
C^EIR GETA ÞÁ
PRI6AÐ SIG SÆLA!
Sýning í rústum
Slökkviliðsmenn voru með uppá-
komu í brunarústunum á Laugavegi
40 á laugardag. Sýndar voru ljós-
myndir á hvítu tjaldi af brunanum
sem þarna varð fyrir stuttu og fólk
frætt um brunavarnir. Fjölmargir
skoðuðu sýninguna.
„Markmiðið var að leiöbeina fólki
um brunavamir á heimilum. Því
miður hittum við þarna fólk, meðal
annars barnafólk, sem ekki hafði enn
komið sér upp brunavörnum," sagði
Baldur Baldursson sem stjórnaði
sýningunni. Slökkviliðið, trygginga-
félög og fjölmiðlar taka höndum sam-
an á þessum viðkvæma árstima til að
efla brunavarnir. Á laugardag verður
enn sýning á sama stað og standa
vonir til að Bubbi Morthens skemmti
þar ásamt Eldbandinu. -JBP
Austurvöllur í jólabúningi
Ljósadýrð setur nú sterkan svip á Austurvöll og er þar afar jólalegt um að litast. Óslóartréð skartar aö venju ótal jólaperum og birkitrén eru fagurlega skreytt
Ijósakeðjum. Þá eru Alþingishúsið og Dómkirkjan upplýst svo að hjarta borgarinnar líkist helst undraveröld.
Nokkuð um ólöglega tónlist í auglýsingum:
Geta átt háar fjár-
kröfur yfir höfði sér
- segir Eiríkur Tómasson, framkvæmdastjóri STEFS
„Við fáum oft ábendingar
um þetta. Við könnum þær
og það hefur komið í ljós að
stundum hafa þetta verið
ólögmæt not,“ segir Eiríkur
Tómasson, framkvæmda-
stjóri STEFS spuröur um
hvort algengt sé að tónlist
sé notuð í auglýsingum án
leyfis.
„Við látum menn vita og
Eiríkur
Tómasson.
þá hætta þeir annaðhvort notkun á
tónlistinni eða verða sér úti um
leyfi. Þegar verið er að nota þekkt
lög eru stundum alls ekki veitt leyfi
en í öðrum tilvikum setja rétthafar
fram svo háar kröfur um
greiðslu að enginn hér á
landi getur staðið undir því.
Erlendis átta menn sig ekki
á hvað þetta er lítill markað-
ur,“ segir Eiríkur.
Eiríkur segist ekki vita til
þess að mál af þessu tagi
hafi farið fyrir dómstóla.
Hins vegar verði menn að
gæta sín þvi þeir geti átt yfir
höfði sér háar fjárkröfur. Hann seg-
ir ómögulegt að nefna dæmigerða
upphæð sem krafist sé vegna notk-
unar á þekktri tónlist í auglýsing-
um. Rætt hafi verið um að koma á
taxta varðandi innlenda tónlist en
ekki hafi náðst samstaða um það
meðal rétthafa.
STEF - Samband tónskálda og
eigenda flutningsréttar - getur veitt
leyfi til flutnings tónlistar í „hlut-
lausu samhengi" og kemur greiðsl-
um fyrir það til skila til viðkomandi
rétthafa. Stef hefur hins vegar ekki
umboð til að leyfa að tónlist sé not-
uð í auglýsingum því þá kemur svo-
kallaður sæmdarréttur til sögunn-
ar; ekki er gert ráð fyrir að eigandi
flutningsréttar samþykki að tónlist-
in sé notuð til að auglýsa hvaða
vöru sem er. -ÓTG
400 stoppaðir á Akureyri:
Einn stútur
„Það er ljóst að þessum málum hef-
ur blessunarlega fækkað," sagði lög-
reglumaður á Akureyri í gærkvöld
en lögreglan nyrðra gerði umferðará-
tak á fóstudags- og laugardagskvöld.
Alls voru 400 bilar stöðvaðir þessi
tvö kvöld og reyndist aðeins einn
ökumaður vera í ástandi sem benti
til ölvunar við akstur. Ökumenn
tóku vel í þetta átak lögreglunnar.
Nokkrir höfðu trassað aðalskoðun,
voru ekki með ökuskirteinið eða með
bilaðan ljósabúnað. -JBP
Lrother nerkloélln 1
ftjrlr fagmenn
ogfyrirtœki,
helmili og
skólrt, fgrir röð
ogregtu.mig
og þig. 1
I ngbgtauegi 14 • slml 554 4443 • if.is/rafporl i
Rafoort
Storkurinn Styrmir í Breiðdal:
I fæöi hjá fuglaveiðimönnum
Ekki hefur enn tekist að fanga
storkinn Styrmi sem hefst enn við á
jöröinni Ásunnarstöðum í Breiðdal.
í gær var hitinn aðeins um frost-
mark, héla á pollum og frosthula á
grasi en fram til þessa hefur verið
hlýtt eystra. Storkurinn er byrjaður
að taka æti sem fuglaveiðimennirn-
ir hafa lagt fyrir hann, síld og dauða
hænuunga. Ljóst er að ef jörð frýs
minnkar aðgengi storksins að fæðu
en hann þarf 250 grömm á dag.
„Ég sé að storkurinn er beygju-
legri en hann var, hann hefur
horast frá því fyrst þegar hann kom
DV-MYND BRYNJULFUR BRYNJÖLFSSON
Styrmlr
Storkurinn Styrmir á göngu.
í haust,“ sagði Rúnar Ásgeirsson,
bóndi á Ásunnarstöðum, i gær-
kvöldi. Hann hefur komist mjög ná-
lægt storkinum. „Hann hefur verið
þetta fimm metra frá mér, ég ók
fram á hann í myrkrinu og reyndi
ekki að nálgast hann meira,“ sagði
Rúnar.
Ólafur K. Nielsen, vistfræðingur í
Náttúrufræðistofnun, sagði í gær-
kvöldi að reynt yrði í dag, mánudag,
að ná fuglinum en ekki gat hann
sagt hversu lengi þeir félagar, hann
og Þorvaldur Bjömsson, reyndu fyr-
ir sér. -JBP
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securiias.is
112
EINN EINN TVEIR
I.WJilliHii
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ