Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2002, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 16. DESEMBER 2002
DV
13
Útlönd
CIA er heimilt aö drepa Osama bin Laden hvar og hvenær sem er:
Bush samþykkir dauða-
lista hryðjuverkamanna
- aðstoðarforsætisráðherra Iraks segir Bush hræsnara
George W. Bush Bandarlkjaforseti hef-
ur heimilað CIA, bandarísku leyniþjón-
ustunni, að myrða meira en tug meintra
hryðjuverkamanna samkvæmt nafna-
lista sem æðstu yfirvöld hafa útbúið, eft-
ir því sem kom fram i bandarískum fjöl-
miðlum í gær. Samkvæmt heimildum
New York Times eru leiðtogi al-Qaeda-
samtakanna, Osama bin Laden, og næst-
ráðandi hans, Ayuman al-Zawahri,
meðal þeirra.
Blaðið sagði einnig að morðheimildina
mætti nota ef handtaka væri óæskileg og
að manntjón almennings væri í lágmarki
en fyrir um hálfu ári voru 6 meintir liðs-
menn al-Qaeda drepnir þegar eldflaug
var skotið að bifreið þeirra í Jemen.
Árið 1976 bannaði Gerald Ford, þáver-
andi Bandaríkjaforseti, slík launmorð en
þar sem mennirnir á listanum eru skil-
greindir sem stríðsóvinir þarf CIA, sam-
kvæmt heimild forsetans, ekki að leita
samþykkis hans í hvert skipti sem
ákveðið er að láta til skarar skríða.
Einn sexmenninganna í Jemen, Abu
Ali, er grunaður um að hafa átt stóran
hlut í árás al-Qaeda á bandaríska her-
skipið Cole í Jemen fyrir tveimur árum
og mun nafn hans hafa verið á listanum.
Aðstoðarforsætisráðherra íraks, Tareq
Aziz, sagði í gær að Bush væri ekkert
nema „hræsnari" sem væri að koma
Bandaríkjunum til að reka „fjandsam-
lega heimsvaldastefnu" sem væri ekki
einungis hættulegt þeim sjálfum heldur
heiminum öllum. Hann telur einnig að
mannfall Bandaríkjamanna verði mikið,
verði ráðist inn í írak með herafli.
REUTERS
Bush endurnærður eftir helgardvöl í Camp Davld
George W. Bush veifar til fréttamanna eftir aö þyrla lenti meö hann á lóö
Hvíta hússins í gær.
^njókeðjur fyrir
farartæki.,..
Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiöendum
Tellefsdal - Trygg - OFA
Gunnebo-Weed
ELLUR.ti*
einum gracmim
Smiöjuvegur 8 - Kóp :
Sími: 577 6400
■■■■■■i^H
Skoðið heimasíðuna
okkar og kíkið á tilboðin
Erutn að taka
upp nýjar
jólavörur.
Bjóðum áfram
jólaafsláttinn!
A horni Laugavegar og Klápparstigs
Þrír gullsmiðir sem reka saman vinnustofu
og verslun að Laugavegi 37
þar sem þeir hanna og
smíða einstaka hluti.
Hlutir frá okkur fást einnig á Listasafni íslands.
H LUTAGERÐARFELAGIÐ
LAUGAVEGI 37 sírm 51 1 6262
Hvítagull- og aullhringur með
demöntum eftir Hörpu Silfurmen eftir Kjartan
Gullmen eftir Ástþór
Silfurermahnappar eftir Kjartan
Gullhringur
með
Hvítagullsmen með þremur
demöntum eftir Hörpu
demanti eftir Ástþór
Trúlofunarhringir eftir Kjartan